Þjóðviljinn - 16.03.1984, Page 16
DWÐVIUINN
Föstudagur 16. mars 1984
Sjóslysið við
Vestmannaeyjar
Sleppi-
búnaður
hefði
bjargað j
Greinagóð frá-
sögn Guðlaugs
Friðþórssonar
vakti athygli (
„Sjómcnnirnir sem komust á kjöl
á Hellisey voru ásáttir um að koma ,
því á framfæri að sleppibúnaður j
hcfði getað bjargað þeim“, sagði
Guðlaugur Friðþórsson sem með
undursamlegum hætti komst af úr
hinu hörmulcga sjóslysi. Þetta kom
fram í sjórétti í Vestmannaeyjum í
gær, þarscm Guðlaugur sagði frá
hinum skelfilegu viðburðum með
fumlausum og cinstaklcga
greinargóðum hætti.
Sagði Guðlaugur að þegar þeir
voru á kjölnum hafi þeir rætt um
sleppibúnaðinn og orðið ásáttir um
að ef einhver þeirra lifði af skyldi
hann koma því á frantfæri við fólk,
að sleppibúnaður hefði getað orðið
til bjargar. Hið einstaka þrekvirki
Guðlaugs og greinargóð frásögn
hans vöktu sérstaka athygli við
sjóréttinn í gær.
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starlsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Iðnnemar fyrir utan hargreiðslustofuna „Salon á Paris“ í Austurstræti í gærdag. Hliðstæðar aðgerðir verða við fleiri stofur láti meistarar ekki undan á
næstunni. (Mynd: atli).
Hárgreiðslumeistarar neita enn að greiða lágmarkslaun
Iðnnemar mótmæla
lim þrjátíu iðnnemar söfnuðust fyrir framan
hárgreiðslustofuna „Salon á Paris“ í Austur-
stræti í gær, til að vekja athygli á og mótmæla
því að hárgreiðslumeistarinn þar greiðir ekki
einu sinni lágmarkslaun á almennum markaði
til nema sinna.
Mótmælaspjöld voru límd á stofuna, dreifirit
var fengið vegfarendum frá Félagi hársnyrti-
nema þarsem bent er á að þeir séu beittir mis-
rétti; launalega, menntunarlega og siðferðis-
lega. Iðnnemar hafa eftir árangurslaust þóf við
meistara í greininni gripið nú til þess ráðs að
vekja athygli á svívirðunni með aðgerðum fyrir
framan hárgreiðslustofurnar. Mikil baráttu-
stemmning ríkti nieðal hársnyrtinema í mið-
bænum í gær og þeir virtust ekki vera á þeim
buxunum að láta í minni pokann.
- raþ.
Er lélegum fiski hent í sjóinn?
Sé ekki svo langt
segir fiskmatsmaður á Suðurnesjum
„Ég ætla ekki að reyna að svara
þessu. Ég sé ekki svo langt út á sjó-
inn“, sagði Guðmundur Jósteins-
son fiskmatsmaður í Sandgerði í
samtali við Þjóðviljann í gær, að-
spurður um hvort brögð væru að
því að sjómenn kæmu einungis með
besta fiskinn að landi, en hentu hin-
um lélegri fyrir borð.
Eins og skýrt var frá í forsíðu-
frétt Þjóðviljans í gær, er nú altalað
í vertíðarplássum að 2. og 3. flokks
fiski sé hent fyrir borð á ntiðunum.
Fiskmatsmenn á Snæfellsnesi og á
Suðurnesjum staðfestu í samtali
við Þjóðviljann í gær að áberandi
væri hversu afli vertíðarbáta væri
betri nú en á liðnum árum. Bentu
sumir matsmanna á að þar gæti
margt komið til, margir bátar
hefðu fækkað netum, menn sæktu
sjóinn stífar en áður, og einnig
hefði kvótakerfið sitt að segja. Það
væri altalað að verri fiskurinn væri
látinn fyrir borð.
„Fiskurinn sem að landi kemur
er mjög góður yfirleitt. Hlutfall í I.
ut á sjóinn
flokk af grunnslóð er 8U-9U7o en
lakara hjá þeim sem dýpra sækja.
Það er greinilegur munur á fisk-
gæðum nú og á vertíðinni í fyrra“,
sagði matsmaður í Grindavík.
„Það hafa verið einmuna gæftir
hér á Snæfellsnesi síðustu 10 daga
og ntjög góður fiskur sem kemur að
landi. Þetta helst að nokkru leyti í
hendur. Hins vegar feliur nokkuð í
2. flokk þar sem fiskurinn er upp-
fullur af æti og nokkuð við-
kvæmur", sagði fiskmatsmaður í
Ólafsvík í samtali við Þjóðviljann.
