Þjóðviljinn - 17.12.1983, Síða 7
SPENNUSAGA
sem hefur ákveðna sérstöðu.
Hún fjallar um margt
er máli skiptir í tilverunni
(§) Skjaldborg
Nú hefur frést að áformað sé af
hálfu stjórnar Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins að leggja nið-
ur vísindabúið á Reykhólum. Þar
með væri stefnt í hættu árangrinum
af 22ja ára linnulausu og markvissu
brautryðjendastarfi nokkurra fær-
ustu erfðavísinda- og búfjárræktar-
manna okkar, doktors Stefáns
Aðalsteinssonar og nánustu sam-
verkamanna hans. Eins og alþjóð
mætti vita, hefur verið ræktaður á
Reykhólum hreinhvítur sauðfjár-
stofn. Árið 1959 lenti sauðfjárbú
tilraunastöðvarinnar á Reykhólum
í niðurskurði vegna mæðiveiki, en
frá 1961 hefur náðst að rækta fjár-
stofn með hreinhvíta ull og
hreinhvíta gæru, dýrar og eftirsótt-
ar afurðir, æskilegt hráefni í ein-
hvern dýrasta og eftirsóttasta iðn-
varning sinnar gerðar, dýrmæta
útflutnings- og gjaldeyrisvöru.
Árangur erfðavísindamannanna
liggur ekki aðeins í því að fá lang-
tum betri ull en áður og betri en
almennt gerist, þeir fá líka drjúg-
um meiri ull af hverri kind en þekk-
ist almennt. Árið 1982 gáfu 100
Reykhólaær af sér ull sem nam 8
dilksverðum framyfir það sem 100
ám á vísitölubúi er ætlað að gefa af
sér í ull. Illa væri þessi góði árang-
ur launaður ef vísindabú þetta
yrði lagt niður og þessi þáttur
sauðfjárræktarinnar gerður að
engu, elju og erfiði áratugum sam-
an kastað á glæ. Iðnfólkið í
landinu, allur sá fjöldi sem vinnur
við ull og gærur og á afkomu sína
undir því að vel takist til ætti að
gefa málinu gaum og biðja þessari
vísindagrein griða, að ekki sé nú
talað um fjárbændurna í landinu,
framtíð þeirra og hagsmuni.
Áform af þessu tagi, að stöðva og
afmá vísindastöð, geta ekki komið
til af öðru en svæsnum þrýstingi af
hálfi einhverra misviturra í her-
búðum fjárveitingavaldsins. Þeim
hinum sömu væri hollt að hugsa sig
um og átta sig á að þessi vísinda-
grein verður ekki stunduð í tilraun-
astofu við borgarstræti.
Það verður tekið eftir því í kjör-
dæmi forsætisráðherrans, Vest-
fjarðakjördæmi, hvort skildi verð-
ur brugðið fyrir þessa einu land-
búnaðarvísindastofnun sem fyrir-
finnst í kjördæminu. Svipuðu máli
gegnir um landbúnaðarráðuneytið
á landsmælikvarða hvorki það né
bændasamtökin í landinu geta ver-
ið þekkt fyrir að vanþakka, forsmá
og afmá einhver hagnýtustu vísind-
astörf sem unnin hafa verið í þágu
íslensks landbúnaðar.
Játvarður Jökull Júlíusson,
Miðjanesi, Reykhólasveit.
Játvarður Jökull skrifar um Til-
raunastöðina á Reykhólum.
Eiríkur
Jóhannesson
skátaforingi
Fœddur 9. sept. 1900.
Dáinn 12. des. 1983.
BARRY REED
læknarmr heldu þvt fram
að hér hefðu óviðráðan-
leg ofl verid ad verki,
en harftskeyttur lög-
fræftingur sannaði
á þá handvömm.
Helgin 17.-18. desember 1983 1 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Játvarður Jökull Júlíusson:
Hreinhvíta fjárstofninum á
Reykhólum stefnt í voða
Panasonic
gœði
Varanleg gœði
Fást í öllum bókabúðum
Verð 839.80 kr.
hvert bindi
BÓKAÚTGÁFAN
tJelgaftU
Veghúsastíg 5
Sími 16837
Ritsafn Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi
Hraunbúar, Eiríkur, hamingju bœði og gleði
hafa margsinnis sótt til þín, daga sem kveld.
Á vormótum okkar svo fjölmargt skemmtilegt skeði,
er skátar sér léku og sungu við snarkandi eld.
Já, þar varst þú Eiríkur löngum lífið og sálin,
leikandi á gítar og yrkjandi skátasöng.
Með kímni í augum þú kastaðir sprekum á bálin,
og kvöldin þau urðu okkur hvorki dimm eða löng.
Hlýr í athöfn, hugsjónamaður í verki,
heillar og mótar unga viðkvœma sál.
Hraunbúar bera yngri sem eldri þess merki
við eldinn að hafa numið þitt tungumál.
Við þökkum þér Eiríkur þúsund brosin þín hlýju,
þökkum vináttu, samfylgd um dali og fjöll.
En einhvern tíma aftur við hittumst að nýju
við eldinn og heyrum þar söngva, hlátur og köll.
Á hugans lendur myndir margar skrifa
minningar sem óralengi lifa.
Vertu svo œtíð sæll og blessaður bróðir.
Blessun þér fylgi um ókunnar, nýjar slóðir.
Með skátakveðju,
Hörður Zóphaníasson
Ný heildarútgáfa í 9 bindum
Ljóðabækur
Að norðan I
I þessu bindi eru Ijóðabækurnar:
Svartar fjaðrir - Kvæði
Kveðjur og Ný kvæði
Að norðan II
Ljóðabækurnar
( byggðum - Að norðan
og Ný kvæðabók
Að norðan III
Idögun -
Ljóð frá liðnu sumri
Að norðan IV
Síðustu Ijóð
Ræður og ritgerðir
Mælt mál
Skáldsaga
Sólon Islandus l-ll
Heimildarskáldsaga um uppvöxt og
œvi hagleiksmannsins og heim-
spekingsins Sölva Helgasonar.
Leikrit
Leikrit I
Munkarnir á Möðruvöllum -
Gullna hliðið
Leikrit II
Vopn guðanna -
Landið gleymda
Hinsta kveðja frá Hraunbúum
og Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
Komin er stundin að kveðja þig vinur og bróðir,
kvikna svo lifandi ótal myndir af þér.
Við fetum í huganum fornar og nýjar slóðir,
ég finn að þú gengur ennþá þær leiðir með mér.