Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 16. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Vorkonur Al-
þýðuleikhússins:
Undir
teppinu
hennar
ömmu
Leikrit eftir
Nínu Björk
Arnadóttur
- Þetta er bara fyrsta kvennasýn-
ingin, það eru fleiri í uppsiglingu
hjá Alþýðuleikhúsinu, sagði Inga
Bjarnason leikstjóri á blaðamanna-
fundi í gær, þarsem „Vorkonur“
Alþýðuleikhússins kynntu nýtt
verk eftir Nínu Björk Árnadóttur.
„Undir teppinu hjá ömmu“ heitir
leikrit Nínu Bjarkar sem hún samdi
sérstaklega fyrir vorkonurnar hjá
Alþýðuleikhúsinu.
„Undir teppinu hjá ömmu“
verður frumsýnt á þriðjudaginn á
Hótel Loftleiðum. Verkið er þrí-
skipt og lýsir þremur kynslóðum
kvenna. Tónlistin er eftir Mist
Þorkelsdóttur, höfundur leik-
myndar er Guðrún Svava Svavars-
dóttir en leikendur eru Kristín
Bjarnadóttir, Sigurjóna Sverris-
dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Anna Einars-
dóttir, Margrét Ákadóttir og Sól-
veig Halldórsdóttir. Ljósameistari
er Árni Baldvinsson en búkhljóð
og raddbandasláttur er úr börkum
þeirra Hákons Leifssonar, Guð-
mundar Ólafssonar og Þórhalls
Sigurðssonar.
RAÞ.
jGuðný Helgadóttir framkvæmdastjóri, Inga Bjarnason leikstjóri, Nína 'Björk Árnadóttir rithöfundur og Kristín Bjarnadóttir. (Ijósm.: Atli).
Fjalakötturinn:
Samtök
undirbúin
„Ætlun okkar er að stofna form-
lega samtök um verndun Fjalakatt-
arins sem eru þess albúin að leggja
sitt af mörkum til að hægt verði að
friða húsið, sem að okkar mati er
hið merkasta“, sagði Erlendur
Sveinsson einn félaga úr undirbún-
ingsncfnd að stofnun samtaka um
verndun Fjalakattarins við Aðal-
stræti 8 í Reykjavík.
Erlendur sagði að í gær hefðu
þeir 59 menn, konur og karlar, sem
rituðu nöfn sín undir áskorun til
yfirvalda fyrir skömmu, hist og þar
hefðu verið reifaðar hugmyndir um
það hvernig bæri að stuðla að vern-
dun hússins. „Við teljum í sjálfu
sér ekkert sjálfsagt mál að fara
ofan í vasa skattborgaranna heldur
höfum við á prjónunum hugmyndir
um sjálfstæða fjáröflun í þessu
skyni, heima og erlendís", sagði
Erlendur ennfremur.
„Þetta hús er hið merkasta að
okkar mati og raunar hefur það
verið mat Árbæjarsafns að varð-
veita bæri Aðalstræti 8. Bæði er
það að elstu innviðir hússins eru frá
Innréttingum Skúla fógeta
Magnússonar og svo hitt rneðal
annars að í þessu húsi er einn elsti
kvikmyndasalur í veröldinni. Af
þeirri ástæðu hef ég reifað málið á
fundum í alþjóðasamtökum kvik-
myndasafna og menn lýst áhuga
sínum á að varðveita bæri þetta
hús“, sagði Erlendur Sveinsson.
Auk hans eiga sæti í undirbúnings-
nefnd þau Björg Einarsdóttir,
Finnur Björgvinsson, Helgi Þor-
láksson og Sigurður Tómasson.-v.
Kaupfélögin í Kína
Reka 390 þús-
und verslanir
í Kínverka alþýðulýðveldinu eru
kaupfélög að störfum þót ekki séu
þau aðilar að Alþjóðasamvinnu-
sambandinu. Fréttir af starfsemi
kínversku kaupfélaganna eru ekki
mjög tíðar enþó er ýmislegt um þau
vitað.
Framanaf áttu þau nokkuð erfitt
uppdráttar en eftir menningarbylt-
inguna hafa þau annast hartnær
aíla vöruútvegun fyrir landbúnað-
arhéruðin. Líku máli gegnir um
afurðasölu bænda. Þar sjá félögin
nánast um alla sölu á vörum eins og
ávöxtum, kjöti, grænmeti, tei og
tóbaki. í borgunum er verslun
ríkisins á hinn bóginn nánast ein-
ráð um smásöluverslunina.
Kaupfélögin sjá einnig um að út-
vega bændum rekstrarvörur svo
sem áburð og vélar.
En félögin einskorða sig ekki við
verslun. Þau byggja íbúðir og
skólahús, skipuleggja barnagæslu
og beita sér fyrir margháttaðri
menningarstarfsemi. Þau halda
uppi ráðunautaþjónustu fyrir
bændur í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið og eru starfandi
yfir 200 þús. ráðunautar.
Kaupfélög í Kína eru um 40 þús.
og þau reka um 390 þús. verslanir,
sem selja almennar neysluvörur.
