Þjóðviljinn - 26.11.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. nóvember 1983
Kristmann
Kveðja
„Velkominn skáld hingað heim!
hér er allt frjálst sem þú kýst.
Og þarna hjá lindinni þaðan sem tónarnir berast
þín er vænst.
Stundir notum vér eigi og ekkert er liðið.
Þú þekkir nú þennan áslátt
þegar þú nálgast hliðið. “
Stefán Hörður Grímsson
Skagaleikflokkurinn í Þjóðleikhúsinu
á vegum Friðarsamtaka listamanna
Gerður Rafnsdóttir í hutverki sínu Eðlisfræðingarnir í uppsetningu Skagaleikhópsins. Á myndinni eru f.v.: Jón P. Björnsson, Steingrímur
í Eðlisfræðingunum. Guðjónsson, Friðrik Adolfsson, Kristján E. Jónasson og Jón. S. Þórðarson.
EðUsfrœðingamir
eftir Durrenmatt
Spjallað við Kjartan Ragnarsson leikstjóra
í haustfærði Skagaleikflokkur-
inn á Akranesi upp Eðlisfræð-
ingana eftir Durrenmatt og var
Kjartan Ragnarsson leikstjóri.
Nú hafa Friðarsamtök ís-
lenskra listamanna ákveðið að
efna til sýningar á þessu verki í
Þjóðleikhúsinu á mánudags-
kvöld og er það fremur fátítt að
áhugaleikflokki sé boðið að
sýna í því virðulega húsi. Við
náðum tali af Kjartani Ragn-
arssyni til að spyrja dálítið nán-
ar út í þetta.
- Hvaða erindi á leikrit inn í
friðarumræðuna?
- Þetta er mjög spennandi verk
inn í þessa umræðu og ég þekki
ekkert leikhúsverk sem hefur svo
sterk'a skírskotun til þess sem er
efst á baugi í dag.
- En þetta er nokkuð gamalt
verk?
- Það var frumsýnt árið 1962 og
var þá beint tillegg inn í afvopnun-
arumræður sem þá fóru fram. Ein-
mitt þetta sama ár var næstum því
brostið á kjarnorkustríð í sam-
bandi við Kúbudeiluna.
- Og það var sýnt í Iðnó á sínum
tíma?
- Já, Halldór Stefánsson hefur
þýtt það alveg glænýtt því að það
var byrjað að æfa það hér mánuði
eftir frumsýningu í Þýskalandi.
Eðlisfræðingarnir eru enn mjög á
dagskrá víða um heim og um þessar
mundir er verið að sýna það víða.
- Um hvað fjallar það?
- Það fjallar um ábyrgð eðlis-
fræðinga í þróun vígbúnaðarmála.
Þess skal getið að Hans Guð-
mundsson, formaður Félags eðlis-
fræðinga á íslandi mun flytja ávarp
á sýningunni á mánudagskvöld og
skýra frá áskorun þúsunda eðlis-
fræðinga, sem afhent var ríkis-
stjórnum um víða veröld um dag-
inn, þar sem krafist var stöðvunar
af-
kjarnorkukapphlaupsins og
vopnunar.
- Byggja Eðlisfræðingarnir á
sögulegum atburðum?
7 Nei, það hygg ég ekki. Það
hefur miklu víðari skírskotun en til
einstaklingssögu eins eðlisfræð-
ings. Leikritið er byggt upp sem
sakamálaleikrit og háðið hefur sinn
sess eins og alltaf hjá Dúrrenmatt.
Þetta er eins konar útópía. For-
senda fyrir því að ég fékkst til að æfa
Ieikritið upp er hversu mikið erindi
það á við nútímann.
- Þúhefurekkifengistmikið við
að leikstýra úti á landi?
- Nei, þetta er í fyrsta sinn og ég
kunni því mjög vel, fannst það
svakalega gaman. Það er mikill
metnaður í Skagaleikhópnum og
góður smekkur. Þetta er mjög dríf-
andi fólk, og hefur lagt á sig geysi-
lega mikla vinnu. Raunar er svona
starf séríslenskt fyrirbæri. Annars
staðar á Norðurlöndum eru líka
áhugaleikhópar en þar er kannski
Kjartan: Þekki ekkert leikhúsverk
sem hefur jafnsterka skírskotun til
friðarumræðunnar.
