Þjóðviljinn - 17.12.1983, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983
FRA ÞORBERGl ÞORÐARSYNI
SKRIFUÐ 1922 - 1931
Þessi bréf eru ástarbréf og eiga engan sinn líka í
íslenskum bókmenntum. Enda eru þau varðveitt fyrir
undarlega tilviljun, eins og glöggt kemur fram í inngangi
Indriða G. Þorsteinssonar fyrir bókinni.
Og þessi bréf segja ástarsögu sem er bæði falleg
og fagurlega skráð. Og sú saga á vafalaust eftir að valda
lesendum ýmsum heilabrotum.
Sóla og Þórbergur unnust hugástum, það sjáum við glöggt
af bréfunum. En hvers vegna auðnaðist þeim ekki að njótast?
„Bagga mín. Þetta er svo löng saga“, sagði Sóla við Guðbjörgu
dóttur sína, þegar hún gekk á hana um sambandsslitin.
Að öðru leyti er málið hulið þögn af hennar hálfu.
Guðbjörg er dóttir Sólrúnar og Þórbergs
og hafa báðir foreldrar hennar
skilið eftir yfirlýsingar því til staðfestingar.
En hún hefur ekki fengið það viðurkennt af dómstólum.
Eru þau undarlegu mál skýrð hér og rakin í inngangi
fyrir bréfunum og málsskjöl og dómsniðurstöður
birtar í bókarlok.
Dreifing: AB Skemmuvegi 36, Kópavogi.
Sími 73055.
QT 12 Sharp
Létt og meðfæranlegt feröatæki.
Fæst í rauöu. FM steríó,
SW/MW/LW. 220V AC — 6V DC.
Verd kr. 7.740.-
SHARP
góðir
ferðafélagar
sem taka Rás 2
GF5454 Sharp
ferðatæki, 2x4,8W. FM
steríó, SW/MW/LW. Meö
sjáifvirkum lagaleitara.
220V AC—9V DC.
Verö kr. 8.560.-
QT-37HD
QT-37HG
QT 37 Sharp
feröatæki m. lausum
hátölurum. 2x6W. FM
steríó, SW/MW/LW.
220V AC — 12V DC.
Meö sjálfvirkum laga-
leitara „Dolby Metair
o.fl.
Verð kr. 10.940.-
GF4747 Sharp
Steríó ferðatæki 2x3,4W.
FM steríó, SW/MW/LW.
220V AC — 9V DC.
Verð kr. 6.250.-
HLJÖMBÆR ^®SiííÉ«
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI R,Y^R,fJnnnÖTU 103
oiMi yyy
HELSTU UMBOÐSMENN:
Portiö. Akranesi
Kaupf. Borgfirðinga
Sería, ísafirði
Álfhóll, Siglufirði
Skrifstofuval, Akureyri
Kaupf. Skagf. Sauðárkróki
Radíóver, Húsavík
Ennco. Neskaupstað
Eyjabær, Vestm.eyjum
M.M., Selfossi
Fataval, Keflavík
Kaupf. Héraðsb. Egilsstöðum
Endurminningar
Thors Jensens
Almenna bókarfélagið hefur sent
frá sér Minningar Thors Jensens í
tveimur bindum skrásettar af Valtý
Stefánssyni ritstjóra. Þetta er 2.
prentun Minninganna, en fyrrí
prentunin kom út 1954 og 1955.
Thor Jensen var sá einstaklingur
sem lagt hefur einna drýgst af
mörkum til atvinnumála Islend-
inga á þessari öld. Hann var kunn-
astur fyrir útgerðarfélagið Kveld-
úlf sem hann stofnaði með sonum
sínum 1912 og rak, þannig að
Kveldúlfur var um áratugi stærsta
og glæsilegasta útgerðarfélag
landsins.
Thor Jensen rak einnig lengi bú-
skap og var bú hans á Korpúlfs-
stöðum hið stærsta hér á landi á
seinni öldum.
Fyrri hluti minninganna nefnist
Reynsluár og síðari hlutinn Fram-
kvæmdaár. Bækurnar eru með
fjölda mynda bæði af
mannvirkjum, tækjum og þó eink-
um af fjölskyldumeðlimum og
samstarfsmönnum Thors Jensen.
Fyrra bindið, Reynsluár er 246
bls. að stærð og síðara bindið,
Framkvæmdaár 264 bls.
Kindakjöts-
framleiðslan
823 tonnum
minni en
í fyrra
í haust nam slátrun hjá Sam-
bandskaupfélögunum 632 þús.
fjár. Kjötið 9.451 tonn. Áætlað er
að þessi tala sé um 73% af allri
slátruninni. Hjá öðrum slátur-
leyfishöfum hafi þá verið slátrað
234 þús. fjár og kjötið 3.496 tonn.
Alls var því slátrað 866 þús. fjár,
dilkum og fullorðnu og nemur
kjötframleiðsan 12.947 tonnum. -
Þetta er nokkru minna en í fyrra.
Þá var slátrað 942 þús. kindum og
kjötið var 13.770 tonn. Kindakjöts-
framleiðslan í ár er því 823 tonn-
um minni en í fyrra.
-mhg
Feðrabók
af
kennurum
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Skuggsjá, Hafnarfirði, bókin Faðir
minn - Kennarinn, sem Auðunn
Bragi Sveinsson skólastjóri hefur
safnað efni í. í bókinni eru fjórtán
þættir um landskunna kennara,
sem allir hafa haft mikil áhrif í
uppeldis- og fræðslur lálum þjóðar-
I innar. Þættirnir eru skráðir af
[ börnum þeirra og er þessa þætti að
fínna í bókinni:
Gísli R. Bjarnason eftir Kristin
Gíslason; Kristján Júlíus Jóhann-
esson eftir Andrés Kristjánsson;
Sigurjón Jóhannsson eftir Katrínu
Bryndísi Sigurjónsdóttur; Steinþór
Jóhannsson eftir Bryndísi
Steinþórsdóttur; Magnús Péturs-
son eftir Ingibjörgu R. Magnús-
dóttur; Friðrik Hansen eftir Emmu
Hansen; Ingimar Hallgrímur Jó-
hannesson eftir Sigríði Ingimars-
dóttur; Jóhannes Guðmundsson
eftir Sigurjón Jóhannesson; Hall-
dór Sölvason eftir Þórhildi Hall-
dórsdóttur; Jóhann Þorsteinsson
eftir Kjartan Jóhannsson; Helgi
Ólafsson eftir Gizur í Helgason;
Guðmundur Þorláksson eftir
Stellu Guðmundsdóttur; Benedikt
Guðjónsson eftir Brynju Kristjönu
Benediktsdóttur; Ólafur Hansson
eftir Gunnar Ólafsson.
Skuggsjá hefur áður gefið út
fimm hliðstæðar bækur um lækna,
bændur, skipstjóra, presta og
skólastjóra.