Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 8

Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN: Fimmtudagur 29. desember 1983 Sitthvað um þann synduga fisk Um þessar mundir er það mjög í tísku hér á landi að tala um fiskirækt sem meiri háttarbúgreinog útflutningsatvinnuveg. I því sambandi hafa menn fyrst og fremst bent á laxarækt, en uppá síðkastið hafa menn einnig talað um ála- rækt og bent á Dani og Frakka sem fyrirmyndir í þeim efnum. Sannleikurinn ersá að áll er afar góður matur og þó alveg sér í lagi reyktur áll. Eru möguleikarnir á sölu áls úti í hinum stóra heimi taldir mjög miklir og að álarækt hér á landi gæti því orðið hin arðbærastabúgrein. Hug- mynd þeirra sem hefjavilja álarækt á íslandi er að nýta til hennar heita vatnið okkar, en með því að ala álinn í 24 gráða heitu vatni er hægt að hraða mjög vexti hans, frá því sem er við náttúruleg skilyrði. Állinn verður kynþroska á 13-14 árum en i 24 gr. heitu vatni nær hann sömu stærð á 16 mánuðum. Menn hafa þá haft í huga að flytja inn svonefndan glerál, en það eru 6-8 sm löng álaseyði og nefnast gleráll vegna þess að þau eru alveg glær. Hér mun þó vera Þrándur í Götu, sem er fisksjúkdómanefnd, er leggst gegn innflutningi gleráls af sjúkdómahættu. Svo eru aftur aðrir menn, sem hafa bent á að gleráll gengur líka til íslands í ár og læki. Það hefur hinsvegar ekkert verið rannsakað í hve miklum mæli állinn gengur til íslands. Hlýtur það því að teljast verðugt verkefni að hefja rannsóknir á því fyrst áhuginn fyrir álarækt og mögu- leikinn til sölu áls er svo mikill sem menn láta í veðri vaka. Kynjafiskur Allt fram á hin síðari ár hefur flest verið mjög á huldu með álinn, hvaðan hann kemur og hvert hann fer og hvernig lifnaðarhættir hans yfirleitt eru. Þá hefur sá hæfileiki hans að komast langar leiðir á þurru landi, auk útlitsins, orðið til þess að um hann hafa myndast magnaðar kynjasögur. Áll hefur fundist í allt að eitt þúsund metra hæð yfir sjávarmáli, sem kemur til af því að hann þarf ekki nema rakt landslag, jafnvel næturdögg á grasi, til að komast langar ieiðir á þurru landi. Áll finnst vfða í vötnum og tjörn: um hér á landi, einkum á Suður og S-Vesturlandi, allt frá Lónsheiði og að Snæfellsnesfjaligarði. Mest ber á honum þar sem eru eða voru flæðiengi og flóar. Enda þótt hans verði mest vart á fyrrnefndu svæði hefur hans einnig orðið vart á Vest- fjörðum og á Norðurlandi vestra en frá Eyjafirði og allt til Beru- fjarðar verður hans sama og ekkert vart. Mörgum er afar illa við álinn, þar sem hann liggur í mýrum og tjörnum og hefur mönnum frekar þótt hann vera slanga en fiskur. f íslenskri þjóðtrú er talað um hrökkál, sem eitt ægilegt kykvendi. Eru til margar sögur um þennan óvæít, þó frægust sé ef til vill sagan af því þegar hrökkáll beit í besef- ann á meistara Þórbergi. Mjög lítið hefur verið um áia- veiðar hér á landi, sennilega vegna þess að fólk hefur ekki getað hugs- að sér að leggja sér þennan ógeðs- lega fisk (eða slöngu) til munns. Halldór Laxness segir á einum stað að íslendingar meti matfisk eftir útliti og sé fríðasti fiskurinn vinsæl- astur, samanber ýsuna. Mjög erfitt er að drepa ál, að því er virðist og sé hann tekinn og bútaður niður, getur hver biti spriklað á pönnunni og hefur þetta sjálfsagt ekki orðið til þess að auka list landans á þessu Hœgterað hraða vexti áls- ins úr 14 árum niður í 16 mán- uðimeðþvíað alahann Í24 gráða heitu vatni Aðalhrygningastöðvar álsins eru í Saragossahafinu, djúpt útaf M- Ameríku. Síðan gengur hann til stranda Evrópulanda eins og kortið sýnir og þó heldur norðar ef miðað er við göngur til Islands.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.