Þjóðviljinn - 17.12.1983, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. désember 1983
Skilaboð
tilSöndru
Frumsýnd í dag
Skilaboð til Söndru, ný íslensk kvikmynd sem gerð er eftir
samnefndri skáldsögðu Jökuls Jakobssonar, verður frum-
sýnd í Háskólabíói 17. desember n.k. Skilaboð til Söndru var
síðasta útgefna skáldsöga Jökuls, en á þessu ári hefur þess
verið minnst með ýmsum hætti að hann hefði í haust orðið
fimmtugur.
Handritið, sem Guðný Halldórs-
dóttir skrifaði í samvinnu við
Kristínu Pálsdóttur, Ieikstjóra
myndarinnar og Árna Þórarinsson,
var unnið s.l. vor, og eftir að fram-
leiðandi myndarinnar, Kvikmynd-
afélagið Umbi sf. hlaut til verksins
styrk frá Kvikmyndasjóði íslands
var hafist handa við tökur. Þær
fóru fram fyrri hluta sumars í
Reykjavík og nágrenni, og á
Grikklandi, en eftirvinnsla hefur
staðið yfir síðan.
Skilaboð til Söndru fjallar um
rithöfundinn Jónas, sem Bessi
Bjarnason leikur. Jónas fær það
sem kallað er „stóra tækifærið":
Hann á að skrifa kvikmyndahand-
rit um sjálfan Snorra Sturluson á
samningi hjá ítalska kvikmyndafé-
Iaginu. Jónas dregur sig út úr
skarkala borgarlífsins og sest við
skriftir við bestu skilyrði í sumar-
húsi uppí sveit. En þótt menn fái
stór tækifæri við bestu skilyrði dug-
ir það ekki alltaf til. Jónas lendir í
erfiðri glímu við sjálfan sig, verk-
efni og ýmis aðskotadýr sem að
honum steðja eftir að til hans hefur
ráðist ráðskona,Sandra, sem Ásdís
Thoroddsen leikur. Frá þessari
glímu segir í kvikmyndinni Skila-
boð til Söndru.
í öðrum aðalhlutverkum eru
Bryndís Schram, Benedikt Árna-
son, Jón Laxdal, Birna Þórðardótt-
ir, Rósa Ingólfsdóttir, Þorlákur
Kristinsson, Bubbi Morthens,
Elías Mar og Andrés Sigurvinsson.
Kvikmyndataka var í höndum Ein-
ars Bjarnasonar, hljóðupptaka er
verk Böðvars Guðmundssonar,
tónlist er eftir Gunnar Reyni
Sveinsson og Bubba Morthens; um
leikmynd sá Hákon Oddsson, og
förðun og búninga Ragnheiður
Harvey. Myndin er klippt af Karli
Sigtryggssyni og hljóðklippingu
annaðist Þorsteinn Ulfar Björns-
son. Framkvæmdastjóri var Guðný
Halldórsdóttir.
„Guð Jónas,
hvað þú ert
Rœtt við Rósu
Ingólfsdóttur
sem leikur
eiginkonu Jónasar
,JÉg leik Eygló, eiginkonu Jónas-
ar (Bessa Bjarnasonar)“, sagði
Rósa Ingólfsdóttir teiknari hjá
sjónvarpinu er blaðamaður hafði
samband við hana. „Við hjónin
erum afskaplega miklar manneskj-
ur og höfum okkar kosti og galla,
eins og gengur og gerist, en hjóna-
bandið er byggt á sandi“.
„Það skröltir samt áfram og er
búið að ganga á ýmsu, partístandi,
framhjáhöldum, brennivíni og
sennilega slagsmálum og er eigin-
lega komið í þrot. Hann fær þá tæk-
ifæri til að skrifa kvikmyndahand-
rit að kvikmynd um Snorra Sturlu-
son en hún vinnur stóran vinning í
bingó og ákveður að fara til Hawai.
Hún kemst samt aldrei lengra en til
Los Angeles og er þar bara í víni og
hinu ljúfa lífi - nýtur
skemmtanalífsins í botn.
