Þjóðviljinn - 02.09.1983, Blaðsíða 5
Föstudagur 2. september 19tó ÞJÓÐVIL'JÍNN - SÍÐA 5
Jóhannes Nordal stjórnaformaður
Landsvirkjunar. „Formaður kvaðst
mundu koma þessu á framfæri“.
Ljósrit af bréfi Sverris Hermannssonar
iðnaðarráðherra þarsem hann tilkynn-
ir samvinnu við stjórn Landsvirkjunar.
Bréfið er dagsett 23. júní sl. og er undir-
ritað af Páli Flygenring og Árna Árna-
syni fyrir hönd ráðherrans.
~?o > /.
iðnaðarrAðuneytið
ARNARHVOLt. REVKJAVlK
Stjórn Landsvirkjunar
Háaleitisbraut 68
105 REYK3AVÍK
móttekið
2 í; JUN 1983
LANDSVIRKJUN
TILV. RAOUNEYTIS
1/610 23. júní 1983
Iönaöarráöherra hefur með brefi, dags. 14. júní 1983,
skipað nefnd, "Samninganefnd um stóriðju", til þess að annast
viöræður og samninga um orkufrekan iðnað.
Eitt fyrsta verkefni nefndarinnar er að vinna að
samningum við Alusuisse, m.a. um hækkun raforkuverðs t i 1 Isal.
í því efni hefur nefndinni verið f a1ið að hafa nána samv inuu
við stjórn Landsvirkjunar, sem verður hinn formlegi
samningsaði1i um raforkuveróið.
Um leið og yður er tilkynnt þetta, er það ósk
ráðuneytisins, að góð samvinna takist milli
samninganefndarinnar og stjórnar Landsvirkjunar og að nefndin
megi njóta aðstoðar Landsvirkjunar í þessu máli.
Oafnframt hefur iðnaðarráðherra með bréfi, dags. 14. júní
1983, skipað aöra nefnd, " St ó r ið j une f nd " , sem. verði ráðherra
til ráðuneytis um stefnumörkun og tillögugerð um ráðstafanir
til þess að nýta orkulindir landsins til stóriðju. Nefndinni
hefur verið falið að hafa meöal annarra samráð við
L and svirkj un.
Ráöuneytió óskar einnig eftir góðri samyinnu og aðstoðar
stjórnar Landsv i rkjunar við nefndina.
Kúvendingar og sinnaskipti
Stefnubreyting
Landsvirkj un
Framsóknarmenn komu ekki upp orði
Jóhannes Nordal stjórnarfor-
maöur Landsvirkjunar sagði á
stjórnarfundi fyrirtækisins í gær,
að samninganefndin við Alu-
suisse og iðnaðarráðherra hefðu
ákveðið að ræða ekki við stjórn
Landsvirkjunar né leita neins
konar samvinnu við Landsvirkj-
unarstjórn um stefnuna í samn-
ingum sem fram fara á næstunni
við stærsta orkukaupandann,
auðhringinn Alusuisse.
Stjórn Landsvirkjunar og for-
maður hennar sérstaklega hafa
ævinlega lagt áherslu á samráð
þegar samningar við Alusuisse
hafa verið á döfinni. Þannig segir
Jóhannes Nordal í bréfi til
iðnaðarráðherra í nóvember sl.
að stjórn Landsvirkjunar bendi
enn á ný „á réttarstöðu Lands-
virkjunar sem beins samnings-
aðilja um orkusölu til ÍSAL og
ítrekar þá skoðun sína, að hún
hljóti að eiga aðild að viðræðum
um allar breytingar á orkusölus-
amningum“.
„Ósk ráðuneytisins“
Sverrir Hermannsson lét senda
stjórn Landsvirkjunar bréf 23.
júní sl. þarsem segir að það sé
„ósk ráðuneytisins, að góð sam-
vinna takist milli samninganefnd-
arinnar (um raforkusölu til Alu-
suisse) og stjórnar Landsvirkj-
unar“. Formaður þessarar samn-
inganefndar er Jóhannés Nordal
en formaður stjórnar Landsvirkj-
unar er einnig sami Jóhannes.
Lögð fram beiðni
Á næst síðasta fundi stjórnar
Landsvirkjunar var einhverjum
stjórnarmönnum farið að leiðast
biðin eftir þessu „samráði“ en
nokkrir samningafundir höfðu þá
verið haldnir. í bókun frá fulltrúa
Alþýðubandalagsins Ólafi Ragn-
ari Grímssyni er lýst furðu yfir því
að ekkert samráð hefði verið haft
við stjórn Landsvirkjunar vegna
samninga við Alusuisse.
í bókun frá þessum næst síð-
asta fundi segir að Olafur Ragnar
hafi farið „þess á leit við stjórn-
arformann, að hann kæmi þess-
ari athugasemd sinni á framfæri
við fulltrúa íslands í yfírstand-
andi viðræðum við Alusuisse
ásamt ósk um að stjórn Lands-
virkjunar yrði gerð grein fyrir
gangi viðræðnanna. Formaður
kvaðst mundu koma þessu á
framfæri“.
