Þjóðviljinn - 12.04.1984, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 11. apríl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Umræður utan dagskrár um gengisfellingarboðun Steingríms
Gengisfelling ekki útilokuö
- Það er bersýnilegt að ríkis-
stjórnin hefur tekið það á dagskrá
sína að fella gengið umfram það
sem gert var ráð fyrir þegar gengið
var frá samkomulagi um kjara-
samninga 21. febrúar, sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins þegar hann kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár á alþingi í gær
í tilefni af yfirlýsingum forsætisráð-
herra um gengisfellingar ef ekki
tækist að fylla gatið með öðru móti.
Svavar benti á að gengislækkun
þýði beina kjaraskerðingu umfram
ella - og þá nægði ekki að leita
samanburðar við laun í Suður-
Evrópu, heldur þyrfti að leita sam-
anburðar í öðrum heimsálfum.
Ljóst væri að forsætisráðherra
ætlaði að kenna fjármálaráðherra
um þá gengisfellingu í anda gömlu
Framsóknaraðferðarinnar. í
fjórða lagi kæmi fram vítavert
kæruleysi í yfirlýsingum, þarsem
verið væri að gefa heildsölum og
öðrum innflutningsaðiljum að-
vörun til að þeir geti farið að ham-
stra. Spurði Svavar hvort hægt væri
að fá skýr svör um það hvort
gengisfelling væri yfirvofandi eins-
og Tíminn hefði eftir forsætisráð-
herranum.
Steingrímur Hcrmannsson sagði
að fyrirsögnin úr Tímanum væri
ekki hans. Sagði hann ríkisstjórn-
ina munu standa við að verðbólgan
færi ekki yfir 10% á árinu. „Mark-
miðum stórnarinnar verður náð“,
sagði ráðherrann.
Þorsteinn Pálsson sagði að þessi
ríkisstjórn hefði ekki verið mynd-
uð til þess að missa stjórn á ríkis-
fjármálunum. Genginu verður
haldið stöðugu og þarf bara tíma til
að finna leiðir sem duga. Vandan-
um verður ekki eingöngu mætt
með niðurskurði, þó hann sé
nauðsynlegur að hluta. Kvað hann
erlendar lántökur geta þurft að
koma til.
Svavar Gestsson kvað Steingrím
fara undan í flæmingi. Hann gæfi
engin ákveðin svör og útilokaði
ekki gengisfellingu. Á sama tíma
og verið væri að þyngja álögur á
almenning væri ríkisstjórnin að
flytja frumvörp um skattalækkanir
Kristín Ólafsdóttir og Unnur Stefánsdóttir í hlutverkum sínum.
„Þulur Theódóru
til Norðurlanda
U
Allar sjónvarpsstöðvarnar á
Norðurlöndum hafa ákveðið að
taka til sýninga þrjá leikna þætti
sem teknir voru upp hjá íslenska
sjónvarpinu í vetur og byggja á þul-
um Theódóru Thoroddsen. Ása
Ragnarsdóttir, annar umsjónar-
manna Stundarinnar okkar kynnti
þættina á sameiginlegum fundi for-
stöðumanna barnadeilda Norrænu
sjónvarpsstöðvanna og var fyrsti
þátturinn „Tunglið, tunglið taktu
mig“ sýndur þar. Hinir tveir þætt-
irnir voru kynntir með myndum en
samsetningu þeirra er ekki lokið.
Áformað er að sýna „Tunglið“ í
páskabarnatímanum í íslenska
sjónvarpinu.
Allmargir leikarar koma fram í
þuluþáttunum, en leikstjórn og
sjónvarpshandrit vann Þórunn Sig-
urðardóttir. Stjórn upptöku ann-
aðist Viðar Víkingsson, en Baldvin
Björnsson gerði leikmynd og bún-
inga. Meðal leikenda eru: Jóhann
Sigurðarson, Kristín Á. Ólafsdótt-
ir, Saga Jónsdóttir, Guðrún Þórð-
ardóttir, Kristján Franklín Magnús
og Guðbjörg Thoroddsen, auk
fjögurra stúlkna úr íslenska dans-
flokknum, nokkurra barna og
aukaleikara.
