Þjóðviljinn - 29.02.1984, Síða 1

Þjóðviljinn - 29.02.1984, Síða 1
sjávarútvegurinn BLAÐAUKIIII Bræðurnir Davíð og Níels Gíslasy nir í vinnuskoti sínu á verk- stæðinu. Myndir- Atli. Komnir á þröskuld fjöldaframleiðslunnar Á bænum Berghól skammt utan við Akureyri hafa menn ekki setið auðum höndum undanfarin ár. Árangur af nærri 6 ára þróun og tilraunum er nú buinn að skila sér með fram- leiðslu á fullkomnustu og best útbúnu rafeindastýrðu hand- færarúllum sem völ er á um þessar mundir. Það sem í upphafi var tómstundagaman um kvöld og helgar hjá bræðrunum Davíð og Níels Gíslasonum er nú fyrirtækið DNG sem hefur 10 manns í vinnu og er nú brátt tilbúið að hefja fjöldafram- leiðslu á rafeindastýrðum handfæravindum í fyrstu fyrir inn- lendan markað en síðan verður stefnt á erlenda markaði þar sem handfæravindan hefur vakið verðuga athygli sem og hér innanlands. Þegar Þjóðviljamenn bar að garði í Berghóli á dögunum var unnið að kappi í verkstæðishúsinu við bæinn. Snorri Hans- son sem búinn er að starfa við handfæravinnsluna í tvö ár tók vel á móti komumönnum og leiddi okkur um fyrirtækið. Samsetningarborðið fyrir rafrásarspjöldin sem steypt eru í Danmörku en Sigurður Jónsson félagi þeirra bræðra gerði teikningar á rafrásarkerfinu. Það er löng þróun í þessum bún- aði. Þeir bræður Davíð ogNíels eru lengi búnir að vera að glíma við alls kyns smátækjasmíði, en fyrir um 6 árum kviknaði hugmyndin að þess- ari færavindu og síðustu 5 ár hefur Davíð eingöngu sinnt þessu áhuga- máli sínu. Níels er lærður flugvirki og er einnig raftæknir. Davíð hefur verið í læri hjá honum árum saman og allar þeirra hugdettur og fikt hefur gert þá að snillingum í þessari rafeindatækni sem nú er að ryðja sér alls staðar til rúms. Búiö aö framleiða um 40 vindur Um tvö ár eru síðan fyrsta hand- færavinda bræðranna sá dagsins ljós en síðan þá hefur vindan tekið miklum breytingum. Margirróðrar hafa verið farnir út á Eyjafjörð til að prófa vinduna og nú telja þeir hjá DNG sig vera komna með fullkomna útfærslu á gripnum. Þegar er búið að framleiða um 40 vindur og hafa þær einkum verið seldar sjómönnum á Norður- og Austurlandi. „Við höfum lítið þurft að hafa fyrir því að kynna þessar vindur. Þær hafa auglýst sig sjálfar, en meðan þær voru í þróun og fram- leiðslan ekki komin á fulla ferð, þá hefur salan í fyrra og á árinu þar á undan dugað til að halda okkur gangandi", sagði Snorri. „Það var síðan á Iðnsýningunni í Laugar- dalshöll sl. sumar þar sem við vor- um eiginlega dregnir inn með vind- una, að hún sló í gegn. Eftir þá sýningu hefur vart liðið svo dagur að við höfum ekki fengið pöntun eða fyrirspurn um vinduna og við eigum mjög erfitt með að sinna öllum pöntunum. Því hefur verið lögð áhersla á að þróa framleiðsl- una og það má segja að við séum einmitt núna á þröskuldi þess að hefja hina eiginlegu fjöldafram- leiðslu. Þegar hún verður komin á fullt skrið þá teljum við okkur geta framleitt 25 - 30 stk. á mánuði“. Sjá næstu síðu Litið við að Berghóli við Akureyri þar sem bræðurnir Davíð og Níels hafa undanfarin ár unnið að þróun mjög fullkominnar alsjálfvirkrar handfæravindu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.