Þjóðviljinn - 06.04.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.04.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNiFöstudagur 6. aprfl 1984 Vantar enn sleppibúnað í yfir 200 fiskiskip Veitum ekki frekari frest segir Magnús Jóhannesson settur si „Það kemur ekki til greina að við veitum frekari frestanir en þegar er orðið til 1. maí n.k. til að koma upp sjósetningarbúnaði gúmbjörgunarbáta í fiskiskipum“, sagði Magnús Jóhann- esson settur Siglingamálastjóri á fundi með fréttamönnum í gær. Þar kom m.a. fram að um 100 skip eru á undan- þágu til 1. maí n.k. til að koma búnað- inum um borð og rúmlega 100 önnur smærri skip sem ekki hafa löggild haf- færnisskírteini hafa ekki heldur tekið sleppibúnaðinn. Þann 20. mars sl. voru 591 þilfarsskip með gild haffærnisskírteini og þar af voru 497 skip sem fullnægðu reglugerð um að hafa um borð handvirkan sjósetningarbún- að gúmbjörgunarbáta sem átti að vera kominn um borð í öll íslensk fiskiskip fyrir 1. mars sl. 94 þilfarsskip voru hins vegar þá með undanþágu frá Siglingamálastofnun til 1. maí n.k. til að koma búnaðinum urn borð. Sagði Siglingamálastjóri að þessar undanþágur hefðu verið veittar þar sem nú Þannig virkar Olsen sleppibúnaðurinn þegar skip hefur fengið á sig 60 - 70 gráðu halla. stendur yfir hávertíð. „Við höfum ekki talið sjósetningabúnað til uppsetningar. Ef skip- okkur fært að stöðva þessi skip á miðri ver- stjórnarmenn vilja fá þennan búnað strax tíð geti þau sýnt fram á að búið sé að panta um borð þá neyðir enginn þann skipstjóra að fara á sjó sem ekki hefur fullgilt haffærn- isskírteini en við höfum ekki talið það mögulegt að stöðva þessi skip og því gefið frest fram til 1. maí, en við þann frest verður ekki bætt. Samkvæmt reglugerðinni um sjósetning- arbúnað gúmbjörgunarbáta á að vera búið að koma sjálfvirkum sleppibúnaði um borð í öll fiskskip fyrir 1. september í haust. Sigl- ingamálastofnun hefur fyrir nokkrum árum samþykkt svonefndan sjálfvirkan Sigmund- arbúnað, sem þegar er búið að setja um borð í fjölda fiskiskipa. Hins vegar hefur við prófanir komið í Ijós að nauðsynlegt er að skipta um belgi sem notaðir eru í búnað- inum. Hefur Siglingamálastofnun krafist þess að nýjum belgjum sem hún hefur við- urkennt verði komið fyrir í stað þeirra eldri í síðasta lagi fyrir 1. október n.k. Þá hefur stofnunin nýlega viðurkennt sjálfvirkan sleppibúnað fyrir svonefndan Olsen gálga. Siglingamálastjóri sagði í gær að sér sýnd- ist ekkert standa í veginum fyrir því að reglugerðinni yrði að fullu framfylgt hvað áhrærir hinn sjálfvirka sleppibúnað og hann verði kominn um borö í öll íslensk fiskiskip í síðasta lagi 1. september í haust. - lg. Ragna Bergmann, formaður Framsóknar: Athugasemd vegna viðtals Ragna Bergmann, formaður Verkakvennafélagsins Framsókn- ar, hafði samband við blaðið og kvaðst vilja koma á framfæri eftir- farandi athugasemdum vegna við- tals við þau Ágúst Vernharðsson og Bryndísi Axelsdóttur, sem birt- ist í blaðinu í gær. Ragna kvaðst ekkert hafa vitað um fyrirhugaða stofnun nýs félags fiskverkafólks í Reykjavík fyrr en um miðjan dag á mánudag, en þá var kynningarfundurinn haldinn. Hún sagði, að sér þætti mjög gott til að vita, að fólk væri orðið virk- ara á vinnustöðunum og því ekki rétt, að annar tónn væri hjá Fram- sókn en hjá Dagsbrún. Þá sagði Ragna, að krafan um leyfi vegna veikinda barna hefði verið tekin upp hjá Framsókn við gerð síðustu