Þjóðviljinn - 19.01.1984, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1984
Mið-Ameríkunend Henry
Kissingers hefur skilað
Bandaríkjaforseta áliti sínu
eftir 5 mánaða starf og sjá:
boðið er upp á gamalt vín í
nýjum belgjum. Yfirdrottn-
unarstefna Bandaríkjanna í
þessum heimshluta skal
fram haldið með stóraukinni
hernaðaraðstoð og íhlutun,
þar sem beita á öllum ráðum
til þess að styrkja þær ógn-
arstjórnir sem nú ríkja í El
Saivador og Guatemala og
veita áframhaldandi hernað-
araðstoð til þeirra leiguliða
sem nú berjast gegn stjórn
sandinista í Nicaragua fyrir
reikning bandarísku leyni-
þjónustunnar. Álit nefndar-
innar var gert opinbert um
svipað leyti og Contadora-
ríkin svokölluðu höfðu eftir
diplomatískum leiðum náð
þeim árangri að fá utanríkis-
ráðherra Nicaragua, Costa
Rica, El Salvador, Guatemala
og Honduras til þess að sam-
einast um tillögu þar sem
gert er ráð fyrir því að allri
erlendri hernaðaríhlutun á
svæðinu verði hætt og kom-
ið verði á samstarfsnefndum
þessara rikja er vinni að
friðsamlegri lausn deilumála
og eflingu mannréttinda á
svæðinu.
Álit Kissinger-nefndarinnar er
beinn stuöningur viö stefnu Reag-
ans í þessum heimshluta um leiö og
það ber mjög svipmót af þeirri
heimssýn Henry Kissingers, sem
einfaldar öll heimspólitísk mál nið-
ur í átök á milli „góðs og ills“ á milli
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna,
þar sem helsta röksemdin fyrir 8
miljarða dollara „efnahagsaðstoð"
við Mið-Ameríkuríkin er byggð á
þeirri forsendu að „sovésk-
kúbönsk íhlutun" á svæðinu gæti
að öðrum kosti orðið til þess að
Bandaríkin þyrftu að stórauka her-
varnir sínar á suður-landamær-
unum. Þessi ímyndaða ógnun við
öryggi Bandaríkjanna verður í
augum Kissingers að hluta af
„heimspólitískri ögrun“ Sovét-
ríkjanna gagnvart Bandaríkjun-
um.
Valdahroki
stórveldisins
Sú harðstjórn og sá skortur á
mannréttindum og þjóðfélagslegu
réttlæti sem þjóðir þessa heims-
hluta hafa mátt búa við um áratuga
skeið hverfur í skuggann fyrir
þeirri pólitísku heimssýn Kissing-
ers sem byggir á valdahroka stór-
veldisins. Nefndin sem hann veitti
forsæti var skipuð í júlí sl. og áttu
12 fulltrúar beggja flokka sæti í
henni. Samkvæmt reglum nefndar-
innar átti meirihlutinn að ráða, en
einstaklingum var gefin heimild til
sérálits um einstök atriði. Hins
vegar gerðu reglur nefndarinnar
ekki ráð fyrir minnihlutaáliti. Svo
virðist af fréttunr sem helsta
deilumálið innan nefndarinnar hafi
snúist um það, hvort binda ætti
efnahagsaðstoð við stjórnina í E1
Salvador skilyrðum um að hún sæi
til þess að mannréttindi yrðu virt í
landinu eða ekki. Ronald Reagan
beitti neitunarvaldi sínu gegn slíkri
samþykkt þingsins í síðasta mánuði
og Kissinger er sagður hafa eytt
drjúgum tíma af starfi sínu innan
nefndarinnar í að fá fulltrúa Demó-
krataflokksins til þess að falla frá
slíkum skilyrðum. Hann varð hins-
vegar að lúta í lægra haldi í þessu
eina máli, en að öðru leyti er álit
nefndarinnar sagt bera mjög svip-
mót Kissingers.
Þrefölduð fjárveiting
Tillögur hennar fela í sér þre-
földun á fjárveitingum Bandaríkj-
anna til hernaðar- og efnahagsað-
stoðar á svæðinu á næstu 5-6 árum,
en Bandaríkin veita nú árlega um
400 miljónum dollara í þessum til-
gangi. „Efnahagsáðstoðina“ við E1
Salvador vill nefndin sexfalda þeg-
ar á næsta ári eða úr 65 í 400 miljón-
Henry Kissinger ásamt nokkrum samnefndarmanna sinna. í nafni þeirrar heimsmyndar sem Kissinger stendur fyrir var Kampútsea lögð í rúst með
loftárásum 1969. Hann átti einnig frumkvæðið að herferð Bandaríkjanna gegn stjórn sósíalistans Salvador Allende í Chile sem endaði með því að hann
var myrtur 1973. Nú á að ganga á milli bols og höfuðs á alþýðu E1 Salvador og knýja stjórn sandinista til uppgjafar með hervaldi. Rök Kissingers eru
ávallt þau sömu: sovéska ógnin gagnvart Bandaríkjunum.
