Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 21.12.1983, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 21. desember 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 í fjárhagsáætlun Sjálfstæðis- flokksins 1984 er gert ráð fyrir því að skera niður atvinnusjúk- dómadeiid Heiisuverndarstöðv- ar Reykjavíkur, og spurði Sig- urjón Pétursson af því tilefni, hvort eitthvað hefði komið fram, sem sýndi að deiidin væri skyndilega þarflaus. Sagðist hann þvert á móti teija hana mjög nauðsynlega, enda ætti vaxandi hluti launþega við böl atvinnusjúkdóma að búa. Sigurjón nefndi mörg fleiri dæmi um stefnu Sjálfstæðisflokksins sem opinberast í fjárhagsáætluninni. „Matarholurnar eru margar", sagði hann, „hækkanir á öllum þjónustugjöldum eru víða langt umfram verðlagsþróun og mjög langt yfir greiðslugetu alls almenn- ings sem þrælalögin hafa gert að engu.“ Benti hann á að nú er að- gangseyri að sundlaugunum ætlað að standa undir 80% af rekstri launanna, en þetta hlutfall hefur lengst af verið 60%. Þá benti hann á að 55,5% af framlögum borgar- sjóðs með sundlauginni í Laugar- dal færu beint aftur til Hitaveitu Reykjavíkur í kostnað vegna heita vatnsins, en þetta hlutfall hefði í ár verið 25%. Þetta sýndi betur en margt annað hvernig greiðslugetu almennings væri ofboðið með of háu verði á heita vatninu. í fyrra var lagður á sérstakur barnaskattur á leikvöllum borgar- innar og höfðu Sjálfstæðismenn þá á orði að þetta væri alls ekki hugsað sem tekjustofn, þvert á móti væri þetta aðeins til þess að hægt væri að hafa eftirlit með fjölda gesta á leikvöllunum. Engu að síður er nú gert ráð fyrir 50% hækkun á þessu gjaldi á næsta ári og á það þá að skila 5,7 miljónum í borgarsjóð. Þá vakti Sigurjón athygli á því að lánakort Borgarbókasafns' væru hækkuð um 100% og einnig væri gert ráð fyrir mikilli hækkun á far- Atvinnusiúkdóma deildin óþörf? gjöldum SVR og hitaveitu og raf- magni. „Það er alls staðar reynt að ná í eitthvað," sagði Sigurjón, „og það sem er athyglisverðast við þessa fjárhagsáætlun eru þær stór- auknu álögur sem lagðar eru á al- menning í borginni. Þrátt fyrir stór- auknar tekjur er fjárhagsáætlun Sjálfstæðisflokksins lokað með 90 miljón króna lántöku." Passíu- kórinn flytur Messías í Akureyrar- kirkju Jólaþátturinn úr Messíasi verður fluttur á jólatónleikum Passíukórsins í Akureyrar- kirkju 28. des. kl. 20.30. Messías eftir G.F. Hándel ætti að vera óþarft að kynna. Fá kirkjuleg tónverk hafa not- ið jafn almennra vinsælda allt frá því verkið var frumflutt árið 1742. Á Akureyri hefur Messías heyrst tvívegis áður, í bæði skiptin í flutningi Passíukórs- ins. Fyrst á Tónlistardögum vorið 1977, þá óstytt, og síðan í mars 1982. í það skipti nokk- uð stytt, m.a. var jólaþætt- inum sleppt þá. Kórinn hefur fengið til liðs við sig Kammersveit Tónlist- arskólans á Akureyri, Elínu Guðmundsdóttur sembal- leikara og einsöngvarana Sig- rúnu Gestsdóttur, sópran, Þuríði Guðmundsdóttir, alt, og Michael J. Clarke, bariton. Stjórnandi er Roar Kvam. Undanfarin ár hefur Passíu- kórinn haldið sína jólatón- leika um miðjan desember, en í ár verða þeir nær sjálfri jóla- helginni. -mhg Varamaður AB í útvarpsráði Gerður