Þjóðviljinn - 12.11.1983, Blaðsíða 25
■Jíf'J i/iiirw-Vi ,‘i\ .íl >.13;«:fí /i-rj jívf'* •«<' - AG-'f' K
Helgin 12-. 12. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 25
útvarp
laugardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleik-
ar. Þulur velur og kynnir.7.25 Leiktimi
Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir
Morgunorð - Jón Helgi Þórarinsson
talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr,.). Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Stephens-
en kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.) Óskalög sjúklinga frh.
11.20 Hrímgrund. Útvarp barnanna Stjórn-
endur: Sólveig Halldórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.50 Listalíf Umsjón: Sigmar B. Hauks-
son.
15.00 Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik Hermann Gunnarsson lýsir
siðari hálfleik KR og Berchem frá Lux-
emburg i Laugardalshöll.
15.50 Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál Ásgeir Blöndal Magnús-
son sér um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón:
Einar Karl Haraldsson.
17.00 Síðdegistónleikar Sinfóníuhljóm-
sveit útvarpsins í Nlúnchen leikur
„Leónóru" forleik nr. 2 eftir Ludwig van
Beethoven. Eugen Jochum stj. / Benny
Goodman og Sinfóníuhljómsveitin í
Chicago leika Klarínettukonsert nr. 1 í
f-moll op. 73 eftir Carl Maria von Weber.
Jean Martinon stjr. / Sinfóníuhljómsveitin
í Boston leikur Sinfóníu nr. 8 í h-moll eftir
Franz Schubert; Eugen Jochum stj.
18.00 Af hundasúrum vallarins - Einar
Kárason.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Enn á tali. Umsjón Edda Björgvins-
dóttir og Helga Thorberg.
20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Dómhildur
Sigurðardóttir. (RÚVAK).
20.10 Útvarpssaga barnanna: „Peyi“ eftir
Hans Hansen Vernharður Linnet lýkur
lestri þýðingar sinnar (7).
21.15 Á sveitalínunni Þáttur Hildu Torfa-
dóttur, Laugum i Reykjadal (RÚVAK).
22.00 Úr bókinni „36 Ijóð" eftir Hannes
Pétursson Hjalti Rögnvaldsson les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón: Högni
Jónsson.
23.00 Kvartett Garry Burtons á tónleikum
i Gamla biói í mái i vor. Vernharður
Linnet kynnir síðari hluta.
24.00 Listapopp Endurtekinn þáttur Gunn-
ars Salvarssonar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
sunnudagur
8.00 Morgunandakt Séra Lárus Guðmunds-
son prófastur i Holti flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir.
sjónvarp
laugardagur
16.15 Fólk á förnum vegi (People You
Meet) 2. Málverkið Enskunámskeið í 26
þáttum.
16.30 íþróttir Umsjónarmaður Ingólfur
Hannesson.
18.30 Innsiglað með ástarkossi Annar
þáttur. Breskur unglingamyndaflokkur í
sex þáttum. Þýðandi Ragna Ragnars.
18.55 Enska knattspyrnan Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ættaróðaliö Annar þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í sex þáttum. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Það eru komnir gestir Steinunn
Sigurðardóttir tekur á móti gestum i
sjónvarpssal. Þeir eru hjónin Margrét
Matthiasdóttir og Hjálmtýr Hjálmtýsson
og dóttir þeirra Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Steinunn ræðir við gestina milli þess sem
þeir syngja innlend og erlend lög. Við
píanóið er Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Upptöku stjórnaði Tage Ammendrup.
