Þjóðviljinn - 12.04.1984, Síða 8
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. aprfl 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús á Skírdag
Alþýðubandalagiö í Kópavogi
býður til opins húss í Þinghóli á
sumardaginn fyrsta (Skírdag)
kl. 15-18. Stutt ávörp flytja Geir
Gunnarsson alþingismaður og
Heiðrún Sverrisdóttir bæjar-
fulltrúi. Söngur - barnahorn -
kaffi og kökur.
Félagar í ABK eru eindregið
hvattir til að líta inn. - Stjórn
ABK Gelr
Hel&rún
Alþýðubandalagið í Ólafsvík:
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Ólafsvík boðartil fundarfimmtudaginn 12. apríl kl.
20.30 í Mettubúð.
Dagskrá: 1) Sveitarstjórnarmál, Sigríður Þóra Eggertsdóttir bæjarfull-
trúi hefur framsögu, 2) Önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Síðasta spilakvöldið
Munið síðasta spilakvöld vetrarins n.k. þriðjudag 17. apríl. Nánar
auglýst á morgun. - Nefndin.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Æskulyðsfylking AB Akureyri
Aðalfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 12. apríl
kl. 20.00. Fundarefni: Samþykkt laga ÆFA, stjórnarkjör og framtíðar-
áform ÆFA. Allt ungt vinstra fólk er hvatt til að mæta. - ÆFA.
Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga áð birtast og
talið við Einar Karl eða Álfheiði. - Ritstjórn.
Fylkingin
Hvað vill
Fylkingin?
Opinn stjórnmálafundur um
kreppuna, ríkisstjórnina og
baráttu verkalýðsstéttarinn-
ar.
Fundurinn verður haldinn í
kvöld fimmtudaginn 12. apríl kl.
20.30 að Hverfisgötu 105. Dag-
skrá: Ríkistjórnin og sókn
auðvaldsaflanna: Már Guð-
mundsson. Vandamál verka-
lýðshreyfingarinnar: Árni
Sverrisson. Baráttan fyrir ríkis-
stjórn verkalýðsins: PéturTyrf-
íngsson. Almennar umræður.
Fundarstjóri er Sólveig Ás-
grímsdóttir.
Árnl
Pétur
Jarðarför móður okkar og ömmu,
Mörthu Þórleifsdóttur
Kleppsvegi 24,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. apríl kl. 15.
Svala Guðmundsdóttir
Karl Guðmundsson
Steinunn Hauksdóttir.
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
Gunnars Stefánssonar
bónda Vatnsskarðshólum Mýrdal.
verður gerð frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 14. apríl
kl. 11 f.h.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 7.30, sama dag.
Unnur Þorsteinsdóttir
og börn
Auglýsið í Þjóðviljanum
„Efnahagslega
fatlað“ fólk:
Fái niður-
felld gjöld
af Trabant
er ósk hagsmuna-
félags Trabanteigenda
Klúbburinn „Skynsemin ræð-
ur“, sem er félagsskapur Trabant
eigenda hefur beint þeim tilmælum
til ríkisstjórnarinnar að felld verði
niður aðflutningsgjöld af Trabant
bifreiðum til fólks sem samkvæmt
skilgreiningu klúbbsins er „efna-
hagslega fatlað“. Þar er átt við ellil-
ífeyrisþega, fóik með tekjur undir
15 launaflokki BSRB eða samsvar-
andi og nemendur i HÍ og fram-
haldsskólum.
í greinargerð með tilmælunum
sem hafa verið send ríkisstjórninni,
segir m.a. að í ofangreindum hópi
séu flestir verkamenn og skrif-
stofufólk, námsmenn og gamla
fólkið. Fyrir þetta fólk skipti niður-
felling aðflutningsgjalda, 50% af
verði Trabant bifreiðar, mjög
miklu máli en fyrir efnameira fólk
sé um að ræða upphæð sem skipti
Klúbburinn Skynsemin ræður, en það er félag Trabant eigenda, hefur sent
Steingrími Hermannssyni bréf og óskað eftir því að aðflutningsgjöld af
Trabant verði felld niður fyrir „efnahagslega fatiað“ fólk.
það litlu. Þá er og bent á að afslátt-
urinn skipti ríkissjóð sáralitlu máli
en fyrir t.d. gamla fólkið geti svona
bflaeign haft verulegt gildi fyrir
lífsfyllingu þess enda séu Trabant
bílar traustir og öruggir í akstri og
ekki sé hægt að fara mjög greitt á
þeim.
f lok greinagerðarinnar segir:
Okkar reynsla er sú að menn venj-
ist vel akstri þessara bíla þó þar sé
hvergi neinn sk. lúxus fburður.
Bifreiðin þjónar hverjum sem er til
aksturs á vinnustað og í hvers kon-
ar snatt. Varahlutir eru tiltölulega
mjög ódýrir og viðhaldið auðvelt
fyrir hvern sæmilega lagtækan
mann þar sem allt kerfið er svo ein-
falt.
