Þjóðviljinn - 27.08.1983, Síða 11
tV#* HV i -
— .tr ,*V'W
Helgin 27. - 28. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Bragi Ásgeirsson
sýnir á Akureyri:
Vona
ég veröi
ungur til
dauöadags
en er alltaf reiður
Bragi við eina myndina úr grafíkmöppunni sem er til sölu í Listmunahúsinu. „Ég mála mikið af konum - þær
eru fallegar“ segir hann. Ljósm. eik.
Mér finnst sjálfsagt að vera
með í að miðla list útiá
landsbyggðinni" sagði Bragi
Ásgeirsson myndlistarmaður, í
samtali við Þjóðviljann en hann
opnar sýningu í Listsýningarsal
Myndlistarskólans á Akureyri,
Glerárgötu 34, í dag, laugardag
27. ágúst, kl. 15. Sýningin
verðuropinvirkadagafrákl. 18
til 22 og laugardaga og
sunnudagafrákl. 15 til 22.
Henni lýkur 4. september.
- Ég hef aldrei haldið vel skipu-
' lagða sýningu norðan heiða fyrr,
segir Bragi. - Fyrir mörgum árum
sýndi ég á Hótel Varðborg en
myndirnar fóru illa í flutningunum
og voru sýndar þannig, hálf
skemmdar. Það er sj álfsagt að lyfta
Akureyri upp sem listabæ. Ég fer
norður og set sýninguna upp og
verð við opnunina. Sýningin verð-
ur með svipuðu sniði og sú sem
haldin var í Listmunahúsinu í
Reykjavík sl. vor. Þá var gefin út
mappa með fimm steinþrykks-
myndum eftir mig, 50 tölusett ein-
tök til sölu fyrir almenning. Af
þeim eru 25 þegar seldar. Mappan
kostar 15 þúsund krónur. Mynd-
irnar á sýningunni eru flestar unnar
í steinþrykk, eða málm, örfáar tré-
ristur verða með og nokkrar eru í
sáldþrykk. Samtals80 myndir. Þær
eru til sölu á viðráðanlegu verði.
Verðið fer eftir því hve mörg ein-
tök ég bý til af hverri. Mest bý ég til
25 eintök, oft 10-15 og stundum
aðeins 3-5. Verðið er frá 1400 upp í
11-12 þúsund.
Ég er að selja í fyrsta sinn myndir
sem ég hef átt í 25 ár. Ég hef hent
mörgum grafíkmyndum um dag-
ana en sé eftir því núna. Þá var ég
reiður, vanmetinn, ungur maður.
- Ertu hættur að vera reiður
ungur maður?
Bragi brosir þessu sérstaka brosi
sínu. Það umbreytir andliti hans
sem stundum er hart og mikilúð-
legt. Síðan segir hann: - Ég vona
að ég verði ungur til dauðadags. Ég
er alltaf reiður.
- Af hverju?
- Ég er geðríkur. Ég get ekki
fellt mig við ládeyðu. Ég vil líf í
kringum mig. Ég hef skömm á fólki
sem situr á rassinum og brosir í all-
ar áttir.
- Finnst þér margir gera það?
j - Flest fólk gerir það. Þannig
hefur það verið frá því sögur hóf-
ust. Það er hægt að gera miklu bet-
ur. Það væri til lítils að lifa ef ekki
væri hægt að gera betur.
- Ertu cnnþá bjartsýnn?
- Bjartsýnn og ekki bjartsýnn.
Ég gefst aldrei upp. Held alltaf
áfram. Bjartsýnis verðlaunin sem
mér voru veitt eru ekki veitt fyrir
yfirborðsbjartsýni. Ég ætla mér að
gera eitthvað og framkvæmi það,
hvort sem ég geri það grátandi eða
hlæjandi. Ég ætla mér að ná
markinu.
- Vinnurðu mikið?