Hundahaldið í Garðabæ_
119 kvartanir
undan 220 hundum árið 1983
Hundaeftirlitsmaðurinn í Garða-
bæ var kallaður 119 sinnum út á
síðasta ári vegna kvartana undan
hundum í bæjarfélaginu, þarsem
220 hundar eru á skrá.
í fréttatilkynningu frá Heilbrigð-
isnefndinni í sveitarfélaginu er sagt
frá því að flest útköllin séu vegna
sömu hundana. f 15 skipti hafi
þurft að fara með dýrin á Dýra-
spítalann og á árinu hafi 4 hund-
anna verið aflífaðir. Árleg hunda-
hreinsun í Garðabæ var gerð í nóv-
ember og hundsuðu nokkrir
hundaeigendur að mæta. Eiga þeir
yfir höfði sér sviptingu leyfis og
kæru.
Þrjár kærur eru til meðferðar hjá
bæjarfógetaembættinu vegna
hundahalds í Garðabæ. Hunda-
hald er leyft í Garðabæ samkvæmt
reglugerð heilbrigðisnefndar frá
1982. Ekki er getið um skaða sem
mannfólkið hefur orðið fyrir vegna
hunda í Garðabæ á síðasta ári í
téðri fréttatilkynningu frá heil-
brigðisnefnd Garðabæjar og
Bessastaðahrepps. - óg.
á bönkum, sparisjóðum, hlutafé-
lögum og þar fram eftir götunum.
„Þarna fann hún loksins litla mann-
ínn". Og nú er farið að tala um
erlendar lántökur til viðbótar við
þvæluna alla.
Umræðurnar héldu lengi áfram
og var ríkisstjórnin harðlega
gagnrýnd. - óg/mhg.
Ólafur G. Einarsson um gengisfellingartalið í Steingrími:
Fásinna og uppgjöf
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins var
spurður álits á þeim yfirlýsingum
stjórnarþingmanna og ráðherra,
sem hver rekst á annars horn varð-
andi uppfyllingu „gatsins“ svo-
nefnda í fjárlögum og hvort þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins næði
ekki saman um ákveðna tillögu til
lausnar vandanum?
„Ég vil í fyrsta lagi segja það um
þessar yfirlýsingar, sem vissulega
hafa verið í allar áttir að mér þykja
það ekki skynsamleg vinnubrögð
hjá þingmönnum að vera að lýsa
einu og öðru yfir á meðan málið er
á umræðustigi í þingflokkunum.
Við höfum ekki lokið við málið og
höfum raunar beðið eftir tillögum
frá ríkisstjórninni og höfum því
ekki eytt miklum tíma í það enn
sem komið er en það verður á dag-
skrá hjá okkur í dag. í þessu sam-
bandi vil ég taka fram að það fá
ekki allir það sem þeir vilja, þarna
hljóta að rekast á sjónarmið, en
yfirlýsingar í allar áttir leysa ekki
málið.En þetta er mál sem menn
verða að ná samkomulagi um
innan þingflokka og milli sam-
starfsaðila í ríkisstjórn."
Nú hefur það verið haft eftir for-
sætisráðherra að gengisfelling
komi til greina sem lausn á málinu
og er það aðcins enn ein hugmyndin
sem varpað hefur verið fram,
hvaða leið telur þú vænlegasta?
„Ég hef viljað reyna til þrautar
niðurskurðarleiðina og ég tel ekki
fullreynt með hana. Við höfum
verið andvígir því að fara í aukna
skattheimtu, við höfum talið er-
lendar lántökur komnar á það stig
að ekki verði haldið áfram. Mér
hefur sýnst menn vera nokkuð
sammála um niðurskurðarleiðina.
Ég lít á gengisfellingartal sem fás-
innu og uppgjöf. Ef menn ekki
komast að samkomulagi með
sparnað, verður að endurskoða
okkar hugmyndir um aukna tekju-
öflun." - S.dór.
