Þjóðviljinn - 17.12.1983, Síða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 17,—18. desember 1983
I
íslandssaga
Framhald af bls. 11
hefði verið að fella „brott úr náms-
efni á því skólastigi heil 900 ár í
vegferð þjóðarinnar.“
Athyglisvert er að báðir þessir
greinarhöfundar létu sér nægja til-
vísun til skrifa Morgunblaðsins:
um önnur vitni varðandi þjóðar-
háskann sem þeir sáu fyrir sér var
ekki hirt. Segir þetta sína sögu um
hversu lærðum og háttsettum
mönnum getur verið ósýnt um að
beita gagnrýni við lestur dagblaða
og svara einföldustu kröfum um
söfnun upplýsinga áður en þeir
kveða sér opinberlega hljóðs.
Málatilbúnaður af þessu tagi virð-
ist því miður fremur regla en und-
antekning í dagblaðaumræðu á ís-
landi, hvort sem um er að kenna
veilum í skólafræðslu okkar eða
einhverju öðru.
Umræða eða
sleggjudómar?
Fyrirspurn Olafs Þ. Þórðarsonar
gaf menntamálaráðherra tækifæri
til að upplýsa þing og þjóð um efn-
isatriði málsins og minna á nokkrar
einfaldar staðreyndir. Fyrirspurn-
inni var svarað 22. nóv. Ráðherra
vitnaði m.a. í greinargerð deildar-
stjóra skólarannsóknadeildar; þar
sagði að víðsfjarri væri „öllum
sanni að dregið hefði verið úr
kennslu í fslandssögu fyrir til-
verknað skólarannsóknadeildar.
Sé íslandssaga kennd í minna mæli
nú en áður, er það af öðrum or-
sökum...“. Jafnframt lýsti ráð-
herra þeirri skoðun sinni að mark-
mið íslandssögukennslu ætti að
vera að „efla sjálfstæða hugsun
nemenda, byggða á miðlun stað-
góðrar þekkingar, þekkingar á
staðreyndum."
En það er nú fullljóst af fram-
haldi þessarar umræðuhrotu um ís-
landssögukennslu að mörgum
greinarhöfundum gengur eitthvað
annað til en virðing fyrir stað-
reyndum eða ósvikinn áhugi á
uppeldis- og fræðslumálum. Þótt
yfirvöld menntamála og starfs-
menn Skólarannsóknardeildar hafi
gert ljósa grein fyrir málavöxtum,
heldur hver greinarhöfundurinn á
fætur öðrum áfram að japla á sömu
ósannindatuggunni: í skólunum er
verið að útrýma íslandssögunni,
menningararfleifðinni, þjóðern-
iskenndinni! Síðasta tilbrigðið við
þetta stef birtist í Morgunblaðinu
13. des. undir nafni Gunnars Finn-
bogasonar skólastjóra. Stafestir
þetta það sem Ingvar Gíslason
fyrrv. menntamálaráðherra sagði í
grein í Tímanum 22. nóv. að þessi
umræða er „sama marki brennd og
löngun fyrr, þegar menn láta svo
lítið að ræða um fræðslumál á opin-
berum vettvangi. Óafvitandi eru
hinir ágætustu menn orðnir
leiksoppar hleypidóma og þröng-
sýni.“
Eins og áður segir er ekki nema
eðlilegt að menn greini á um mark-
mið og leiðir í uppeldis- og fræðslu-
málum í þjóðfélagi okkar. Það er
jafnframt æskilegt að slík á-
greiningsefni séu rædd á opinber-
um vettvangi. Hins vegar er vand-
séð hvernig umræða, sem ein-
kennist af aðdróttunum, ósannind-
um og fordómum, getur þjónað
jákvæðu markmiði. Þeir sem hafa
kveðið sérhljóðsí þessari umræðu
hafa, margir hverjir, ekki Játið sér
nægja að gera opinbera stofnun,
Skólarannsóknardeild, tortryggi-
lega, heldur hafa þeir veist að ein-
um starfsmanni hennar af fullkom-
inni óskammfeilni. Þessar per-
sónulegu árásir eru þeim mun
ósæmilegri sem umræddur nám-
stjóri er nýlega tekinn til starfa.
Þannig hefur verið haldið fram að
Erla Kristjánsdóttir beri persónu-
lega ábyrgð á ákvörðunum sem
teknar voru af réttbornum yfir-
völdum fyrir allmörgum árum þeg-
ar stofnað var til kennslu í samfé-
lagsfræði. í stað þess að skeyta
skapi sínu á einstaklingi sem kom
hvergi nærri þeirri ákvörðun, ættu
menn að sjá sóma sinn í að beina
skeytum að þeim sem verða rétti-
lega taldir ábyrgir. Ábyrgðin hvílir
hér ekki einvörðungu á embættis-
og framkvæmdavaldinu. Þeir
stjórnmálamenn sem ganga nú
fram og segja sér hafi verið ókunn-
ugt um jafnmikilvæga breytingu á
námsskipan grunnskólans og til-
koma samfélagsfræði verður að
teljast, geta ekki firrt sig ábyrgð á
þeirri ákvörðun. Svo mikið er víst
að um leið og þeir lýsa vanþekk-
ingu sinni, eru þeirað bera vitni um
að þeir hafi skeytt lítið mörg und-
anfarin ár, um þróun skólamála í
landinu. Loítur Guttormsson.