Snúið við blaðinu.
Blásið á samvinnu
Á stjórnarfundi Landsvirkjun-
ar í gær var Jóhannes Nordal
stjórnarformaður inntur eftir
viðbrögðum við þessari beiðni.
Jóhannes kvað samninganefnd-
ina við Alusuisse og iðnaðarráð-
herra hafa ákveðið að ræða ekk-
ert yfirstandandi samninga við
Alusuisse á stjórnarfundum
Landsvirkjunar. Hann teldi enga
ástæðu til að haft yrði samráð við
stjórn Landsvirkjunar um þessa
samninga, áður en viðræður
héldu áfram. Pá var hann inntur
eftir því, hvort hann talaði sem
stjórnarformaður Landsvirkjun-
ar ellegar sem formaður samn-
inganefndarinnar, en það mál
komst ekki á hreint á þessum
fundi.
F ramsóknarmenn
hnípnir
Jóhannes Nordal, sem auk
áðurnefnds er ma. Seðlabanka-
stjóri og ráðgjafi ríkisstjórnar-
innar í mörgum málum, var í
nokkrum flýti, þarsem hann var á
leiðinni á ríkisstjórnarfund. Þeg-
ar fulltrúi Alþýðubandalagsins
fór fram á annan fund um þetta
mál, spurði Jóhannes hvort ein-
hver annar stjórnarmanna tæki
formlega undir þá beiðni, en svo
reyndist ekki vera. Meðal stjórn-
armanna á þessum fundi voru
þeir Baldvin Jónsson Alþýðu-
flokki, Páll Pétursson, Fram-
sóknarflokki og Kristján Bene-
diktsson sömuleiðis í Framsókn-
arflokki. Þeir sátu fölir og hljóðir
undir þessari kúvendingu Jó-
hannesar Nordal og Sverris Her-
mannssonar.
Samningar án samvinnu
Einsog fram hefur komið í
fjölmiðlum, eru taldar miklar lík-
ur á því að samningum um raf-
orkuverð við Alusuisse-hringinn
verði gerður á næsta fundi samn-
inganefnda ríkisins og Alusuisse.
Áður en til þess kemur, hefur
stjórn Landsvirkjunar ekki feng-
ið neina skýrslu um gang
viðræðnanna hvað þá að leitað
hafi verið samvinnu. Dótturfyrir-
tæki Alusuisse, ÍSAL, kaupir um
helming allrar raforku, sem
Landsvirkjun framleiðir.
-óg
Bílbeltahappdrætti Umferðarráðs
Dregið um 12 viiminga
Dregið hefur verið í bílbelta-
happdrætti Umferðarráðs 31. ág-
úst 1983. Vinningar komu á eftir-
talin númer:
Nr. 29958 endurryðvörn á
bíl/Ryðvarnarskálinn, nr. 18779
„Klippan" barnabílstóll/Veltir hf.,
nr. 8204 mótorstilling/Sveinn Eg-
ilsson hf., nr. 21422, 1145» 17595,
25955,12848 og 20658 „Bílapakki“
til umferðaröryggis/bifreiðatrygg-
ingafélögin, nr. 35709, 45010 og
17163 „Gloría“ slökkvitæki og
skyndihjálparpúði R.K.f./olíufé-
lögin.
Auk þess eru ósóttir vinningar
eftirtalin númer: 1213, 3659, 4828,
10718,12673,13431,14355,15150,
16043,16582,17255,18053,19817,
19999,21040,23060,26434,28301,
28803,28992,29294,32187, 34020,
34535,37416,37417,37579,37893,
38406,38584,40075,40083,40752,
40860,40978,41043,44180,45580.
Alþjóðleg
skiptinemasamtök
Óskum eftir að ráða starfsmann á skrifstofu
okkar. Vinnutími frá kl. 13.-17. Starfið er fólg-
ið í erlendum bréfaskriftum og daglegum
rekstri skrifstofunnar. Góð enskukunnátta
nauðsynleg. Þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 13. þ.m.
Nemendaskipti þjóðkirkjunnar (ICYE)
Fríkirkjuvegi 11, Reykjavík.
Sunnudags-
blað
Þjóðviljans
kemur í
fyrramálið!
Meðal efnis má nefna:
„Hefekki skrifað mig á
áskriftarlista að þing-
sœti“, segir nýráðinn
framkvœmdastjóri
Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, Þröstur
Ólafsson, í helgarviðtali
Sunnudagsblaðs Þjóð-
viljans.
Blaðamenn Þjóðviljans
slógust íför meðforn-
leifafrœðingum austurá
hinn svarta Skeiðarár-
sand þarsem hollenska
farið „Het Wapen van
Amsterdam“ er talið
liggja.
„Við sjáum að Hvatar-
konur og aðrar Sjálf-
stœðiskonur hafa í
Morgunblaðinu lesið
pistla Billýs Grahams
um stöðu konunnar í
samfélaginu“ segir
háðfuglinn Flosi meðal
annars í pistli sínum
í Sunnudags-
blaði Þjóðviljans.
Sunnudagsblað
Þjóðviljans
Áskriftarsími:
81333