Hann bætti því við að sú saga að
vísu ósönn gengi nú fyrir vestan að
svo mikið ræki af fiski þar á fjörur
að fólk væri farið að hengja upp í
stórum stíl á milli húsa. Þessi saga
segir þó sitt um ástandið.
-Ig./S.dór.
Atkvœðagreiðsla innan BSRB 19.-20. mars:
Fellum samningana!
segja SFR-félagar í nýútkomnu dreifiriti
„Foringjarnir segja líka að á meðan ástand þjóðarbúsins sé svona slæmt
sé harðari kröfugerð algerlega óraunhæf. Við segjum þvert á móti: Stóra
gatið hans Alberts og ótryggt ástand efnahagsmála ætti að vera verkalýðs-
samtökunum hvatning til að efla tryggingu sína gagnvart nýjum árásum á
kjörin. Við vitum að aðferðin er alltaf sú sama þegar staga á í götin, það er
gert með kjaraskerðingu á láglaunafólki“.
Hið háa raforkuverð:
Sverrir
andvígur
athugun
Sverrir Hcrmannsson iðnaðar-
ráðherra lagðist gegn því á Alþingi
í gær að samþykkt yrði tillaga um
að nefnd þriggja óháðra sérfræð-
inga kannaði gaumgæFdcga orsakir
verðmyndunar á raforku til al-
mennings. Allsherjarnefnd hafði
þó mælt einróma með samþykkt til-
lögunnar og höfðu þingmenn allra
flokka tekið þátt í afgreiðslu máls-
ins í nefndinni.
I ræðu Sverris Hermannssonar
kom framað hann hafði óskað eftir
stuðningi frá Framsöknarflokkn-
um til að koma í veg fyrir samþykkt
tillögunnar en verið neitað um
stuðning. Ólafur Þ. Þórðarson,
Eiður Guðnason og Hjörleifur
Guttormsson mæltu eindregið með
því að tillagan yrði samþykkt.
Afgreiðsiu málsins. var frestað
þar til í næstu viku.
óg-
Þannig segir m.a. í dreifiriti fé-
laga úr Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana þar sem BSRB félagar eru
eindregið hvattir til að fella nýgert
samkomulag BSRB og ríkisins. At-
kvæðagreiðsla fer fram á mánudag
og briðjudag, 19.-20. mars.
í dreifiritinu segja SFR félagarn-
ir að strax og kjarasamningum sé
lokið muni kjaraskerðingar skella
yfir að nýju, bæði í formi verð-
hækkana og skattlagningar og að
gegn slíkum ráðstöfunum sé engin
vörn í samningum opinberra starfs-
manna. Þá er bent á að santningar
ASI-VSÍ séu að grotna niður hvar-
vetna um land og að fjöldi stórra
félaga, sérstaklega láglaunafélaga,
hafi fellt samningana. Opinberir
starfsmenn eigi að standa við hlið
þeirra sem höfnuðu þessurn lélega
og ótrygga samningi, segir m.a. í
dreifiritinu.
I lok dreifiritsins leggja SFR fé- i
lagarnir fram hugmyndir um þrjú
meginatriði sem ný kröfugerð op-
inberra starfsmanna eigi að
byggjast á. í fyrsta lagi að einhverj-
um hluta kjaraskerðingarinnar
verði náð til baka. í öðru lagi að
laun verði örugglega verðtryggð og
í þriðja lagi að laun miðist við 16
ára aldur en ekki 18 eins og nú sé
verið að troða inn í samningana.
- v.
Kosningarnar í HÍ
Óbreytt staða
Urslit kosninganna í Háskóla
íslands í gærkveldi, breyttu
ekki valdahlutfalli þeirra
þriggja Iista sem þar buðu fram
og hafa boðið fram undanfarin
ár. Úrslit urðu sem hér segir, í
kosningu til stúdentaráðs:
A-listi Vöku 716 atkvæði og 5
menn kjörna.
B-listi vinstri manna 786 at-
kvæði og 5 menn kjörna.
C-listi umbótasinna 462 at-
kvæði og 3 menn kjörna.
Úrslitin í kosningu til Há-
skólaráðs:
A-listi 709 atkvæði og 1 rnann
kjörinn.
B-listi 782 atkvæði og 1 mann
kjörinn.
C-listi 492 atkvæði og engan
mann kjörinn.
Enn sem fyrr eru yinstrimenn
sterkastir i Háskóla íslands þótt
ekki muni miklu. Nú er staðan
sú í stúdentaráði að Vaka hefur
12 menn, vinstri inenn 12 menn
en umbótasinnar 6 mcnn.
- S.dór.