æft einu sinni eða tvisvar í viku og
tekur e.t.v. 2 ár að æfa eitt leikrit.
Hér er unnið og sett upp með sama
hraða og í atvinnuleikhúsi. Fólkið
sem stendur að sýningunni vinnur í
4-5 tíma eftir vinnu á hverjum ein-
asta degi í nokkrar vikur. Það er
geysilegur kraftur í félögum eins og
Skagaleikhópnum.
- Eru Eðlisfræðingarnir fjöl-
menn sýning?
- Það eru upp undir 20 manns
sem koma fram í leikritinu?
- Hugsa íslenskir listamenn
mikið um friðarmál um þessar
mundir?
- í þeirra hópi virðist vera mjög
almenn löngun og viðleitni til að
sinna þessari baráttu og gengur
hún þvert á alla pólitík. Listamenn
eru samstæðir um þetta málefni.
Þess skal getið að þeir peningar,
sem koma inn á sýningunni á
mánudag, renna til friðarsamtak-
anna. -GFr
Steindórs
saga frá
HlöÓum
Út er komin hjá Erni og Örlygi
síðara bindi sjálfsævisögu
Steindórs Steindórssonar, náttúr-
ufræðings og fyrrverandi skóla-
meistara frá Hlöðum. Nefnist bók-
in SÓL ÉG SÁ sem hin fyrri.
Þetta bindi fjallar um það sem
kalla má tómstundastörf hans og
hliðarhopp frá hinni troðnu braut
embættismanna. Hér segir
Steindór frá afskiptum sínum af
pólitík, bæði bæjarpólitíkinni á
Akureyri og ísafirði. Steindór segir
einnig frá stuttri setu sinni á Al-
þingi og segir frá hinum umdeildu
Laxármálum sem hann hafði tölu-
verð afskipti af á sínum tíma.
í bókinni segir Steindór einnig
frá ferðalögum sínum, ritstörfum
og rannsóknum heima og erlendis.
Loks segir Steindór frá því hvernig
hann hefur eytt síðustu árunum,
eftir að landslög skipuðu honum í
Óstaðfest
ljóð
Sigmundar
Arnar ______________
Út er komin hjá bókaforlaginu
Svart á hvítu Ijóðabókin Óstaðfest
Uóð eftir Sigmund Erni Rúnarsson.
Náttúran er umfjöllunarefni
þessarar bókar. Skáldið leggur
land undir fót, finnur sér myndir í
öllum blæbrigðum þess. Og jafnan
er manneskjan með í för.
Óstaðfest ljóð er önnur ljóðabók
Sigmundar Ernis Rúnarssonar.
Árið 1980 sendi hann frá sér ljóða-
bókina Kringumstæður.
Sigmundur er norðanmaður,
fæddur og uppalinn á Akureyri.
Hann starfar nú sem blaðamaður
sunnar heiða, við Dagblaðið Vísi í
Reykjavík.
I
hamingjuleit
Setberg hefur gefið út ástarsögu
eftir Danielle Steel, sem fjallar um
bandaríska konu, sem segir skilið
við mann sinn og leitar gæfunnar á
nýjum vettvangi.
Höfundur þessarar bókar, Dani-
elle Steel, er vinsæll höfundur ást-
arsagna í heimalandi sínu, Banda-
ríkjunum. „í hamingjuleit” er
fjórða bókn sem kemur út eftir
hana á íslensku. Hinar heita:
„Gleym mér ei”, „Loforðið” og
„Hringurinn”.
Sjóorustur og
fleiri leikir
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út bókina Biýanta,
blaða og orðaleikir í bókafiokknum
Spilabækur Arnar og Örlygs. Áður
voru komnar út bækurnar Tveggja
manna spil og Hvernig á að leggja
kapla.
Höfundur bókarinnar er Svend
Novrup, ritstjóri Politiken um skák
og bridge og höfundur margra
bóka um skák og spil, en þýðandi
er Trausti Björnsson.
í þessari bók kynnumst við
nokkrum leikjum. Það eina sem til
þarf er blað og blýantur og okkar
eigin snilli til að lífga upp á tilver-
una.
Til eru margir leikir með strik-
um, reitum og orðum sem eru
bráðskemmtilegir og oft veita
leikirnir hugmyndaauðgi okkar
ríkulega umbun.