Þjóðviljinn - 26.11.1983, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Blaðsíða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. nóvember 1983 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Greiðum félagsgjöldin Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá félagsmenn sem enn skulda gjaldfallin árgjöld að greiða þau sem allra fyrst. Gíróseðlana má greiða í öllum bönkum og þóstútibúum. Eflum starf Alþýðubandalagsins og greiðum félagsgjöldin. Stjórn ABR AB Skagafjarðar Bæjarmálaráð, Sauðárkróki Bæjarmálaráð heldur fund nk. mánudag kl. 20.30. Fundarefni verða bæjarmálin og fréttir af landsfundi Alþýðubandalagsins. Allir stuðningsmenn flokksins hvattir til að mæta. - Stjómin. Alþýðubandalagið Kópavogi Rabbfundur verður í kvennahópnum mánudaginn 28. nóvember kl. 20 í Þing- hól. Allar konur velkomnar. - Hópurinn Alþýðubandalagið í Kópavogi Félagsfundur Félagsfundurverðurhaldinn, þann30. nóv. næstkomandi kl. 20.30 í Þinghól. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Bæjarmál. Gestur fundarins verður Kristján Guðmundsson bæjarstjóri. - Félagar, mætið vel og stundvíslega. Stjórn ABK. Alþýðubandalagið Akureyri Opið hús verður í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 laugardaginn 3. desember kl. 15.00. Kaffiveitingar. Sagt frá 6. landsfundi Alþýðubandalags- ins og fleira. Mætið öll vel og stundvíslega. - Stjórnin Félagsfundur Félagsfundur í Iðju, félagi verksmiðjufólks, verður haldinn í Domus Medica n.k. mánu- dag 28. nóvember kl. 20.00. Fundarefni: 1. Staðan í kjaramálum. Framsögumaður Björn Björnsson, hagfræðingur ASÍ. 2. Væntanlegar samningaviðræður. 3. Önnur mál. Stjórn Iðju Til sölu SÉRHÆÐ110 m2 í TVÍBÝLISHÚSI í vesturbæ Kópa- vogs. Helst í skiptum fyrir minni eign í Mið- eða Vestur- bæ í Reykjavík. Gott hús fyrir handlagið fólk með hugmyndir. Bílskúr fylgir. 3JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐ á jarðhæð við Nýbýlaveg. SÉRHÆÐ í HEIMUM helst í skiptum fyrir sérhæð eða stærra í Vesturbæ. HÚS TIL SÖLU Á ESKIFIRÐI. Byggt 1917. Forskalað timburhús vel við haldið. Brunabótamat: 1.495.000.- Því fylgir hlaða og umráð- aréttur yfir 11 bása fjósi. Stór lóð. Grunnflötur hússins um 70m2, kjallari, hæð og ris. Tvöfaldur bílskúr fylgir. Þvottahús og búr í kjallara og tvær stórar geymslur. Einnig vantar á skrá allar stærðir eigna. Fasteignasalan Magnús Þórðarson hdl. Árni Þorsteinsson sölustj. Bolholti 6, 5. hæð s. 39424 og 38877 Opið um helgina 1-5 BYGGINGARFELAG VERKAMANNA REYKJAVÍK Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18, miðvikudaginn 30. nóvember 1983, kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Félagsstjórnin Þingvellir Skiptar skoðanir á tillögum Péturs Á sama tíma og margt hefur færst til betri vegar innan þjóðgarðsins á Þingvöllum hefur Iandinu allt í kringum hann hrakað stórlega. Síðasta sumar var fyrsta sauðlausa sumarið í þjóðgarðinum en lokið var við að endurnýja girðinguna umhverfis hann 1982. Næsta sumar mega hjólhýsa- eigendur ekki skilja eftir húsvagna sína í þjóðgarðinum, heldur munu gilda um þá sömu reglur og um tjöld: eigendurnir verða að fylgja með. Þetta er ákvörðun Þingvallanefndar sem hefur einnig ákveðið að ekki verði haldin stórmót hestamanna í Skógarhólum og að sumarbústöðum fjölgi ekki í þjóðgarðinum. Þjóðgarðurinn er hins vegar að- eins lítill hluti af því svæði sem Pét- ur Jónasson, prófessor í Kaup- mannahöfn telur brýnt að friða umhverfis Þingvallavatn. Þjóðvilj- inn ræddi í gær við nokkra menn sem hafa með Þingvelli sem slíka að gera og eru skoðanir þeirra á tillögum Péturs skiptar. Séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður sagðist m.a. ekki sjá ástæðu til að breyta þeirri skipan mála að alþingi kysi stjórnarnefnd þjóðgarðsins, reynslan af stjórnun Þingvallanefndar hefði verið góð og það væri allt annað mál og óskylt ef meira landsvæði yrði friðað við vatnið. Slíkt friðland myndi að hans mati eiga heima undir stjórn Náttúruverndarráðs. Hjörleifur Guttormsson, alþingis- maður, sem sæti á í Þingvallanefnd vill hins vegar stækka þjóðgarðinn verulega. Hann telur einnig að Náttúruverndarráð eigi að fara með Þingvallasvæðið allt og þjóð- garðinn en alþingi hafi forræði yfir gömlu þinghelginni og stjórni því svæði í samráði við Náttúruvern- darráð. Á fjárlögum þessa árs er framlag til orlofsheimilis fyrir þingmenn í þjóðgarðinum. Súfjárveiting