samninga. Af þeirri kröfugerð hefði unnið stór hópur innan Framsóknar. Ragna Bergmann Þetta er nýja skipið, Lucy Borchard frá Hamborg. Skipadeild Sambandsins: Kaupir nýtt skip fy r ir 78 milj ónir Skipadeild Sambandsins hefur fest kaup á þýsku gámaflutningaskipi fyrir 78 miljónir króna. Skipið verður afhent um miðjan maí og verður í áætlunar- ferðum milli Islands og Evrópu. f frétt frá Sambandinu segir að flutningar Skipa- deildar hafi farið sívaxandi á undanförnum árum. S.l. haust var tekið á leigu gámaflutningaskip og reynslan sé svo góð að ákveðið hafi verið að festa kaup á sams konar skipi. Nýja skipið leysi því erlend leiguskip af hólmi. 13 manna áhöfn verður á skipinu. Það er byggt í Þýskalandi 1976 og er burðargetan 3.850 tonn. Skipið rúmar 210 gáma og er fyrsta íslenska kaupskipiö með sérstökum gámagrindum. Fyrirhugað er að útbúa það til flutninga á verulegum fjölda frystigáma. - ÁI 6 skelfiskbátar stunda neta- veiðar og eru að klára kvótann Mikil vinna í Hólminum „Hér er unnið á fullu alla daga og oft fram á kvöld og okkur finnst það heilmikil vinna“, sagði Hólm- ari sem hringdi til blaðsins í gær. Á þriðjudaginn var þess getið í frétt í blaðinu að í Stykkishólmi væri at- vinnulíf nú með daufara móti þar sem allir skelfiskbátar lægju enn bundnir við bryggju. En það er öðru nær, sem betur fer. 6 skelfiskbátar frá Hólminum hafa verið á netaveiðum í Breiða- firði frá því í byrjun mars og aflað mjög vel eins og aðrir bátar á Nes- inu. Vegna skelfiskveiða hafa þess- ir bátar minni kvóta en ella, eða um 400 tonn hver og eru sumir þeirra rétt búnir með kvótann og aðrir verða líklega búnir að fylla sinn kvóta um páskaleytið. Hvað þá tekur við er nokkuð óljóst að sögn heimamanna, en þó er afráðið að einhverjir bátar munu fara á rækjuveiðar og það skapar nokkra vinnu hjá landverkafólki. ~lg- N áttúru ver ndar þing hefst 13. apríl n.k. Fimmta náttúruverndarþingið verður haldið dagana 13. - 15. ap- ríl n.k. að Hótel Esju. Um 120 full- trúar eiga rétt til setu á þinginu og koma þeir víðs vegar að af landinu. Þingið verður sett kl. 17 föstu- daginn 13. apríl af formanni náttúr- uverndarráðs, Eyþóri Einarssyni. Þá ávarpar menntamálaráðherra þingið, og Eyþór Einarsson flytur ræðu og Jón Gauti Jónsson fram- kvæmdastjori ráðsins flytur skýrslu um störf þess. Á laugardagsmorgni verða flutt þrjú erindi um landnotkun á há- lendinu. Bjarni E. Guðleifsson fjallar um hefðbundnar nytjar, Páll Líndal um akstur og umgengni í óbyggðum og Einar E. Sæmundsen um náttúruvernd og orkum- annvirki. Sigrún Helgadóttir flytur erindi um umhverfisfræðslu og loks verða kynntar tillögur til ályktana og síðan verða nefndarstörf. A sunnudagsmorgni fer fram kjör í Náttúruverndarráð og síðan verða almennar umræður og af- greiðsla tillagna. Þinginu lýkur kl. 16 á sunnudag. - Á1 Fleiri ríkis- víxlar Ákveðið hefur verið að halda annað uppboð á ríkis- víxlum að nafnverði samtals 30 miljónir króna. Útgáfudag- ur er 13. apríl og gjalddagi 13. júlí 1984. Hver víxill verður kr. 50 þúsund að nafnverði. Skilmálar eru hinir sömu og í fyrra uppboði ríkissjóðs og tilboðum skal skila á sérstök- um eyöublöðum, með telexi eða staðfestu símskeyti til lán- adeildar Seðlabankans fyrir kl. 14 11. apríl n.k. Tekið er fram að tilboðin skuli vera í lokuðum ómerktum ums- lögum nema hvað þau skulu merkt „Ríkisvíxalaútboð". Betra blað WMM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.