Þjóðviljinn - 30.03.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 30. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Aðalfundur Flugleiða
Breytingar
á toppnum
En sömu ættir og fyrirtœki
ráða mestu eftir sem áður
Á stjórnarfundi Flugieiða sem
haldinn var strax að afloknum
aðalfundi félagsins í gær var Sig-
urður Heigason kjörinn stjórnarf-
ormaður í stað Arnar O. Johnson
sem ekki á lengur sæti í stjórn fél-
agsins. Þá var ákveðið að leggja
niður stöðu forstjóra félagsins en
Sigurður mun gegna fyrra starfi
sínu áfram sem stjórnarformaður.
Töluverðar mannabreytingar
urðu í stjóm Flugleiða á aðalfund-
inum í gær. Fyrrum stjórnarfor-
maður Om Ó. Johnson og Óttar
Möller fyrrv. forstjóri Eimskipa-
félagsins gengu úr stjórn félagsins
þrátt fyrir að þeir ættu báðir eitt ár
eftir af stjórnartíma sínum. I þeirra
stað voru kjörnir þeir Flörður Sig-
urgestsson forstjóri Eimskips og
Ólafur O. Johnson. Stungið var
upp á Agnari Kristjánssyni for-
stjóra Kassagerðarinnar en hann
náði ekki kjöri í stjórnina.
Aðrir í stjórn félagsins eru Grét-
ar Br. Kristjánsson varaform.,
Halldór H. Jónsson, Kristjana
Milla Thorsteinsson, og tilnefndir
af fjármálaráðherra þeir Kári Ein-
arsson og Sigurgeir Jónsson.
í varastjórn eiga sæti þeir Jó-
hannes Markússon, Einar Áma-
son, Páll Þorsteinsson og tilnefndir
af fjármálaráðherra þeir Geir Zo-
éga og Þröstur Ólafsson.
Á þriðja hundrað manns sátu að-
alfund Flugleiða.
->g-
Elmsklpsfjármagnlð er sterkt í Flugleiðum. Óttar Möller fyrrverandl forstjórl Eimskips lætur nú af setu sinnl í
stjórn Flugleiða en í stað hans kemur Hörður Slgurgestsson núverandi forstjóri Eimskips. Þessl mynd af þeim
Herði og Öttari var tekin ó landsfundi Sjálfstæðisflokksins. (Magnús).
Stjórnarmenn Flugleiða:
Vísa starfsfólki
á launalækkun
„Enda þótt útlitið sé gott, þá er
ýmislegt sem getur breytt mynd-
inni. Það er aðallega utanaðkom-
andi aðstæður, en þó einnig innan-
aðkomandi svo sem óheyrilegar
launakröfur. Þess vegna vil ég
leggja áherslu á það að óraunhæfar
launakröfur mega ekki verða til
þess að breyta þessari mynd. Við
búum í íslensku þjóðfélagi. Við
verðum að taka tillit til aðstæðna,
við getum ekki sprengt gildandi
launaramma þjóðfélagsins.“
Þannig mæltist Grétari Br. Krist-
jánssyni hæstaréttarlögmanni og
fyrrv. varaformanni stjórnar Flug-
leiða á aðalfundi félagsins í gær.
Sigurður Helgason forstjóri fé-
lagsins sagði í sinni ræðu að ný
flugfélög sem nú væru að hasla sér
völl í Bandaríkjunum og væru orð-
in skeinuhætt Flugleiðum „hefðu
náð samningum við sitt starfsfólk
sem eru mun hagstæðari félögun-
um en samningar þeir sem eldri fé-
lögin hafa við sitt starfsfólk". Sem
dæmi um það mætti nefna að
meðallaun nýju félaganna til sinna
starfsmanna væru eingöngu um
þriðjungur af því sem eldri félögin
greiddu. „Það er einmitt þetta sem
hefur leitt til þess að þessi félög
hafa náð verulegum árangri“, sagði
Sigurður.
