Þjóðviljinn - 21.12.1983, Qupperneq 12
— ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. desember 1983
12 SÍÐA
Þegar Þjóðviljinn hefur skýrt frá
því að undanförnu, að til stæði að
taka gjald af þeim, sem verða svo
veikir, að þeir þurfa á sjúkrahús-
svist að halda, og þannig megi
„spara“ það sem til vantar í rekstr-
arfé á sjúkrastofnunum, hefur
kannski fleirum farið eins og mér.
Ég trúði þessu hreint ekki, hélt
bara að Blaðið Mitt væri farið að
rugla í takt við blað allra lands-
manna. Ég trúi því ekki enn, þrátt
fyrir umræður á Alþingi, að þetta
sé í raun og veru ætlunin. Það er
reyndar löngu ljóst, að sú ríkis-
stjórn, sem nú situr hagar sér í
mörgum málum eins og þeir, sem í
henni sitja, hafi verið geymdir í
gleri allt sitt líf og aldrei komið út í
þá veröld, sem er vettvangur okkar
hinna. Þrátt fyrir þá staðreynd trúi
ég ekki, fyrr en ég tek á, að í meiri-
hluta í ríkisstjórn séu svo siðlausir
menn, að þeim sé í raun og veru
alvara með að hrinda þessum
greiðslum í framkvæmd. Ef svo er
nú samt, hvernig væri þá að leyfa
okkur, sem heilbrigð erum og fær
um að borga ríflega okkar skerf til
samfélagsins, að segja okkar álit á
þessum málum, áður en lengra er
haldið inn á þessa óheillabraut.
Þetta mál var nefnilega ekki til um-
ræðu hjá neinum stjórnmálaflokki
fyrir kosningar, kæra ríkisstjórn.
Þegar jafnvel gallharðir and-
stæðingar ykkar trúa ekki sínum
eigin eyrum, hvað mun þá um at-
kvæðin, sem kusu ykkur til að fara
með sín mál. Þetta er ekki ykkar
einkamál, einræðisherrar góðir,
heldur alvarlegt mál fyrir allt það
samfélag, sem við búum í, hvern
einasta mann, hvar í flokki sem
hann stendur. Ríkissjóður, sem þið
ráðskist með núna er ekki ykkar
einkafyrirtæki, heldur sameign
allra landsmanna, sem við höfum
fyrir löngu samþykkt að greiða í
eftir efnum og ástæðum hvers og
„Ég neita að trúa
því, að sú pólitík,
sem virðistnú
eiga að reka hér
gagnvartsjúk-
lingum og öryrkj-
um, sé vilji meiri-
hluta kjósenda í
þessu landi og
þeirra, sem borga
hér skatta, “ segir
Margrét Guðna-
dóttirm.a. ígrein
sinni.
„Stöndum vörð um samhjálpina öll, sem einn maður, hvar í flokki sem við erum. Látum heyra í okkur sem
allra fyrst, áður en niðurrifið hefst. Sýnum ríkisstjórninni, að þetta er ekki við hæfi“.
Er þeim virkilega alvara?
eins. Sú samþykkt hefur ekki enn
verið numin úr gildi og ykkur ber
að fara eftir henni. Ef of lítið er til í
samneysliina af peningum, leggið
þið þá bara meira á okkur, sem
erum heilbrigð, höfum öruggar
tekjur og eigum þak yfir höfuðið.
Það er hægt að leggja á sérstakt
sjúkragjald, ef með þarf, en ekki á
þá sem eru veikir, heldur á okkur
hin, sem erum heilbrigð og höfum
betri ástæður.
Eins og úr
öörum heimi
Auðvitað er dýrt að reka sjúkra-
stofnanir, stóra og sérhæfða vinn-
ustaði, sem eru opnir allan sólar-
hringinn alla daga ársins. Aðrir
vinnustaðir eru kannski aðeins
starfandi þriðjunginn af þeim tíma
og þykja þó nógu dýrir í rekstri.
Allir, sem vinna í sjúkraþjónust-
unni vita, að fjárveitingar til
stærstu sjúkrahúsanna hafa verið
of naumar allan síðasta áratug og
þar hafa margir góðir starfsmenn
sett stolt sitt í að reyna að vinna
sem mest og best fyrir sem minnsta
peninga. Fyrsta kveðjan frá nýjum
stjórnvöldum til slíkra starfsmanna
eru margfræg útboð, sem verkuðu
eíns og úr öðrum heimi þá, sem
þekkja til þeirrar vinnu og þjón-
ustu, semþar var um fjallað. Kann-
ski hafa niðurstöður þeirra orðið
stjórnvöldum einhver lærdómur.
