Þjóðviljinn - 10.04.1984, Side 5
Þriðjudagur 10. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Tímamótarœða Willy Brandts á norður-suður
ráðstefnunni í Lissabon í gœr
Ný efnahagsskipan í heiminum
Stöðvun vígbúnaðarœðisins
og uppstokkun peningakerf-
isins brynasta verkefnið
Ræða Willi Brandt formanns Alþjóðasambands Jafnaðar-
manna á ráðstefnu Evrópuráðsins í Lissabon í gær vakti
gífurlega athygli. Brandt lagði þar til umsköpun efnahags-
kerfisins, gerbreytingu á starfsemi Alþjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins. Gagnrýndi hann harðlega vopna-
sölur iðnríkja til fátækari landa heimsins og niðurskurð
Bandaríkjanna á aðstoð við þessi ríki. Brandt kvað nauðsyn-
legt að Evrópuríkin bindust samtökum um aðstoð við fátæk-
ari ríki og bráðnauðsynlegt að koma á nýrri efnahagsskipan.
Willy Brandt setti fram nýjar til-
lögur um umsköpun hagkerfisins
og samskipti þróunarríkja við iðn-
ríkin. Brandt lagði til að efnt yrði
til nýrrar heimsráðstefnu á næst-
unni um þessi mál í Berlín. Fulltrú-
ar þriðja heims ríkja hafa áður
komið fram með hugmyndir um að
þyrfti að umskapa stofnanir sem
sinna fjármögnunarverkefnum
svosem Alþjóðabankann og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn. Brandt
tók undir þessa gagnrýni og lagði til
að umsköpun þessa kerfis yrði
forgangsverkefni næstu ára.
Hœtta vopnasölu
Brandt lagði fram ítarlegar til-
lögur um að Evrópuríkin hættu að
selja vopn til þriðja heims ríkjanna
og útskýrði samhengi milli afvopn-
unar og þróunaraðstoðar.
Gagnrýndi Brandt Bandaríkin
harðlega fyrir að skera niður þró-
unaraðstoð við fátækari ríki heims
og sagði að Evrópuríkin yrðu að
taka höndum saman um að bæta
þriðja heims ríkjum upp það sem
að Bandaríkjastjórn hefði skorið
niður. Lagði hann til sérstaka áætl-
un til að forða fólki frá hungri sér-
staklega í Afríku. Sagði hann rétt
að tengja saman þróunaraðstoð
allra Evrópuríkja í því skyni. Taldi
Brandt það ekki rétt að Evrópurík-
in hefðu ekki samvinnu um aðstoð
við þróunarríkin, en pukruðu útaf
fyrir sig með slík verkefni.
Nýir möguleikar
Síðan greindi Brandt frá því að
sér væri kunnugt um að nýir mögu-
leikar væru að opnast til að bæði
Austur- og Vestur-Evrópa gætu
tekið höndum saman um að ræða
ítarlegar samskipti Norðurs og
Suðurs, þannig að Evrópa ætti ekki
einungis að líta á sig sem brú á milli
norðurs og suðurs heldur austurs
og vesturs. Þess vegna væri Berlín
og sérstaklega heppilegur staður
fyrir heimsráðstefnu sem hefði
markandi áhrif í vinsamlegum sam-
skiptum heimshluta og landa og
þjóða.
Brandt greindi frá því að hópur
sérfræðinga væri að vinna að
skýrslu um það hvernig ætti að
flytja fjármagn úr vígbúnaðar-
kapphlaupinu yfir í þróunarað-
stoð. Gagnrýndi hann vígbúnaðar-
kapphlaupið hörðum orðum og
vísaði í ystu myrkur.
Kunnugir sögðu að þessi ræða
væri með þeim eftirminnilegustu
sem Brandt hefði haldið af mörg-
um frægum ræðum; markviss
gagnrýni, skýrar tillögur en engu
að síður tónn um það að ef ekki
yrði snúið við á næstu árum væri
þetta tapað, hnignun héldi áfram.
Sá tónn hefur verið áberandi í máli
fleiri manna á ráðstefnunni.
Eina vonin
Aðalritari Breska samveldisins
hélt einnig ræðu þarsem hann sagði
að spásögn Orwells um 1984 væri í
rauninni að rætast í heiminum öllu,
þarsem risaveldin í hlutverki „stóra
bróður" fylgdust náið með því
hvernig einstaklingar og ríki hegð-
uðu sér. í samræmi við þetta væri
allt merkt og skráð og ríkjum og
mönnum væru gefnar einkunnir og
síðan afhent fjármagn í samræmi
við það. Skoraði hann á Evrópuríki
að rjúfa þetta „1984 kerfi“ risa-
veldanna í veröldinni og að eina
vonin væri æ sjálfstæðara hlutverk
Evrópu gagnvart Bandaríkjunum.
í gær mælti Ólafur Ragnar einnig
fýrir ályktun ráðstefnunnar og hafa
miklar umræður orðið um hana.
