Þjóðviljinn - 19.01.1984, Side 3

Þjóðviljinn - 19.01.1984, Side 3
Fimintudagur 19. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Starfsfólk í Álverinu, Landssmiðjunni og víðar: Heymardeyfa afar algeng segir Einar Sindrason - Þaö sem hefur komið manni fyrst og fremst á óvart er hversu margir hafa skerta heyrn hér- lendis, og þar skera járniðnaðarstarfsmenn sig mjög úr. Þeir heyra upp til hópa illa, sagði Einar Sindrason heyrnarsérfræðingur í samtali við Þjóðviljann. Heyrnar- og talmeinastöð ís- lands hefur síðustu mánuði staðið fyrir umfangsmiklum heyrnar- mælingum á starfsmönnum á stór- um vinnustöðum í málmiðnaðar- greinum, m.a. Álverinu í Straums- vík, vélsmiðjum og einnig í Áburð- arverksmiðjunni. í starfsreglum stöðvarinnar er einmitt gert ráð fyrir að hún annist víðtækar heyrnarmælingar á fólki sem fyrir- byggjandi aðgerð gegn heyrnar- skemmdum. - Þetta er yfirgripsmikið starf og frá því í haust þegar við fengum starfsmann í þetta verkefni hefur verið unnið að heyrnarmælingum starfsfólks á fjölmennum vinnu- stöðum í málmiðnaði, en mark- miðið er að heyrnarmæla alla þá sem vinna við hávaðasöm störf og fylgjast síðan sérstaklega með heyrn þeirra sem hafa hlotið ein- hvern skaða. Heyrndardeyfa er afar algeng hérlendis vegna þess að hér er mikið meira um hávaðasöm störf en þekkist í nágrannalöndun- um, mikið um vélavinnu og eins er fólki sem starfar í fiskiðnaði hætt við heyrnarskaða, sagði Einar. Leita of seint aðstoðar Einar sagði að heyrnartap ætti sér ætíð langan aðdraganda og því væri nauðsynlegt að greina Heyrnaskemmdir hjá starfsmönnum álversins í Straumsvík eru mun algengari og alvarlegri en menn áttu von á. Sama er væntanlega að segja um ástandið á öðrum vinnustöðum af svipaðri gerð. (Ljósm.: Leifur). skaðann á byrjunarstigi svo hægt væri að bæta heyrnina að nýju. „Menn gera sér ekki grein fyrir um- fangi heyrnardeyfu hérlendis. Af 450 tilvikum um vinnusjúkdóma sem tilkynnt var um opinberlega árið 1982 voru 400 tilfeíli tilkynnt af Heyrnar- og talmeinastöðinni. Það var nær eingöngu fólk sem kom til okkar, en fæstir leita til okkar fyrr en heyrnarskaðinn er orðinn mikill og erfitt að ráða bót á honum. Því skiptir miklu að vera með fyrirbyggjandi ráðstafanir. Niðurstöður kynntar Það er verið að vinna úr þeim athugunum sem þegar hafa verið gerðar á vinnustöðum, þeir sem eru með alvarlegan heyrnarskaða verða teknir til frekari rannsóknar og við munum einnig fara aftur á þessa vinnustaði og kynna niður- stöður heyrnamælinganna og skýra út fyrir fólki hvernig málum sé komið og hvað sé brýnast að gera til að koma í veg fyrir þessar miklu heyrnarskemmdir, sagði Einar Sindrason. - lg. Kópavogskaupstaður: Tryggir bömin fyrir slysum Kópavogsbær tryggir nú börnin í bænum fyrir hvers konar tjóni. Samningur um trygginguna er frá- genginn við Brunabótafélag Is- lands. Tryggingin hefur þann kost umfram eldra fyrirkomulag að hún greiðir bætur vegna tjóns sem barn verður fyrir, óháð því hver ber ábyrgð á tjóninu. Þjóðviljinn leitaði upplýsinga um þetta hjá Kristjáni Olafssyni bæjarlögmanni Kópavogs. Hann sagði að mestar líkur væri á að grípa þyrfti til þessarar nýju tryggingar vegna siysa sem gætu orðið í vinnuskólanum, sem bær- inn starfrækir á sumrin, og ferða- laga á vegum skólanna. „Þessi trygging er liður í einum pakka sem boðið er upp á. Tryggingin er ódýr og gæti komið sér vel, þess vegna er engin spurning um að taka