Aðspurður sagði Sigurður í sam-
tali við Þjóðviljann að stjórnendur
Flugleiða hefðu bent starfsmönn-
um sínum á þessa þróun erlendis.
-lg-
Flugleiðir afskrifa 40%
hlutafjáreign sína í Arnarflugi
Ekki dauðadómur
yfir Arnarflugi
segir Sigurður
•Helgason
,4 þessu felst ekkert mat á því hvort
Amarflug er dauðadæmt flugfélag eða
ekki“, sagði Sigurður Helgason að-
spurður um þá afstöðu stjórnar Fiug-
leiða að afskrifa hlutabréfaeign sína i
107.8 miljón króna hagnaður af rekstri Flugleiða á liðnu ári
Gerum ráð fyrir hagnaði
segja forráðamenn félagsins
i ar
Hagnaður af rekstri Flugleiða á
sl. ári var 107.8 miljónir króna og
forráðamenn fyrirtækisins gera
einnig ráð fyrir hagnaði af rekstri
félagsins á þessu ári.
Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, áður en aðalfundur
félagsins var haldinn, að hagnaður-
inn á liðnu ári lægi einkum góðri í
útkomu á erlendu leiguflugi og pfla-
grímafluginu, hótelrekstur félags-
ins hefði gengið vel, lítið tap hefði
verið á innanlandsfluginu og út-
koman á evrópufluginu jákvæð.
Heildartekjur Flugleiöa á sl. ári
voru 3.185 miljónir og jukust um
98.8% frá árinu á undan en rekstr-
argjöld námu liðlega 3 miljörðum
og höfðu aukist um 87.9% milli
ára. Afskriftir námu um 130 mil-
jónum og rekstrarhagnaður félags-
ins án fjármunatekna og fjár-
magnsgjalda var því 176.5 miljónir
kr.
13.4% lækkun á eldsneytisverði
á sl. ári og yfir 50% lækkun á vöxt-
um miðað við dollara réði mestu
um jákvæða rekstrarafkomu fé-
lagsins á liðnu ári að mati forráða-
manna þess. Þá hækkuðu fargjöld
á N-Atlantshafsleiðinni nokkuð en
sú flugleið er enn rekin með tapi.
Vegna síaukinnar samkeppni á
leiðinni og vegna kostnaðarsamra
breytinga sem félagið verður að
grípa til á næsta ári vegna nýrra
hávaðareglna sem taka gildi um
næstu áramót eru Flugleiðamenn
ekki bjartsýnir á bata á þessari
flugleið á næstu árum.
Eftirgjafir og endurgreiðslur
gjalda frá ríkisstjórnum íslands og
Luxembourgar vegna Atlantshafs-
flugs Flugleiða á sl. ári nam samtals
41.3 miljónum króna, þar af er
hlutur íslenskra stjórnvalda um 26
miljónir. - lg-
Amarflugi að nafnverði 3 miljónir og
bókfærð um 8 miljónir, en Flugleiðir
eiga 40% hlutaijár í Arnarflugi.
Forráðamenn Arnarflugs hafa sagt
þessa ákvörðun stjómar Flugleiða ó-
raunhæfa og til þess eins að valda fé-
laginu álitshnekki erlendis.
Sigurður Helgason sagði að Flug-
leiðamenn væru ekki að koma í bakið á
Arnarflugi. „Það er síður en svo.
Endurskoðendur okkar telja að ekki
séu lengur til verðmæti fyrir þessari
hlutafjáreign í félaginu, og því sé þetta
hlutafé glatað. Því afskrifuðum við það
á sama hátt og við afskrifuðum allt
hlutafé okkar í Cargoiux á síðasta ári.
Það hefði verið að koma í bakið á okkar
hluthöfum að uppfæra eignir í Arnar-
flugi sem eru einskis virði“ sagði Sig-
urður. Hann sagði ennfremur að það
yrði ákvörðun nýrrar stjórnar Flugleiða
hvort tveir fulltrúar frá félaginu myndu
sitja áfram í stjóm Arnarflugs.
