Þjóðviljinn - 26.11.1983, Side 19

Þjóðviljinn - 26.11.1983, Side 19
Fróðleg skýrsla frá WHO: Fleiri læknar, lakari heilsa? Ahcrsla á að mennta nýja lækna getur haft neikvæð áhrif á heilsu fólks, segir í nýlegri skýrslu frá al- þjóðlegu heilbrigðisstofnuninni WHO, þar sem sérstaklega er mælt með að mennta fólk til heilsugæslu í sveitum hinna fátækari ríkja. Læknarnir sjálfir vilja auðvitað gera sitt besta. En með því að hin fátækari lönd heimsins, já og mörg þau sem sæmilega efnuð teljast, leggja alla áherslu á fleiri lækna og| sjúkrarúm, þá þýðir þetta í raun, að þeir peningar sem til heilbrigðis- þjónustu fara lenda mest til efnaðs minnihluta fólks sem býr í stærri borgum. Meðan gífurlegur fjöldi fólks út um sveitir þjáist og deyr úr sjúkdómum sem hægt væri að lækna með einföldum ráðum. Framleiddar eru um 25 þúsundir tegunda af lyfjum, en ekki þarf nema 200 þeirra til að ná árangri gegn flesíum sjúkdómum. Ekki bætir það heldur úr skák, að um 63 þúsundir þeirra lækna sem þróunarlöndin hafa menntað með ærnum tilkostnaði flytja til ríkari landa á ári hverju. Peir sem eftir eru sitja kyrrir við sjúkrahús í helstu borgum, sem fyrr segir, en flestir landsmenn fá litla sem enga læknisaðstoð. Iskýrslunni kemur ogfram, að fyrir það verð sem kostar að koma upp einum lækni væri hægt að mennta 60 manns til heilsu- gæslu. Fólk sem hefur nauðsynl- egustu lyf og kann að fara með þau, fólk sem getur útskýrt ýmis undirstöðuatriði heilbrigði, m.a. mikilvægi hreins vatns og þar fram eftir götum. Höfundar WHO-skýrslunnar eru sammála um, að það sé miklu vænlegra til árangurs að styðja við bakið á þessum „berfættu læknurrí' en að halda áfram að púkka undir þá dýru þjónustu, með dýrum lyfj- um, sem kemur aðeins mjög fáum að haldi. (Byggt á Ny Tid) Gustur með fræðslufund Hestamannafélagið Gustur indi er nefnist: Hestartekniráhús. heldur fræðslufund í Þinghól mán- - Umræður. - Sýndar verða tvær udaginn 28, nóv. n.k. kl. 20.30. kvikmyndir frá landsmótunum Páll Valmundsson flytur stutt er- 1954 og 1982. Gefjun AKUREYRI f?tcr i'j'ur <>r. ' rrj" ' ^ -- ;• >- Helgin 26.-27. nóvember 1983 WOÐVILJINN — SIÐA 19 skóuf^oUkunnattu UNDIRST ®nsku Skóli fyrir þá sem hafa undirstöðukunnáttu í ensku. Underwood College býður uppá kennslu í: • ensku • verslunarensku • vélritun á rafeindaritvélar • tölvur • ritvinnslu • telexo.fl. Underwood College er einn af bestu verslunarskólum í Englandi, hefur sérhæft kennaralið, enda 66 ára reynslu. Underwood College gefur erlendum nemendum mikla möguleika, því 75% nemenda skólans eru Englendingar. Underwood College er í Bournemouth á S-Englandi • LONDON Nánari upplýsingar milli kl. 18.00 - 20.00 gefur:# BOURNEMOUTH UNDERWOOD COLLEGE ICELANDIC AGENT Anna Ingólfsdóttir, Langafit 11, 210 Garðabæ, lceland, tel: 91-52795 RIKISSPITALARNIR lausar stöður Landspítalinn AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til 6 mánaða við Barna- spítala Hringsins frá 1. janúar 1984 að telja. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist skrif- stofu ríkisspítalanna fyrir 15. desember n.k. á þar til gerðum eyðublöðum ásamt tilheyrandi vottorðum og meðmælum. Upplýsingar veitir forstöðumaður Barnaspítala Hring- sins í síma 29000. KENNSLUMEINATÆKNAR (3) óskast við Rann- sóknastofu Háskólans við Barónstíg. Stöðurnar skiptast á milli líffærameinafræðideildar og sýklarannsóknadeildar. Umsóknir er greini nám og fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 29. des. n.k. Upplýsingar veitir forstöðumaður Rannsóknastofu Háskólans við Barónstíg í síma 29000. Reykjavík, 27. nóvember 1983 ■4*.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.