Þjóðviljinn - 21.12.1983, Síða 19
Miðvikudagur 21. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Sigríöur Þórðardóttir talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Bráðum
koma blessuö jólin“ Umsjónarmenn:
Guðlaug Maria Bjarnadóttir og Jórunn
Sigurðardóttir.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). íslenskir einsongvarar
og kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi íslenskra kvenna
Umsjón: Björg Einarsdóttir.
11.45 íslenskt mál Endurtekinn þáttur
Guðrúnar Kvaran frá laugard.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björns-
son sér um lestur úr nýjum bókum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar. Yehudi Menuhin,
Rudolf Barshai og Hátíðarhljómsveitin í
Bath leika Sinfóníu concertante í Es-dúr,
fyrir fiðlu, víólu og hljómsveit, K. 364 eftir
Wolfgang Amadeus Mozartl Yehudi
Menuhin stj.
17.10 Sfðdegisvakan
17.50 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
20.10 Lestur úr nýjum barna- og ungl-
ingabókum. Umsjónarmaður: Gunnvör
Braga. Kynnir: Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir.
20.40 Kvöldvaka a. Kristin fræði forn
Stefán Karlsson handritafræðingur flettir
gömlum guðsorðabókum. b. „Þrjú á
palli“ syngja jólalög. c. „Kátt er um
jólin" Áskell Þórisson les jólafrásagnir úr
Jólavöku Jóhannesar úr Kötlum.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.20 Fiðlusónata í G-dúr op. 30 nr. 3 eftir
Ludwig van Beethoven Guðný Guð-
mundsdóttir og Philip Jenkins leika sam-
an á tónleikum í Norræna húsinu.
21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir
hreppstjórans" eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur Höfundur les (10).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 í útlöndum Þáttur í umsjá Emils
Bóassonar, Ragnars Baldurssonar og
Þorsteins Helgasonar.
23.15 íslensk tónlist: Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur Stjórnendur: Bohdan
Wodiczko og Páll P. Pálsson. Einsöngv-
ari: Simon Vaughan. a. Þríþætt hljóm-
kviða op. 1 eftir Jón Leifs. b. „Of Love
and Death” eftir Jón Þórarinsson. c. Lítil
svita eftir Árna Björnsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV 2
Rás 2 er útvarpað á FM-bylgju, 99,9
mhz, mánudaga-föstudaga kl. 10-12 og
14-18 fyrst um sinn. Meðan dagskráin er
á tilraunastigi verður hún ekkL.gefin út
fyrirfram.
RUV
18.00 Söguhornið Jólasaga eftir Selmu
Lagerlöf Sögumaður Ólafur H. Jóhanns-
son. Umsjónarmaður Hrafnhildur Hreins-
dóttir.
18.05 Bolla Finnskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Trausti Júlíusson. Sögumaður
Sigrún Edda Björnsdóttir. (Nordvision -
Finnska sjónvarpið)
18.15 Börnin í þorpinu 3. Boltinn - Loka-
þáttur.Danskur myndaflokkur um græn-
lensk böm. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Birna Hrólfsdóttir.
(Nordvision - Danska sjónvarpið)
18.35 Eggið og unginn Bresk náttúrulifs-
mynd sem lýsir því hvernig uppeldinu er
hagað hjá fuglum af ýmsum tegundum.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
19.00 Fólk á förnum vegi 7. Ferðalag -
Endursýning. Enskunámskeið i 26.
þáttum.
19.15 Áskorendaeinvigin Gunnar Gunn-
arsson flytur skákskýringar.
