Þjóðviljinn - 16.09.1983, Page 10

Þjóðviljinn - 16.09.1983, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJÍNNFöstudagUr" 16. September 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Sigurður Rannveig Alþýðubandalagiö Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fyrsti fundur bæjarmálaráös ABH á nýbyrjuöu starfsári veröur haldinn í Skálanum Strandgötu 41, kl. 20.30 mánudaginn 19. sept. Dagskrá: 1) Nýtt miöbæjarskipulag fyrir Hafnarfjörð. Kæra RT vegna breikkun- ar Lækjargötu. Rannveig Traustadóttir og Sigurður Gíslason skýra máliö. 2) Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarfund 20. n.k. 3) Önnur mál. Áríðandi er aö allir nefndarmenn ABH mæti á þennan fund bæjarmála- ráðs. Þá skal minnt á aö fundir ráösins eru opnir öllum félagsmönnum. Fjölmennum. Stjórn Bæjarmálaráðs ABH Alþýðubandalagið Selfossi og Hveragerði Sameiginlegur fundur Alþýöubandalagsfélaganna á Selfossi og í Hveragerði um laga og skipulagsmál veröur haldinn aö Kirkjuvegi 7, Selfossi, miövikudaginn 21. september kl. 20.30. Adda Bára Sigfúsdóttir og Olafur Ragnar Grímsson mæta á fundinn og kynna tillögur laga- og skipulagsnefndar og svara fyrirspurnum. Félagar eru hvattir til að mæta vel. Stjórnir félaganna Alþýðubandalagið í Reykjavík Starfshópar Á næstu dögum og vikum taka til starfa á vegum Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík starfshópar um margvíslega málaflokka. Markmið starfshópana er að móta tillögur ABR sem lagðar verða fyrir landsfund Alþýðubandalagsins 17.-20. nóvember. Starf hópanna er opið öllum félagsmönnum og hvetjum við sem flesta aö taka þátt í starfinu. Fundir hópana veröa auglýstir í flokksdálki Þjóöviljans nú á næstu dögum. Eftirtaldir hópar munu starfa: Starfshópar um laga- og skipulagsmál: Umsjón: Arthúr Morthens og Guöójörg Siguröardóttir Starfshópur um utanríkis- og friðarmál: Umsjón: Helgi Samúelsson. Starfshópur um húsnæðismál: Umsjón: Einar Matthíasson. Starfshópur um efnahags- og kjaramál: Borghildur Jósúadóttir. Starfshópur um menntamál: Umsjón: Stefán Stefánsson Starfshópur um sjávarútvegsmál: Umsjón: Ólafur Sveinsson Starfshópur um örtölvumál: Umsjón: Þorbjörn Broddason Starfshópur um náttúruverndarmál Fundir ofanskráöra hópa veröa auglýstir næstu daga. Allar frekari upplýsingar veita umsjónarmenn og skrifstofa ABR. Stjórn ABR Alþýðubandalagið Reykjavík Starfshópur um menntamál Fyrsti fundur starfshóps um menntamál veröur miðvikudaginn 28. september kl. 20.30 aö Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. Umsjónarmenn d .UcWWo t,- , GRUNNSKOLANAM FYRIR FULLORÐNA Tilkynning til þeirra sem hættu námi eftir barnaskóla eða í fyrri hluta gagnfræðanáms. Námsflokkar Reykjavíkur starfrækja deild sem ætluð er fullorðnum er vilja fara yfir eða rifja upp námsefni til grunnskólaprófs. