Þjóðviljinn - 16.09.1983, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.09.1983, Síða 7
Föstudagur 16. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Stórátak í uppbyggingu fjölsóttra ferðamannastaða Samkvæmt fjárhagsáætlun Ferðamálaráðs fyrir yfirstandandi ár verður varið 2.2. milj. kr. til umhverfismála og endurbóta á fjöl- sóttum fcrðamannastöðum víðs vegar á landinu. Hér er um að ræða meira fjármagn en nokkru sinni fyrr hefur verið varið til þessara verkefna. Verkefnin, sem fyrir lágu, voru mörg og var því ljóst, að ekki væri hægt að sinna þeim öllum. Nokkur voru talin brýnni en önnur og því ákveðið að sinna þeim fyrst. Hér á eftir verða talin þau verkefni, sem lokið er við. Herðubreiðarlindir: Stærsta verkefnið var bygging á yatnssnyrt- ihúsi og kaup á sorpbrennsluofni. Hornstrandir: Keypt hafa verið salerni og sorpbrennsluofnar, sem settir hafa verið upp í samvinnu við Ferðafélag ísafjarðar. Mývatnssveit: Haldið var áfram göngustígagerð í Dimmuborgum, en það verk hófst á sl. ári og ætti það að verða til þess að vernda þetta einstæða náttúruundur og auðvelda ferðafólki að skoða sig um. Einnig var samþykkt að setja upp auglýsinga- og aðvörunarskilti í Námaskarði. Eru þessar fram- kvæmdir gerðar í samvinnu við Skútustaðahrepp. Flatey á Breiðafirði: Gert hefur verið tjaldsvæði og sett upp salerni við það. Er framkvæmdin gerð í samvinnu við Flateyrarhrepp. Landmannalaugar: Keypt hafa verið tvö salerni og einn sorp- brennsluofn. Mikill fjöldi ferða- fólks kemur þangað árlega og þurf- ti því að bæta aðstöðu ferðafólks þar. Var það gert í samvinnu við Náttúruverndarráð og Ferðafélag fslands. Dettifoss: Sett hefur verið upp salerni og ruslagrindur og svæðið verið hreinsað. Fyrirhuguð er gerð göngustíga í samvinnu við Náttúru- verndarráð. Breiðamerkurlón: Ferðamála- ráð greiðir kostnað við reglulega hreinsun svæðisins. Gullfoss: Ferðamálaráð greiðir fyrir eftirlit með svæðinu í kringum fossinn og salernum. Grýta: Veitt var fjárhagsaðstoð vegna lagfæringa á umhverfi Grýtu í Hveragerði. Auglýsingar: Með auglýsingum í fjölmiðlum hafa ferðamenn verið hvattir til góðrar umgengni um landið. Edda/Norröna: Ferðamálaráð hefur í sumar, í samvinnu við fleiri aðila, rekið auglýsingaskrifstofu í ferjunum báðum. Eru þar gefnar upplýsingar urn færð á vegum, náttúruverndun, ferðamöguleika o.fl. Frekari úrbætur: Fyrirhugað er að vinna áfram að umhverfismálum á þessu hausti og um leið undirbúningi að fram- kvæmdum, sem gætu hafist næsta vor. Verkefnin eru nánast óþrjót- andi og víða er skjótra úrbóta þörf. Eitt þeirra er uppbygging ferða- þjónustu í Þjórsárdal í samvinnu við fleiri aðila. - mhg Réttadagar í næstu viku Fyrir nokkrum dögum birtum við skrá yfir þær réttir sem fyrirhugað var að yrðu í þessari viku, eða allt fram á n.k. iaugardag. Hér kemur þá framhald- ið: Fossvallaréttir við Lækjarbotna, sunnudagur 18. sept. Kaldárréttir við Hafnarfjörð, sunnudagur 18. sept. Kirkjufellsréttir í Haukadal, Dal., sunnudagur 18. sept. Mælifellsréttir, Skagafirði, sunnudagur 18. sept. Skrapatunguréttir í Vindhælishreppi, sunnudagur 18. sept. Fellsendaréttir í Miðdölum, mánudagur 19. sept. Hafravatnsréttir í Mosfellssveit, mánudagur 19. sept. Húsmúlaréttir við Kolviðarhól, mánudagur 19. sept. Kaldárbakkaréttir í Kolbeinsstaðahreppi, mánu- dagur 19. sept. Nesjavallaréttir í Grafningi, mánudagur 19. sept. ÞingvallaréttiríÞingvallasveit, mánudagur 19. sept. Þórkötlustaðaréttir við Grindavík, mánudagur 19. sept. Þverárréttir í Eyjahreppi, Snæf., mánudagur 19. sept. Arnarhólsréttir í Helgafellssveit, þriðjudagur 20. sept. Gjábakkaréttir í Þingvallasveit, þriðjudagur 20. sept. Kjósarréttir í Kjósarsýslu, þriðjudagur 20. sept. Kollafjarðarréttir á Kjalarnesi, þriðjudagur 20. sept. LaugarvatnsréttiríLaugardal, þriðjudagur20. sept. Mýrdalsréttir í Kolbeinsstaðahreppi, þriðjudagur 20. sept. Klausturhólaréttir í Grímsnesi, miðvikudagur 21. sept. Langholtsréttir í Miklaholtshreppi, miðvikudagur 21. sept. Selflatarréttir í Grafningi, miðvikudagur 21. sept. Selvogsréttir í Selvogi, miðvikudagur 21. sept. Skaftártunguréttir í Skaftártungu, miðvikudagur 21. sept. Svarthamarsréttir á Hvalfjarðarströnd, miðviku- dagur 21. sept. Vatnsleysustrandarréttir á Vatnsleysuströnd, mið- vikud. 21. sept. Ölfusréttir í Ölfusi, fimmtudagur 22. september Ölkelduréttir í Staðarsveit, fimmtudagur 22. sept- ember. Stóðréttir: Skarðsréttir í Skagafirði, sunnudagur 18. septemb- er. Reynistaðarréttir í Skagafirði, sunnudagur 18. sept- ember. Silfrastaðaréttir í Skagafirði, sunnudagur 18. sept- ember. Laufskálaréttir í Hjaltadal, laugardagur 24. sept- ember. Auðkúluréttir í Svínadal, sunnudagur 25. septemb- er. Undirfellsréttir í Vatnsdal, sunnudagur 25. sept- ember, Víðidalstunguréttir í Víðidal, sunnudagur 25. sept- ember.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.