Þjóðviljinn - 12.04.1984, Síða 7
Fimmtudagur 12. aprfl 1984 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 15
A9 vera
Leikfélag Hafnarfjarðar:
22. grein
Leikverk byggt á hinni þekktu bók Jos-
ephs Heller „Catch-22“.
Leikstjóri og þýðandi: Karl Ágúst Úlfs-
son.
Aðstoðarleikstjóri: Katrín Þorláksdótt-
ir.
Tónlist: Jóhann Morávek.
Leikmynd: Ragnhildur Jónsdóttir.
Lýsing: Egill Ingibergsson.
Það er ekki á hverjum degi sem
áhugamannaleikhús hérlendis tek-
ur sér það verk fyrir hendur að
frumsýna eitt af þekktari bók-
menntaverkum síðari tíma. Leikfé-
lag Hafnarfjarðar sem endurreist
var af áhugasömu ungu fólki fyrir
fáum árum ræðst í þetta stórvirki
undir handleiðslu Karls Ágústs
Úlfssonar, sem lauk fyrr í vetur við
þýðingu sína á hinu margrómaða
ádeiluverki Josephs Heller um 22.
greinina. Og það verður að segjast
að leikhópurinn skilar bærilega
þessari sögu um baráttu flugliðans
Yossarian við valdasjúka og misk-
unnarlausa yfirmenn sína.
Grein 22 er ekki til, en það
breytir engu því allir halda að hún
sé tii, segir á einhverjum stað í
leiknum. Tuttugasta og önnur
grein segir að þú verðir alltaf að
gera það sem yfirmaður þinn segir
þér. Og 22. grein hermennskulag-
anna segir einnig að sá sem vill
komast hjá því að berjast geti ekki
Lúðvik Geirsson
skrifar um
leikhús
verið brjálaður í alvöru. Með öðr-
um orðum: Sá einn getur hætt að
berjast sem er brjálaður en það er
ekki brjálaður maður sem vill
hætta stríðsleiknum því það eru
einungis brjálaðir menn sem taka
þátt í honum. Hringnum lokað og
enginn kemst undan.
Josep Heller tók sjálfur þátt í
sprengjukasti Bandamanna á Ítalíu
í síðari heimsstyrjöldinni og í bók-
inni Catch-22 sem hann var með í 6
ár í smíðum endurspeglast það
hugarvíti sem hann gekk í gegnum
sjálfur í flugsveitinni. Fáránleiki
stríðsins og misbeiting valdsins.
Bókin náði strax miklum vinsæld-
um enda umbrotatímar í byrjun
sjöunda áratugsins. Áratug síðar
var það sýnt fyrst á leiksviði í leik-
gerð Helíers.
Leikgerðin fylgir anda bókarinn-
ar að stærstum hluta. Þar er allt
fullt af lífi og ótaldar persónur
koma við sögu. Þessi fjölþætting
verksins skerpir enn frekar þá ein-
földu sögu sem verið er að segja.
Helsta hættan sem þessi uppbygg-
ing framkallar er flókið og lang-
dregið sjónarspil. Með markvissri
Daneeka læknir (Hallur Hallson) t.h. og Wintergreen póstþjónustumaður (Jakob Grétarsson) ræðast vlð.
Mynd-eik.
uppfærslu þar sem leiksviðið var
notað til hins ítrasta og innákomur
voru allar nokkuð óvenjulegar þar
sem baksviðið var ekkert, varð úr
samtvinnaður og heildstæður
leikur, en hitt stendur eftir að ef-
laust mætti stytta á köflum úr sýn-
ingunni sem stendur í yfir 2 1/2
tíma.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir að
þessu sinni í Hafnarfjarðarbíói og
til að svo mætti verða varð að
bygga 7 metra langt svið fram í
áhorfendasalinn. Bíóið er á engan
hátt búið undir leiksýningar en hlý-
leiki salarkynna og úrræðasemi
leikara og leikstjóra gera þetta bíó-
hús að hinu þekkilegasta leikhúsi.
Nú heyrist aftur að von sé betri
tíma hjá Leikfélaginu þar sem það
fær Bæjarbíó til afnota fyrir starf-
semi sína í sumar, og það hlýtur að
vera aðstandendum félagsins
mikið tilhlökkunarefni að fá fastan
samastað.
Nær allir endurreisnarmenn
Leikfélags Hafnarjarðar hafa
hlotið sína leikhússkírn í fjöl-
breyttu leiklistarlífi Flensborgar-
skóla undangengin ár. Þetta er
ungur frískur hópur sem hefur lært
mikið af reynslunni en á ennþá eftir
að bæta ýmsu við sig.
Það voru 17 leikarar sem komu
fram í sýningunni í Hafnarfjarðar-
bíói í nærri 40 hlutverkum. Viða-
mesta hlutverkið Yossarian liðs-
foringja fer Lárus Vilhjálmsson
með og kemst vel frá sínu. Bræð-
urnir Daníel og Hallur Helgasynir
komu fyrir í ýmsum gervum og fóru
liðlega með hlutverkaskiptin.
Einkum náði Daníel sér vel upp
sem sálfræðingurinn. Jón Sigurðs-
son í hlutverkum ofurstans og Ma-
jor Major er kraftmikill leikari og
býr yfir fáguðurr. leik. Einkum
naut hann sín vel í hlutverki hins
drambláta og um leið vorkunn-
sama Cathcart ofursta. Aðrir
leikarar komust vel frá sínu og þá
ekki síst stúlkurnar sem höfðu með
höndum hin smærri en tilfinninga-
næmu hlutverk.
Hafnfirðingar hafa löngum
kvartað undan því að alla
skemmtan og menningu verði að
stærstuni hluta að sækja út fyrir bæ-
inn.Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
undanfarin misseri sýnt það og
sannað að þar fer verðugur menn-
ingarfulltrúi bæjarins. Slík starf-
semi nær hins vegar ekki að lifa og
dafna nema henni sé sýnd ræktar-
semi af þeim sem hún á að þjóna.
-Ig-
brjálaður
hermaður
Þegar framleiðsla, þjónusta og verslanir
sameinast um eitt merid,
máttu vera viss um að meridð tákni gæði!
£V
SS
SS-búðimar
Verslanir sem bjóða viðráðanlegt vöruverð
Hafnarstræti 5 Aðalstræti 9
Skólavörðustíg 22 Bræðraborgarstíg 43
Laugavegi 116 Austurveri
Glæsibæ Iðufelli 14
SLÁTURFÉLAG
$
Akranesi
SUÐURLANDS