Kissinger-nefndin vill
Dollara og hergögn
Handa harðstjórum Mið-Ameríku
ir dollara. Þá á einnig að stórauka
framlag Bandaríkjanna til þeirrar
miklu hernaðaruppbyggingar sem
Bandaríkin hafa staðið fyrir í
Honduras á undanförnum árum og
einnig vill nefndin að Bandaríkin
hefji á ný vopnasölu og hernaðar-
aðstoð við Guatemala, en Carter
forseti batt enda á þau viðskipti
vegna mannréttindabrota her-
stjórnarinnar í Guatemala.
Nefndin mælir einnig meö á-
framhaldandi og aukinni aðstoð til
leiguliða þeirra sem Bandaríkja-
menn hafa þjálfað í Honduras til
hernaðar gegn stjórninni í Nicarag-
ua. Segir í álitinu að markmiðið
með þessum hernaði sé þó ekki að
steypa stjórninni íNicaragua, held-
ur eigi með hernaði þessum að
skapa skilyrði til samninga við
stjórn sandinista um lausn á
vandamálum svæðisins í heild.
Þau skilyrði sem nefndin setur
fyrir hinni sexföldu efnahagsað-
stoð til E1 Salvador eru að haldnar
verði frjálsar kosningar, að jarð-
næði verði skipt, að umbætur verði
gerðar á réttarfari, að
mannréttindi verði virt og að
„dauðasveitirnar" svokölluðu sem
starfað hafa í skjóli stjórnarhersins
og ríkisstjórnarinnar verði upp-
rættar.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hefur reyndar haft hliðstæð skilyrði
í orði fyrir fjárveitingum til E1 Sal-
vador undanfarin ár án þess að það
hafi með sjáanlegum hætti dregið
úr þeirri ógnarstjórn sem þar ríkir.
En það sem skiptir þó mestu máli
er að í áliti nefndarinnar er ekki
gert ráð fyrir pólitískri lausn á
stjórnarvandanum í E1 Salvador
með samningum á milli deiluaðila,
heldur á að knýja fram hernaðar-
lega lausn með sexfaldri „efna-
hagsaðstoð“ við ógnarstjórnina,
þar sem böðlum stjórnarhersins
verður áfram falið að sjá um
„mannréttindi" í landinu og hinar
umbeðnu umbætur á því sviði.
Sömuieiðis virðist nefndin gera ráð
fyrir því að sami stjórnarher eigi að
tryggja hinar umbeðnu „frjálsu
kosningar" í landinu.
Nefndin gerir það að tillögu sinni
að sérstakri Þróunarstofnun fyrir
Mið-Ameríku verði komið á lagg-
irnar og eigi hún að sjá um miðlun á
fjórðungi þeirra 8 miljarða dollara
sem verja á til svæðisins á næstu 5
árum.
Rétt er að líta á niðurstöður
Kissinger-nefndarinnar í ljósi þess
árangurs sem Contadora-ríkin hafa
nýlega náð í viðleitni sinni til þess
að stilla til friðar og finna pólitíska
lausn á vandamálum Mið-
Ameríku. Contadora-ríkin, sem
kenna sig við eyju í Panama, eru
Mexíkó, Panama, Venezuela, Col-
ombia og Argentína. í síðustu viku
undirrituðu utanríkisráðherrar
Nicaragua, E1 Salvador, Guate-
mala, Costa Rica og Honduras til-
lögu þessara ríkja er miðar að
friðsamlegri lausn deilumála í þess-
um heimshluta, þar sem hernaðar-
íhlutun utanaðkomandi ríkja verði
útilokuð. Þótt samkomulag þetta
sé víða óljóst og aðeins beri að líta
á það sem lítinn áfanga að langri
leið, þá er sú viðleitni sem
Contadora-ríkin hafa sýnt þó eina
alvarlega viðleitni sem nú er í gangi
til friðsamlegrar lausnar deilumála
í Mið-Ameríku. Og álit Kissinger-
nefndarinnar gengur þvert á þessa
viðleitni í veigamiklum atriðum,
þar sem það gerir ráð fyrir aukinni
hernaðaríhlutun og áframhaldandi
hernaði gegn stjórninni í Nicarag-
ua. Bandaríkjaforseti mun ekki
geta þvegið hendur sínar af þeirri
ábyrgð sem hann ber á ógnaröld-
inni í Mið-Ameríku með auknu
dollaraflóði til þeirra harðstjórna
sem þar ríkja.
