Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.03.1984, Blaðsíða 12
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fðstudagur 16. mars 1984 Alþýðubandalagið á Egilsstöðum: Góðir félagar - Hreppsmálaráð Fundur hjá Hreppsmálaráöi Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum verða sem hér segir fram á vor: Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staða mála, Dagheimili og Safna- stofnun. Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál. Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og sameiningarmál. Fundirnir verða haldnir að Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30 stundvíslega. Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt skína. -Stjómin. Aöalfundur AB Stykkishólmi Aðalfundur félagsins verður í verkalýðshúsinu sunnudaginn 18. mars kl. 13.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. - Stjórn- in. Almennur fundur á Djúpavogi Hjörleifur Guttormsson alþingismaður veröur á stjórnmálafundi í skólanum á Djúpavogi laugar- daginn 17. mars kl. 13.30. Fundurinn er öllum opinn. - Alþýðubandalagið. Hjörleifur Alþýðubandalagið á Akureyri og nágrenni: Kvennahópur Annar rabbfundur á Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, þriðjudag 20. mars kl. 20.30. Allar konur, sem áhuga hafa, velkomnar. Kaffiveiting- ar. - Undirbúningshópur. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Greiðum flokks- og félagsgjöldin Stjórn ABR skorar á þá sem enn skulda heimsenda gíróseðla að greiða þá við allra fyrstu hentugleika. - Stjórn ABR. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Fundur um nýtt leiðakerfi SVR Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til fundar um tillögur að nýju leiðakerfi SVR fimmtudaginn 22. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Framsögu á fundinum hefur Baldvin Baldvinsson, verkfræðingur hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur. Fjölmennið! - BMR. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Félagsvist Guðrún Helgadóttir Ný þriggja kvölda keppni hefst þriðjudaginn 20. mars að Hverfisgötu 105 klukkan 20 stundvíslega. Veitt verða verðlaun fyrir hvert kvöld, þeir sem ekki geta mætt öll kvöldin eiga endilega að drifa sig með líka. Guðrún Helgadóttir alþingismaður mætir í kaffinu og segir fréttir af þinginu. - Nefndin. Alþýðubandalagið í Reykjavík Söfnum fyrir leikföngum Félagið okkar í Reykjavík er nú komið í nýja og glæsilega aðstöðu að Hverfisgötu 105. Stórátak meðal félaganna hefur gert drauminn um gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og leikja. En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldr- ar hafa rekið sig á að sárlega vanhagar um er leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í flokksmiðstöðinni enn sem komið er. Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks og vel- unnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr þessu. Allt verður vel þegið hvort sem það eru fjárframlög eða gömul nothæf 'leikföng. Ef þið lúrið á einhverju vinsamlegast látið Kristján Valdimarsson vita í síma 17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017). Framlög verða sótt heim ef óskað er. Oðrnvísi fréttir Almennur fundur um S Islandssögukennslu Fyrsti almenni félagsfundurinn, sem Samtök kennara og annars áhugafólks um sögukennslu efna til. verður haldinn að Hótel Borg laugardaginn 17. mars og hefst kl. 14.00. Fundarefni verður: íslands- sögukennsla í grunnskólum og framhaldsskólum: markmið og leiðir. Stutt framsöguerindi flytja: Bragi Guðmundsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, Guð- mundur Magnússon, blaðamaður, Loftur Guttormsson, dósent, Ragnheiður Jónsdóttir, kennari við Melaskóla og Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrv. menntamála- ráðherra. Næsti fundur á vegum Samtak- anna verður laugardaginn 7. apríl í stofu 422 í Árnagarði, og hefst kl. 14.00. Verður nánar frá honum greint síðar. Samtök kennara og annars áhugafólks um sögukennslu voru stofnuð í Reykjavík 28. janúar s.l. Þau voru stofnuð í framhaldi af ráðstefnu um sögukennslu á öllum skólastigum, sem haldin var 29. október s.l. Þar var