Þjóðviljinn - 19.01.1984, Side 12
12 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Söfnum fyrir ieikföngum
Félagið okkar í Reykjavík er nú komið í nýja og glæsilega aðstöðu að
Hverfisgötu 105. Stórátak meðal félaganna hefur gert drauminn um
gott húsnæði að veruleika og skapaö góða aðstöðu til starfs og leikja.
En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldr-
ar hafa rekið sig á að sárlega vanhagar um er
leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í
flokksmiðstöðinni enn sem komið er.
Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks og vel-
unnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr
i þessu. Allt verður vel þegið hvort sem það
eru fjárframlög eða gömul nothæf leikföng.
Ef þið lúrið á einhverju vinsamlegast látið Kristján Valdimarsson vita í
síma 17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskaö er.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Árshátíð og
þorrablot ABR
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík
verður laugardaginn 28. janúar.
Hátíðin verður haldin að Hverfisgötu 105 og hefst borð-
hald kl. 20.00.
Veislustjóri: Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi.
Fjölbreytt skemmtiatriði. Meðal þeirra sem fram koma
eru: Árni Bergmann, Árni Björnsson, Kristín Á. Ólafsdótt-
ir, Margrét Pála Ólafsdóttir, Sveinn Kristinsson og Þráinn
Bertelsson sem ávarpar gesti.
Sigurður Rúnar Jónsson ieikur undir fjöldasöng og diskó-
tekið Devo leikur tónlist við allra hæfi í austursal.
Enn eru um 50 miðar til á hátíðina svo að það er rétt að
panta miða strax í síma 17500.
Þeir sem pantað hafa miða eru hvattir til að vitja þeirra
sem fyrst og eigi síðar en fimmtudaginn 25. janúar.
Skemmtinefnd ABR
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis
Skúli
Garðar
Fundur um sjávarútvegsmál
Fundur um sjávarútvegsmál verður haldinn að Kirkjuvegi 7 miðviku-
daginn 25. janúar kl. 20.30. Á fundinum mæta alþingismennirnir Garð-
ar Sigurðsson og Skúli Alexandersson.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsvist
Nú hefjast að nýju spilakvöldin vinsælu.
Spilað verður 7. og 21. febrúar og 6. mars að Hverfisgötu 105.
Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Árshátíð
ABK heldur árshátíð sína í Þinghóli laugardaginn 4. febrúar nk.
Skemmtiatriði og hressandi veitingar. Miðaverð aðeins 200 krónur.
Allt stuðningsfólk velkomið. Nánar auglýst síðar. - Stjórn ABK.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins verður haldin laugardaginn 21. janúar
nk. í Alþýðuhúsinu og hefst með borðhaldi kl. 20.00.
Að vanda verður glæsileg skemmtidagskrá þar sem gleði, andríki,
söngur og hljóðfærasláttur skipa öndvegi. Ræðumaður kvöldsins
verður Vilborg Harðardóttirvaraformaöur Alþýðubandalagsins. Félagi
Steingrímur og félagi Stefán munu verða gestir hátíðarinnar ef guö
lofar. Hin gamalkunna hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur fyrir
dunandi dansi mest alla nóltina.
Miðaverð kr. 450.- Börn yngri en 12 ára fá ókeypis aðgang en aldurs-
hópur 12-15 ára greiðir 200 krónur.
Félagar, undirbúningsvinna er nú í fullum gangi. Auðveldið okkur hana
með því að láta skrá ykkur til þátttöku sem allra fyrst; hjá Ragnheiði í
síma 23397, Óttari í síma 21264 eða Guðlaugi í síma 23909. -
Skemmtinefndin.
Úr byggðum
Eyjafjarðar
Austan Eyjafjarðar, gegnt Akur-
eyri hefur Skógræktarfélag Eyfirð-
inga komið upp mjög fallegum trjá-
lundi, sem nefnist Vaðlarcitur.
Með tilkomu hins nýja Leiruvegar
verður þessi fagri og friðsæli reitur
fyrir ærnum búsifjum, þar sem
vegurinn verður lagður gegnum
hann, en allt verður að víkja fyrir
þeirri „nauðsyn“ að menn geti ver-
ið sem fljótastir í förum.
Fyrir þær skemmdir, sem við
þetta verða á reitnum mun Vega-
gerðin greiða Skógræktarfélaginu
skaðabætur að upphæð 1,5 milj.
kr. Félagið mun fjarlægja þær trjá-
plöntur, sem verða í vegi fyrir veg-
inum. Verða þær trúlega, allflestar
a.m.k., gróðursettar annarsstaðar í
reitnum.
Endurhæfíng á Kristnesi
Á fundi stjórnarnefndar ríkis-
spítalanna, sem haldinn var að
Kristneshæli nálægt miðjum nóv.
sl., var sérstaklega fjallað um mál-
efni hælisins. Var m.a. ákveðið að
efla þar mjög endurhæfingarstarf-
ið. Hátíðasalnum verður breytt í
endurhæfingarsal og sjúkraþjálfar-
ar ráðnir til að starfa að endurhæf-
ingunni.