Urvalsbækur
Helgafells
á úrvalsverði
Fást í öllum bokabuöum
Ljóðasöfn
Steinn Steinarr: Kvæðasafn og
greinar kr. 494.00
Stefán frá Hvítadal: Ljóðmæli kr.
370.50.
Þorsteinn Erlingsson: Eiðurinn kr.
370.50.
Magnus Ásqeirsson: Ljóðasafn l-ll
kr. 741.00
Hannes Hafstein: Ljóð og laust mál
kr. 370.50.
Steingrímur Thorsteinsson: Ljóð-
mæli kr. 370.50.
Sigurður frá Arnarholti:
Ljóðmæli kr. 370.50.
Listaverkabækur
Gunnlaugur Blöndal kl. 741.00
Þórarinn B. Þorláksson
kr. 864.50
Skáldsögur
Myndskreyttar
Piltur og stúlka kr. 407.55.
Maður og kona kr. 432.25.
Ævisögur
Ævisaga sr. Jóns Steingrímssonar
kr. 555.75.
í verum l-ll, sjálfsævisaga Theó-
dórs Friðrikssonar
kr. 741.00.
Smásögur
Sögur Svövu Jakobsdóttur
kr. 247.00.
Barnabækur
Muggur: Dimmalimm
kr. 148.20.
Páll H. Jónsson: Berjabítur
kr. 111.15.
Bókaútgáfan
(|ctgafeU
Veghúsastíg 5
sími16837
Panasonic
Dolby-Steríó
íyrir íramtíðina.
Hulduskáldin koma fram
í jólabókaflóðinu miðju ætla
Hulduskáldin að lesa upp úr verk-
um sínum í Norræna húsinu á
sunnudag kl. 16.00. Hulduskáldin
eru þau skáld sem hafa haslað sér
völl utan hinnar hefðbundnu Ijóð-
aútgáfu og gefíð verk sín út sjálf.
Á fundi með blaðamönnum í gær
sagði Birgir Svan Símonarson að
með þessum upplestri hyggðist
huldufólk bókmenntanna stíga
fram úr hulduheimum sínum til
þess að opinberast landslýð af því
örlæti sem einungis hæfir góðum
skáldskap. 49
Skáldin sem hér um ræðir eru
auk Birgis þau Elísabet Jökulsdótt-
ir, Berglind Gunnarsdóttir, Jón
Þorleifsson, Sveinbjörn Þorkels-
som Sveinbjörn Beinteinsson, Ein-
ar Olafsson og Pjetur Hafstein Lár-
usson.
Pjetur Hafstein sagði á fundi
með fréttamanni að 70% þeirra
ljóðabóka sem komið hefðu út á
undanförnum árum eftir yngri
skáld væru eiginútgáfur. Væri hér
um merkan meið á íslenskum bók-
menntastofni að ræða, og ætti Sig-
urjón Þorbergsson prentsmiðju-
stjóri í Letri skilið sérstaka orðu
fyrir það starf sem hann hefur unn-
ið fyrir eiginútgáfuhöfunda.
Berglind Gunnarsdóttir, sem ný-
lega hefur gefið út sína fyrstu bók,
sagði að það að gefa út eigin bók
væri eins og að koma barni til
manns.
Hin mannvænlegu börn huldu-
skáldanna verða leidd fram með
galdri ljóðsins í Norræna húsinu á
sunnudaginn öllum forvitnum til
yndisauka í jólaflóðinu. Aðgangs-
eýrir í formi rúllugjalds gildir jafn-
framt sem happdrættismiði og eru
börnin í vinning.
ftifc tilboöum í
o.fj&fynp verk-
rkio^cal vinnast
útbqrf.
Sjóefnavinnslan h.f. ós.
200; pípulagnir,
sn^oju sína á Reykjanes' ______
fyrri hluta ársios 1984. ÚtboösgSgi>fást af- A
hent á ^a^abfu Sjóefnavinnslunnar h.f., ^
Vatnsnes^^|lr4, Keflavík og hjá Vermi h.f.,
Höfðabafcka ygÍReykjavík, gegn 1.000.00 kr.
skilatrygginguW
Tilboö veröa opnuö hjá Vermi h.f. föstudag-
inn 6. janúar 1984, kl. 11:00 f.h.
Jólagjöf til þín
/)lóteLJjofo
Rauðarárstíg 18 S. 28866
Vegna nafnbreytingar býð-
ur Hótel Hof gistingu og
veitingar á sérstöku kynn-
ingarverði fram að jólum.
1 manns herbergi með
morgunverði kr. 500.-
2ja manna herbergi með
morgunverði kr. 650.-
Fyrir þá sem eru í verslun-
arerindum á Laugavegin-
um, eru Ijúffengar kökur og
frítt kaffi á boðstólum í
veitingasal.
Notið þetta einstaka tæki-
færi. Við breytum ekki nafn-
inu á næstunnl.
S\NGAPOf}f
REKKJAN
Sænsk
gæðavara
Sænsk
gæðavare
I FJORUM LITUM
Opið í öllum deildum: mánud.-míðvikud. 9—18,
fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—12
Jon Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild
^ Sími 28601
Opiö
til
kl. 10
í kvöld
Opið
til
kl. 10
í kvöld