Steingrími Hermannssyni for-
sætisráðherra hefur verið send
þessi tilmæli og er þess vænst að
málið verði athugað og um það
tekin ákvörðun, segir í Iok fréttar
Trabanteigendanna.
-v.
Mezzoforte vel vakandi
í heimshornaflakki
Heldur hljótt hefur verið um
Mezzoforte hér heima að undan-
förnu og hafa ýmsir velt því fyrir
sér hvort strákarnir séu lagstir í
dvala. Það er nú öðru nær. Að
undanförnu hafa Mezzo piltarnir
verið önnum kafnir við tóiileika-
hald, fyrst austur í Japan, síðan í
Bretlandi, Þýskalandi og Norð-
urlandatúr lýkur að öllum líkind-
um þann 15. aprfl.
Að vísu gæti það eitthvað
breyst, því nú þegar hefur einum
aukatónleikum í Kaupmanna-
höfn verið bætt inn í dagskránna.
Miðar á tónleika Mezzoforte í
Jazzhus Montmartre seldust upp
áður en 2 stundir voru liðnar frá
opnun miðasölunnar. Mun nú
vera uppselt á flesta tónleika
strákanna á Norðurlöndum og
sömu sögu er að segja frá Þýska-
landi. Þar ruku miðar út strax í
forsölu og var orðið uppselt á
flestalla tónleika Mezzoforte í
Þýskalandi löngu áður en að
þeim kom. Þó eru það ekki neinir
smákofar sem strákarnir voru
bókaðir í. Helstu plötufréttir af
Mezzoforte eru þær að lagið Mi-
dnight Sun kom út í Bretlandi í
febrúar og komst ofarlega á
diskólistanum. í kjölfarið fylgdi
útgáfa á stóru plötunni Observat-
ion (Yfirsýn) í Bretlandi og hefur
hún fengið ágætar móttökur.
Einnig er platan komin út í
Þýskalandi og er það inná Topp
50 breiðskífulistanum. Nýverið
kom Observation síðan út í Nor-
egi og komst strax í 14. sæti í út-
gáfuvikunni og í Danmörku var
platan í 25. sæti síðast þegar frétt-
ist. Japanir ráðgera útgáfu í aprfl
og Hollendingar, Belgíumenn
Hljóðfæra-
leikarar
athugið!
Skilafrestur til að panta verk á veg-
um félagsins hefur verið fram-
lengdur til 10. apríl. Umsóknar-
eyðublöð fást í ístóni, Freyjugötu
1, Rvík.
svo og önnur Evrópulönd áætla
útgáfu á næstu vikum og mánuð-
um. Eins og fram hefur komið í
fréttum, hljóðrituðu skrákarnir
lagið Spring Fever (Heima er
best) í janúar þegar þeir komu
aftur til Bretlands eftir jólaleyfið
hér heima. Þessu lagi var síðan
bætt inná stóru plötuna Obser-
vation og nýlega lauk endur-
vinnslu og hljóðblöndun lagsins.
Er ráðgert að'gefa það út á lítilli
plötu í Bretlandi í apríl mánuði.
í breska vikuritinu Music
Week fer Chris Week fögrum
orðum um tónleika Mezzoforte í
The Venueí Lundúnum nú fyrir
stuttu og segir m. a. að hljóm-
sveitin sé í hópi hinna mest
spennandi á djass-fönk—
tónlistarsviðinu. „Mezzoforte
ætti á þessu ári að geta marg
endurgoldið Steinari trú hans á
hljómsveitinni, ef nokkurt rétt-
læti er til“, segir hann í lok um-
sagnar sinnar.
Úr fréttatilkynningu
frá Steinari hf.
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Tökum aö okkur að
þétta sprungur
í steinvegjum,
lögum alkaliskemmdir,
þéttum og ryðverjum
gömul bárujárnsþök.
bpmngu-
p— Upplýsingar í simum
(91) 66709 & 24579
þétting
Höfum háþrouö
amerísk þéttiefni frá RPM
11 ára reynsla á efnunum
hér á landi.
Gerum föst verötilboð
yður aö kostnaðarlausu
án skuldbindinga af
yðar hálfu.
Utboð
Hveragerðishreppur óskar hér með eftir til-
boðum í uppsetningu girðingar í kringum
hverasvæðið í Hveragerði.
Girðing verður 775 m að lengd. Girðingarefni
er framleitt hjá Heras Fence Systems, Hol-
landi.
Verkinu skal vera lokið fyrir 15. júní 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hvera-
gerðishrepps, gegn 500 kr. skilatryggingu,
og skal þeim skilað á sama stað eigi síðar en
24. apríl kl. 10, og verða tilboðin þá opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Sveitarstjórinn, Hveragerði
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
,se\^
,sW
Dúlla
Snorrabraut 22