Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. desember 1983 Gunnlaugur Stefánsson. Fyrir þær fjórar miljónir sem safnast hafa, er hægt að kaupa og senda eggjahvítuefni sem nægja einni miljón manns í einn dag. (Ljós- mynd - Magnús). Söfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar Fjórar miljónir safnast Eggjah vítuefni í miljón dagslcammta Mikið um að vera hjá Mœðrastyrksnefnd Þörfín aldrei meiri Þörfín fyrir aðstoð hefur aldrei verið meiri, sögðu konurnar í Mæðrastyrks- nefnd er Þjóðviljinn leit við hjá þeim í gær. Þrengingarn- ar hafa ekki verið jafn mikl- ar á undanförnum árum og því leita heimilin að sjálf- sögðu meira til Mæðra- styrksnefndar, sögðu þær stöllur sem rétt gáfu sér tíma frá miklum önnum til að leyfa ljósmyndara að smella af mynd. - Mæðrastyrksnefndin í Reykja- vík fær fé og fatnað frá einstak- lingum og fyrirtækjum til úthlutun- ar fyrir þá sem eru þurfandi. Sögðu þær ekki fara á milli mála, að þörf- in væri brýn og víða skortur fyrir jólin. Einstaklingar og fjölskyldur þyrftu þessarar aðstoðar við. Nefndin sendi út lista til fyrirtækja og báðu þær velunnara sem enn hefðu ekki gert það að senda þá sem fyrst til nefndarinnar aftur. Þá ítrekuðu þær, að enn vantaði lög- fræðing til að sinna ýmsum verk- um, helst einhvern sem gæti unnið Guðlaug Júlíusdóttir, Unnur Jónasdóttir, Jóhanna Stefánsdóttir, Helga Rafnsdóttir og Sigrún Ingólfsdóttir. - (Ljósmynd Magnús). á milli kl. 5 og7 síðdegis. Skrifstofa Njálsgötunni er bæði tekið við 14.00 til 16.00 daglega og síminn er nefndarinnar er að Njálsgötu 3, framlögum og umsóknum um að- 14349. póstgírónúmer 36600-5. Á stoð. Skrifstofan er opin frá kl. -óg Söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar hefur sjaldan verið jafn vel tekið og nú, sagði Gunn- iaugur Stefánsson í viðtali við Þjóðviljann í gær. Þegar hafa safnast um 4 miljónir króna. - Við höfum orðið vör við að fjölskyldur hafa tekið höndum saman til styrktar þessari starf- semi og almenn þátttaka hefur sjaldan verið meiri. Þannig hafa t.d. fleiri verið sjálfboðaliðar fyrir þessi jól en oft áður og hjá al- menningi mætum við skilningi og örlæti. Á Þorláksmessu verður hápunktur söfnunarinnar og væntum við góðs árangurs einnig þá. - Það er óhætt að átta sig á því, að fyrir fjórar miljónir króna er hægt að kaupa og senda miljón dagskamta af eggjahvítuefnum en þörfin er einmitt mest fyrir eggja- hvítuefni á hungruðu svæðunum, sagði Gunnlaugur Stefánsson. -«g Byggingar- vísitalan hækkar um 3.83% Byggingarvísitala hefur hækkað um 3.83% frá því í september samkvæmt útreikningum Hafstofu íslands. Hún var 149.37 stig í september en reyndist í desember vera 155.09 stig. Gildir sú vísitala fyrir mánuðina janúar-mars 1984. Áætluð vísitaia byggingarkostnaðar miðað við nóvemberverðlag 1983 var 153.87 stig, og er því hækkun hennar frá nóvember til desember 0.79%. Tónlist á hveriu heimili umjólin Sigurjón Hreiðarsson hjá Hjálparstofnun kirkjunnar Vaxandi þörf á innanlandshjálp - Það hefur mikið verið leitað til okkar, sagði Sigurjón Hreiðarsson hjá Hjáiparstofn- un kirkjunnar, en hann sér um innanlands deild hjá Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Hingað leita bæði einstaklingar, fjöl- skyldur og félagsráðgjafar auk sóknarprestanna sem sjá um aðstoðina af okkar hálfu, sagði Sigurjón. - Okkar aðstoð beinist aðal- lega að þeim sem lenda framhjá kerfinu, þ.e. njóta ekki nægi- legrar félagslegrar aðstoðar, lifa einungis af örorkubótum eða eru í erfiðri aðstöðu af öðr- um ástæðum. - Við verðum vör við að erf- iðleikarnir hafa sjaldan verið meiri og beiðnir um liðsinni eru vaxandi nú í desembermánuði. Það koma núna margar beiðnir á dag. - Beiðnirnar koma í gegnum sóknarprestana og þeir fá einn- ig fyrst beiðnirnar frá okkur til athugunar. Við förum með sérstakri aðgát í þessum þætti okkar starfs, þar sem um við- kvæmnis mál er yfirleitt að ræða. En þörfin er brýn, og fer Sigurjón Hreiðarsson: Verðum áþreifanlega vör við vaxandi þörf fyrir aðstoð við einstaklinga og fjöl- skyldur hér á landi. - Ljósmynd: Magnús. vaxandi sem sést t.d. af því, að hingað eru farnar að berast beiðnir frá félagsráðgjöfum, Félagsráðgjafar sjá stundum ekki aðra leið til hjálp- ar skjólstœðing- um sínum en leita til kirkjunnar sem sjá ekki aðrar leiðir til að- stoðar skjólstæðingum sínum fyrir jólin en leita til okkar. Og við reynum að verða öllum sem þurfa til hjálpar, sagði Sigurjón Hreiðarsson að lokum. ~óg Guðbjörg Steindórsdóttir í bréfi til fjölmiðla Ég er dóttir Þórbergs „í tilkynningu frá Máli og menn- ingu, sem birtist í dagblöðunum 17. þ.m., eru ásakanir í minn garð fyrir að ég skyldi hafa gefið út bréf frá föður mínum, Þór- bergi Þórðarsyni, til móður minnar, Sólrúnar Jónsdóttur, sem skrifuð voru á árunum 1922- 1931. Eg vil gjarnan í tilefni af þess- um ásökunum skýra hversvegna ég ákvað að gefa þessi bréf út. Allir sem til þekkja vita og viður- kenna að ég er dóttir Þórbergs Þórðarsonar, og þarf ekki að fara nánar út í það, fyrir því liggja nægar sannanir. En opinberlega er það ekki viðurkennt. í æviá- gripum um föður minn, sem án efa verða oftsinnis skráð, mun standa að hann hafi átt eina laundóttur og ekki aðra afkom- endur. Við þetta sætti ég mig ekki. Eg er ekki laundóttir eins eða neins og vil því bæði mín vegna og barna minna hljóta opinbera staðfestingu á réttu fað- erni mínu, eins og foreldrar mínir óskuðu eftir. Það er talað um í athugasemd Máls og menningar að bréfin hafi ekkert bókmenntalegt gildi. Um Ég vil aðfólk viti um þessi mál og hver og einn geti dœmtfyrir sig. það er ég ef til vill ekki fær að dæma, en ég hef fyrir því orð manna sem meira skynbragð bera á það en fulltrúar Máls og menningar virðast gera að bréfin séu vel skrifuð og á engan hátt niðrandi hvorki fyrir föður minn, móður mína eða aðra. Talað er um að ég hafi brotið siðareglur í bókaútgáfu. Ég er ekki bókaútgefandi og þekki ekki hvort einhverjar aðrar siðareglur gilda meðal þeirra en annars staðar í mannlegu samfélagi. En samkvæmt mínum skilningi á siðareglum get ég ekki fundið neitt brotlegt við það að leyfa fólki að koma fram eins og það er klætt, ekki síst þegar það kemur fram eins og faðir minn í þessum bréfum. Samkvæmt mínum skiln- ingi sýna bréfin að hann var ekki aðeins mikill rithöfundur, heldur var hann líka mikill og elskulegur maður. Það er að vísu engin ný vitneskja því að þetta vita allir sem þekktu hann. En þegar þeir eru komnir undir græna torfu munu bréfin standa sem sönnun- argagn um þetta, auðvitað ásamt ýmsu öðru sem hann lét frá sér fara. En á mér hafa verið brotnar siðareglur og það á ég erfitt með aö fyrirgefa, og er þaö ein af or- sökum þess að bréfin eru nú kom- in fyrir almenningssjónir. Ég vil að fólk viti um þessi mál og hver og einn geti dæmt fyrir sig. Ég vænti þess að mér auðnist að fá opinbera viðurkenningu á fað- erni mínu áður en lýkur mínum hérvistardögum, en verði ekki skilgreind áfram sem Iaundóttir. Reykjavík, 20. desember, 1983, Guðbjörg Steindórsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.