19.30 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Jenny Kynningarþáttur um norsku
skáldkonuna Sigrid Undset og nýjan
sjónvarpsmyndaflokk eftir bók hennar,
Jenny, sem sýningar hefjast á í sjónvarp-
inu að kvöldi jóladags. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir (Nordvision - Norska sjón-
varpið)
21.10 Skógur á hafsbotni Heimildarmynd
frá breska sjónvarpinu um þangskógana
á hafsbotni undan vesturströnd Norður-
Ameríku, nytsemi þeirra og dýralífið sem
þrífst í skjóli risaþörunganna. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
22.15 Dallas Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
23.10 Dagskrárlok.
,í jólaskapV
Athugasemdir
við
athugasemdir
í síðasta helgarblaði Þjóðvilj-
ans fjailaði ég lítillega um bókina
„í jólaskapi“ eftir Arna Björns-
son og Hring Jóhannesson
listmálara, sem hefur prýtt bók-
ina með ágætum og skemmti-
legum hugmyndum. Arni hefur
nú gert athugasemdir við þessa
umfjöllun mina. Ekki er unnt að
láta þær með öllu sem vind um
eyru þjóta. En vegna þrengsla
annarsstaðar í blaðinu bið ég les-
endasíðuna fyrir þessar línur.
Athugasemdir Arna eru sum-
part réttmætar. sumpart hæpnar.
Það kom hvergi fram í handriti
mínu að ég hafi spjallað við
Árna, enda gerði ég það ekki.
Hinsvegar er þessi athugasemd
Árna eðlileg vegna yfirfyrirsagn-
arinnar. En sú fyrirsögn er hvergi
til í mínu handriti. Þykist ég raun-
ar vita hvernig hún er til orðin og
get sagt Árna það undir fjögur
augu, öðru vísi ekki.
Það er rétt að ég hlustaði á
Árna tala um bókina og lesa upp
úr henni í Kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar. Hann
flutti þar alllangt mál og að sjálf-
sögðu miklu lengra en hægt er að
koma fyrir í stuttu greinarkorni.
Ég hripaði niður hrafl af því, sem
Árni sagði, birti sumt orðrétt,
annað efnislega, eins og óhjá-
kvæmilegt er ef gerður er stuttur
útdráttur úr löngu máli. Sannast
að segja leit ég nú þannig á, að
meira skipti að efnislega væri rétt
farið með en að orðalag væri
þrætt nákvæmlega, þótt tilkomu-
mikið kunni að vera.
Árni Björnsson:
Ekki mín orð,
Mér þykir leiðinlegt að þurfa að
Í:era athugasemd við vel mcinta
jöllun mhg. I sfðasta hclgarblaði
um bdk okkar Hrings Jóhanncs-
sonar í jóiaskapi. Mcginhluti pist-
ilsins er settur upp eins og ég tali f
/yrstu pcrsónu við blaðamanninn,
'cinkum iheð þessari setningu: „En
nú gefum viö Ama orðið".
Slfkt samtal átti sér aldrei stað,
ekki einu sinni f sfma, enda er orða-
lagið allt mjög fribrugðið mfnu
milfatri, hvað þí ríthctti.
Míliðer þannig vaxið, aðS. des-
ember var bók þessi kynnt i dag-
| skrá f Kcnnslumiðstðð Nimsgagn-
‘ astofnunar. Þar rakti ég nokkuð til-
I drög bókarinnar, las kafla úr henni
I og svaraði fyrírspumum.
Gfslason blaðamaður og púnktr
auðvitað niður sér til minnis. '
þessum minnispúnktum
hann saman „spjall við
Björnsson", en gerir mér auk þess
upp þakkarivarp til bókaútgifunn-
ar BJöilunnar, sem starfsmaður
Kennslumiðstöðvar, lngvar Sig-
urgeirsson, flutti.
Magnús niði ekki að bera þetta
„viðtal" undir mig, enda hefði þi 4
sumt orðið ððmvfsi. T.d. er al-4
rangt, að ég hafi klykkt út með þvf
að segja, að þetta sé „ekki barna-
bók". Þetta i cinmitt að vera bók
fyrir alla, sem orðnir eru satmilega
ixsir, bæði böm og fullorðna.
Bölvanlegast er mér þó við *
fffilbrekkustfl, -" *-
5 við þann
:r lagður I
Það er rétt, að það var ekki
Árni, sem þakkaði Bjöllunni,
heldur Ingvar Sigurgeirsson. Á
þessum mistökum bið ég Ingvar
afsökunar.
