Þjóðviljinn - 10.04.1984, Qupperneq 10
MUIVflÖW fiiqB .01 nugnbutfth«I
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. aprfl 1984
I HJUKRUNAR-
FRÆÐINGAR
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við
heilsugæslustöðvar eru lausar nú til um-
sóknar:
1. Suðureyri, staðan er laus til umsóknar
nú þjegar.
2. ísafjörður, staðan veitt frá 1. júní 1984.
3. Selfoss, staðan er veitt frá 1. júní 1984.
4. Kópavogur, 70% staða hjúkrunarfræð-
ings veitt frá 1. júní 1984.
5. Egilsstaðir, 50% staða hjúkrunarfræð-
ings veitt frá 1. júní 1984.
6. Þingeyri, staða hjúkrunarfræðings eða
Ijósmóður veitt frá 1. september 1984.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu sendast ráðuneytinu fyrir
10. maí 1984.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
28. mars 1984.
Borgarnes - Æskulýðs-
og tómstundafulltrui.
Borgarnes og Ungmennafélagið Skallagrím-
ur óska að ráða æskulýðs- og tómstundafull-
trúa, sem jafnframt er framkvæmdastjóri
ungmennafélagsins, frá 1. júní n.k.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist skrifstofu Borgarneshrepps
fyrir 20. apríl n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður
Borgarnesi 5. apríl 1984.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi.
Frá Æfinga og
tilraunaskóla
Kennaraháskóla íslands
Skólaárið 1984-1985 verður boðin fram
kennsla fyrir 5 ára nemendur, sem búsettir
eru í skólahverfinu, eins og verið hefur und-
anfarin ár.
Innritun fer fram í skólanum til 30. apríl n.k.
Skólastjóri.
SÍMAVARSLA.
Þjóðviljann vantar mann til símavörslu frá kl.
13-19 á daginn.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri frá kl.
10-12 dagana 10. og 11. apríl í síma 81333.
DMVIUINN
Auglýsið í Þjóðviljanum
Minning
Björn Ólafsson
konsertmeistari
F. 26. febrúar 1917 — D. 31. mars 1984
Barátta Björns Ólafssonar við
miskunnarlausan sjúkdóm stóð
yfir í níu ár. Nú er henni lokið og
Björn kominn á þann áfangastað,
sem hann hafði svo lengi þráð. Það
eru hörð örlög og óskiljanleg þegar
lífsglaður maður verður fyrir barð-
inu á sjúkdómi sem gjörsamlega
lamar andlegt og líkamlegt þrek
hans, bindur í einu vetfangi enda á
glæsilegan starfsferil og útilokar
hann frá samfélaginu. Fólk sem
þannig er ástatt um vill oft
gleymast, ef til vill vegna þess að
við óttumst það sem við ekki
skiljum. En þeir sem urðu þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast Birni
Ólafssyni áður en hann veiktist,
munu aldrei gleyma honum. Þeir
munu aldrei gleyma hinni miklu
lífsgleði hans og mannkostum.
Mér er það mjög kært að minn-
ast hans með þessum fáu orðum.
Hugur minn reikar aftur til þeirra
ára er ég sté mín fyrstu spor á tón-
listarbrautinni. Þessi ár bemsku
minnar og æsku eru órjúfanlega
tengd Birni. Inntökupróf mitt í
Tónlistarskólann í Reykjavík
stendur mér ljóslifandi fyrir hug-
skotssjónum: Sólríkur vordagurog
stórkostlegt útsýni yfir Tjörnina,
konsert í a-moll eftir Vivaldi og
góðlegur maður með andlit sem
geislaði ekki minna en sólin sem úti
skein á Tjörnina.
Þannig voru okkar fyrstu kynni.
Þau urðu táknræn fyrir öll þau ó-
komnu ár sem Björn var minn læri-
meistari og vinur. Sólskinið bar
alltaf sigur úr býtum, þótt oft væri á
brattann að sækja.
Björn kom alltaf einstaklega
ljúfmannlega fram við nemendur
sína, alltaf glaður í bragði og hlýr.
Hann var miklum gáfum gæddur
og hafði óvenjulega hæfileika til að
miðla öðrum af list sinni og
reynslu. Ást hans á tónlistinni var
smitandi.
Björn Ólafsson var meðal þeirra
fáu einstaklinga innlendra og er-
lendra sem lyftu Grettistaki í tón-
listarmálum okkar íslendinga.
Hann var í hópi þeirra sem plægðu
akurinn fyrir komandi kynslóðir.
Starf hans bar ríkulegan ávöxt.
Við erum mörg sem minnumst
Björns með djúpu þakklæti. Bless-
uð sé minning hans.
Vandamönnum sendi ég samúð-
arkveðjur.
Guðný Guðmundsdóttir.
Nú þegar Björn Ólafsson er allur
læt ég hugann reika aftur um nær
fjóra áratugi en þá kynntumst við
fyrst.
Vorhugur var með þjóðinni, hún
hafði nýverið öðlast fullt sjálfstæði
og stofnað lýðveldi, uppbygging
eðlilegra atvinnuvega landsmanna
var mikil, hver hönd hafði verk að
vinna, Ólafur Thors taldi það vera
„goðgá“ að útlenzkir fengju „land
af okkar landi til þess að gera það
land að sínu landi“, en Halldór
Laxness skrifaði íslandsklukkuna.
Á þessum árum var mikil gróska
í flestum greinum lista, ekki síst í
tónlistinni.
Einn fremstur tónlistarmann-
anna var Björn Ólafsson. Nokkr-
um árum áður hafði hann komið
heim til íslands eftir að hafa lokið
með miklu láði prófi í fiðluleik hjá
hljómlistarháskóla í Vínarborg.
