Þjóðviljinn - 17.12.1983, Qupperneq 6
6SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983
DJODVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjórl: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og augiýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
ritst jórnargre i n
*
Utsvarsbyrðin:
53% meiri vinna
í umræðum um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar viður-
kenndi Albert Guðmundsson að vinnutíminn sem varið væri
til að afla tekna fyrir opinberum gjöldum væri eðlilegur
mælikvarði á skattabyrðina. Við þetta tækifæri mælti fjár-
málaráðherrann hin fleygu orð: „Skattarnir munu ekki
hækka á næsta ári - en það getur vel verið að menn verði
lengur að vinna fyrir þeim!“ Það merkir á mæltu máli aukin
skattabyrði.
Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld fagði
Sigurjón Pétursson fram útreikninga sem sýna að á næsta ári
verður launafólk í Reykjavík 53% lengur að vinna fyrir
útsvarinu sínu en að meðaltali síðustu átta ár. Skattastefna
Sjálfstæðisflokksins hefur því í för með sér risavaxið stökk í
skattbyrði. Pessi 53% hækkun útsvarsbyrðarinnar bætist við
stórfellda hækkun á þeim þjónustugjöldum sem almenningi
er ætlað að greiða: strætisvagnagjöldum, rafmagni, hita og
öðrum þáttum daglegs lífs borgarbúa.
Reykjavíkurborg leggur nú á íbúana margra vikna þegn-
skylduvinnu vegna aukinna opinberra gjalda. Borgarbúar
eru í stórauknum mæli orðnir þrælar Davíðs. Skattagræðgi
Sjálfstæðisflokksins er slík að árið 1984 verður algert metár í
skattabyrði launafólksins í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að stórlækka skattana og út-
svarið. Albert Guðmundsson og Davíð Oddsson fengu um-
boð frá kjósendum til að framkvæma þá stefnu. Þeir hafa nú
verið staðnir að afdráttarlausari svikum en dæmi eru til um í
íslenskri stjórnmálasögu um langa hríð.
Hin alvarlega stökkbreyting skattabyrðarinnar kemur í
kjölfar hinnar miklu kjaraskerðingar. Þegar ríkisstjórnin
afnam samningsréttinn og skar kaupmáttinn um fjórðung
var því lofað að kjarabætur myndu síðar á þessu ári og á
árinu 1984 koma í gegnum lækkun á sköttum almennings.
Þessar yfirlýsingar hafa reynst örgustu blekkingar.
Þegar launamaðurinn gengur til vinnu sinnar á næsta ári
getur hann hugleitt að vikum saman verður sú ganga ein-
göngu til að greiða Albert og Davíð aukinn hlut ríkis og
borgar. Sjálfstæðisflokkurinn öskraði á árunum 1978-1982
vegna gjaldanna sem vinstri menn í borgarstjórn Reykjavík-
ur höfðu ákveðið. Samt jókst skattbyrðin mæld í vinnutíma
Dagsbrúnarverkamannsins aðeins um 1.4-4.9% á þessu
tímabili. Á næsta ári verður aukningin hins vegar 53.0%.
Þannig birtist stefna Sjálfstæðisflokksins í framkvæmd.
Þetta eru efndirnar á loforðum Alberts og Davíðs. Ríki og
borg krefjast fleiri vinnuvikna í sína þágu. Hið opinbera
hefur á risavaxinn hátt aukið skattabyrðar almennings.
Réttindi á
Reykjaneshrygg
Sérfræðingur í hafsbotnsmálum hefur lagt fram skýrslu
um réttindi á hafinu sem markast af Reykjaneshrygg og
svæðinu út frá hlíðum hans. Niðurstaða þessa sérfræðings er
að Islendingar geti helgað sér þetta svæði og þar með eignast
og stjórnað þeim auðlindum sem þar kunna að vera.
Skýrsla Dr. Talwani, sem fyrrum var forstöðumaður
jarðfræðistofnunar Columbia-háskólans, hlýtur að verða
lykilskjal í viðræðum íslendinga við Breta, íra og Færeyinga
um yfirráðaréttinn á þessu svæði.
Á næstu vikum þarf að hefja markvissan undirbúning að
þessum viðræðum og tryggja víðtæka samstöðu íslendinga
um réttindi þjóðarinnar á þessu svæði. Það er mikið í húfi að
vel takist að halda á þessu máli.
Alþingi hefur áður ítrekað réttindi íslendinga á Reykja-
neshrygg og á hinu víðáttumikla svæði út frá hlíðum hans.
Nú verða stjórnvöld að hafa forgöngu um að þau réttindi
verði tryggð.
ór.
Er Rannsóknarlögreglan
a<5 gefast upp á málinu?
