Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 21. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 United féll í Oxford Manchester United var í fyrra- kvöld slegið útúr enska mjólkur- bikarnum í knattspyrnu af efsta liði 3. deildar, Oxford United. Þetta var þriðja viðureign liðanna, hinar tvær fyrri enduðu báðar 1-1. Arthur Graham skoraði snemma fyrir United en George Lawrence, blökkumaður sem áður var hjá Southampton, jafnaði fyrir heimaliðið. Það var síðan í fram- lengingu sem Steve Biggins skoraði sigurmark Oxford og tryggði liði sínu sanngjarnan sigur. Oxford mætir Everton á heimavelli í 8-liða úrslitum keppninnar og ætti að eiga þokkalega möguleika á að komast í undanúrslitin. Þrír leikir fóru fram í 2. umferð enska bikarsins. Burnely vann Chesterfield 3-2. Bournemouth sigraði Windsor & Eton 2-0 og Sheffield United vann Lincoln 1-0. Bournemouth fær heimaleik við Manchester United í 3. umferðinni þann 7. janúar, Burnley mætir Ox- ford og Sheffield United leikur við Birmingham. -VS Sveinn Hreinsson Sveinn aftur í Þrótt Sveinn Hreinsson, landsliðsmað- urinn leikreyndi og hávaxni, er hættur sem þjálfari hjá 1. deildar- liði Fram í blaki og hefur tilkynnt félagaskipti yfir í sitt gamla félag, Þrótt. Hann verður löglegur eftir tvo mánuði og nær því að leika síð- asta leik Þróttar gegn HK 22. febr- úar en hann gæti hæglega ráðið úrslitum í 1. deildarkeppninni. Eftir þann leik munu Þróttarar enn eiga eftir þrjá leiki í íslandsmótinu. Óvíst er hver tekur við Framliðinu en þar kemur sterklega til greina Þorvaldur Sigurðsson sem stjórn- aði þvi gegn HK fyrir stutu. -VS Arabar í Chelsea? Enska knattspyrnufélagið Chels- ea hefur gert mikinn samning við arabíska flugfélagið Gulf Air. Það væri kannski ekki í frásögur fær- andi, nema vegna óvenjulegrar klausu i samningnum. Hún er á þá leið að meðan samningurinn gildi, geti bestu knattspyrnumenn ríkj- anna við Persaflóa farið til Lundúna og æft með Chelsea. Kannski opnar þetta leið fyrir arabíska leikmenn í ensku knatt- spyrnuna. -VS Rússar reka Sovéski iandsliðsþjálfarinn í knattspyrnu, Valeri Lobanovski, var rekinn úr embætti um helgina. Hann var úrskurðaður ábyrgur fyrir því að Sovétmönnum skyldi ekki takast að komast í úrslit Evr- ópukeppni landsliða, þeir féilu út er þeir töpuðu 1-0 fyrir Portúgölum í Lissabon fyrr í vetur. -VS íþróttir Víðir Sigurðsson KFR vann eigið af Karatefélag Reykjavíkur (KFR) bar sigur úr býtum í liðakcppninni á afmælismóti félagsins sem haldið var í Laugardalshöllinni á laugar- daginn. Gerpla varð í öðru sæti og Stjarnan í þriðja. Ævar Þorsteinsson, Gerplu, sigraði í kumite karla 75 kg og þyngri. Karl Gauti Hjaltason, Þórshamri, varð annar og Vicente Carrasuo, KFR, þriðji. ívar Hauksson, KFR, sigraði í kumite karla 65-75 kg. Stefán Al- freðsson, Stjörnunni, varð annar og Bjarni Kristjánsson, KFR, þriðji. Árni Einarsson, KFR, sigraði í kumite karla 65 kg og léttari. Bjarni Jónsson, KFR, varð annar og Sigþór Markússon, Þórshamri, þriðji. Jónína Olesen, KFR, sigraði í kata kvenna, Kristín Einarsdóttir, Gerplu, varð önnur og Ásta Sigur- brandsdóttir, KFR, þriðja. Jónína Olesen, sigurvegari í kata kvenna á afmælismóti KFR, leikur listir sínar. Mynd: -eik. Aberdeen fær stórbikarinn Aberdeen hlaut í gærkvöldi stór- bikar