hana“, sagði Kristján. Hann sagði okkur að á síðasta ári hefði tryggingin verið í gildi en ekki þurfti að grípa til hennar. Árið 1982 varð barn í bænum aftur á móti fyrir tanntjóni, sem svona trygging hefði bætt ef hún hefði verið fyrir hendi. Þannig bætir hún upp að vissu marki tjón sem einstaka fjölskyldur þurfa annars að bera. Tryggingin á skólabörnunum er hluti af samningi sem Kópavogs- bær hefur gert við Brunabótafélag Islands. Húseigendatrygging, á- byrgðartrygging á lausafé bæjarins og fleira er inn í þessum samningi. Getur hentað öll- um sveitarfélögum segir Ingi R. Helgason hjá Brunabót „Þessu máli var hreyft fyrir BÍ“, sagði Ingi R. Hclgason lor- nokkrum árum af stjórn Sambands stjóri Brunabótafélagsins. íslenskra sveitarfélaga og Bruna- „Tryggingin tekur til hvers bótafélags íslands hefur nú fullgert skólabarns, sem verður fyrir slysi. sameinaðar tryggingar fyrir Hvernigsvosemslysiðberað, hver sveitarfélögin, sniðnar eftir vá- svo sem á sök á því, hvort sem slys- tryggingarþörf þeirra. Slysatrygg- ' ið verður við nám eða í leik, í eða ingar skólabarna eru aðeins liður í við grunnskóla, leikskóla, dag- þcim, en allir kaupstaðir í landinu heimili eða sumarnámskeið á veg- utan Reykjavíkur eru aðilar að um bæjarins eða á leið til og frá Unglingar í Vinnuskóla Kópavogs að störfum heimili að þessum stofnunum eða á ferðalögum á vegum þeirra“, sagði Ingi ennfremur. „Slysatryggingar skólabarna með þessum hætti eru hugsaðar sem viðbót við venjulega ábyrgð- artryggingu sveitarfélagsins þar sem börn falla ekki undir laun- þegatryggingu. Ef barn slasast í skóla sakir vanbúnaðar eða van- rækslu verður sveitarstjórnin talin skaðabótaskyld og þá kemur til kasta ábyrgðartryggingarinnar. En ef barn slasar annað barn í leik, eða barn slasast í leikfimi eða í skóla- ferðalagi og engum verður um kennt, fellur það tilvik utan á- byrgðartryggingarinnar", sagði Ingi. „Þá kemur til kasta þessarar nýju tryggingar, sem bæfir tjónið í samræmi við vátryggingarupphæð- ina.“ Ingi sagði að fjölmörg sveitarfé- lög hefu sýnt þessari nýju tryggingu áhuga, en Kópavogskaupstaður er hið fyrsta sem væri með frágenginn samning um þessi mál við BÍ. -jp- SVR: Miljón færri farþegar Á síðasta ári fækkaði farþegum SVR í fyrsta sinn í langan tíma og voru þeir rúmlega 10 miljónir í stað 11 miljóna á árinu 1982. Hafa far- þegar SVR ekki verið færri s.l. 20 ár. „Þessi fækkun verður mest á fyrstu 4 mánuðum ársins 1983“, sagði Guðrún Ágústsdóttir, stjórnarmaður í SVR, í gær. „Það er erfitt að spá um hver ástæðan er, en hátt verðlag minnkar auðvitað notkun á strætisvögnum eins og öðru. Það verður að grípa á þessu", sagði Guðrún ennfremur, „og laða farþega að vögnunum á nýjan leik. Besta ráðið sem ég sé til að snúa dæminu við er að halda fargjöldum í lágmarki og bæta þjónustuna. Það er því miður ekkj stefnan sem nú er fylgt í borgarstjórn." _ ÁI. Sinfónían í kvöld A dagskrá Sinfóníu íslands á tón- leikum í Háskólabíói í kvöld eru tvö verk: Dagur reiði eftir Penderecki og Vonsinfónían eftir Schumann. Flytjendur eru auk hljómsveitar- innar einsöngvararnir Marianne Mellnás, Svend Anders Benktsson og Sigurður Björnsson. Kórhlut- verkið sem er mjög stórt er í hönd- um Söngsveitarinnar Fflharmóníu og félaga úr Karlakórnum Fóstb- ræðrum. Á undan flutningnum mun Bald- vin Halldórsson leikari lesa íslenska þýðingu textans.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.