22.55 Dauðinn á Níl (Death on the Nile)
Bresk bíómynd frá 1978 gerð eftir saka-
málasögu eftir Agöthu Christie. Leikstjóri
John Guillermin. Aðalhlutverk: Peter
Ustinov, Bette Davis, Ðavid Niven, Mia
Farrow og Angela Lansbury. Leynilög-
reglumaðurinn víðkunni, Hercule Poirot
er á ferð í Egyptalandi og tekur sér far
með fljótabáti í skoðunarferð á Níl. En
ekki líður á löngu áður en dularfullir
atburðir gerast og í Ijós kemur að morð-
ingi leynist í farþegahópnum. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
00.15 Dagskrárlok.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög Drengjakórinn í Vínar-
borg syngur lög eftir Johann Strauss og Don
kósakka-kórinn syngur rússnesk þjóðlög.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar a. Sinfónia i B-dúr
eftir Joseph Haydn. Enska kammersveitin
leikur. Salvatore Accardo stj. b. Píanókons-
erf nr. 4 i G-dúr op. 58 eftir Ludwig van
Beethoven. Daniel Barenboim og Nýja fíl-
harmóniusveitin í Lundúnum leika. Otto
Klemperer stj.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls Jóns-
sonar.
11.00 Messa i Háteigskirkju á
kristniboðsdegi Skúli Svavarsson
kristniboði prédikar. Sr. Tómas Sveinsson
þjónar fyrir altari. Organleikari: Orthulf
Prunner. Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
13.30 Vikan sem var Umsjón: Rafn Jónsson.
14.15 Surtsey 20 ára Dagskrá byggð á
gömlum fréttaaukum og viðtölum við vís-
indamenn. Umsjón: Ari Trausti Guðmunds-
son.
15.15 í dægurlandi Svavar Gests kynnir tón-
list fyrri ára. I þessum þætti: Oscars-
verðlaunalög 1968-1982.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Um starfsemi Háskóla íslands Guð-
mundur Magnússon rektor flytur sunnu-
dagserindi.
17.00 Kirkjusöngur siðbótarmannsins í
Wittenberg 500 ára minnig Marteins Lút-
hers. Dr. Hallgrímur Helgasori flytur erindi
með tóndæmum. Kór Langholtskirkju syng-
ur undir stjórn Jóns Stefánssonar.
18.00 Það var og... út um hvippinn og hvapp-
inn með Þráni Bertelssyni.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
f9.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Á bökkum Laxár Jóhanna Steingrims-
dóttir i Árnesi segir frá (RÚVAK).
19.50 „Óskrifuð sendibréf', Ijóð eftir Þór-
unni Magneu Höfundur les.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi: Guð-
rún Birgisdóttir.
21.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti rnanns"
eftir André Malraux Thor Vilhjálmsson les
þýðingu sina (21)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Pálsdóttir (RÚ-
VAK).
23.00 Djass: Sveifluöld 2. þáttur- Jón Múli
Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
JS
\
sunnudagur
16.00 Sunnudagshugvekja Baldur Kríst-
jánsson guðfræðinemi flytur.
16.10 Húsið á sléttunni Nýr flokkur -
Fyrsti þáttur. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur, framhald fyrri þátta um
Ingallshjónin i Hnetulundi og börn þeirra.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 Frumbyggjar Norður-Ameríku Nýr
flokkur 1. Cherokee-indíánar og 2.
Siðmenntuðu kynflokkarnir fimm
Breskur heimildarmyndaflokkur um þjóð-
félagsstööu og líf indíána i Bandaríkjun-
um nú á tímum. Jafnframt er vikið að
sögu þeirra og samskiptum við hvíta
menn fyrr á tímum. Þýðandi og þulur Ingi
Karl Jóhannesson.
18.00 Stundin okkar Umsjónarmenn Ása
H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marels-
son. I Stundinni verður skoðað æðarvarp
i Akurey, sýndar teiknimyndir um Mytto
og Smjattpatta, tannfræðslan heldur
áfram og sagan af Krókópókó, Ása segir
frá Kina og kínverskir fjöllistamenn leika
listir sínar. Upptöku stjórnaði Elin Þóra
Friðfinnsdóttir.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjónarmað-
ur Magnús Bjarnfreðsson.
20.55 Glugginn Þáttur um Isitir, menning-
armál og fleira. Umsjónarmaður Svein-
björn I. Bladvinsson. Upptöku stjórnaði
Viðar Vikingsson.
21.45 Wagner Áttundi þáttur. Framhalds
myndaflokkur i tiu þáttum um tónskáldið
Richard Wagner. Efni 7. þáttar: Lúðvík2.