Evrópu í knattspyrnu, Super-Cup, með því að sigra Evr- ópumeistarana Hamburger SV frá Vestur-Þýskalandi 2-0 á heimavelli sínum, Pittodrie í Aberdeen. Liðin höfðu áður skilið jöfn í Hamburg. Skosku Evrópubikarmeistararn- ir voru sterkari aðilinn allan tím- ann en mörkin létu á sér standa. Þau komu síðan bæði í síðari hálf- leiknum, fyrst skoraði Neil Simp- son, síðan Mark McGhee. Sætur sigur Skotanna en enn eitt áfallið fyrir Hamburger sem er að missa af lestinni í baráttunni um vestur- þýska meistaratitilinn, féll á fyrstu hindrun útúr Evrópukeppni meistaraliða og tapaði fyrir Grem- io frá Brasilíu í úrslitaleik heimsmeistarakeppni félagsliða. Jafntefli í Birmingham Birmingham og Liverpool gerðu jafntefli, 1-1, á St. AndrewsíBirm- ingham í gærkvöldi er liðin mættust þar í 4. umferð mjólkurbikarsins enska. Graeme Souness kom Li- verpool yfir á 26. mínútu en Mick Harford náði aö jafna fyrir heima- liðið 16 mínútum fyrir leikslok. Lið- in þurfa að mæ! íst aftur, á Anfield í Liverpool, en sigurvegarinn leikur gegn She ,'field Wednesday í 8-liða úrslitunum. -VS Baldur hlaut S Ylisbikarinn Baldur Stefánsson fékk Ýlisbik- arinn, farandbikar sem veittur er fyrir flesta Ippon-sigra, á Ýlismóti Júdóráðs Akureyrar sem haldið var sl. föstudag. Baldur, sem kepp- ir fyrir Þór, sigraði í flokki karla 35-40 kg. Aðrir sigurvegarar á mótinu urðu þessir: -30 kg karla: Elvar Birgisson, KA. 30-35 kg karla: Jón Árnason, KA, 40-50 kg karla: Hjálmar Hauksson, Þór. 50-60 kg karla: Árni Ólafsson, Þór. Yfir 60 Lee rekinn Gordon Lee, fyrrum fram- kvæmdastjóri Everton, var í gær rekinn frá 3. deildarliðinu Preston North End eftir tveggja ára starf. Preston, sem varð fyrsti Englands- meistarinn í knattspyrnu, er í hópi neðstu liða 3. deiidarinnaj -VS kg karla: Benedikt Ingólfsson, KA. Undir 50 kg kvenna: Helena Friðriksdóttir, Þór. Yfir 50 kg kvenna: Jóhanna Bergsdóttir, Þór. ÍR náði í dýrmæt stig ÍR náði í dýrmæt stig í 2. deild karla í handknattleik í fyrrakvöld með því að sigra Fylki 18-16. Stað- an í hálfleik var 8-7, ÍR í hag. Atli Þorvaldsson skoraði 5 mörk fyrir ÍR, en þeir Örn Hafsteinsson, Magnús Sigurðsson og Leifur Árnason 3 hver fyrir Fylki. ÍR hef- ur nú 6 stig eins og HK en Fylkir er í næst neðsta sæti með 3 stig. Reynir og Fram leika í 2. deildinni í Sand- gerði í kvöld. Neil Simpson gerði fyrra mark Aberdeen gegn Hamburger í gær- kvöldi. Rimet-stytt- unni s olið Jules Riri: styttunni frægu. verðlaunagrij n fyrir sigur í heimsmcistar opninni í knatt- spyrnu sem i lía vann til eignar árið 1970, var ið úr aðalstöðvum brasilíska kn:, ryrnusambandsins í gær. Styttari dollara. inetin á 47 þúsund -VS Anna sigur Stenn rk Ingemar S aark frá Svíþjóð vann sinn ann igur í svigi á Ítalíu í gær. Hann fél S),2 sek. betri tíma en Austurríi. íaðurinn Robcrt Sawer sem va nnar. Petar Pop- angelov frá I$> ríu varð þriðji og Alex Giorgi !: alíu fjórði. -VS Fleiri ngverj- ar í b n 74 knattsp nenn til viðbótar hafa verið c: ir í keppnisbann vegna mútur í Ungverjaland;. Flestir eru ú: iri deildunum en tveir frá stói au Ferencvaro!. annar þeirr tndsliðsmaðurin Zoltan Kiss. afa alls 334 leik menn fengið a þar í landi síð ustu mánuðii ’yrir mútur sen tengjast víða niklu getrauna svindli. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.