ólg.
Hernaðarlausn
er óhugsandí
segjafulltrúarEl Salvador-
nefndarinnar, sem œtla að halda
fund að Hótel Borg á sunnudag
Við ætlum að núnnast þess á
sunnudaginn að Iiðin eru 52 ár frá
bændauppreisninni miklu í E1
Salvador, sagði Jón Gunnar
Grétarsson fulltrúi El Salvador-
nefndarinnar í spjalli við Þjóð-
viljann í gær.
- 22. janúar er orðinn að al-
þjóðlegum stuðningsdegi við
þjóðfrelsisbaráttuna í E1 Salva-
dor, þar sem þessa tímamótaat-
burðar er minnst um leið. Þennan
dag fyrir fjórum árum var farin
fjölmennasta kröfuganga í sögu
iandsins um götur höfuðborgar-
innar, San Salvador, til þess að
mótmæla þeirri kúgun sem ríkir í
landinu. Það varúpp úr þeirri að-
gerð sem hin framsæknu og iýð-
ræðislegu öfl í landinu sameinuð-
ust í eina fylkingu, FMLN/FDR.
Með hvaða hætti hyggst nefnd-
in minnast þessa atburðar?
- Við ætlum að halda fund á
Hótel Borg á sunnudaginn kl. 15.
Þar verður flutt erindi um frels-
uðu svæðin í E1 Salvador, sem eru
á valdi þjóðfrelsisaflanna. Þessi
svæði ná nú yfir meira en
fimmtung alls landssvæðis, og
verður gerð grein fyrir þeirri fé-
lagslegu þjónustu, menntun og
heilsugæslu sem þar er skipulögð,
og þeim vísi að alþýðuvöldum
sem þar hefur verið komið á með
skipulagðri framleiðslu á félags-
legum grundvelli.
Þá verður einnig gerð grein
fyrir söfnun þeirri sem E1 Salva-
dornefndin hefur staðið fyrir í
samvinnu við íslenska kennara-
sambandið. Fjársöfnun þessi
mun renna til barna á frelsuðu
svæðunum í E1 Salvador, og hafa
trúnaðarmenn kennarasam -
bandsins safnað sérstaklega til
þessa máls meðal kennara. Þá
söfnuðust yfir 40 þúsund krón ur á
Þorláksmessu í þessa söfnun, en
endanleg niðurstaða verður birt á
fundinum á sunnudaginn. Söfn-
uninni er þó ekki lokið, og má
leggja framlög inn á ávísana-
reikning 59957 í Búnaðarbankan-
um við Hlemm merktan „Söfnun
til skólabarna í E1 Salvador,
Björk Gísladóttir, Baldursgötu
9, 101 Reykjavík".
Á fundinum á Hótel Borg mun
Juan Diego frá Costa Rica einnig
syngja baráttusöngva frá Mið-
Ámeríku. Að lokum verður svo
farin blysför að sendiráði Banda-
ríkjanna við Laufásveg til þess að
mótmæla stuðning Bandaríkja-
stjórnar við ógnarstjórnina í El
Salvador.
Jón Gunnar Grétarsson félagi í El
Salvador-nefndinni á íslandi.
Hefur El Salvador-nefndin
beint samband við aðila í E1 Sal-
vador?
- Nei, en við höfum gott og
stöðugt samband við fulltrúa
FMLN/FDR í Stokkhólmi, og
það fé sem við höfum safnað fer í
gegnum þá.
Hvaða augum lýtur E1
Salvador-nefndin á álit Kissinger-
nefndarinnar á málefnum Mið-
Ameríku?
- Þetta álit staðfestir enn einu
sinni að Bandaríkin virðast stað-
ráðin í að freista þess að knýja
fram vilja sinn með hervaldi og
hafna öllum samningum. í þessu
sambandi er vert að minnast orða
Whites sendiherra Carter-
stjórnarinnar í E1 Salvador, en
hann hefur ítrekað lýst því yfir að
hernaðarlegur sigur sé óhugsandi
í E1 Salvador og að eina leiðin til
lausnar deilumálum í E1 Salvador
sé samningaleiðin.