Bæjarakonungur bíður óþolinmóður eftir
því að óþera Wagners „Tristan og Isold"
verði frumsýnd. Margt gengur þó á
afturfótunum. Lögtaksmenn heimsækja
Wagner vegna gamalla skulda, en Co-
sima verður honum til bjargar. Óþeran er
sýnd við góðar undirtektir, og framtíðin
virðist björt. En ráðgjöfum konungs finnst
að hann verði að snúa sér meir að
málefnum ríkisins sem hann hafi alveg
gleymt vegna áhugans á Wagner. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson,
22.45 Dagskrárlok
mánudagur
7.00 Veðurfreegnir. Fréttir. Bæn. Séra Frank
M. Halldórsson flytur (a.v.d.v.). Á virkum
degi - Stefán Jökulsson - Kolbrún Hall-
dórsdóttir — Kristín Jónsdóttir. 7.25 Leikfimi.
Jónina Benediktsdóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Anna Hugadóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að
vagnhjóli" eftir Meindert DeJong Guðrún
Jónsdóttir lýkur lestri þýðingar sinnar (32).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Lóa Guðjónsdótfir.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Signýjar Páls-
dóttur frá sunnudagskvöldi (RÚVAK).
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Lög við Ijóð Kristjáns frá Djúpalæk
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Bjömsson
sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra
Ingvadóttir.
14.30 islensk tónlist Halldór Haraldsson
leikur „Fingrarím" og „Hveraliti", tvö píanó-
verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
14.45 Popphólfið - Jón Axel Ólafsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Helge Rosvaenge,
Rosette Andy, Alfred Jerger o.fl. syngja með
kór og hljómsveit Ríkisóperunnar í Vínar-
borg atriði úr „Túskildingsóperunni" eftir
Kurt Weill. Charles Adler stj./
Fílharmóníusveitin i Moskvu leikur „Ham-
let“, hljómsveitarsvítu eftir Dmitri Sjostako-
vitsj; Gennady Rozhdestvensky stj.
17.10 Síðdegisvakan Umsjónarmaður: Páll
Heiðar Jónsson. Samstarfsmaður: Páll
Magnússon.
18.00 Vísindarásin Dr. Þór Jakobsson sér um
þáttinn.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson
flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn Jón Kristjánsson
talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þórður Magnússon
kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Vogsósaglettur. Ævar
Kvaran flytur 6. þátt úr samnefndum Ijóða-
flokki eftir Kristin Reyr. b. Vorboðinn. Bland-
aður kór Dalamanna syngur íslensk lög
undir stjórn Kjarfans Eggertssonar. c. Lífið
og tilveran. Ragnar Ingi Aðalsteinsson ræðir
við Steinólf Lárusson í Fagradal, Dalasýslu.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti manns"
eftir André Malraux Thor Vilhjálmsson les
þýðingu sína (22).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Skyggnst um á skólahlaði Umsjón:
Kristín H. Tryggvadóttir.
23.00 Kammertónlist Guðmundur Vilhjálms-
son kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
mánudagur
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Tommi og Jenni
20.50 fþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
21.30 Já, ráðherra Lokaþáttur. Breskurgam-
anmyndaflokkur. Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
22.00 Heimur Jóhönnu (Johannes verden)
Dönsk sjónvarpsmynd. Leikstjóri Ole Roos.
Leikendur: Mette Munk Plum, Helge Scheu-
er, Otto Brandenburg, Helle Virkner o.fl. Jó-
hanna er heyrnaskert stúlka og heimur
hennar er eldhúsið á stóru veitingahúsi þar
sem hún vinnur við glasaþvott. Myndin lýsir
vonum Jóhönnu og vonbrigðum og sam-
skiptum hennar við annað starfsfólk á
veitingahúsinu. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir. (Nordvision - Danska sjónvarpið)
22.40 Hvaðan kemur heróínið? Bresk frétta-
mynd um stóraukna ópíumrækt í Peshawar-
héraði i Pakistan og heróínsmygl þaðan
sem yfirvöld eiga í erfiðleikum með að upp-
ræta. Þýðandi og þulur Jón 0. Edwald.
