Þjóðviljinn - 06.04.1984, Page 1
DJOÐVIUINN
Félagið Varð-
berg hefur tekið
undir kröfur
friðarsinna um
að hernaðar-
framkvæmdir á
Islandi verði
stöðvaðar.
apríl
föstudagur
81. tbl.
49. árgangur
Enn á að auka byrðarnar á launafólk
Aðeins eitt svar
er til: Uppsögn
samninga í haust
segir framkvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkisstofnana
„Stefna ríkisstjórnarinnar felur í raun
það eitt í sér að ausa miljónatugum til
fyrirtækjanna í iandinu en gera um leið
hverja atiöguna á fætur annarri að af-
komu heimiia iaunafólks. Við þessari
stefnu er aðeins eitt svar: uppsögn kjara-
samninga 1. september og boðun verk-
falls“, sagði Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkis-
stofnana í samtali við Þjóðviljann í gær.
Á fjölmennum aðalfundi SFR sem
haldinn var fyrir skömmu var harkalega
deilt á efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.
Fól aðalfundurinn stjórn félagsins að
hefja nú þegar undirbúning kröfugerðar
og baráttu er dugi til að brjóta á bak aftur
kaupránsaðgerðir stjórnvalda.
„Hugmyndir ráðherranna þessa dagana
Gunnar Gunnarsson: launafólk hlýturaö grípa til
þess eina ráðs sem það hefur; uppsögn samn-
inga og boðunar verkfalls.
til lausnar efnahagsvandanum og til aö
fylla upp í fjárlagagatið stóra ganga út á
það eitt að sækja enn og aftur að afkomu
launafólks. Nýjasta tillagan í þeim efnum
er söluskattur á matvæli og stórlækkun
eða afnám niðurgreiðslna á landbúnaðar-
vörum. Á sama tíma lesfólk fréttir um það
í dagblöðunum að fjölmörg fyrirtæki
skiluðu á síðasta ári tugum og hundruðum
miljóna króna í gróða. Samt á enn að auka
ívilnanir tii þeirra en ganga enn harðar
fram í skattbyrðinni og kjararáni á launa-
fólk. Við því er auðvitað ekki nema eitt
svar eins og ég sagði áðan“.
-v. -Ig.
Sjá bls. 3
KR bikar-
meistari!
„Þetta cr stórkostlegur áfangi og kór-
ónar frábæran vetur. Menn reiknuðu
ekki með miklu af okkur í haust, og
þetta er mikið meira en bjartsýnustu
KR-ingar þorðu að vona. Mikil sam-
heldni lcikmanna og frábær þjálfari,
Jón Sigurðsson, lögðu grunninn að
þessum sigri okkar“, sagði Garðar Jó-
hannsson fyrirliði KR-inga í körfu-
knattlcik í samtali við Þjóðviljann í gær-
kvöldi. Hann hafði þá tekið við sigur-
launum KR sem varð bikarmeistari
með glæsilegum sigri á Val og það er
Garðar sem hampar hikarnum á mynd-
inni að ofan.
Sjá 11
3iA'
Heildartekjur Eimskips á árinu 1983 nániu samtals 1750 miljónum
króna en árið áður voru tekjur félagsins 955 miljónir. Veltuaukningin á
milli áranna er því 83%. Hagnaður var 97,2 miljónir króna en gjaldfærðar
afskriftir námu 122,7 miljónum króna. Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu Halldórs H. Jónssonar stjórnarformanns Kimskips á aðalfundi fyrir-
tækisins í gær. Halldór er einnig í stjórnum tlestra annarra stærstu fyrir-
tækja landsins.
Forstjóri og stjórnarformaður Eimskips. Það er ekki oft sem Halldór H. Jónsson stjórnarformaður Elmskips og
stjórnarmaður ýmissa stærstu fyrirtækja landsins sést opinberlega. Hér er hann að flytja ársskýrslu sína á
aðalfundi Eimskips i gær. Við hlið hans er forstjóri fyrirtækisins, Hörður Sigurgestsson. Mynd Atli.
Halldór kvað efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnir hafa hjálpað til við að
bæta rekstrarskilyrði fyrirtækisins.
Hann kvað fjárfestingar Eimskips
á árinu 1983 hafa numið 147,5 milj-
ónum króna og að fyrirtækið gerði
ráð fyrir stórtækum fjárfestingum
fyrir yfir hálfan miljarð á þessu ári.
Halldór H. Jónsson fjallaði og
um flutninga Eimskips fyrir „varn-
arlið'" frá Bandaríkjunum og kvað
fslendinga „eiga að fá að annast
þessa flutninga áfram með sama
hætti og verið hefur".
„Það væri áfall fyrir samskipti
þjóðanna, að hér yrði breyting á“,
sagði Halldór H. Jónsson, en hann
er einnig stjórnarformaður Sam-
einaðra verktaka og stjórnarmaður
í íslenskum aðalverktökum sem
hafa einokunarrétt á vinnu fyrir
bandaríska setuliðið á Miðnes-
heiði.
Forstjóri Eimskips er Hörður
Sigurgestsson sem einnig er
stjórnarmaður í Varðbergi félagi
um vestræna samvinnu. Stjórn
Eimskips skipa: Halldór H. Jóns-
son, Ingvar Vilhjálmsson, Thor R.
Thors, Axel Einarsson, Pétur Sig-
urðsson, Indriði Pálsson, Halldór
E. Sigurðsson, Jón H. Bergs og
Hjalti Geir Kristjánsson. Tölu-
verður fjöldi var á fundinum og
gefin út vönduð og skrautleg árs-
skýrsla. ,
I
I
Við grædc
97 miljónr
• Fjárfestfyrir 147 miljónir á síbasta ári
en hálfan miljarð á þessu
• Halldór H. Jónsson stjórnarformað-
ur óttast áfall í samskiptum Banda-
ríkjamanna og íslensku þjóðarinnar