Þjóðviljinn - 29.12.1983, Síða 2
u2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNÍ Fimmtudagur 29. desember 1983
Mikill fjöldi gesta var mættur í sjúkrastöð SÁÁ við Grafarvog er byggingin var vígð í gær. Óthar Örn Petersen formaður byggingarnefndar
hússins rakti í ávarpi sínu byggingarsöguna og afhenti að því búnu Björgúlfi Guðmundssyni formanni SÁÁ lyklavöldin að stöðinni nýju. -
Ljósm. Magnús.
Ný sjúkrastöð SÁÁ við Grafarvog vígð í gœr________________
„Vogur skal hún heita“
sagði Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir er hún gaf stöðinni nafn
„Höfuðstuðlar í því bjargi
sem sjúkrastöð SÁÁ, Vogur við
Grafarvog, stendur á eru trú,
von og kærleikur“, sagði Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir er hún
gaf hinni nýju sjúkrastöð SÁÁ
nafn í gær, að viðstöddu miklu
fjölmenni gesta og gangandi.
Aðalheiður kvað fjölmörg nöfn
hafa komið fram í samkeppni um
nafn á sjúkrastöðina en nafna-
nefnd verið sammála um að velja
gott íslenskt bæjarnafn, Vogur.
Höfundur þess væri Hallfríður
Brynjólfsdóttir Garðabæ. Að auki
fengu nöfnin Hvarf, Ögurtún,
Svalvogur og Höfn viðurkenningu
nafnanefndar.
I ávarpi Othars Arnar Petersen
formanns byggingarnefndar húss-
Jólatrésskemmtun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
jólatrésskemmtun að Hótel Sögu, Súlna-
dal, þríðjudaginn 3. janúar 1984 kl. 14.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu fé-
lagsins á 8 hæð í Húsi verzlunarinnar við
Kringlumýrarbraut.
Miðaverð kr. 150 fyrir börn og kr. 100 fyrir
fullorðna.
Miðar verða ekki afhentir við innganginn.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
^A>/A
Svart-hvít Ijjósmyndaþjónusta sf.
Auóbrekku 14,200 Kópavogi,
RO.Box301,Sími 46919
Hin nýja sjúkrastöð fyrir áfengissjúklinga við Grafarvog í Reykjavík er
hið glæsilegasta mannvirki, hátt til lofts og vítt til veggja. Húsið er mjög
opið og bjart og má sjá niður á neðstu hæðina af þeirri efstu. Ljósm.
Magnús.
ins kom fram að á verðlagi um ára-
mót væri kostnaður við fram-
kvæmdina alla kominn í 45 miljónir
króna, eða rúmlega 20.000 krónur
á fermetrinn. Væri það lágur bygg-
ingarkostnaður. Aflienti hann síð-
an Björgúlfi Guðmundssyni for-
manni stjórnar SÁÁ lykil að
sjúkrastöðinni.
„Það er loks með flutningi í Vog
að starfsemi SÁÁ kemst í varan-
legt húsnæði, örugga höfn“, sagði
Björgúlfur í stuttu ávarpi eftir að
hafa tekið formlega við sjúkrastöð-
inni. Þar væri einnig hægt að bjóða
upp á viðunandi starfsaðstöðu fyrir
starfsfólk og flutti hann þakkir
öllum þeim sem lagt hefðu hönd að
verki við byggingu hússins.
Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra sagði í ávarpi sínu að það
vildi stundum gleymast að dag-
gjöld sjúkrahúsa stæðu undir
rekstri sjúkrastöðvar eins og
þeirrar sem hér væri verið að taka í
notkun. Kostnaður við að reisa
slíkt hús jafngilti kostnaði við
rekstur þess í 3 ár. Það kom og
fram hjá ráðherra að rekstrarleyfi
til nýju stöðvarinnar væri bund-
ið við 30 rúm eða þann fjölda sjúkl-
inga sem væri að Silungapolli nú.
Áður en vígsla sjúkrastöðvar-
innar hófst lék Hornaflokkur Kóp-
avogs nokkur lög og stjórnaði
Björn Guðjónsson flokknum af
sinni alkunnu röggsemi.
-v.
Sjúkrastöð SAA
rúmar 60 manns
Heimildin
er bundin
við 30
sjúklinga
„Stendur vonandi
til bóta“, segir
framkvœmdastjóri
SÁÁ
,JÚ, það er rétt að rekstrar-
leyfi heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytisins miðast við 30-35
sjúkrarúm hér að Vogi sem
þýðir að við nýtum stöðina að-
eins að hálfu til að byrja með“,
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son framkvæmdastjóri SÁÁ í
spjalli eftir vígslu sjúkrastöðvar
SAÁ í gær. „En það stendur
vonandi til bóta“.
„Húsið er það stórt að gert er
ráð fyrir 60 sjúkrarúmum og
veitir auðvitað ekki af því nú
eru um 200 manns á biðlista
eftir að komast inn á okkar
stöðvar. í dag eru 35 sjúklingar
að Silungapolli og flytjast þeir
hingað strax í dag. Við komum
til með að hafa sama ágæta
starfsfólkið hér í nýja húsinu og
var á Silungapolli en ef okkur
verður gert kleift að fuilnýta allt
húsið gerum við ráð fyrir að
þurfa að ráða um 9 starfsmenn
til viðbótar“.
Nýja sjúkrastöðin er 2200
fermetrar að stærð og teiknað
af Vinnustofunni KIöpp hf.
Fyrirtækið Vörðufell hf. byggði
húsið og var byggingarstjóri
Guðni Eiríksson.
„Hér gerum við ráð fyrir að
sjúklingar komi til fyrstu með-
ferðar og dvelji hér í 7-10 daga
en fari síðan á einhverjar af
þeim meðferðarstofnunum sem
við rekum, Sogni ellegar Stað-
arfelli eða að Vífilsstöðum sem
rekið er í af ríkinu“, sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson að lok-
Byggingarnefnd stöðvarinn-
ar skipuðu þeir Othar Örn Pet-
ersen, Ármann Örn Ármanns-
son, Gunnlaugur Ragnarsson,
Hendrik Berndsen og Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson.
-v.
Iðnrekendur
í heimsreisu
tuttugu fulltrúar iðnaðarins fara til
SA-Asíu að kynna sér tœkni og
stjórnun í iðnaði
íslenskir iðnrekendur eða full-
trúar þeirra leggja land undir fót
13. janúar nk. en þá mun 20 manna
hópur fara til Singpore, Hong Kong
og Japans í ferð sem Iðntæknistofn-
un íslands hefur skipulagt.
Tilgangur ferðarinnar er að
kynna sér aðferðir á sviði tækni og
stjórnunar, sem hafa gert kleift að
ná háu framleiðslustigi og miklum
gæðum í iðnaði.
Sérstök áhersla verður lögð á
eftirfarandi atriði:
- Gæðahringi
- Heildargæðaeftirlit
- Framleiðniaukandi aðgerðir
- Samskipti stjórnenda og starfs-
manna
- Sjálfvirkni og iðnróbóta
- Japanskar stjórnunaraðferðir
- Iðnþróunarstefnu stjórnvalda
- Iðnaðarumhverfl
- Hvata til iðnþróunar.
Hópurinn kemur svo heim aftur
29. janúar nk.