Meðan hún er í burtu lendir
hann í að leika í klámmynd og af
tilviljun sér hún þessa klámmynd í
Los Angeles og sér mann sinn al-
veg í nýju ljósi og ástríðan blossar
upp í henni. Hún hringir strax
„collect“ til íslands og segir: „Guð
Jónas, hvað þú ert æðislegur“. Síð-
Hjónabandið eins og brotið glas.
Rósa Ingólfsdóttir í hlutverki Eyg-
lóar, konu Jónasar (Bessa Bjarna-
sonar).
an kemur hún heim en þá hefur
hann lent í ýmsu í millitíðinni og
þau ná ekki saman. Þau eru brotið
glas.“
„Hvernig finnst þér að leika í
kvikmynd?
„Ég umgengst kvikmyndavélar
dags daglega í sjónvarpinu og var
því eins og heima hjá mér. Þetta
var ekkert sjokk.
-GFr
Bessi Bjarnason og Ásdís Thoroddsen leika aðalhlutverkin: Jónas rithöfund og Söndru.
Spjall við Bubba Morthens
Ást milli
vélar og
leikara
„Mitt hlutverk í þessari kvik-
mynd er ekkert annað en óvæntur
hlutur í lífi Jónasar rithöfundar í
smátíma. Eg er einn af þessum vím-
ukríminöllum sem ryðjast inn í
bústaðinn, vinir og aðdáendur
Söndru“, sagði Bubbi Morthens
þegar við forvitnuðumst um hans
hlut í Skilaboðum til Söndru.
„Og þið eruð teknir fastir“?
„Já, lögreglan nær í okkur undir
lokin. Birna Þórðardóttir er yfir-
maður þeirrar „aksjónar“.“
„Þú ert vanur að vera á sviði en
ekki í svona hlutverki. Hvernig
finnst þér það“?
„Þetta er ekki svo frábrugðið því
sem maður hefur verið að gera þó
að þetta sé svolítið öðruvísi vinnu-
lag. Á sviðinu er maður þá og nú en
þetta býður upp á stærri og víðari
möguleika".
í fyrsta
sinn við-
tal við
mig sem
kvikmynda-
leikara
segir Elías Mar
„Þetta er í fyrsta sinn sem haft er
viðtal við mig sem kvikmynda-
Ieikara“, sagði Elías Mar rithöf-
undur og hló við þegar blaðamaður
hafði samband við hann tilaðfor-
vitnast um hlutverk hans í Skilaboð-
um til Söndru, en hann leikur þar
amerískan eiginmann Bryndísar
Schram.
„Ég leik ekki neitt; sit bara eins
og kless^ og er þetta því frekar stutt
hjónaband", sagði Élías. „Ég kem
aðeins fram í tveimur stuttum sen-
umen Bryndís leikur miklu meir og
hefur margar replikkur. Eiginmað-
Einn af smákrimmunum tekinn (Bubbi Morthens). Jónas rithöfundur til
hægri (Bessi Bjarnason).
„Það vantar þetta beina sam- inn sér grein fyrir því. Vélin kemur
band við áheyrendur?" í stað heyrandans og áhorfandans
„Já, þetta er eins konar ástar - og maður verður að setja alla sína
samband milli vélarinnar og leikar ást og innlifun í þetta kalda appar-
ans og að sjálfsögðu gerir leikar- at.“ -GFr
Elías Mar og Bryndís Schram í hlutverkum sínum sem vafasöm hjón sem
koma frá Ameríku.
urinn kemur fram sem lamaður
maður í hjólastól og er kannski líka
andlega vanheill. Hún er fyrrver-
andi fegurðardrottning og virðist
hafa gifst honum til fjár. Það er
verið að taka vafasama kvikmynd á
laun og hann virðist fjármagna fyr-
irtækið. Þetta er einhvers konar
fjárkúgun. Það var ósköp létt og
löðurmannlegt að leika þetta af
minni hálfu“.
„Það hefðu nú kannski margir
viljað vera í þínum sporum að leika
eiginmann Bryndísar Schram?“
„Já, það má kannski segja það“.
-GFr