Jafnframt mun svo nafni stofn-
unarinnar verða breytt að nokkru
leyti. Hingað til hefur hún heitið
Kristneshæli. Hér eftir mun hún
nefnast Kristnesspítali. Spítalinn
mun þó gegna sama hlutverki og
hælið hefur gert mörg hin síðari
árin.
Hlynnt að ferðamálum
Akureyringar hafa hug á að
hlynna betur að ferðamálum
heimafyrir en gert hefur verið. Er
látið að því liggja, að e.t.v. verði
ekki með öðrum hætti fljótar kom-
ið upp nýjum störfum í bænum. Því
hefur atvinnumálanefnd Akur-
eyrar farið fram á það við bæjarráð
að það veiti Ferðamálafélagi Akur-
eyrar 250 þús. kr. styrk til þess að
skipuleggja og samhæfa starf-
semina. Er þá m.a. horft til aukinn-
ar auglýsingastarfsemi og útgáfu á
bæklingum þar sem kynnt væri
hvað Akureyrarbær og nágrenni
hafa að bjóða ferðamanninum,
bæði hvað snertir ýmiss konar fyr-
irgreiðslu og skoðun á fögrum
stöðum og markverðum. Og svo
sannarlega er þar úr mörgu að
moða.
„Opið hús“ fyrir aldraða
Fyrir forgöngu Rauða kross-
deildarinnar á Dalvík hafa nú 12
félög á Dalvík og í Svarfaðardal
tekið sig saman um að hafa „opið
hús“ fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega og maka þeirra í þessurn
byggðarlögum einu sinni í mánuði í
vetur. Verður þarna sitt af hverju
haft um hönd, viðstöddum til
ánægjuauka. Hugmyndin er að
þessi starfsemi nái einnig til Ár-
skógsstrandar og að samstarf geti
tekið um hana með félögum þar og
Svarfdælum.
Verra en oftast áður
Það hallar undan fæti í atvinnu-
málunum á Akureyri. Nú um ára-
mótin voru 250 manns þar á
atvinnuleysisskrá, 72 konur og 178
karlar. f desembermánuði voru
3814 atvinnuleysisdagar á Akur-
eyri. Svarar það til þess að 173 hafi
verið atvinnulausir allan mánuð-
inn. Alls voru atvinnuleysisdagar á
Akureyri 16.137 árið 1982 en
28.737 á sl. ári og nemur sú fjölgun
hvprki meira né minna en 70,7%.
í janúarmánuði hefur þetta
ástand síður en svo batnað og er nú
Nú er á brattann að sækja fyrir
Slippstöðina á Akureyri.
verra en það hefur nokkru sinni
verið hin síðari árin. Raunar hefur
atvinna að jafnaði verið minnst í
desember og janúar en farið að
glæðast úr því. Nú eru hinsvegar
engar horfur á að svo verði nema
síður sé.
Erfiðleikar
Slippstöðvarinnar
Þunglega horfir fyrir Slippstöð-
inni á Akureyri um þesar mundir.
Sextíu manns hefur verið sagt upp
störfum frá 1. mars að telja. Ekki
er í sjónmáli að þær uppsagnir
verði dregnar til baka.
Að sögn Gunnars Ragnars, for-
stjóra Slippstöðvarinnar, hafa
skuldir hlaðist upp hjá fyrirtækinu
undanfarin misseri, enda útgerðin
engan rekstrargrundvöll haft. Ekki
verður haldið áfram á skulda-
brautinni til eilífðarnóns. Enn
kemur svo til að gera má ráð fyrir
að kvótafyrirkomulagið leiði af sér
minni þörf fyrir skipaviðgerðir þar
sem skipunum verður lagt lengur
eða skemur.
Slippstöðin hefur sótt um leyfi til
þess að taka erlent langtímalán.
Það leyfi hefur þó ekki verið neitt,
þegar þetta er skrifað. Hinsvegar
hefur skipasmíðanefnd iðnaðar-
ráðuneytisins lagt til að aflað verði
150 milj. kr. til þess að standa undir
kostnaði við meiri háttar skipavið-
gerðir og klassarnir um land allt.
Gunnar Ragnarsson telur að þessi
upphæð sé, í fljótu bragði skoðað,
naumast nema helmingur þess fjár,
sem Slippstöðin ein þurfi á að
halda.
- mhg
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálaráð
Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins á Akranesi kemur saman til
fundar mánudaginn 23. janúar kl. 20.30 í Rein.
LJÓSASKOÐUN
SKAMMDEGIÐ
FER í HÖND.
Við aukum öryggi í umferðinni með
því að nota ökuljósin allan
sólarhringinn. rétt stillt og i góðu lagi.
Ljósaperur geta aflagast á skömmum tíma.
og Ijósaperur dofna smám saman við notkun
Þannig getur Ijósmagn þeirra rýrnaö um
allt aó því helming.
31 OKTÓBER á Ijósaskoöun að vera
lokið um allt land. UrÍHð^^^