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í slíku námi eru beðnir að hafa samband við Náms- flokkana þriðjudaginn 20. sept. milli kl. 17 og 19. NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR Landsþing samvinnustarfsmanna: HúsnæðismáÖn sérmál næsta aðalfundar SIS Sjötta landsþing Sambands ísl. samvinnustarfsmanna var haldið í Bifröst 3. og 4. sept. sl. Var þar sérstaklega minnst 10 ára afmælis samtakanna. Fráfarandi formað- ur, Þórir Páll Guðjónsson, setti þingið en þingforsetar voru þeir Jó- hann Steinsson, Reykjavík og Gísli Gunnlaugsson, Búðardal. Við þingsetninguna fluttu þeir ávörp Bo Carlberg frá Samtökum norrænna samvinnustarfsmanna, Hörður Zóphoníasson frá stjórn SÍS, Jón Eggertsson frá ASÍ, Jó- hannes Bekk Ingason frá Nemend- asambandi Samvinnuskólans, Ólafur Friðriksson frá Félagi kaupfélagsstjóra og Þórður J. Magnússon frá Félagi lífeyrisþega. Að kvöldi fyrri fundardagsins var haldin afmælishátíð þar sem fluttar voru ræður og ávörp og LSÍ færðar góðar gjafir svo sem safn bóka um samvinnumál frá Sam- bandinu og fáni með merki Lands- sambandsins frá fyrrverandi stjórnarmönnum þess. Þá var starfsmanni LÍS og fyrsta for- manni, Reyni Ingibjartssyni, færð- ur að gjöf frá samtökunum, áletr- aður pennahnífur með þökkum fyrir mikil og fórnfús störf í þágu þeirra um 10 ára skeið. Kjaramál Meðal mála, sem þingið ályktaði um voru kjaramál og var svohljóð- andi ályktun samþykkt: Sjötta þing LÍS „vill marka þá stefnu að LÍS, starfsmannafélög og stéttarfélög vinni sameiginlega að samningum um kaup og kjör og öðrum hagsmunamálum samvinn- ustarfsmanna við Vinnumálasam- band samvinnufélaganna og beinir því til væntanlegrar stjórnar að hefja viðræður við verkalýðshreyf- inguna um samvinnuleiðir í þessu efni. - Þingið bendir á að efla beri gagnkvæman skilning aðila á þeim hagsmunamálum hreyfinganna, sem hæst ber hverju sinni. - Þingið hvetur samvinnustarfsmenn um allt land til að auka virkni sína innan stéttarfélaganna og koma þannig á framfæri hagsmunalegri þekkingu sinni“. Ný samvinnuverkefni í ályktun um þau segir m.a. að brýnt sé „fyrir samvinnuhreyfing- una á landinu að huga stöðugt að nýjum samvinnuverkefnum og vera tilbúin að takast á við ný svið“. Sérstaklega sé brýnt nú „að huga að húsnæðismálum og þeim vanda, sem þar blasir við, ekki síst hjá ungu fólki og öldruðu. Þingið telur sérstaklega áhugaverða í þessu sambandi hugmyndina um stofnun húsnæðissamvinnufélaga, sem störfuðu á sama hátt og hlið- stæð félög á Norðurlöndum, sem þar eru víða leiðandi í því að leysa húsnæðisþörf fólks. Þessi félög eiga húsnæðið, en íbúarnir og fé- lagsmennirnir búseturétt, sem er ákveðinn hluti af verðmæti íbúðar- innar hverju sinni. Þessi búsetu- réttur veitir eiganda hans tryggingu fyrir húsnæðinu svo lengi, sem hann dvelur í því. - Þingið hvetur til þess að sem fyrst verði myndað- ur starfshópur með þátttöku aðila frá LÍS, Sambandinu o.fl. aðilum innan samvinnuhreyfingarinnar um húsnæðisvandann og nýjar leiðir til lausnar og þessi starfshóp- ur skili tillögum sínum til næsta að- alfundar SIS. Æskilegt væri að þetta mál gæti orðið sérmál aðal- fundarins. Þar verði mótaðar til- lögur um aðgerðir í þessum málum næstu 3 til 5 ár“. Fiskirækt o.fl. „Landsþingið telur að fiskirækt sé kjörið samvinnuverkefni, ekki síst í sveitum landsins, og beinir því til deildarstjórna í kaupfélögum og sveitarfélaga að mynda samvinn- ufélög á tilteknum svæðum um fiskirækt, sem síðan nytu viðskipta og fyrirgreiðslu af ýmsu tagi í gegn- um kaupfélagið á félagssvæðinu. Hlutverk Sambandsins á svo að vera það, að vera hér til ráðgjafar og stuðnings. Einnig þarf að huga meira að stofnun framleiðslusamvinnufé- laga í ýmsum smáiðnaði, þar sem félagsmenn eru eigendur og