- Ég vinn eins og brjálæðingur,
segir hann og kímir en verður fljótt
alvarlegur aftur. - í öllu mögulegu.
Á veturna kenni ég fulla kennslu í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Ég er fyrsti íslendingurinn sem
kenni grafík samfleytt, áður höfðu
bara verið haldin námskeið. Ég
byrj aði að kenna 1956 og hef kennt
síðan mis mikið. Eitt árið kenndi
ég frá níu á morgnana til tíu á
kvöldin. Ég skrifa mikið og svo
mála ég. Þetta verður síðasta sýn-
ingin á eldri grafíkmyndum mín-
um. í framtíðinni sýni ég nýjar
myndir.
- Það er mikið af konum í
myndum þínum.
- Já, ég hugsa mikið um konur.
Konur eru fallegar. Þær eru miklu
mýkri og líkami þeirra formfagurri
en líkami karla. Ég er alltaf þar sem
hættan er mest, segir hann og glott-
ir. Brún, stór augun horfa stríðnis-
lega út í fjarskann. „Konur skapa
vissa spennu, taugastríð, sem er
listamanninum nauðsynleg. Það
þarf kjarkmiklar konur til að eiga
samleið með listamönnum. f flest-
um tilvikum held ég að erfitt sé að
vera gift listamanni. Það er mikið
taugastríð. Línurit þeirra fer upp
og niður. Þeir verða að berjast með
hnúum og hnefum, stundum ríkir,
stundur bláfátækir. Flestir eru þeir
ánægðir ef þeir geta bara unnið.
Flestir miklir málarar hugsa lítið
um peninga. Verðið á verkum
þeirra hefur svo rokið upp eftir að
þeir eru dauðir og aðrir notið þess.
- Er málari jafn góður hvort sem
hann er ríkur eða fátækur?
- Margir hafa ekki þurft að hafa
áhyggjur af peningum, eru af efna-
fólki komnir, t.d. Cézanne og
Lautrec. Vel efnaðir listamenn lifa
oft meinlætalífi. Fátækir listamenn
vilja frekar lifa óhófslífi.
- Er erfitt fjárhagslega að vera
myndlistamaður á íslandi?
- Ef maður hugsar bara um
ánægjuna, ekki markaðinn, er lítil
ágóða von. ísland er gott land fyrir
myndlistamenn, góð birta, fallegt
landslag. Málarar þurfa að geta
unnið samfleytt. Þeir þurfa að vera
heilsuhraustir og vinna tvöfaldan
eða þrefaldan vinnudag til að
endar nái saman. Ef þeim gengur
of vel fjárhagslega, geta þeir lent í
vítahring skatta. Það hafa sumir
orðið að reyna.
Efni til málaralistar er dýrara á
íslandi en nokkru öðru Evrópu-
Iandi sem ég þekki til. Það er í sama
tollaflokki og kremdrulla fyrir
kvenfólk. Ég vona að málaralistin
sé varanlegri en þær skreytingar
sem konur mála á sig, segir Bragi
og brosir, „með fullri virðingu fyrir
kvenfólkinu" bætir hann ákveðinn
við og þar með ljúkum við viðtal-
inu og vonum að Akureyringar
njóti vel myndlistar Braga.
EÞ
Þaö er staöreynd, að Danfoss
ofnhitastillareru
orkusparandi og borga sig því
upp á skömmum tíma.
Auk þess veita þeir mikil
þægindi með jöfnum óskahita
í hverju einstöku herbergi.
Fyrir nokkru var skipt um á
öllum ofnum í Empire State
byggingunni í New York, sem
er 102 hæöir, og settir upp
Danfoss ofnhitastillar.
Erekkifull
ástæöa til aö þú setjir upp
ofnhitastilla hjá þér
þótt starfsemin sé aöeins
á einni hæö ?
HÉÐINN
SEUAVEGI2, REYKJAVÍK.SÍMI 24260