Ráðstefnan hefur vakið gífurlega
athygli í Portúgal þar sem ítarlega
er greint frá henni í sjónvarpi og
útvarpi. Nær 100 fréttamenn fylgj-
ast með ráðstefnunni frá hinum
ýmsu ríkjum Evrópu. Þetta er fjöl-
mennasta ráðstefna sem haldin
hefur verið á vegum Evrópuráðs-
Aðalfundur SFR
Mótmælir niöurskurði
tíl verkamannabústaða
Á aðalfundi Starfsmannafélags ríkisstofnana, sem
haldinn var fyrir nokkrum dögum, var m.a. ályktað
um húsnæðismál. í ályktun fundarins er mótmælt
harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárveitingum
til bygginga verkamannabústaða. Jafnframt er vakin
athygli á stofnun Húsnæðissamvinnufélagsins Bú-
seta, sem nýjum valkosti á sviði félagslegra íbúða-
bygginga. Einnig lagði fundurinn áherslu á að samh-
liða stórátaki á sviði félagslegra íbúðabygginga verði
möguleikar til byggingar íbúðarhúsnæðis auknir með
hækkuðu lánshlutfalli og lengingu lánstíma húsnæðis-
lána. _v.
Áskorendaeinvígið í Vilnius:
Kasparov er óstöðvandi
Hinn tvítugi snillingur
Gary Kasparov jók enn við
forskot sitt um helgina með
því að vinna 12. skákina og í
gærkvöldi lauk hann ein-
víginu með sigri. Hann
verður því næsti áskorandi
heimsmeistarans Anatoly
Karpov.
Skákin á laugardag einkennd-
ist af mikilli spennu og baráttu. í
13. leik brá Smyslov út af fyrri
skákum og sprengdi upp stöðuna
á miðborðinu. Hann hafði frum-
kvæðið í höndum sér framan af
en með nákvæmri taflmennsku
tókst Kasparov að skapa sér mót-
spil. Smyslov afréð síðan að fóma
skiptamun fyrir tvö peð, en staða
Kasparovs var traust. Samkvæmt
heimildum APN lenti Smyslov
síðan í tímahraki undir lok set-
unnar, enda var taflmennska
hans þá fremur ráðleysisleg.
Kasparov notaði hins vegar ekki
nema einn tíma og fimmtíu mín-
útur.
Hvftt: Vassily Smyslov
Svart: Gary Kasparov
1. d4 d5
2. Rf3 c5
3. c4 e6
4. cxd5 exd5
5. g3 Rf6
6. Bg2 Be7
7. 0-0 0-0
8. Rc3 Rc6
9. Bg5 cxd4
10. Rxd4h6
11. Be3 He8
12. a3 Be6
13. Rxe6!?
(Áður í einvíginu hafði Smyslov
leikið 13. Khl en ekkert komist
áleiðis, textaleikurinn er hug-
mynd Kortsnojs úr einvígi hans
við Kasparov. Þetta verður þó að
teljast endurbót því Kortsnoj lék
fyrst 13. Db3 og drap á e6 í næsta
leik, en á b3 stendur hvíta drott-
ningin ekki vel.)
13. - fxe6
14. Da4 Kh8
15. Hadl Hac8
16. Khl
(Hvítur er að undirbúa f4, sem
gengur ekki strax vegna 16.-Rg4.
Það er greinilegt að Smyslov ætl-
ar að leita færa á miðborðinu, en
Kasparov hefst handa á drottn-
ingarvængnum.)
16. - a6
17. f4 Ra5
18. f5 b5!
19. Dh4
(Eini leikurinn. Eftir 19. Dc2
kemur e5 og einnig eftir 19. Df4
því ef 20. Dxe5 Bc5 og vinnur
lið.)
19. - Rg8
(Ef svartur léki nú 19. e5? þá
lumar hvítur á brellunni 20.
Rxd5! Rxd5 21. De4 og svarta
staðan er rjúkandi rústir.)
20. Dh3 Rc4
21. Bcl Bg5!
(Mjög góður leikur. Hvíti bisk-
upinn hefur mikilvægu hlutverki
að gegna. Hann valdar veiku
reitina í herbúðum hvíts auk þess
sem hann gæti seinna spilað
mikilvægt hlutverk í kóngssókn
af hálfu hvíts.)
22. fxe6 Bxcl
23. Hxcl -Re3!
24. Rxd5!!?
(Einhverjar tillögur?)
24. - Rxfl
25. Hxfl Hf8
26. Rf4 Re7
(Það er ljóst að þó hvítur hafi tvö
peð upp í skiptamuninn verður
erfitt fýrir hann að fylgja því eftir.
Síðasti leikur Kasparovs undir-
strikar þetta, staða hans er mjög
traust. Smyslov var einnig kom-
inn í talsvert tímahrak.)
27. Dg4 g5! 30. Bxfl Kg7
28. Dh3 hf6 31. Dg4 Dd5+
29. Rd3 Hxfl+ 32. e4
(Ekki 32. Bg2 Hcl+ 33. Rxcl
Ddl+ og mátar, en það er spurn-
ing hvort ekki væri betra að halda
stöðunni saman með 32. Kgl.)
32. - Dd4
33. h4 Hf8
34. Be2 De3
35. Kg2 Rg6
36. h5?
(Hvítur mátti alls ekki loka
kóngsvængnum því þar lá eina
leið hans til mótspils, nú er hann
svotil leiklaus.)
36. - Re7
37. b4
37. - Kh7!
(Lítill og sérlega glæsilegur leikur
sem undirstrikar algjört hjálpar-
leysi hvíts, sannkallaður Karpov
leikur!!)
38. Kh2 Hd8
39. e5 Hxd3
40. Bxd3 Dxd3
og í þessari gjörtöpuðu stöðu
gafst Smyslov upp.
Staðan 8-4 Kasparov í vil.
-LAR