-mhg
Atkvœðagreiðsla um samninga Starfsmannafélags
Hafnarfjarðarbœjar og bœjarins hefst í dag
,Ekki mikið plagg
segir formaður félagsins
„Það hafa ekki verið haldnir
fundir um þennan samning sérstak-
lega. Þetta er ekki mikið plagg, og
við höfum ekki séð ástæðu til að
ræða það sérstaklea á fundi með
félagsmönnum", sagði Sigurður
Hallgrímsson formaður Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðarbæjar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
í dag hefjast kosningar meðal fé-
laga í Starfsmannafélaginu um að-
alkjarasamning félagsins við.bæj-
arstjórn sem félagsstjórn sam-
þykkti sl. miðvikudag. Eftir á að
ganga frá sérkjarasamningum en
viðræður eru hafnar.
Mikillra óánægju gætir einkum
hjá fóstrum á dagheimilum í bæn-
lum að samningur Starfsmannafé-
lagsins við bæjaryfirvöld skuli ekki
vera tekinn til almennrar umræðu á
félagsfundi eða á einstökum vinnu-
stöðum. Á sumum vinnustöðum
hafði ekki einu sinni verið búið að
dreifa samningnum á hádegi í gær,
en kosning um hann hófst í morg-
un. Hefur verið óskað eftir fundi
en stjórnin ekki viljað halda fund
um aðalkjarasamninginn.
„Það hafa komið fram hjá ein-
staka fyrirspurnir um fund. Við
höfum verið að kanna þetta hjá
félagsmönnum en ekki fengið þær
undirtektir að okkur fyndist taka
því að halda fund“, sagði formaður
Starfsmannafélagsins. - Ig.
Húsnœðissamvinnufélög
Fyrst kynnt hér
á landi árið 1919
Ærinn tími er nú liðinn síðan
húsnæðissamvinnufélög voru fyrst
kynnt hér á landi en það var árið
1919. Hljótt hefur verið um þá
kynningu og líklega muna hana fáir
núorðið.
En svo vildi til að fyrir skömmu
fannst í skrifborði einu hér í borg
bæklingur, sem nefnist „Um bygg-
ingafélög með samvinnusniði“. í
þessum bæklingi, sem er 24 síður,
er fjallað um húsnæðissamvinnufé-
lög í Bretlandi, Danmörku og Nor-
egi og er hann þýddur úr norsku
árið 1919.
I bæklingnum eru mjög skil-
merkilegar röksemdir fyrir kostum
húsnæðissamvinnu, sem eiga jafnt
við nú og fyrir 65 árum. Ritið er
gefið út af Fulltrúaráði verkalýðs-
félaganna, prentað í Gutenberg en
ekki er getið um þýðánda. Kannist
einhverjir við tilurð þessa bæklings
frekar, væru slíkar upplýsingar vel
þegnar. Nánar verður gerð grein
fyrir þessum merkilega bæklingi í
næsta hefti Búseta, málgagni hús-
næðissamvinnufélaga.
- mhg.
Atvinnurekendur komnir í bobba
í vinnudeilunni við Dagsbrún
Atvinnurekendur á samnigssvæði Dagsb-
rúnar eru margir hverjir mjög fúsir að
semja við verkalýðsfélagið, þar sem þeir
óttast afleiðingar af hugsanlegum þrýstiað-
gerðum og verkföllum. Fram að þessu hafa
frjálshyggjumenn úr Sjálfstæðisllokknum
vcrið þverir fyrir innan VSÍ, en nú eru þeir
sagðir á góðri leið með að láta skynsemina
ráða.
Stærstu atvinnurekendurnir á svæðinu
einsog t.d. skipafélögin eru bundin lang-
tímasamningum. Ef Dagsbrún neyðist til að
grípa til langvarandi þrýstiaðgerða, þykir
sýnt að skipafélögin eigi á hættu að missa af
digrum samningum við flutninga og skerða
þannig samkeppnisaðstöðu sína á alþjóð-
legum flutningamarkaði.
Einsog kunnugt er hafa fyrirtækin á síð-
ustu mánuðunt tekið í sinn hlut ntun stærri
hlut af veltu en áður. Á sama tíma hefur
launahlutfall farið hríðlækkandi. Mörgum
atvinnurekendum blöskrar kaldlyndi og
harka VSI í samningaviðræðum til þessa
auk þess sem þeir komast í bobba ef þeir
þurfa að rifta samningum vegna átaka hér á
Íandi á vinnumarkaði.
Þá hefur verið unt það rætt meðal at-
vinnurekenda að „Eimreiðarklíkan" í Sjálf-
stæðisflokknum hafi fengið að leika einleik
í yfirstandandi átökum, - og mylji þar hver
undir annars rass. Þannig hefur Reykjavík-
urborg þótt sérstaklega óbilgjörn, þarsem
Davíð Oddsson fer fyrir frjálshyggjuliðinu.
Magnús Gunnarsson framkvæmdastjori
VSI hefur og haldið í hendur á þeim Davíð
og Þorsteini Pálssyni formanni Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrverandi framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambandsins í þessum
átökum. Rólyndari og gætnari atvinnurek-
endur eru nú að fá sig fullsadda af frekju og
yfirgangifrjálshyggjuliðsinsogviljanú efna
á ný til vinsamlegri samskipta við verka-
lýðsfélögin.
óg