Hvort Flugleiðir myndu gefa starfs-
fólki Arnarflugs kost á að kaupa þessi
hlutabréf á sama hátt og stjórn félagsins
hefur lagt til við fjármálaráðherra að
starfsmönnum Flugleiða verði gefinn
kostur á að kaupa hlutabréf ríkissjóðs í
félaginu var svarað að það mál væri
ekki komið upp á borð stjórnar Flug-
leiða ennþá. ig.
Frá SHA:
Berjumst gegn helstefnu
Nú eru liðin 35 ár frá því er ís-
land hvarf frá hlutleysisstefnu og
gerðist stofnaðili að NATO. Jafn-
framt hurfu íslendingar úr hópi
þeirra þjóða sem gátu orðið öðrum
til fyrirmyndar í sókn mannkynsins
til friðar og afvopnunar. í 35 ár
hefur verið háð látlaus barátta fyrir
úrsögn úr NATO og endurreisn
hlutleysisins. Laugardaginn 31.
mars n.k. munu Samtök her-
stöðvaandstæðinga halda árlega
baráttusamkomu sína undir kjör-
orðunum: - Gegn helstefnu hern-
aðarbandalaga —. Samkoman hefst
kl. 14.00 með fjölbreyttri dagskrá.
Gunnar Karlsson flytur ávarp,
Bergþóra Árnadóttir, Amþór
Helgasono.fi. sjáum söngdagskrá,
fluttur verður nýr leikþáttur eftir
þá Þorstein Marelsson og Valdem-
ar Leifsson og síðast en ekki síst
munu baráttukonur frá Greenham
Common búðunum á Englandi
ávarpa samkomuna og segja frá
baráttu sinni. Fundarstjóri verður
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Barátta kvennanna við
Greenham Common kjarnorku-
herstöðina er eitt fegursta dæmið
um þrautseigju og hugsjónaeld
friðarbaráttunnar enda hafa þær
verið tilnefndar til friðarverðlauna
Nóbels. Skyldleiki baráttunnar við
Greenham Common og baráttunn-
ar gegn herstöðinni á Miðnesheiði
er auðsær. Hvor tveggja er barátta
gegn erlendum her í eigin landi.
Hvor tveggja er andóf gegn þeim
kjarnorkuvopnahlekkjum sem
þjóðir Evrópu eru viðjaðar í og
hvor tveggja er hluti af alþjóðlegri
friðarbaráttu sem krefst nýrra
sjónarmiða og vinnubragða í al-
þjóða stjómmálum.
Fundurinn í Háskólabíói er
krafa um endurreisn hlutleysisins
og íslenskt friðarfmmkvæði gegn
gjaldþroti kjamorkuvopnastefn-
unnar.
Menntamálaráðuneyti:
Framkvæmdastjóri flokksins
ráóinn aöstoðarráðherra
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra hefur ráðið sér nýjan
aðstoðarráðherra í stað Sólrúnar Jensdóttur sem hún skipaði skrifstofu-
stjóra á dögunum. Hinn nýi aðstoðarráðherra er Inga Jóna Þórðardóttir
sem undanfarin ár hefur verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
-óg.
Nýhús verðlaunuð
Frá afhendlngu verðlauna í hugmyndasamkeppni Nýhúsa hf. í Gerðubergi.
Frá vlnstrl: Ragnar Jón Gunnarsson og Jóhannes Þórðarson, 1. verðlaun,
Alena Anderlova og Sverrlr Norðfjörð, 2. verðlaun, og Dennls Jóhannsson,
3. verðlaun. Þau voru verðlaunuð fyrlr hönnun á steinsteyptum einingahús-
um. Alls bárust 18 tillögur í samkeppnlnni. í dómum sínum tók dómnefnd
mlð af hagkvæmnl tillagnanna í elningaframleiðslu, útliti húsanna og plan-
lausnum, auk þess sem þróunarhæfni og tengsl húsanna við umhverfi fengu
vægl.
Raþ.
Sha.