Þjóðviljinn - 16.03.1984, Síða 10
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. mars 1984
Helgar-
sportið
Blak
í kvöld leika HK-ÍS í 1. deild karla í
Digranesi kl. 20, KA og Víkingur í
Glerárskóla á Akureyri í 1. deild
kvenna kl. 20.30 og Völsungur-
Þróttur í 1. deild kvenna að Ýdölum
kl. 20. Á morgun leika KA og Þróttur
í bikarkeppni karla í Glerárskóla kl.
13, KAog Þrótturí 1. deild kvennaá
sama stað kl. 15 og Völsungur-
Víkingur í 1. deild kvenna að
Ýdölum kl. 14.30.
Handbolti
Landsleikirnir við Sovétmenn eru
að sjájfsögðu stóri viðburðurinn.
Þjóðirnar mætast á Akureyri kl. 20 í
kvöld (á sama tíma á Akranesi ef
veður hindrar norðurför) og í
Laugardalshöll kl. 13.30 á morgun.
Fyrstu umferðinni í fallkeppni 2.
deildar karla lýkur í Sandgerði í
kvöld. ÍR og HK leika kl. 20 og
Fylkir-Reynir kl. 21.15. Þá verður
leikin á Akureyri fyrri úrslitaumferð
3. deildar en þar berjast Ármann,
Þór Ak, Týr og Akranes um tvö sæti
í 2. deild. Á mánudagskvöld leika
Fylkir og ÍR í 1. deiid kvenna í
Laugardalshöll kl. 19 og kl. 20 hefst
2. umferð í fallkeppni 2. deildar i
Seljaskóla með leikjum HK-Fylkis
og Reynis-IR.
Körfubolti
Ef þriðju undanúrslitaleikir úr-
valsdeildarinnar þurfa að fara fram,
þá mætast UMFN og Haukar í
Njarðvík kl. 14 á morgun og Valur-
KR í Seljaskóla kl. 20.30 á sunnu-
dagskvöld. Ef ekki, þá leika liklega
Njarðvík og Valur fyrri/fyrsta úrslita-
leik deildarinnar í Njarðvík á mánu-
dagskvöldiö. KR og ÍR leika í 1.
deild kvenna kl. 21.30 á sunnu-
dagskvöld í Hagaskóla.
Hlaup
Álafosshlaup verður haldið á
morgun, laugardag, og hefst kl. 14.
Keppendur eiga að mæta til skrán-
ingar við íþróttahúsið að Varmá kl.
13. Karlar fæddir 1969 og fyrr
hlaupa 7 km, konur fæddar 1969 og
fyrr og piltar fæddir 1968-70 hlaupa
3 km, og meyjar fæddar 1968-70 og
strákar og stúlkur fædd 1971 og
síðar hlaupa 1,5 km.
Víðavangshlaup íslands hefst kl.
14 á Miklatúni í Reykjavík. Karlar
hlaupa 8 km, konur 3 km, sveinar
og drengir 3 km, piltar, telpur, strák-
ar og stelpur 1,5 km.
Badminton
Ljómamót ÍA verður haldið á
Akranesi um helgina. Mótið hefst kl.
11.30 í fyrramálið og verður keppt í
meistara-A og B-flokki i öllum grein-
um.
Skíði
Bikarmót í alpagreinum unglinga
15-16 ára verður haldið í Bláfjöllum
um helgina og þá fer fram bikarmót í
alpagreinum unglinga 13-14 ára á
Akureyri. Reykjavíkurmeistaramót-
ið í 30 km göngu karla verður haldið
í Skálafelli á morgun á vegum
Skíðadeildarinnar Hrannarog hefst
kl. 13.
Lyftingar
íslandsmeistaramót félagsliða
ferframámorgunog hefst kl. 15en
upplýsingar um mótsstað liggja
ekki fyrir.
Fimleikar
íslandsmeistaramót í fimleikum
karla og kvenna hefst í Laugardals-
höllinni kl. 17 á morgun og verður
síöan framhaldið kl. 14 á sunnu-
daginn.
Nú sömdu
Alsírbúar!
Knattspyrnulandslið Nígcríu og Alsír
hafa verið scktuð fyrir að leika bæði
uppá markalaust jafntefli þegar þau
mættust í Afríkukeppni landsliða nú á
dögunum. Þau úrslit komu báðum í 4-
liða úrslit keppninnar. Þetta minnir
óneitanlega á uppákomuna þegar
Vestur-Þjóðverjar og Austurríkismenn
léku svipaðan leik á HM á Spáni fyrir
tæpum tveimur árum. Þá urðu Alsírbú-
ar fyrir barðinu á umsömdum úrslitum
Evrópuþjóðanna en nú sitja þeir í sömu
súpunni...
íþróttir Víðir Sigurðsson
Sturla Örlygsson var atkvæðamestur Njarðvíkinga í gærkvöldi og hér hirðir hann frákast með miklum yfirburð-
um. Mynd: - eik
FH varð
meistari
FH varð íslandsmcistari í
stúlknatlokki í innanhússknatt-
spyrnu 1984 en mótið fór fram í
íþróttahúsinu á Akranesi 4. mars
sl. FH vann IA í spennandi úrslita-
leik, 2-1. I sigurliði í'H voru þær
Helga Guðmundsdóttir, Sigrún
Skarphéðinsdóttir, Guðrún Og-
mundsdóttir, Helga Sigurðardóttir
og Sandra Antonsdóttir en þjálfari
þeirra cr Albert Eymundsson.
