Þjóðviljinn - 26.11.1983, Side 2

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Side 2
Af Lögreglusamþykkt 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. nóvember 1983. Það var held ég í fyrradag, að mér barst í hendur Lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. Þegar ég var búinn að fara svona lauslega í gegnum plaggið, hugs- aði ég sem svo: „Undur veraldar finna menn ekki með því að gera víðreist um lönd og álfur. Þau eru hvorki á hafsbotni, né í himinhvolfinu, ekki á óshólmum Amasón né í Himalæjafjöllum, við Níl, eða norður við pól og síst af öllu í London, París eða New York. Undur veraldar er öll að finna í Lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar". Þegar ég var búinn að hugsa svona skáldlega svo- litla stund, andaði ég djúpt að mér (og auðvitað frá mér líka) og fór svo að gaumgæfa Lögreglusamþykktina. Og fljótlega var ég svo aftur farinn að hugsa skáld- lega, eða nokkurn veginn si svona: „Þetta plagg veldur mér mejri heilabrotum en píra- mídar Faróanna, Svingsinn, keisarahöllin í Kína, Pét- urskirkjan í Róm, Móna Lísa og Hugsuðurinn eftir Rodin.“ Og svo hugsaði ég sem svo: „Nú er ég búinn að vera nógu skáldlegur í bili,“ og þá er það Lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Lögreglusamþykktin samanstendur af hundrað greinum. Af þeim fjalla tuttugu, eða fimmtungur, um hross á almannafæri. Svo virðist sem lögregluþjónin- um ætli seint að takast að leysa þarfasta þjóninn almennilega af hólmi, og ættu þó flest skilyrði að vera fyrir hendi. Það í Lögreglusamþykkt Reykjavíkur, sem ekki fjall- ar um hross, er að verulegum hluta helgað öðrum ferfætlingum svosem kúm og kindum, já og auðvitað tryggasta vini mannsins, hundinum, sem fær að endurgjaldi, fyrir tryggð og vináttu við okkur mennina þau forréttindi, að vera réttdræpur næstum hvar og hvenær sem er. Ljóst er að lögreglusamþykktin kveður á um eitt og annað, sem má ekki gera á almannafæri, svosem æpa, kalla, blístra, syngja hátt og raska allsherjar- reglu. Þá má ekki vera á almannafæri í dulargervi, eða í búningi, sem misbýður velsæmi, eða getur raskað allsherjarreglu. Þá er, óheimilt að fletta sig klæðum á almannafæri, hvað þá gera þarfir sínar. Áttundu grein ættu allir að leggja á minnið: „Enginn má baða sig eða synda nakinn við bryggjur bæjarins eða annars staðar svo nærri landi, eða skipum á höfninni að hneyksli valdi“. Bannað er að láta fyrirberast á húsþökum, nema með leyfi húsráðenda, en Ijái, gaddhrífur og skotvopn má aðeins flytja eftir götunni sjálfri. Með öllu er bannað hrista gólfdúka á almannafæri og jurta- potta má ekki hafa í opnum gluggum. Þá er bannað að fleygja glerbrotum, steinum og nöglum í vegfarendur, ítem úrgangsvatni. Ástæða þykir til að taka fram, aö gangstéttir eru ætlaðar gangandi fólki, en þar mega menn ekki halda kyrru fyrir né aka eftir þeim hjólbörum eða öðrum aktólum, nema barnavögnum. í 39. grein þessara laga eru svo tekin af öll tvímæli um það hver vinnubrögð lögreglumenn eigi að á- stunda. Þar segir orðrétt: „Lögreglumenn skulu stöðugt miða alla rannsókn sína við það að leiða hið sanna og rétta í Ijós í hverju máli“. Og síðar: „Bannað er að ríða móti líkfylgdum og riðla þeim þannig, og raunar má ekki ríða hraðar en á hægu brokki. Þá er bannað með öllu að binda nautgripi í tagl á hesti." Og að lokum er líklega rétt að verða skáldlegur aftur og rifja upp bæn lögreglumannsins: Heilagur guð í himnarann, hæst það mark ég eygi að koma manni í kjallarann á kverjum einasta degi. Spjall við Tómas Þór Tómasson: Annáll styrj- aldar áranna S á Islandi Heimsstyrjaldarárin á ís- landi 1941-45 heitir bók eftir Tómas Þór Tómasson sem komin er út hjá Erni og Ör- lygi. Höfundur segir þetta fyrra bindi