Tvö lagafrumvörp frá ríkisstjórninni:
Lækka skatta
á bönkunum
sem nemur tœpum 100 milj. króna á ári
Á sama tíma og leitað er með
logandi Ijósi að leiðum til að afla
fjár í fjárlaga„gatið“ leggur ríkis-
stjórnin fram lagafrumvarp á Al-
þingi til að lækka skatta á bönkum
landsins. Þessi skattalækkun á
bönkunum kemur til með að nema
nærri hundrað miljónum króna á
ári. Um þetta mál sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins á Alþingi í gær:
„Sömu daga og ríkisstjórnin er
að tala um skattahækkanir á al-
menningi til að stoppa í fjárlaga-
„gatið" og skera niður það smánar-
kaup sem greitt er í landinu þá er
verið að dreifa á borðið hjá þing-
mönnum frumvörpum um að
lækka skátta og hver er þá hinn litli
maður sem á sér vin í ríkisstjórn-
inni? Jú, það eru viðskiptabank-
arnir. Frumvarp til að lækka skatta
á bönkunum er flutt hér á Alþingi
af fjármálaráðherra, sömu dagana
og menn eru að velta því fyrir sér
hvernig ná eigi inn peningum í rík-
issjóð, uppí gatið stóra. Ofan á
þetta er búið að lækka skatta á
fyrirtækjum, búið er að lækka
skatta á hlutafélögum og nú á að
lækka skatta á bönkum. Og til þess
að þetta megi takast boðar Þor-
steinn Pálsson að taka skuli erlend
lán til að endar nái saman hjá ríkis-
sjóði".
Það var fátt um svör hjá stjórn-
arliðum við þessari ádrepu Svavars
og furðar kannski engan.
- S.dór.
Þingmenn Fram-
sóknarflokks:______
Ætla að
koma
vandan-
um yfir á
Albert
Ljóst er af ýmsum ummælum
þingmanna Framsóknarflokks-
ins að þeir ætla að koma efna-
hagsvandanum eða' „fjárlaga-
gatinu" öllu yfir á fjármálaráð-
herra Albert Guðmundsson.
Þannig segir Þórarinn Sigur-
jónsson þingmaður Framsókn-
ar á Suðurlandi í viðtali við
blaðið Þjóðólf, þegar hann var
spurður um aðal málin á Al-
þingi um þessar mundir:
„Efnahagsmálin eru alltaf í
brennidepli, en ég læt fjárlaga-
gatið eiga sig, það er málið hans
Alberts".
Þannig svarar þessi-þingmað-
ur Framsóknarflokksins rnál-
gagni sínu aðspurður um lausn
þessa mikla efnahagsvanda-
máls. - S.dór.
Sígarettu
eða vindil
Verð á sígarettum hækkaði verulega
við síðustu verðbreytingar ÁTVR. Aft-
ur á móti hefur verðlagning vindla ekki
tekið verulegum breytingum, sumar
tegundir hafa hækkað smávegis og aðr-
ar lækkað.
Camel Lights kostaði 44,10 krónur
pakkinn, en eftir verðbreytingu kostar
hann 53,50. Winston Super Long Filter
kostaði 45,60 en er nú á 55 krónur.
Pakkinn hækkaði um tæpar 10 krónur.
25 Agio Grand Prix vindlar kostuðu
18,40 en eru nú á 17,90. Hofnar hækk-
uðu aftur á móti, pakki með 25 vindlum
kostar núna 50 aurum meira en áður.
Tóbaksneytendur eru því ráðvilltir
þessa dagana og velta vöngum yfir því
hvort nú sé réttast að fara að dæmi Al-
berts og taka upp vindilinn.
-jp-
Auglýsing
Ibúö fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn er laus til afnota tímabilið 1.
september 1984 til 31. ágúst 1985.
Listamenn eða vísindamenn, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í
Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af
íbúðinni. í íbúðinni eru fimm herbergi og fylgir
þeim allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður.
Hún er látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í
íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir
en lengstur 12 mánuðir, en venjulega hefur
henni verið ráðstafað til þriggja mánaða í
senn.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn
húss Jóns Sigurðssonar, Islands Ambass-
ade, Dantes Plads 3, 1556 Köbenhavn V,
eigi síðar en 20. maí n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og
menntun og fyrri störfum.
Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi ósk-
að er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð
umsækjenda. Tekið skal fram að hússtjórn
ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma
sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök umsóknareyðublöð er hægt að fá á
skrifstofu Alþingis í Alþingishúsinu í Reykja-
vík og á sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar