Þjóðviljinn - 29.12.1983, Page 16
MOÐVIUINlA Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
I 81382, 81482 og 81527, umþrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Fimmtudagur 29. desember 1983 j
Skattbyrði almennings þyngist enn:
F yrirframgreiðslan 63 %
Ríkinu hefðu nœgt 57% en viðbótin „kemur
ríkinu til góða“ segir ráðuneytisstjórinn
Á fyrstu 5 mánuðum næsta
árs verður fólki gert að greiða
63% af álögðum gjöldum þessa
árs í fyrirframgreidda skatta
1984. Þetta er 6 prósentustigum
hærra en tekjuáætlun ríkisins
miðast við og hefur þessi
ákvörðun í för með sér
aukningu á skattbyrði almenn-
ings. Sveitarfélög eins og
Reykjavíkurborg sem hafa
ákveðið álagningu næsta árs
leggja nú mun þyngri skatta á
íbúa sína.
„Sveitarfélögin hefðu þurft 68%
fyrirframgreiðslu til að tekjuáætl-
un þeirra stæöist", sagði Höskuld-
ur Jónsson, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu í gær. „Ríkinu
hefði hins vegar nægt 57% inn-
heimta og því var valinn milli-
vegurinn eða 63% innheimtuhlut-
fall á fyrstu 5 mánuðum ársins."
Höskuldur sagði að slíkur munur
hefði ekki áður komið fram milli
ríkisins og sveitarfélaga. Ástæðan
væri sú að meðan ríkið ætlaði sér að
innheimta í heild 14% meiri skatta
en á þessu ári næmi sama tala 36%
hjá sveitarfélögunum. „Þetta mið-
ast við þau sveitarfélög, sem þegar
hafa tjáð sig um álagningu næsta
árs“, sagði Höskuldur.
Höskuldur sagði ennfremur að
þessi aukna fyrirframgreiðsla kæmi
ríkinu auðvitað til góða á fyrri
hluta ársins, en sama regla verður
að gilda um ríki og sveitarfélög,
þegar hlutfall fyrirframgreiðslu er
ákveðið.
-AI
Sjúkrastöð
SÁA heitir
Vogur
„Trú, von og kærleikur eru
höfuðstuðlarnir í því bjargi sem
þessi sjúkrastöð SÁÁ stendur á“,
sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
formaður Sóknar í ávarpi er hún
gaf nýrri sjúkrastöð SÁÁ við Graf-
arvog nafn í gær. Ber hún heitið
Vogur. Þar hefur heilbrigðisráðu-
neytið gefið rekstrarleyfi fyrir 30
sjúkrarúm en í nýju stöðinni eru 60
rúm. Um leið leggst öll starfsemi
SÁÁ að Silungapolli niður.
Ljósm. Magnús.
Sjá 2
Panikk hjá Sjálfstœðismönnum í Garðabæ
Sj úklingasöfnun
sett á fullt skriö
Þrátt fyrir heitstrengingar hefur
Sjálfstæðismeirihlutinn í bæjar-
stjórn Garðabæjar nú látið bera í
hvert hús í bænum auglýsingar þar
sem bæjarbúar eru hvattir til að
skrá sig hjá nýju læknunum
tveimur fyrir áramót. Bent er á að
„sparnaður“ vegna hins nýja fyrir-
komulags náist ekki nema bæjar-
búar bregðist fljótt við og skrái sig
fyrir 31. desember, nk.
Stjórn Læknafélags íslands fjall-
ar um þetta mál á fundi í dag, en í
Læknalögunum eru settar mjög
strangar takmarkanir á auglýsingar
lækna og lækningastofa. Siðareglur
lækna banna þeim líka að leita eftir
sjúklingum frá öðrum læknum, en
Garðbæingarnir sem nú eru beðnir
að skipta um lækni hafa auðvitað
allir sína lækna fyrir.
Það er aðeins í desember ár
hvert sem fólki er heimilt að skipta
um heimilislækna en Garðabær
hefur ábyrgst læknunum tveimur
kauptryggingu ef nógu margir
sjúklingar fást ekki. Þar að auki
ber bærinn kostnað af húsnæðinu
GAROBÆINGAR
Nú er nýja Heilsugæslan að Garðaflöt 16—18, ykkur
til þjónustu reiðubúin. Þar starfa nú tveir sérfræðing-
ar f heimilislækningum.
Athygli er vakin á því, að bæjarbuar hafa heimild til
þess aö skipta um lækni í desember ár hvert. Vegna
vinnu við fjárhagsáætlun 1984, er bæjaryfirvöldum
nauðsynlegt að vita hug bæjarbúa til hinnar nýju
þjónustu. Þess vegna eru bæjarbúar beönir að svara
spurningum á bakhlið þessa bréfs.
Rétt er að vekja athygli bæiarbúa á. að hið nýja
rekstrarform Heilsugæslunnar, hefur i för með sér
verulegan sparnað fyrir bæjarsjóð og þar með gjald-
endur. Sparnaður þessi næst ekki nema bæjarbúar
bregðist fljótt viöog skrái sig hjá hinum nýju lækn-
um, nú i desember
Bæjarstjóri.
Hefur orðið „þögul byltingu í lóðamálum Reykvíkinga?_
Byltingin felst í auðum lóðum
„Það er rétt hjá Morgunblaðinu
að það hefur orðið bylting í lóða-
málum í Reykjavík. Nú standa lóð-
ir auðar í stórum stíl í borginni. í
því er byltingin fólgin, að skipu-
leggja byggð á svæði sem menn
hvorki vilja né geta byggt á“, sagði
Sigurjón Pétursson í gær.
í leiðara Morgunblaðsins í gær
segir að undir forystu Davíðs
Oddssonar hafi orðið „þögul bylt-
ing“ í lóðamálum í borginni til
hagsbóta fyrir borgarbúa. „Sam-
kvæmt nýjum upplýsingum frá
lóðadeildinni hafa aðeins 4 lóðir til
viðbótar gengið út í Grafarvogin-
um frá í sumar“, sagði Sigurjón,
„en þá var tæplega 300 skilað."
Auðu lóðirnar eru mun fleiri en
þær 103 sem út hafa gengið og þessi
y>
Lóða-
banki“
Davíðs
eykur
skattbyrðina
um 30%
„lóðabanki" Sj álfstæðisflokksins
veldur því að borgarbúar verða að
bera 30% þyngri skattbyrði á næsta
. ári.“
í aðfangadagsblaði Morgun-
blaðsins var skýrt frá því að á árinu
1983 hefði orðið 120% aukning í
lóðaúthlutun hjá borginni miðað
við 1982, Úr3181óðumí702. „Þetta
er fölsun", sagði Sigurjón. „Inni í
tölunni 702 íbúðir á árinu 1983 eru
nefnilega 140 lóðir sem vinstri
meirihlutinn skipulagði fyrir og af-
henti Verkamannabústöðunum á
árinu 1982. Formlegt úthlutunar-
bréf var hins vegar ekki gefið út
fyrr en á þessu ári. Rétt tala yfir
lóðaúthlutanir 1983 er því 562
íbúðir en ekki 702. Og til þess að
hafa samanburðinn réttan þarf að
bæta þessum 140 lóðum við þær
318 sem taldar eru úthlutaðar 1982,
sem þá verða samtals 458. Þetta er
auðvitað engin 120% aukning, eins
og hver maður sér.“
Sigurjón benti einnig á að á árinu
1982 voru til ráðstöfunar 120 lóðir
til viðbótar í Sogamýri, en þær voru
slegnar af strax eftir kosningar um
vorið. Þær voru tilbúnar til úthlut-
unar, þannig að á árinu 1982 var
boðið upp á 578 lóðir af hálfu
vinstri meirihlutans, eða 12 lóðum
fleiri en gengið hafa út á þessu ári.
„Talnaleikur af þessu tagi er
ekkert aðalatriði", sagði Sigurjón,
„hann sýnir aðeins hvaða áróð-
ursbrellum Sjálfstæðisflokkurinn
kýs að beita nú. Það sem máli
skiptir er að skipulagsmistökin í
Grafarvogi kosta borgarsjóð milj-
ónir á miljónir ofan og borgarbúar
munu gjalda þeirra á næsta ári með
30% hærri skattbyrði."
-ÁI
Happdrætti
Þjóöviljans
Enn er hægt að gera skil!
Dregiö hefur veriö en númerin
innsigluð hjá borgarfógeta.
Vinningsnúmerin birt innan skamms.
og rekstrinum, sem aðrir númera-
læknar verða að bera sjálfir. Fyrir
nokkrum dögum höfðu aðeins um
500 manns skipt um lækni og er
dreifibréfið sem borið var út í gær
síðasta hálmstráið íyrir bæjar-
stjórnina að grípa til áður en mán-
uðurinn er allur.
í bréfinu segir að „Heilsugæsl-
an“, sem í raun er læknastofa, sé nú
til þjónustu reiðubúin. Þar starfi
tveir sérfræðingar í heimilislækn-
ingum. Vegna vinnu við fjárhags-
áætlun sé bæjaryfirvöldum
nauðsynlegt að vita hug bæjarbúa
til þessarar þjónustu og því séú þeir
beðnir að svara því hvort þeir muni
skipta um lækni fyrir 31. 12. 1983
eða hvort þeir muni ekki skipta um
lækni! Það sé mjög áríðandi að
bæjarbúar taki þátt í þessari könn-
un~___________________-ÁI
Kartöflur
fyrir kjöt
Gengið hefur nú verið frá samningi
við finnska samvinnusambandið um að
við kaupum af því 2100 tonn af matar-
kartöfium en það 100 tonn dilkakjöts af
okkur. Sýnishorn hefur borist af þeim
kartöflum, sem Finnar selja okkur og
reyndust þær mjög útlitsfallegar og
bragðgóðar.
Verðið á finnsku kartöflunum er
mjög svipað því sem er á þeim hol-
Iensku, sem nú er verið að flytja inn.
Von er á fyrstu sendingunni frá Finn-
landi í janúarlok.
-mhg
Greiða má með
gíró 6572
í aðalbanka
Alþýðubankans
Laugavegi 31