verks um þessi sögulegu ár og upphaf bóka- flokks sem fjallar um atburði í nýlegri sögu. Tómas Þór er sagnfræðinemi við Háskólann og segir í stuttu spjalli við Þjv. að hann hafi gert hlé á námi til að vinna að gerð þessarar bókar. Þar segir frá at- burðum fyrstu hernámsára í tímaröð, en skotið er inn ýmsum heimildum t.d. lýsingu á dæmi- gerðu ástandsballi sem upphaf- lega birtist í bók Theodórs Friðrikssonar, Ofan jarðar og neðan, ýmsum styttri ívitnunum sem segja sína sögu um andrúms- loft tímans og þar fram eftir göt- um. Þetta er almennt yfirlitsrit, segir Tómas, þar sem reynt er að koma inn á sem flesta þætti sem styrjaldarárin varða. Ég lifði þessa tíma ekki sjálfur og hefi því orðið að byggja á ýmsum heim- ildum í blöðum, tímaritum, skjölum, en tími minn leyfði ekki að ég safnaði efni með viðtölum við fjölda fólks. Þetta er bók fyrir almenning fremur en fræðileg út- tekt, en ég vona að ég hafi staðið við þær kröfur sem rétt er að gera til meðferðar heimilda. Myndakostnaður er mikill, og nemur hann um þriðjungi bókar- innar - mikill hluti þeirra hefur hvergi birst áður. Þessar myndir segja ekki síður þá sögu sem farið er með en texti minn. Miðað við ýmislegt annað um styrjaldarárin held ég að í þessari bók er margt dregið fram um efnahagssögu og verkalýðssögu. Það gleymist heldur ekki að fjalla um margar hliðar hvunndags- leikans sem breyttust mjög við komu hersins. ' -áb. Tómas: Þetta er bók fyrir al- menning frekar en fræðileg út- tekt. Ýlisvaka í Kópavogi Norræna félagið í Kópavogi efnir til haustvöku sunnudaginn 27. nóv- ember n.k. kl. 20.30 í Þinghól við Álfhólsveg. Kór Kársnes og Þinghólaskóla syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Á liðnu sumri fór kórinn í ferð um Norðurkolluna og söng við góðan orðstír í Tromsö og Sortland í Noregi, Rovaniemi í Finnlandi og Luleá og Pietá í Sví- Axel Jónsson fyrrum alþingis- þjóð. maður, einn aðalhvatamaður Minnst verður Norræna bók-. tengslanna við Klakksvík, flytur menntaársins sem stendur fram á þankabrot úr byggðinni þaðan. næsta ár. Hjörtur Pálsson dag-' Kristján Guðmundson bæjar- skrárstjóriflyturnorrænljóðíeigin stjóri bregður upp nokkrum lit- þýðingu. skyggnum frá hátíðahöldunum í Þá verður minnst 75 ára afmælis Klakksvík f sumar. Klakksvíkur sem er vinabær Kópa- Loks verður stiginn færeyskur vogs. Kolbrún á Heygum syngur dans, félagar úr Færeyingafélaginu færeysk lög. stjórna. skraargatid Mikil spenna er í kringum „leyndóið" stóra: hverjir séu keppinautar Sveins Björnssonar, stjórnarfor- manns SVR um forstjórasæti í fyrirtækinu. 5 umsóknir munu hafa borist og segir sagan að í þeirra hópi séu a.m.k. þrír sem sitja fundi stjórnar SVR: Sveinn, Magnús Skarphéðinsson strætó- stjóri og svo „krónprinsinn" Har-1 aldur Þórðarson. Sama saga segir að Sveinn fái embættið á stjórnarfundi n.k. mánudag. Bókaútgefendur . eru fremur kvíðnir vegna jóla- bókamarkaðarins í ár. Keppast þeir nú um að senda inn tilboð á stóra vinnustaði þar sem boðið er upp á afslátt á bókum ef nokkrir kaupa sömu bókina. Þá munu bókatitlar í ár ekki verða nema um 400 en voru fyrir jólin í fyrra háttáó. hundrað. Ennfremureru bækur gefnar út í minna upplagi í ár. Þá herma sagnir að aldrei þessu vant sé hægt að komast inn í prentsmiðjur með setningu og frágang á bókum með titlum , fyrirvara. Þær hafa ekki yfrið nóg að gera eins og venjulega á þess- um árstíma. Bítið er farið að hreyfast af bókum í bókaverslun- um en bóksalar binda vonir við að skriðan fari af stað eftir mán- aðarmót þegar fólk hefur fengið útborgað. Bókaauglýsingar eru lítið sem ekki farnar að sjást í fjölmiðlum og er það óvenjulegt á þessum árstíma. Sveinn: Næsti forstjóri SVR?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.