rætt um nauð- syn þess að stofna félag, er næði til fólks, sem kennir sögu á öllum skólastigum, og einnig til annars áhugafólks um sögukennslu. Töldu menn, að um mörg brýn verkefni væri að ræða, sem féllu innan starfsvettvangs slíks félags. Eftir að ráðstefnan var haldin, hafa svo orðið miklar umræður um íslands- sögukennslu í fjölmiðlum og á Al- þingi, og bera þær vitni um mikinn og almennan áhuga á þessum mál- um. Félagssvæði samtakanna er landið allt. Allt áhugafólk um sögukennslu á rétt á þátttöku. í fé- laginu eru því sögukennarar á framhaldsskóla- og háskólastigi, samfélagsfræðikennarar í grunn- skóla, sagnfræðinemar og annað áhugafólk um sögukennslu. Al- mennir félagsfundir eru öllum opn- ir. í lögum samtakanna segir, að þeim sé ætlað að vera vettvangur fyrir umræðu kennara og annars áhugafólks um sögukennslu, vinna að því að auka samskipti og sam- starf áhugafólks, þ.á m. kennara á öllum skólastigum, um það efni og stuðla að framgangi mála, sem tal- in eru horfa til heilla á sviði sögu- kennslu. Tilgangi sínum hyggjast samtök- in m.a. ná með því: a) Að efna til umræðufunda um sögukennslu. 2) Að örva og styrkja rannsókn- ir, sem lúta að sögukennslu. Enn- fremur að kynna niðurstöður nýrra rannsókna á því sviði með erinda- flutningi, fræðslufundum og út- gáfustarfsemi. 3) Að leita samvinnu við stjórnvöld um stefnumörkun í sögukennslu og semja greinargerð- ar um þau efni. 4) Að vera til ráðuneytis um samningu kennsluefnis í sögu. 5) Að vinna að endur- menntunarmálum þeirra, sem kenna sögu. 6) Að efla samstarf við erlenda sögukennara og stuðla að þátttöku íslendinga í alþjóðlegum ráðstefn- um um þau efni. 7) Að gæta í hvívetna hagsmuna þeirra, sem kenna sögu. Stjórn Samtaka kennara og ann- ars áhugafólks um sögukennslu skipa eftirtaldir menn. Formaður: Ingi Sigurðsson, lektor við Há- skóla íslands; varaformaður: Þor- steinn Helgason, kennari við Menntaskólann í Kópavogi; ritari: Eiríkur Guðmundsson, kennari við Fjölbrautaskólann á Akranesi; gjaldkeri: Kristín ísfeld. Þeim sem vilja ganga í samtökin er bent á að hafa samband við Eirík Guðmundsson s. 93-2729 (heima), 93-2544 (vinna) eða Þorstein Helgason s. 91-26532 (heima), 91- 43878 (vinna). -mhg Kristinn Hallsson í hlutverki sínu í Rakaranum í Sevilla. slenska peran: Tvær óperur um helgina í kvöld, föstudag, sýnir íslenska óperan hina vinsælu uppfærslu sína á La Traviata eftir Verdi og hefst sýningin kl. 20. Á laugardag og sunnudag verða svo sýningar á Rakaranum í Sevilla eftir Rossíni, á laugardag kl. 16 og á sunnudag kl. 20. Með helstu hlutverk í La Traví- ata fara Ólöf Kolbrún Harðardótt- ir, Garðar Cortez, Halldór Vil- helmsson, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Elísabet Erlingsdótt- ir og Simon Vaughan. Fáar sýnigar eru eftir á La Traviata. Með helstu hlutverk í Rakaran- um í Sevilla fara Kristinn Sig- mundsson, Sigríður Ella Magnús- dóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kristinn Hallsson, Jón Sigur- björnsson, Guðmundur Jónsson og Elísabet F. Eiríksdóttir. Skákkeppni fram- haldsskóla 1984 Skákkeppni framhaldsskóla 1984 hefst að Grensásvegi 46 föstu- dag, 16. mars nk. kl. 19.30. Keppn- inni verður fram haldið laugardag, 17. mars kl. 13-19 og lýkur sunnu- dag, 18. mars kl. 13-17. Fyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður, hver sveit skal skipuð fjórum nemendum á fram- haldsskólastigi (f. 1962 og síðar), auk 1-4 til vara. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi, ef næg þátttaka fæst. Að öðrum kosti verður sveitum skipt í riðla, en síð- an teflt til úrslita. Umhugsunartími er ein klukkustund á skák fyrir hvorn keppanda. Almennar skák- reglur gilda, nema þegar annar hvor keppandi á eftir fimm mínút- ur af umhugsunartímanum, þá er teflt eftir hraðskákreglum. Fjöldi sveita frá hverjum skóla er ekki takmarkaður. Sendi skóli fleiri en eina sveit, skal sterkasta sveitin nefnd a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv. Þátttöku í mótið má tilkynna í síma Taflfélags Reykjavíkur á kvöldin kl. 20-22, í síðasta lagi fimmtudag, 15. mars.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.