Björn hafði mikið vald á fiðlu
sinni og hafði þegar hér var komið
leikið sig inn í hjörtu landsmanna.
Jafnframt var hann forkur dug-
legur og mikill drengskaparmaður.
Hann varð ákaflega nýtur maður
þjóðinni, með fiðluleik sínum á
hljómleikum og í hljóðvarpi og
með kennslu sinni auðgaði hann
tónmenningu þjóðarinnar allrar.
Auðvitað var hann ekki einn um
hituna, aðrir frábærir tónlistar-
menn lögðu þar hönd á plóg en
hlutur Björns var mikill.
Nemendur Björns urðu margir.
Hann var afburða kennari því hann
var svo einlægur og heill í starfi.
Hverju sinni reyndi hann að fá
nemandann til að skilja að góður
fiðluleikur felst ekki eingöngu í því
að strjúka boganum á réttan streng
fiðlunnar og hafa fingurgripin ná-
kvæm, fiðluleikarinn yrði að gefa
sjálfan sig á vald tónanna ef svo
mætti að orði komast, hann yrði að
skilja hvað tónskáldið var að fara
með verki sínu og túlka þennan
skilning fyrir áheyrendur og beita
til þess eigin skaphöfn. Þetta gerði
Björn með einstakri ljúfmennsku
en um leið með mikilli festu.
Ein dóttir mín sem þá var lítil
hnáta var í læri hjá Birni. Árin liðu
og telpan óx úr grasi, gifti sig og
eignaðist börn og buru. Frumburð
sinn nefndi hún Björn í höfuðið á
Birni Ólafssyni. Ég segi frá þessu
til að sýna hug hennar til kennarans
og vinarins og sú er trú mín að hug-
ur annarra nemenda Björns hafi
verið í svipuðum dúr. Vissulega
voru nemendur í góðum höndum
þegar þeir voru í höndum Björns
Ólafssonar.
Fyrir um það bil 10 árum veiktist
Björn mjög alvarlega og varð ófær
til vinnu. Það er þungt til þess að
hugsa en ekki tjóar að sakast um.
Eg þakka vini mínum Birni fyrir
margt og mikið og kveð hann með
trega.
Aðstandendum hans sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Haukur Helgason.
Með Birni Ólafssyni er genginn
einn af frumherjum íslensks tón-
listarlífs. Hann hvarf heim frá
glæsilegum námsferli og miklum
framavonum meðal evrópskra
stórþjóða tónlistarinnar og helgaði
líf sitt því starfi að leggja grundvöll
að íslenskri tónlistarmenningu.
Þegar ráðist er í stórvirki gegnir
oft furðu hversu áræði og afköst
brautryðjenda eru mikil að vöxt-
um. Svo var farið um störf Björns,
að þegar litið er til baka á kveðju-
stund má segja að hann hafi unnið
fullt starf þriggja manna að
minnsta kosti.
Auk þess að vera kons-
ertmeistari Sinfóníuhljómsveitar
íslands í aldarfjórðung, eða allt frá
stofnun sveitarinnar þar til að
heilsa hans brást, flutti hann sem
einleikari fjölmörg höfuðverk fiðl-
ubókmenntanna, bæði með hljóm-
sveitinni og einnig með píanósam-
leik. Sérstaklega eru minnistæðir
margir tónleikar þeirra fornvina,
Björns og Árna Kristjánssonar.
En sá þriðji þáttur starfa Björns
sem honum var kærastur a.m.k.
hin síðari ár var kennsla hjá Tón-
listarskólanum í Reykjavík.
Ég kynntist Birni fyrst er ég hóf
hjá honum nám í fiðluleik og varð
hann mér sem og öllum öðrum
nemendum sínum ógleymanlegur
kennari og vinur. Kennslustundir
hjá Birni voru á stundum hrein op-
inberun og alltaf mannbætandi. Áf
fundi Björns fór maður ætíð glað-
ari og bjartsýnni á lífið.
Nemendahljómsveit Tónlistar-
skólans var stór þáttur í skólastarf-
inu og mínar bestu minningar frá
unglingsárunum eru tengdar
henni. Björn stofnaði þá sveit og
stjórnaði, þar til hann lét af störf-
um. Eins og gefur að skilja var það
æði mislitur hópur er þar lék sam-
an, nemendur mislangt komnir í
námi, en það var ótrúlegt hvað
Björn gat hrifið þennan hóp til
dáða. Þar hefi ég kynnst mestri
„spilagleði“ um ævina. Sem félagi
var Björn einstaklega ljúfur og
skemmtilegur. Ef við í nemenda-
hljómsveitinni hugðumst gera okk-
ur glaðan dag, var alltaf fyrst
gengið úr skugga um að Björn gæti
tekið þátt í gleðinni með okkur.
Ef hægt er að kalla einhvern einn
mann föður Sinfóníuhljómsveitar
íslands, þá á það við um Björn Ól-
afsson. Sem konsertmeistari hafði
hann mjög mikil áhrif á mótun
sveitarinnar í upphafi og einnig er
það staðreynd að flestir fiðluleikar-
ar sem starfað hafa í hljómsveitinni
hafa verið nemendur hans.
í nafni Starfsmannafélags Sin-
fóníuhljómsveitarinnar vil ég
þakka honum innilega hans fórn-
fúsa starf og ánægjulegar samver-
ustundir þau 25 ár sem hann starf-
aði með sveitinni.
f mínum huga er orðið listamað-
ur dýrt orð og oft á tíðum ofnotað.
En um Björn Ólafsson vil ég segja:
Hann var mikill listamaður.
Aðstandendum sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Helga Hauksdóttir.
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
,seV\^
•s'
Dúllci
Snorrabraut 22