Mér kom það á óvart þegar ég
hljóp yfir grein mína og sá þar
haft eftir Árna að „í jólaskapi"
væri „ekki barnabók". Þetta
kannaðist ég ekki við. Raunar
held ég að erfitt sé að skrifa þann-
ig bók um jólin, að hún sé ekki
barnabók, öðrum þræði a.m.k.
Jólin hafa nú einu sinni verið
nefnd hátíð barnanna og er rétt-
nefni.
Nú hef ég þá reglu, að geyma
riss af handritum mínum í hálfan
mánuð a.m.k. Það er í sjálfsvarn-
arskyni gert og hefur stundum
komið sér vel. Það getur ýmislegt
farið úrskeiðis á leiðinni frá ritvél
blaðamannsins og á síður blaðs-
ins, og kann þar margt að koma
til. Og þegar ég leit á handrit mitt
þá stóð í því: „ekki einungis
barnabók". Þarf ekki að skýra
hvað þarna hefur gerst. Auðvitað
er bókin barnabók og meira að
segja mjög góð, en hinir eldri
hafa þangað einnig margt að
sækja.
Ég er því vanur að lesa fyrir
menn það sem ég hef eftir þeim,
ef tök eru á að ná til þeirra. Ég
gerði ítrekaðar tilraunir til þess
að ná í Árna en tókst ekki. Ef það
hefði lánast væri nokkru bjargað,
en engan veginn öllu, eins og Ijóst
má vera af framansögðu.
Mér finnst það nokkurri furðu
gegna, að Árna virðist ekki
skipta það mestu máli, að rétt sé
farið með, heldur hitt, að „mál-
far“ hans, „ritháttur" hans, kom-
ist til skila. Ég játa fúslega að sá
missir er mikill. Árni talar í því
sambandi um „fífilbrekkustiT'.
Ég veit nú ekki almennilega hvað
átt er við með því orði. Kannski
það sé úr þjóðháttafræðinni? En
þegar ég sá þetta orð þá kom mér
í hug kvæðið góðkunna: „Fífil-
brekka, gróin grund“. Ef átt er
við stíl þess skálds, sem orti Fífil-
brekkukvæðið, þá hefði ég ekk-
ert á móti því að geta tileinkað
mér hann. Én ég býst við að það
sé nú borin von. Árni vill hins^
vegar hafa sinn stíl og er það ekki
nema eðlilegt. Ég hef að vísu
hvorki heyrt hann né séð. En það
er auðvitað ekki að marka. Það
er svo margt til í veröldinni sem
hvorki verður numið með eyra né
auga.
- mhg.
Liv Ullmann leikur aðalhlutverkið í ,Jenny“
Sjónvarp kl. 20.40
Kynning á , Jenny
U
í kvöld kynnir Sjónvarpið
skáldsöguna ,JENNY“ eftir Sig-
rid Undset. Sagan kom út árið
1911. Hún vakti þá nokkra
hneykslun vegna lýsinga á kynlífi
aðalpersónunnar. En „þá var
öldin önnur er Gaukur bjó á
Stöng“. Nútímamaðurinn kippir
sér nú ekki upp við það, -sem
meira er. En bókin vakti einnig
athygli vegna þeirra þátta í til-
finningalífi kvenna, sem Undset
fjallaði um og ekki voru mikið á
orði hafðir á þeim árum.
Jenny fjallar um unga konu,
sem fer til Rómarborgar til að
vinna að list sinni. Þar kynnist
hún hópi norrænna listamanna,
sem hafa mikil áhrif á líf hennar.
Ást hennar og öryggisleysi koma
í veg fyrir að hún nái því tak-
marki, sem hún stefndi að.
Sagan hefur verið kvikmynduð
og verður sýnd í Sjónvarpinu á
næstunni. Myndataka og öll
vinna við seríuna er mjög falleg.