stjórn- endur. Þau framleiðslusamvinn- ufélög, sem hér hafa starfað, hafa sýnt að þessi þáttur í samvinnu- starfinu á mikla framtíð fyrir sér, sé vel að honum hlúð“. Ákveðið var að næsta fram- kvæmdastjórn LÍS yrði skipuð fulltrúum af Norðurlandi og eru þeir þessir: Birgir Marinósson, Ak- ureyri, formaður, Júlíus Thorar- ensen, Akuréyri, Gylfi Guðmars- son, Akureyri, Kári Sigurðsson, Húsavík og Guðjón Finnbogason, Sauðárkróki. Auk þeirra sitja svo í aðalstjórn næstu 2 árin: Gunnar Sigurjónsson, Katrín Maríasdóttir, bæði í Reykjavík, Gylfi Pálmason, Bifröst, Jón Kristjánsson, Egils- staðakauptúni, Kristjana Sigurðar- dóttir, ísafirði og Matthías Péturs- son, Hvolsvelli. - mhg Pökkunardagur I Verðpc Verðkr. iAustmat hf: Nýjungar í kjöt- yöruframleiðslu Ennþá er engin kísilm- álmverksmiðja risin á Reyðarfirði og má hamingjan vita hvenær hún kemst á laggirnar. Aftur á móti starfar þar ágætis fyrirtæki, sem nefnist Austmat hf. og hjá því vinna 10 manns. Austmat hf. er kjötiðnaðarfyrir- tæki og framleiðir það margskonar unnar kjötvörur. Meðal kjötvöru- tegunda Austmats hf. eru nokkrar, sem hvergi eru framleiddar annars- staðar á landinu. Má þar t.d. nefna hreindýraspekkpylsu, (sbr. með- fylgjandi mynd) og English Count- ry Pork Sausages en hráefnið í þeim rétti er svínakjöt, grísaspekk, mjöl, salt og krydd. Og hver fær nú ekki vatn í munninn? - mhg Samkeppni hjá Húsnœðisstofnun: Vinnu- og snyrtirými Húsnæðisstofnun ríkisins cfnir til hugmyndasamkeppni um vinnu- | og snyrtirými í íbúðum. Markmið- 1 ið með samkeppni er að fá fram ‘ nýjar hugmyndir um form, innréttingar og jafnframt samteng- ingu þcssara vistarvera. Heildarverðlaunafé er kr. 140 þúsund og fyrstu verðlaun verða ekki lægri en krónur 60 þúsund. Heimild til þátttöku hafa allir ís- lenskir ríkisborgarar og útlending- ar, sem verið hafa búsettir hér á landi í tvö ár eða lengur. Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyni, framkvæmdastjóra Byggingarþjónustunnar, Hallveig- arstíg 1, Reykjavík. Tillögum ber að skila til trúnaðarmanns eigi síð- ar en þriðjudaginn 22. nóvember kl. 18.00. í dómnefnd eiga sæti: Anna Guðmundsdóttir, kennari, ritari dómnefndar, Grétar J. Guð- mundsson, verkfræðingur, Guðni Pálsson, arkitekt, formaður dóm- nefndar, Klaus Holm, arkitekt, og Kristín Guðmundsdóttir, hfbýla- fræðingur. Landssamband lífeyrissjóða Spariféð sé verndað Stjórn Landssambands lífeyris- sjóða hefur skorað á stjórnvöld að standa vörð um verðmæti sparifjár og bendir á að skerðing lánskjara- vísitölunnar rýri eignir lífeyrissjóð- anna og muni bitna á lífeyris- greiðslum frá sjóðnum. í frétt frá stjórn Landssambands lífeyrissjóða segir að lífeyrissjóð- irnir hafi á undanförnum árum ver- ið meginuppspretta sparnaðar á ís- landi og hafi þeir gegnt veigamiklu hlutverki í fjármögnun íbúðar- húsnæðis. Muni svo verða enn um skeið. Bent er á að af þessum sökum sé það mikilvægt að stjórnvöld sjái til þess að fjármagn sem safnist hjá sjóðunum, rýrni ekki í verðbólgunni eins og reyndin hafi verið á til skamms tíma. Stjórn Landssambands lífeyris- sjóða bendir á að fé til útlána myndist aðeins við það eitt að sparnaður aukist. Skerðing láns- fjár sé örugglega ekki leiðin að því marki. . - v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.