23.00 Dagskrárlok
Það lítur út fyrir að Gústi sé að segja Ásu eitthvað skemmtilegt.
Sjónvarp sunnudag kl. 18.00
Stundin okkar
Það eru ekki horfur á að Stund-
in okkar með þeim Ásu H.
Ragnarsdóttur og Þorsteini Mar-
elssyni bregðist nú fremur en
fyrr. Verður m.a. gengið um æð-
arvarp vestur í Akurey, lík'.ega
hefur það gerst í vor, og vonurn
við að ungar hafi komið úr sem
flestum af þeim eggjum, sem við
trúlega sjáum, - og náð að halda
lífi og limum. Þá eru það teiknim-
yndirnar af Mytto og Smjattpatta
og sagan af Krókópókó. Haldið
verður áfram með tannfræðsl-
una. Loks mun Ása fræða okkuf
um Kína og mannltfið þar og kín-
verskir fjöllistamenn leika ótrú-
legar listir sínar. - Upptöku
stjórnaði Elín Þóra Friðfinns-
dóttir. -mhg
Laxá í Aðaldal.
Útvarp sunnudag, kl. 19.35
Á bökkum Laxár
Þótt hverjum þyki sinn fugl
fagur þá hygg ég þó að flestir telji
Laxá í Laxár- og Aðaldal ein-
hverja þá fegurstu á, sem þeir
hafa augum litið á íslandi. Og i
kvöld flytur Jóhanna Steingríms-
dóttir í Arnesi þátt í Akureyrarút-
varpið, sem hún nefnir Á bökkum
Laxár. Jóhanna er sjálf fædd og
alin upp við ána, - í Nesi í Að-
aldal, dóttir Steingríms bónda og
skálds þar, - og mun að mestu
a.m.k. hafa alið aldur sinn á
bökkum árinnar.
„Þetta eru svona mann-
lífsþættir", sagði Jóhanna. „Fjall-
að verður um atburði og einstak-
linga, ána og samskipti fólks við
hana. Áin snertir og er snar þátt-
ur í lífi allra þeirra, sem á
bökkum hennar búa, maður lifir
með henni. Ánni verður fylgt
ofan úr Laxárdal og til ósa. Svo
rifja ég upp gamlar sagnir, sem ég
heyrði heima í Nesi. Og taktu það
fram, að þetta er bara spjall en
ekki neinn fræðsluþáttur“.
-mhg
Sjónvarp sunnudag kl. 20.55
Litið í „Glugganna
Þá byrjum við nú að líta út um
Gluggann, þótt ekki sé það til þess
að „gá til veðurs“, fremur verður
skyggnst eftir öðrum fyrirbær-
um.
Og í Glugganum í kvöld verður
ýmislegt að sjá og heyra. Skropp-
ið verður til Akureyrar þar sem
Leikfélag Akureyrar er nú að-
sýna söngleikinn „My Fair
Lady“. Sýnd verða atriði úr
leiknum, rætt við leikstjórann,
Þórhildi Þorleifsdóttur, nokkra
helstu leikaranna og fleiri. Þá
flytur Baraflokkurinn á Akureyri
eitt lag.
En höfuðborgin verður nú
heldur ekki sniðgengin. Farið
verður í Þjóðleikhúsið, þar sem
yfir standa lokaæfingar á leikriti
Jóns Laxdal, „Návígi“, sýnd
verða atriði úr leiknum og spjall-
að við leikskáldið Jón og
leikstjórann, Brynju Benedikts-
dóttur. - Einnig verður svipast
um á sýningunni „Crafts USA“. -
Og meira að segja verður farið
upp í Bergvík á Kjalarnesi og
fylgst með tveimur bandarískum
glerlistarmönnum, sem þar eru
að vinna. Umsjónarmaður
Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Gluggans er Sveinbjörn I. Bald-
vinsson en Viðar Víkingsson sá
um upptökuna.
-mhg