Þótt atburðarásin sé hæg skilar
sagan sér vel og leikur og leik-
stjórn er mjög til fyrirmyndar.
- mhg.
skák
Karpov að tafli - 254
Jan Timman náöi sigri á IBM-mótinu í
Hollandi eftir mikla keppni viö Portisch
og Karpov. I tíundu og næstsíöustu um-
ferð átti Karpov möguleika á aö komast
heilum vinning upp fyrir Timman, því þeir
mættust í þessari umferð og haföi Karp-
ov hvítt. Skákin varö æsispennandi:
Karpov - Timman
Þessi athyglisverða staöa kom upp
eftir mannsfórn Karpov. Karpov er ekki
vanur aö gefa lið nema augljósar bætur
fylgi i kjölfariö en upp úr 1981 fóru menn
aö taka eftir þvi aö hann virtist gera sér
far um aö skerpa stil sinn, óljósar fórnir
uröu næsta tiðar i skákum hans. Er þaö
hald manna aö þá þegar hafi hann byrj-
aö aö undirbúa sig fyrir einvígi við ung-
stirnið Kasparov.
19. ... b5!
(Karpov haföi aöeins búist viö 19. - Dc7
sem svara má meö 20. Hxf8+ Kxf8 21.
De8+ Kg7 22. gxf4 meö hugmyndinni
23. Kh1 og 24. Hg1+).
20. Dxb5 Db6
21. Hxf8+ Kxf8
22. He8+ Kg7
23. gxf4 Dxb5
24. cxb5 Bc3!
- þó svartur sé manni yfir á hann við
erfiöleika aö etja vegna hinnar óyndis-
iegu stööu manna á drottningarvæng.
Timman hélt þó vel á spöðunum og eftir
32 leiki sættust keppendur á jafntefli (25.
Bf 1 Ba5 26. Hc8 Kf6 27. Kg2 Ke7 28. Kf3
Bd8 29. a4 a6 30. bxa6 Kd7 31. Bh3+
Ke7 32. Bf1 Kd7 - jafntefli). I síöustu
umferö mótsins hleypti Timman I sig
hörku og vann Polugajevskí en Karpov
varö aö gera sér jafntefli aö góðu. Loka-
staðan varð því þessi: 1. Timman 7Vz v.
2.-3. Karpov og Portisch 7 v. 4.-6. Smysl-
ov, Kavalek og Hort allir með 6V2 v.
bridge
Einsog margir vita, eru í gangi margar
útgáfuraf nákvæmnislaufinu (Precision)
hér á landi. Allt frá Vinarútgáfunni til
Supper-dupper.
Hér er enn ein útgáfan, dæmi um
sagnseríu:
K5 Á987
K4 Á983
ÁDG10 K7
KD975 G86
Sagnir gengu:
1 lauf (a) 1 grand (b)
2 lauf (cj 2 tíglar (d)
2 hjörtu (e) 2 sþaðar (f)
3 tíglar (g) 4 lauf (h)
4 tiglar 4 hjörtu
4 sþaöar 5 tíglar
6 lauf Pass
a: Precision 16 plús
b: 8 plús, jöfn skipting
c: Biösögn (relay)
d: 11-16
e: Biösögn, sýnir fimmlit I tígli eöa laufi
f: 11-13
g: Fjórir tíglar og fimm lauf
h: Eðlílegt
Framhaldið var svo eðlilegar fyrir-
stöðusagnir. Því miöur fyrir pariö sem
meldaði spilið svona (Granville-Fleet frá
Englandi) lá laufiö frekar illa og samning-
urinn fór einn niöur. (Var einhver aö tala
um „the luck of the irish?“) Jú, þaö vorur
Irar I vörninni.
Tikkanen
Frelsið er réttur vor til þess að
verja bönn okkar og boð.
Gœtum
tungunnar
Munum, að alltjent er orðið til
úr allt jafnt; þess vegna er það
ritað með je en ekki é, og fyrra
atkvæðið borið fram eins og
allt.