kjörin sem varamaður í útvarpsráð Gerður Óskarsdóttir fyrrver- andi skólameistari í Neskaupstað var kjörin af Sameinuðu þingi í gær sem varamaður í útvarpsráð í stað Tryggva Þórs Aðalsteinssonar. Tryggvi hafði óskað eftir að fá lausn frá varamannsstöðu í út- varpsráði en hann hafði setið sem aðalmaður í ráðinu um nokkurt skeið í veikindaforföllum Ólafs heitins R. Einarssonar. Fyrr í vetur var Árni Björnsson þjóðháttafræðingur kjörinn sem fulltrúi Alþýðubandalagsins aðal- maður í útvarpsráð. -'g- Tilmœli til félagsmálaráðherra: Sveitarstjórnir fái rýmri heimildir um álagningu gjalda Borgarstjórn samþykkti ein- róma s.l. fimmtudag tilmæli til fé- lagsmálaráðherra um aukið for- ræði sveitarstjórna um álagningu gjalda. Það voru fulltrúar Kvennafram- boðs sem fluttu tillöguna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að þær myndu styðja tillögur Sjálfstæðis- flokksins um 63,9% hækkun fast- eignagjalda, en vegna kjaraskerð- ingarinnar myndu þær ekki flytja tillögu um að fasteignagjöld yrðu hækkuð eins og þær gerðu í fyrra. „Fasteignaskattur er mun réttlátari skattur en tekjuskattur eins og út- svar“, sagði Sólrún, „það er ekki hægt að fela eignir eins og tekjur“. Tillagan sem samþykkt var er svohljóðandi: „Borgarstjórn beinir þeim tilmælum til félags- málaráðherra að ákvæði um álagn- ingu fasteignagjalda verði rýmkuð þannig að sveitarstjórnir fái aukið EinarOlgeirsson Kraftaverk einnar kynslúöar “k Einar Olgeirsson hefur alla tíö veriö einn ötulasti leiötogi íslenskrar alþýöu í baráttu hennar fyrir bættum kjörum og mannréttindum, eldheitur hugsjónamaður og slunginn stjórnmálamaður, sem skildi og skynjaði samtíð sína dýpri og víðari skilningi en flestir aðrir. í þessari bók segir Einar frá stofnun verkalýðsfélaganna hér á landi og átökunum innan Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins og frá stofnun og starfsemi Kommúnistaflokksins og Sósíalistaflokksins. Við sögu kemur fjöldi fólks og á annað hundrað Ijósmyndir prýða bókina. Frásögn Einars iýkur þegar sigur vannst á kjaraskerðingu stjórnvalda með skæruverkföllunum 1942. Hér er skráð örlagasaga íslensks verkafólks á mestu umbrotatímum þessarar aldar, sögð af sjónarhóli manns er alla tíð stóð í fylkingarbrjósti. svigrúm til að veita tekjulitlum hópum afslátt af fasteignagjöldum. Ákvæðum um álagningu útsvars verði breytt á þann veg að ákvörð- unarvaldið verði algerlega í hönd- um sveitarfélaga, en ekki takmark- að eins og nú er af ákvæðum um hámarksútsvar og að sami hund- raðshluti skuli lagður á alla menn í hverju sveitarfélagi.“ Áður hafði verið felld úr tillög- unni setning þar sem jafnframt var gert ráð fyrir því að sveitarstjórnir gætu beitt stighækkandi fasteigna- sköttum eftir umfangi eigna, og var það vegna andstöðu frá borgar- stjóra. Fulltrúar Kvennaframboðs boð- uðu einnig á fundinum tillögu um lækkun útsvars sem þær telja að eigi ekki að hækka meira á milli ára en sem nemur tekjuhækkunum, eða um 20%, miðað við forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkur. -ÁI cjefumcjóðarbœkur og menning Fjárhagsáœtlun Reykjavíkurborgar: Lokað með láni uppá 90 miljónir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.