Fjölmargar spurningar hafa
vaknað í sambandi við nauta-
kjötssmygimálið, sem erfitt er að
fá svör við, eða þá að svörin eru
afar óljós. Svör Þóris Oddssonar
vararannsóknarlögreglustjóra
við því hvers vegna
Rannsóknariögreglan hafi ekki
byrjað af krafti rannsókn í mál-
inu eftir að landbúnaðarráðherra
Pálmi Jónsson hafði farið fram á
það í apríl 1982 og eins þegar
beiðnin var ítrekuð af fram-
leiðsiuráði landbúnaðarins í sept-
ember sl. eru mjög óljós.
Þórir sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hér hafi aðeins
verið um orðróm að ræða sem
erfitt hefði verið að henda reiður
á. Engin skýrsla var samin hjá
Rannsóknarlögreglunni um mál-
ið og send landbúnaðarráðuneyt-
inu.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Arnar Guðmundsson fékk málið
í hendur, hann ræddi við
Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu-
neytisstjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu og þeir fundu engan flöt á
málinu, að sögn Þóris. Því var
málið ekki rakið frekar.
Rannsóknarlögreglan bað ekki
um að fá að leita í veitigahúsum
eða verslunum að sögn Þóris
vegna þess að húsleitarheimild
þyrfti til slíks. Hann sagði
Rannsóknarlögregluna ekki
beita henni nema í ýtrustu neyð
og þá aðeins að hún hefði stað-
festan grun um að leita þyrfti í
húsum. Hann taldi hendur rann-
sóknaraðila hér á landi mjög
bundnar.
Þá benti hann á að það skipti
ekki máli hvort það væri ráðherra
eða Jón á götunni sem færu fram
á rannsókn mála; hver sem er
yrði að renna stoðum undir grun
sinn, en það hefði ekki verið gert
í þessu máli.
Kristinn Ólafsson tollgæslu-
stjóri var spurður hvers vegna
ekki hafi verið leitað á Hótel
Sögu þegar tollgæslan fram-
kvæmdi leit að smygluðu kjöti í
Reykjavík 25. nóv. sl. Hann svar-
aði því til að leitað hefði verið á
16 stöðum, sem valdir voru af
handahófi og Saga hefði ekki lent
í því úrtaki.
- S.dór
Yfirkjötmat ríkisins
Rannsóknarlögreglan
aldrei leitað álits
- Ekki hefur það nú verið enn-
þá, sagði Andrés Jóhannsson,
Yfirkjötmati ríkisins, þegar Þjóð-
viljinn spurði hvort Rannsóknar-
lögregla ríkisins hefði leitað fag-
legra ráðlegginga hjá honum
varðandi kjötsmyglið til landsins:
- Yfirkjötmat ríkisins hefur
lítið með málið að gera að öðru
leyti en í sambandi við merkingar
á kjöti. Ég kem ekki inn í mynd-
ina öðruvísi en sem faglegur
ráðunautur í sambandi við merk-
ingar og matsreglur. Ég hef ekk-
ert haft með þessa málsrannsókn,
eða hvað á að kalla það, að gera.
Þegar tollayfírvöld fram-
kvæma skyndirannsóknir, leita
þau þá faglegs mats þíns?
- Það hefur nú verið lítið um
það fram að þessu.
Var þá ekki haft samband við
þig þegar tollayfírvöld fram-
kvæmdu sína skyndirannsókn í
nóvember?
- Nei.
En hefði það ekki átt að vera
samkvæmt starfsreglum og
vinnulagi?
- Nú skal ég ekki um það
segja, en ég vissi ekki um það mál
fyrr en eftir á.
Hafa tollayfirvöld leitað áður
til þín?
- Það hefur ekki verið fyrr en
þetta kom upp í umræðunum
núna í haust.
En hefur Rannsóknarlögregla
ríkisins ieitað eftir faglegu mati
þínu þegar hún er að kanna svona
mál?
- Ekki hefur það nú verið enn-
þá, sagði Andrés Jóhannsson
yfirkjötmatsmaður ríkisins.
Embætti yfirkjötmats ríkisins í
Reykjavík hefur einungis einn
starfsmann,sem þarf t.d. að sinna
ágreiningsefnum varðandi mat á
kjöti auk fastra verkefna.
-óg
Nautakjötið
47 tonn af „óunnu66
ekki „unnu66 kjöti
Leiðrétting frá Loftleiðum
í tilefni af nautakjötsmálum
hafði fréttafulltrúi Loftleiða sam-
band við blaðið og vildi koma
þeirri leiðréttingu við fréttatil-
kynningu frá hótelinu á framfæri,
að Flugleiðahótelin (Esja og
Loftleiðir) hefðu á þessu ári feng-
ið 47 tonn af óunnu nautakjöti en
ekki unnu einsog stóð í fréttatil-
kynningunni frá hótelunum.
- Það sem af er árinu hefur
hótel Loftleiðir keypt 11 tonn af
unnu nautakjöti innanlands,
sagði Sæmundur Guðvinsson
fréttafulltrúi Flugleiða við Þjóð-
viljann í gær. _ ór