Þjóðviljinn - 26.11.1983, Qupperneq 27
Helgin 26.<-27'. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Morgunblaðið birtir rangar fréttir um ráðningarmál verkamanna hjá Slippfélaginu.
„Vilja skerða okkar kjör“
segir Hallgrímur Sylveríusson
trúnaðarmaður starfsmanna
„Þessi frétt Morgunblaðsins er alls ekki sannleikanum
samkvæm. Það er ekki búið að ráða okkur verkamenn-
ina í brautinni. Það hafa komið samningsuppköst frá
stjórn fyrirtækisins en það hefur ekkert verið á þeim að
græða fyrir okkur“, sagði Hallgrímur Sylveríusson
trúnaðarmaður starfsmanna í dráttarbraut Slippfé-
lagsins í Reykjavík í samtali við Þjóðviljann í gær.
í byrjun september sl. var öllum
starfsmönnum Slippfélagsins 77 að
tölu sagt upp störfum frá og með
næstu áramótum og jafnframt til-
kynnt að ráðið yrði í stöður eftir
„endurskipulagninu" fyrirtækisins
fyrir 1. desember n.k. í gær birti
Morgunblaðið frétt á baksíðu þar
sem segir að búið sé að endurráða
alla starfsmenn Slippfélasins nema
4 trésmiði.
„Þessi frétt kom okkur mjög á
óvart. Það er heitt í kolunum hérna
og ekki búið að ganga frá neinum
endurráðningum í brautinni“,
sögðu starfsmenn sem Þjóðviljinn
ræddi við í gær.
f starfssamningi sem stjórn
Slippfélagsins hefur lagt fyrir
starfsmenn er boðið upp á mun lak-
ari kjör en verkamenn hafa haft
hingað til.
„Já það er lagt til að skerða okkar
kjör. Þeir hafa áhuga á því. En við
stöndum saman og skrifum ekki
undir þennan samning eins og hann
er. Málið er í höndum Dagsbrúnar,
fyrir okkar hönd,“ sagði Hallgrím-
ur Sylveríusson.
-•g-
Pröstur Ólafsson framkvœmda-
stjóri Dagsbrúnar:
Hópuppsagnir
nota ðar til að
skerða kjörin
„Við höfum reynt að ná
samkomulagi við forráðamenn
Slippfélagsins um framhald
málsins og leysa þetta í samein-
ingu. Ég hélt satt að segja að við
hefðum verið búnir að komast
að ákveðinni niðurstöðu í mál-
inu sem menn eftir ástæðum
gætu sætt sig við. Síðan hefur
mér sýnst, sérstaklega eftir það
sem gerðist í gær, að þeir hafi
þegar á reyndi ekki treyst sér til
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar.
þess að endurráða menn á þau
kjör sem um hafði verið talað
og mennirnir hafa ekki verið
endurráðnir ennþá“, sagði
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar sem fer með
mál starfsmanna Slippfélags-
ins.
„Það er rétt að það er um kjarar-
ýrnun að ræða frá því sem nú er í
þessum nýju ráðningarsamningum
Slippfélagsins. Það fer eftir því
hvað mikið er að gera hverju sinni,
en það getur verið um all verulega
kjararýrnun að ræða“.
Hversu fjölmennur hópur verka-
manna hefur ekki gert ráðningar-
samning við fyrirtækið?
„Þetta eru um 25 Dagsbrúnar-
menn. Það hefur verið alger sam-
staða meðal manna að leysa málið,
að minnsta kosti frá okkar bæjar-
dyrum séð, en það hefur ekki
reynst gerlegt ennþá að gera það“.
Fleiri hópuppsagnir
á döfinni?
Er að þínu mati að koma upp sú
staða á vinnumarkaði að fyrirtæki
grípi til hópuppsagna til að geta
endurráðið fólk á öðrum og verri
kjörum?
„Við höfum orðið fyrir því að
lenda í svona fjöldauppsögnum
sem að koma manni þannig fyrir
sjónir og eru sumar beinlínis í þá
átt að skerða kjörin. Hvort það er
vegna þrenginga á vinnumarkaði
eða versnandi efnahagsástands
skal ég ekki um segja, þetta helst í
hendur.”
En það ber kannski meira á
þessu en á síðustu árum?
„Já ég er ekki frá því. Okkur
hefur verið sagt að það kynni að
standa fyrir dyrum slíkar hópupp-
sagnir á einum eða tveimur stöðum
til viðbótar. Við höfum ekki ennþá
viljað gera úr því mál fyrr en við
sjáum hvað úr verður“, sagði
Þröstur Ólafsson. -Ig.
Allir nema
fjórir áfram
BUIÐ er að endurráða alia nema
fjóra af þeirn setn sagt var upp störf-
um hjá Slippfélaginu 1. september
síða.stlióinn vegna skipulagsbreyt-
inga hjá fyrirtækinu.
Alls voru það 77 sem sagt var
upp stðrfum og 73 vor'u endur-
ráðnir. Það eru fjórir trésmiðir
sem ekki verða ráðnír að'nýju en
að sögn Þórarins Sveinssonar hef-
ur mik-ið dregið úr trésmiðáverk-
efnum hjá Slippfélaginu.
Skipulagsbreytingar fyrirtækis-
Íns eru-meða! annars fólgnar í því
að sameina verslun fyrirtækisins
og timbursöluna og gera það að
almennri byggingavöruverslun.
Starfsmenn Slippfélagsins lcsa uppsagnarbréf sín í haust. Hallgrímur Sylveríusson trúnaðarmaður starfs-
manna lengst til hægri. Innfellt á myndina er falsfréttin úr Morgunblaðinu frá í gær þar sem fullyrt er að
búið sé að endurráða alla starfsmenn fyrirtækisins.
Ályktun miðstjórnar ASÍ í gær:
Skattbyrði launafólks
niun stóraukast 1984
>»
Miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands telur að skattbyrði á næsta
ári muni aukast stórlega og að
beinir skattar muni nema 14V2%
tekna á árinu 1984 í stað 12V2% á
þessu ári. Þetta kemur fram í á-
lyktun sem miðstjórn Alþýðusam-
bandsins samþykkti einróma í gær
vegna síendurtekinna ummæla
talsmanna ríkisstjórnarinnar um
að skattar muni væntanlega lækka
á næsta ári.
„Af þessu tilefni telur miðstjórn ASÍ óhjá-
kvæmilegt að benda á að lækkandi skatttekjur
ríkissjóðs í fjárlagafrumvarpi eiga ekki rætur að
rekja til skattalækkunar heldur þeirrar einföldu
staðreyndar að kaupmáttarhrap almennings
hefur j^rengt þannig að, að fólk verður að draga
úr kaupum á bílum og öðrum skattlögðum
vörum,“ segir einnig í ályktun miðstjórnar ASÍ.
Fjárlagafrumvarp Alberts Guðmundssonar
fjármálaráðherra gerir ráð fyrir aukningu tekju-
skattstekna ríkissjóðs um 27% af hverjum
skattgreiðanda á sama tíma og kauptaxtar hafa
aðeins hækkað um 15% á milli ára. Þá liggur
fyrir að útsvar og fasteignagjöld munu hækka
um 53% að óbreyttum álagningarreglum. Telur
miðstjórnin að þetta þýði mun meiri byrði
beinna skatta á milli áranna 1983 og 1984. -v.