hefur ekki verið notuð enn þá en hug- myndin kom frá forsetum þingsins fyrir 2 árum. Forseti sameinaðs þings þá var Jón Helgason dóms- og landbúnaðarráðherra. f Þjóðvilj- anum á þriðjudag birtast viðtöl við ofangreinda menn og fleiri til um Þingvelli. -ÁI Hitaveita Reykjavíkur: 82% hækkun milli ára 25% hækkun 1. febrúar 1984 Stjórn Hitaveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær fjár- hagsáætlun fyrir næsta ár en hún gerir ráð fyrir að heita vatnið hækki um 82% að meðaltali milli ára. En hitaveitan hefur sem kunn- ugt er hækkað langt umfram verðlags-, hvað þá kauplagshækk- anir á þessu ári. Sigurður G. Tóm- asson fulltrúi AB í stjórninni greiddi atkvæði gegn hækkuninni sem samþykkt var með atkvæðum Sjálfstæðisflokks og .fulltrúa Al- þýðuflokks, Sjafnar Sigurbjörns- dóttur. í bókun Sigurðar segir: „Ég get ekki greitt atkvæði með fyrirlig- gjandi fjárhagsáætlun Hitaveitu Reykjavíkur fyrir árið 1984. Ástæður þess eru eftirfarandi: Áætlunin byggist á u.þ.b. 82% hækkun á meðalverði heits vatns milli ára, þar af u.þ.b. 25% gjalds- krárhækkun 1. febrúar n.k. A sama tíma hefur kaupgjaldi verið haldið niðri með lögum, kaupmátt- ur tekna almennings rýrnað stór- kostlega og stjórnvöld gera beinlínis ráð fyrir áframhaldandi rýrnun hans. Ég tel því að þrátt fyrir ýmis rök sem hníga að nauð- syn hærra orkuverðs til HR sé hag neytenda nú þannig komið að þeir §eti ekki borið neinar hækkanir. :g greiði því atkvæði gegn fjár- hagsáætlun fyrir árið 1984.“ -ÁI Einvígi Kortsnojs og Kasparovs í gœr Tilþrif hjá Kasparov Þriðja einvígisskákin endaði þó í jafntefli Þótt þriðja einvígisskák Kortsnojs og Kasparovs hafi endað með jafntefli í London í gærkveldi, má túlka þau úrslit sem sálfræðiiegan sigur Kortsnojs. í þriðja sinn tókst honum ætlunarverk sitt, að halda niðri öllum flækjutilburð- um snillingsins unga. Skákin í gær tefldist framan af eins og 1. einvígisskákin, en Í7. leik sínum brá Kasparov út af með 7. Da4 í stað 7. e3, sem hann lék á mánudaginn var. Hann er því ekki tilbúinn til að mæta 7. .. g6 enn sem komið er. Hvítt: Garry Kasparov Svart: Viktor Kortsnoj Drottningar-indversk vörn 14. .. 15. Dxc6 16. e3 17. Bd6 18. Bxe7 Bxc6 Rf8 Re6 Be7 Jafntefli. Gera verður ráð fyrir að Kasparov sé ekki fyllilega búinn að ná sér eftir tapið í fyrstu skákinni, og hafi þess vegna boðið hér jafntefli. Skiptamunsfórn hans gaf ekki mikið í aðra hönd, og Ijóst er að Kortsnoj sættir sig við jafntefli með svörtu, enda reglurnar þannig að honum nægir jafntefli úr öllum skákum sem eftir eru til að sigra í einvíginu. Spurningin er hvort Kasparov tekst að brjóta göt á varnarmúra Kortsnojs. -eik- 1. (14 2. c4 3. Rf3 4. Rc3 5. a3 6. cxd5 7. Da4(!) 8. Rxd5 9. Bf4 10. g3 11. Bh3 12. Hcl 13. 0-0 Rf6 e6 b6 Bb7 d5 Rxd5 Rd7 exd5 Be7 c6 0-0 Bf6 Hc8 i ib immxmk abcdefgh 14. Hxc6!? (Tilraun til að hleypa lífi í stöðuna, en Kortsnoj bregst við af öryggi hins ald- na). Kvennaathvarfið eins árs 7. desember: 3 konur og 3 börn tíl jafnaðar á dag Aðalfundur Sam- taka um kvennaat- hvarf á mánudag 7. desember n.k. er liðið heilt ár frá því Kvennaathvarfið tók til starfa í Reykjavík og að sögn Onnu Magneu Hreinsdóttur starfsmanns þess hefur athvarf- ið fram til 1. nóvember s.l. sinnt um 400 einstaklingum. Þar af hafa 160 fengið aðstoð gegnum síma en á þessum tæpu 11 mán- uðum hafa 140 konur dvalið í athvarfínu ásamt 105 börnum sínum. Að jafnaði dvelja 3 kon- ur og 3 börn í ath varfinu á degi hverjum, en komið hefur fyrir að heimilismenn þar hafi verið nær 20 talsins. Anna Magnea sagði að dval- artími væri að meðaltali einn mánuður núna síðari part ársins en konurnar dvelja allt frá ein- um sólarhring upp í 3 mánuði í athvarfinu. Dvalarkostnaður er nú 125 krónur á dag fyrir fæði og húsnæði. 70% kvennanna eru úr Reykjavík en 30% koma annars staðar að og frá landinu öllu að sögn Önnu. Aðalfundur Samtaka um 'kvennaathvarf verður haldinn n.k. mánudagskvöld 28. nóv- ember kl. 20.30 í Sóknarsalnum við Freyjugötu 27, en samtökin voru stofnuð 2. júní 1982. Á að- alfundinum verður flutt skýrsla um starfsemi athvarfsins og samtakanna, lögð fram fjár- hagsáætlun næsta árs og reikn- ingar yfirstandandi árs. 400 fé- lagsmenn eru í samtökunum og hafa þeir allir seturétt á aðalf- undinum, en einungis þeir sem greitt hafa árgjald hafa þar at- kvæðisrétt. _ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.