Júdó á
Akureyri
Júdóráð Akureyrar gekkst fyrir
fyrsta Akureyrarmeistaramótinu í
júdó sl. föstudag og var keppt í sex
flokkum. Akureyrarmeistarar
urðu: Þóra Þórarinsdóttir í
kvennaflokki, Þorsteinn Hjaltason
í opnum flokki, Árni Ólafsson í
þungavigt, Baidur Stefánsson í
millivigt, Tryggvi Heimisson í létt-
vigt og Kristján Ólafsson í flugu-
vigt. Mótsstjóri var Hjalti Þor-
steinsson og dómari Cees van de
Ven. Keppendur á mótinu voru 31
og báru þeir á borð margar
skemmtilegar og spennandi glímur.
Hamburger
sektað
Evrópumeistarar Hamburger
SV frá Vestsur-Þýskalandi hafa
verið sektaðir um 3,000 doliara
fyrir að nota Norðmanninn Erik
Soler í vináttumóti í Frakklandi um
áramótin. Soler var þá til reynslu
hjá HSV og, stóð sig frábærlega og
hefur síðan skrifað undinr tveggja
ára santning við félagið. Stjórn
Hamburger gerði sér fyllilega grein
fyrir að sekt lægi við að nota ósk-
ráðan Ieikmann en taldi það þess
virði að sjá hann í leik með liðinu.
Dremmler
úr leik
Wolfgang Dremmler frá Bayern
Munchen missir af úrslitum Evr-
ópukeppni landsliða í knattspyrnu I
Frakklandi í sumar. Hann meiddist
illa í 9 - 0 sigri Bayern á Offenbach á
þriðjudagskvöldið og leikur vart
knattspyrnu fyrr en í upphafi næsta
kcppnistímabils. Dremmler hefur
undanfarið verið fastamaður í
landsliði Vestur-Þjóðverja, fyrst á
miðjunni, en uppá síðkastið sem
bakvörður.
Njarðvík leikur til úrslita um meistaratitilinn í körfuknattleik:
Unnu Hauka í sjötta sinn
Njarðvíkingar hafa einstakt lag á
Haukunum, það sýndi sig í gær-
kvöldi er þeir unnu Hafnfirðingana
í sjötta skiptið í jafnmörgum
leikjum, nú 94-93 eftir framleng-
ingu. Þar með er ljóst að Njarðvík-
ingar leika til úrslita um meistara-
titiiinn í körfuknattlcik, eftir tvo
sigra á Haukum í undanúrslitum,
gegn KR eða Val.
Haukar byrjuðu af krafti og á-
kveðni, hirtu flest fráköst sem buð-
ust og voru yfir framan af, 30-20
þegar langt var liðið áfyrri hálfleik.
Njarðvíkingar voru seinir að taka
við sér en tóku síðan á mikinn
sprett, komust yfir 42-41 en
Haukar gerðu lokakörfu fyrri hálf-
leiks, 43-42 í hléi fyrir
Hafnfirðinga.
Njarðvík var áfram á sprettinum
framan af seinni hálfleik en þegar
staðan var 55-63 byrjuðu Haukar
að pressa um allan völl. Það jafnaði
leikinn, en Njarðvík var 2-4 stigum
yfir uns Sveinn Sigurbergsson jafn-
aði úr tveimur vítaskotum, 85-85,
10 sekúndum fyrir leikslok.
í framlengingunni var Pálmar
Sigurðsson horfinn af velli hjá
Haukum vegna meiðsla og það var
Socrates kyrr
Brasilíski knattspyrnusnill-
ingurinn Socrates hefur lýst því
yfir að hann muni leika áfram
með Corinthians í heimalandi
sínu en undanfarið hefur hann
verið bendlaður við ítölsk fé-
lög. Socrates sagði einnig að
hann reiknaði með að leggja
skóna á hilluna eftir lokakeppni
HM í Mexíkó árið 1986.
eins og við manninn mælt, Njarð-
vík náði.yfirburðastöðu, 94-87, og
sigri þeirra suðurnesku var ekki
ógnað þótt Haukar gerðu 6 síðustu
stigin.
Pálmar var að vanda í aðalhlut-
verki hjá Haukunum en Sveinn og
Hálfdán Markússón léku einnig
vel. Hjá Njarðvík bar mest á Sturlu
Örlygssyni, ísak Tómassyni og hin-
um hægláta en rammtrausta Gunn-
ari Þorvarðarsyni. Þá hefur Ingi-
mar Jónsson farið langt með að
fylla stórt skarð Vals Ingimundar-
sonar.
Haukar hafa þar nteð kvatt úr-
valsdeildarslaginn á þessu keppn-
istímabili en geta verið hæstá-
nægðir með sinn hlut og hafa kom-
ið skemmtilega á óvart. Gaman
verður að fylgjast með þeim næsta
vetur.
Stig UMFN: Sturla 23, ísak 20, Gunnar
20, Ingimar 17, Arni Lárusson 10, Kristinn
Einarsson 4.
Stig Hauka: Þálmar 28, Sveinn 21,
Hálfdán 16, Ólafur Rafnsson 14, Kristinn
Kristinsson 10, Henning Henningsson 2
og Reynir Kristjánsson 2.
- lg/VS.
Sambandið efst
Sambandið bar sigur úr být-
um í firmakeppni Knattspyrnu-
ráðs Akureyrar í innanhúss-
knattspyrnu sem lauk nú í vik-
unni eftir að hafa staðið yfir í
mánuð. Lið Sambandsins sigr-
aði á betri markatölu en Bjarni
Sveinbjörnsson og félagar í
Raforku en Póstur og Sími lenti
í þriðja sæti.
K&H/Akureyri.