Þó eru einstöku þættir í rekstri
sjúkrahúsanna, þar sem auðveld-
lega mætti „spara“, ef sparnað
skyldi kalla. Veit almenningur í
landinu, að mörg sjúkragögn til
daglegra nota, rannsóknavörur og
rannsóknatæki hækka um meira en
innkaupsverð sitt í meðförum ríkis-
valdsins? Sjúkrastofnanir þurfa
ekki bara fjárveitingar til gjald-
eyriskaupa vegna innfluttrar vöru
til lækninga og lækningarann-
sókna. Það fer yfirleitt fjárhæð
heldur stærri en innkaupsverðið úr
ríkissjóði í ríkissjóð aftur í formi
tolla, vörugjalds, sem ætti nú að
vera óþarfi, og söluskatts, sem er
um fjórðungur endanlegs vöru-
verðs. Þarna væri nú hægt að spara
meira en helming vöruverðs með
einu pennastriki frá Albert, sem
engan mundi skaða. Er leitt til þess
að vita, að vörusendingar, sem
bráðvantar, liggja oft vikum saman
óafgreiddar á hafnarbakkanum,
vegna þess að ekki eru til peningar í
ríkissjóði fyrir tollum og aðflutn-
ingsgjöldum, sem renna beint í rík-
issjóð aftur.
Óþolandi atlögur
Eftir því, sem ég best veit, hafa
Norðurlönd lengi þótt öðrum þjóð-
um til fyrirmyndar um heilbrigðis-
þjónustu handa öllum og samhjálp
við þá, sem minnst mega sín. Líka
við. Maður hrekkur því illa við og
spyr: Hvers lags þjóðfélag er eigin-
lega að verða hér þessa síðustu
mánuði án nokkurra samþykkta
eða opinberrar umræðu? Hvaða
verkefni eru það, sem eiga að hafa
hér forgang að almannafé, þegar
þrengist .í búi? Hver eru þau verð-
mæti, sem við íslendingar nú, virð-
um og metum? Er það samhjálp
við þá sjúku og sæmileg menntun
handa öllum, sem við viljum láta
telja okkur til gildis meðal þjóða,
eða er það fín flugstöð byggð í 600
miljóna skuld að okkar parti og að
hluta fyrir betlifé frá erlendu ríki?
Það er virkilega kominn tími til
að við, sem viljum búa í siðuðu
samfélagi, látum myndarlega til
okkar heyra um þessi mál. Ef nógu
margir rísa upp og segja sína
skoðun, hörfa stjórnvöld kannske í
bili að minnsta kosti. Það er orðið
óþolandi, hvernig ríkisstjórnin
ræðst nú aftur og aftur á garðinn,
þar sem hann er lægstur, hvort sem
hún gerir það nú vísvitandi eða
ekki. Það er virkilega erfitt að ætla
nokkrum manni svo illt og einfald-
Margrét Guðnadóttir: Viðhöfum
fyrir löngu samþykkt að greiða í
ríkissjóð eftir efnum og ástæðum
hvers og eins.
Margrét
Guðnadóttir
prófessor
skrifar
lega að halda því fram, að þeir viti
raunverulega ekki, hvað þeir eru
að gera. Hvernig haldið þið, ráð-
herrar góðir, að það sé að vera ein
fjölskyldufyrirvinna með 15 þús-
und krónur á mánuði og útgjöld af
íbúð, húshaldi og barnauppeldi í
þessari dýrtíð? Hvernig haldið þið
að það sé fyrir þessa sömu fyrir-
vinnu að lenda einhverntíma á
hálkunni í vetur í svo sem 6 vikna
beinbroti? Jú, sjúkralegan kostar
væntanlega 3000-6000 kr., ef svo
fer sem horfir, eða nærri alla mat-
arpeninga fjölskyldunnar þann
mánuðinn, og ef þið fáið að ráða er
meiningin að kroppa í veikinda-
greiðslurnar á vinnustaðnum, svo
að væntanlega verða tekjurnar
ekki óskertar, ef um einhverja töf
verður frá vinnu. Þetta dæmi er þó
tekið um eina af minni uppákom-
um, sem leiða til sjúkrahúsvistar,
og ekki af þeim allra verst settu
heldur.
