Þjóðviljinn - 27.08.1983, Side 28
DJQÐVHHNN
Helgin 27. — 28. ágúst 1983
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
í stýrið á Draupni er skorið krossmark en slíkt var algengt áður. Dæmi eru til að það hafi verið víðar í
skipum t.d. í austurtrogi. Undirrituð ásamt Ásgeiri Erlendssyni, vitaverði á Bjargtangavita og Bjarna
Jónssyni.
Perlan að Hnjóti
Egill Olafsson, bóndi oð Hnjóti í safni sínu, ásamt Vigdísi sem opnaði
safnið formlega í júní sl. Egill hefur safnað gömlum munum frá því hann
var 15 ára.
Fyrir u.þ.b. 40 árum hóf ungur
maðurfrá Hnjóti í Örlygshöfn við
Patrekskfjörð, að safna ýmsum
gömium munum sem tengdust
atvinnusögu byggðarlagsins.
Maðurinn heitir Egill Ólafsson og
var þá 15 ára. Allar götur síðan hefur
Egill safnað gömlum munum. Hann
bjó til vísi að minjasafni á heimiii
sínu að Hnjóti, en auðvitað nægði
það húsnæði ekki, svo farið var að
huga að byggingu safnahúss fyrir
munina. í júní sl. opnaðiVigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands,
safnið formlega í nýja húsinu.
Það var hátíðleg stund þegar safnið að
Hnjóti var opnað. Ekki bara athöfnin sjálf
heldur vegna þess hve safnið er einstakt í
sinni röð. Fórnfýsi Egils og atorka eru ein-
stök, þess verður gestur í safninu fljótlega
var. Það er ekki nóg með að þar sé að finna
fjölda gamalla muna sem gaman er að sjá,
uppsetning þeirra er svo smekkleg og mun-
ar þar ekki minnst um, hve vel hlutirnir eru
merktir með heitum og hvernig notkun
þeirra er útskýrð með myndum á veggjun-
um. Fyrir fólk af þeirri kynslóð sem ekki
man hlutina í notkun, er þetta tvennt
ómetanlegt og opnar sýn inn í atvinnu og líf
liðinna kynslóða.
Á efri hæð nýja safnahússins er fyrir
komið hlutum sem notaðir voru innandyra
en á neðri hæðinni eru ýmsir munir sem
tengjast sjávarútveg og hlunnindum lands-
ins. Þar er einnig áraskipið Draupnir, úr
Bjarneyjum sem róið var á mörgum stöðum
kringum Breiðafjörð. Nákvæm skýringar-
mynd af heitum á öllu innanborðs er við
hlið skipsins, teiknuð af Bjarna Jónssyni.
Bjarni teiknaði í allt 46 skýringarmyndir
sem settar eru upp við hlið þeirra muna sem
útskýrðir eru á myndunum. Bjarni teiknaði
allar skýringarmyndir í hið mikla verk
Lúðvíks Kristjánssonar, íslenskir sjávar-
hættir. Það verk hóf hann 1964. Á meðan á
þeirri vinnu stóð, kvaðst Bjarni hafa
skroppið af og til vestur að Hnjóti, því þar
var að finna ýmsa muni sem tengdust sjáv-
arútvegi sem hvergi voru til annars staðar.
Hluti af myndunum úr bókum Lúðvíks eru
á safninu að Hnjóti. Bjarni hefur einnig
teiknað skýringarmyndir við íslenska þjóð-
búninginn sem mun koma út í Orðabók
menningarsjóðs í vetur. Þær myndir eru við
íslenska búninginn í safninu. Bjarni kvaðst
eiga eftir að teikna fleiri myndir fyrir safnið
og er það vel, því þær auka gildi munanna.
Við athöfnina í sumar afhenti Egill Ólafs- _
son Vestur-Barðastrandar.sýslu safnið form-í
lega. Skyldi það bera heitið Minjasafn
Egils Ólafssonar. f safnstjórn eiga sæti tveir
til þrír menn úr sýslunefnd og Egill Ólafs-
son sem ersjálfkjörinn, svo og afkoinendur
hans eftir hans dag. Sýslunefnd sér um
rekstur safnsins í samráði við Þjóðminja-
safn. Aðdragandi þess að safnahúsið var
byggt er sá, að Egill fékk styrk frá
Þjóðminjasafni og hóf undirbúning bygg-
ingar í samráði við þjóðminjavörð. Eftir
það kom sýslunefnd inn í málið og 1976 var
kjörin byggingarnefnd. í henni áttu sæti:
Egill Ólafsson, Össur Guðbjartsson, Lág-
anúpi, Kollsvík og Bragi Thoroddsen, Patr-
eksfirði. Efnt var til hugmyndasamkeppni
um útlit hússins og áttu sæti í dómnefnd:
Davíð Davíðsson á Sellátrum í Tálknafirði
og Þórður Jónsson á Látrum. 1. verðlaun í
samkeppninni hlaut Magnús Gestsson,
Ormsstöðum, Dalasýslu. Er útlit hússins
mjög líkt byggingarlagi gamalla sjóbúða.
Ekki er þéttbýlt, né fjölmennt, við sunn-
anverðan Patreksfjörð en sú perla sem
safnið að Hnjóti er, á eflaust eftir að laða að
sér þá sem áhuga hafa á að kynnast broti úr
sögu þjóðar sem brotist hefur úr ánauð til
fullveldis, eins og Egill komst að orði við
opnunina. Sá er ekki svikinn sem leggur
leið sína að Hnjóti. Þegar þangað er komið,
er stutt að fara að Látrabjargi, annarri
perlu en annars kyns. EÞ.
I Áraskipið Draupnir úr Bjarneyjum er í safninu í sinni upp-
runalegu mynd.
I safninu eru 46 skýringarmyndir eftir
Bjarna Jónsson. Á þessum myndum er t.d.
sýnt hvaða aðferð var notuð þegar sigið var
í Látrabjarg. Sá búnaður er varðveittur á
safninu.
Texti E. Þ.
Myndir: G.M.O.