Og hvað um börnin?
Eins og alþjóð er kunnugt er
nefnilega æði mörgum launþegum
ætlað að selja fullan vinnudag á
næsta ári fyrir minna en 15 þúsund
króna mánaðarlaun, ef svo fer sem
horfir. Tvær fyrirvinnur, sem
leggja lágar upphæðir saman, eru
oft lítið betur settar vegna útgjalda
við barnagæslu, sem önnur launin
fara kannski í að mestu. Hvað svo
um þá, sem hafa þannig heilsu, að
þeir þurfa inn á sjúkrahús við og
við í skamman tíma í senn og eru í
raun aldrei fullvinnufærir, þó að
þeir reyni sitt ýtrasta til að vinna
eins og fullhraustar manneskjur?
Á þetta fólk,sem fæst liggur inni í
10 daga í einu, að greiða fyrir alla
sína legudaga á sjúkrastofnunum
sjálft - eða taka þátt í kostnaðin-
um, eins og það heitir víst á fínu
máli? Og hvað um börnin, sérstak-
lega börn með langvarandi sjúk-
dóma, sem reynt er að hafa heima
eins mikið og hægt er, en þurfa þó
stöðugt eftirlit á sjúkrahúsi og oft
aðgerðir? Og allir þeir, sem
skyndilega er kippt undan grund-
vellinum á besta aldri í miðri lífs-
baráttunni og eiga ekki afturkvæmt
nema að litlu leyti út í atvinnulífið?
Það er ekkert glæsilegt að fá á sig
erfiðan sjúkdóm og í ofanálag að
flosna upp af heimili sínu vegna
verðtryggðra skulda,- sem vaxa í
180° horn við greiðslugetuna, enda
síðan með að þurfa að lifa á guðs
náð og örorkubótum, sem eru nú
okkur öllum til skammar og annað
hneykslið til. Það er verulega
slæmt til þess að vita, að meirihluti
núverandi ríkisstjórnar veit ekki,
eða vill ekki vita, að flestir lands-
búar hafa ekki annað að lifa á en
eigin vinnu, sem þeir reyna að
selja, en er nú varla talin til verð-
mæta lengur, ef dæma má eftir því,
sem greitt er fyrir fulla dagvinnu
alls þorra launþega þessa síðustu
mánuði. Framfærsluskylda hættir
ekki og skuldir lækka ekki, þó að
einhver verði veikur og lendi á spít-
ala.
Stöndum vörð
um samhjálpina
Fyrir alla lifandis muni, finnið
þið heldur heilbrigt og sæmilega
efnað fólk til að standa undir
sjúkraþjónustunni og hættið að
hella meiri útgjöldum tillitslaust
yfir þá sem þegar bera meira en
þeir geta. Ég neita að trúa því, að
sú pólitík, sem virðist nú eiga að
reka hér gagnvart sjúklingum og
öryrkjum, sé vilji meirihluta kjós-
enda í þessu landi og þeirra, sem
borga hér skatta. Við höfum valið
fyrir löngu að búa hér í samfélagi,
þar sem samhjálp ríkir og ákvarð-
anatakan er á valdi fólksins, en
ekki fámennisstjórnar. Um þetta
hélt ég að við værum sammála,
íhaldið og ég, þó að annars beri
margt í milli. Hvað sá umskipting-
ur meinar, sem þykist eiga upptök
sín í samvinnuhreyfingunni er
kannski öllu óljósara. Þessi pólitík
á að minnsta kosti ekkert skylt við
hugsjónir þeirra samvinnumanna
og ungmennafélaga, sem áttu gift-
udrjúgan þátt í að byggja upp það
samfélag, sem enginn sæmilegur
íslendingur vill missa. Stöndum
vörð um samhjálpina öll, sem einn
maður, hvar í flokki sem við erum.
Látum í okkur heyra sem
allrafyrst, áður en niðurrifið hefst.
Sýnum ríkisstjórninni, að þetta er
ekki við hæfi.
Reykjavík 15. desember 1983.
Margrét Guðnadóttir,
prófessor.