Þjóðviljinn - 01.05.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 01.05.1984, Blaðsíða 5
.1. maí Þriðjudagur 1. maí Í984 ÞJÓÐVlLjíNN - SÍÐA 5 ^shreyfingarinnar tillit til þeirra margvíslegu séraðstæðna sem ríkja á hverjum stað fyrir sig. Þannig er staða og þau almennu skilyrði sem verka- lýðshreyfingin í Bretlandi annars vegar og Svíþjóð hinsvegar sem og aðstæður al- mennt í þessum löndum býsna frábrugðnar þegar grannt er skoðað, svo dæmi sé tekið. Því hlýtur sú spurning að vakna, að hve miklu leyti aðstæður hér á landi passa inní þessa almennu mynd. Allt fram á árið 1982 fór íslenskt efna- hagslíf að mestu varhluta af þeim víðtæku kreppueinkennum, sem lýst hefur verið hér að framan. En það ár snerist þróunin mjög til verri vegar. Þjóðarframleiðsla dróst saman um 2% og þjóðartekjur enn frekar. Árið 1983 varð samdrátturinn enn meiri og ekkert bendir til að breyting verði þar á á því ári sem nú er að líða. Enn sem komið er hefur sú kreppa sem íslenskt efnahagslif gengur í gegnum, ekki leitt til fjöldaatvinnuleysis í neinni líkingu við það sem þekkist annars staðar, þótt hlutfall atvinnulausra hafi nú í fyrsta skipti í langan tíma farið yfir 1% af vinnuaflinu, en það náði í marsmánuði 1.6%. Tiltölulega sæmilegt atvinnuástand fram að þessu hef- ur þó ekki komið í veg fyrir að atvinnu- leysisvofunni hafi mjög verið hampað af atvinnurekendum og hægrisinnuðum stjórnmálamönnum í landinu til réttlæting- ar á síendurteknum árásum á réttindi og kjör launafólks síðustu misserin. Arásir ríkisstjórnarinnar á ísienskt launafólk Um þróun kjaramála og afskipti núver- andi ríkisstjórnar af þeim ætti ekki að þurfa að fjölyrða. Afleiðingarnar eru sérhverjum launamanni í landinu alltof vel kunnar. Á síðasta ári voru laun skert um nálega fjórð- ung og nái núverandi launastefna fram að ganga mun sú skerðing í besta falli standa óbætt fram á næsta ár. Það var eitt fyrsta verk þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr, að banna vísitölubindingu launa fram á árið 1985 og afnema samningsrétt verkalýðs- hreyfingarinnar. Að vísu tókst að hrinda árásinni á samningsréttinn í lok síðasta árs, en þá þegar hafði verkalýðshreyfingin og starf hennar skaðast mjög verulega af þess- um aðgerðum nkisvaldsins. Á sama tíma og núverandi ríkisstjórn hefur staðið í fylkingarbrjósti fyrir árásir á launakjör og réttindi verkalýðshreyfingar- innar, hefur hún einnig hafið skipulagða tilfærslu á fjármunum frá launafólki til at- vinnurekenda í formi skattabreytinga. Loks undirbýr ríkisstjórnin verulega skerð- ingu á opinberri þjónustu og framlögum til velferðarmála. Á undanförnum árum hafa atvinnurek- endur lagt mjög aukna áherslu á að byggja upp samtök sín og styrkja áróðursstöðu sína gagnvart ríkisvaldi og launafólki. Ljót- asta dæmið um þessa þróun eru aukin um- svif Verslunarráðs íslands. Verslunarráðið á enga beina aðild að samningamálum, eða samskiptum á vinnumarkaðnum. Hlutverk þess einskorðast nánast eingöngu við að móta stefnu atvinnurekenda til efnahags- mála, kjaramála og annarra hagsmunamála atvinnurekenda og hafa áhrif á aðgerðir stjórnvalda og viðhorf almennings til þess- ara mála. Það segir eftilvill meira en mörg orð um sambönd og áhrif Verslunarráðs, að tals- menn þess hafa með töluverðum rétti full- yrt, að stefna núverandi ríkisstjórnar sé í lykilatriðum fengin að láni úr stefnuplaggi Verslunarráðs sem gefið var út fyrir síðustu kosningar undir heitinu „FRÁ ORÐUM TIL ATHAFNA: Áætlun um alhliða að- gerðif í efnahagsmálum Staða verkalýðshreyfingarinnar Það ætti að vera hverjum manni ljóst, að þær aðstæður í efnahags-, atvinnu- og stjórnmálum sem fagleg og pólitísk samtök launafólks standa frammi fyrir hér á landi, semog víðast hvar á Vesturlöndum, eru allt aðrar og verri en þekkst hafa frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þessi breyttu við- horf hafa mjög breytt baráttustöðu verka- lýðshreyfingarinnar og launafólks til hins verra eins og best sést af þeirri varnarstöðu sem launafólk er komið í. En óhagstæð ytri skilyrði skýra ekki nema að hluta veika stöðu verkalýðshreyfingarinnar í dag. Fullnægjandi skýring verður þá fyrst möguleg þegar tillit hefur verið tekið til stefnu, starfshátta og skipulags verkalýðs- hreyfingarinnar. Svara verður spurningum eins og þeim: Hvernig má það vera að verkalýðshreyfingunni hefur ekki tekist að verjast betur árásum á lífskjör og réttindi verkafólks en raun ber vitni? Og hvernig stendur á því, að verkalýðshreyfingin og stórir hópar launafólks hafa staðið jafn berskjaldaðir gagnvart áróðursmaskínum atvinnurekenda og skjaldsveina þeirra og gengi frjálshyggjuhugmyndafræðinnar og hægriflokka á Vesturlöndum verið slíkt sem dæmin sanna? Breytinga er þörf Við þessum og öðrum skyldum spurning- um er ekki til neitt einhlítt svar. Um það verður þó tæpast deilt að verkalýðshreyf- ingin sjálf á nokkra sök á hvernig málum er nú komð. Hér skipta stefna annars vegar og skipulag og starfshættir hreyfingarinnar hins vegar, höfuðmáli. Á undangengnum áratugum hefur starf verkalýðshreyfingar- innar öðru fremur gengið út frá að ná til launafólks með einum eða öðrum hætti sem stærstum hluta af vaxandi þjóðartekjum. Hinsvegar hefur mjög skort á að verkalýðs- hreyfingin hafi í reynd sett fram og starfað eftir ákveðnum markmiðssetningum um með hvaða hætti efnahagslífið og samfé- lagsskipanin skulu þróast. Fram til þessa hefur þetta verið álitið fyrst og fremst við- fangsefni stjórnmálaflokkanna. En með vaxandi áhrifum og afskiptum stjórnmála- flokka og ríkisvaldsins af kjarasamningum og réttindamálum launafólks getur verka- lýðshreyfingin ekki lengur komist hjá því að móta sjálfstæða stefnu um almenna þró- un samfélagsins og takast á við atvinnurek- endur og verkalýðsfjandsamlega stjórnmálaflokka um þau atriði. Hér hlýtur aukið samstarf við verkalýðsflokkana og stefnumörkun að verða stöðugt brýnna. Að hluta til verður að rekja vandamál vestrænnar verkalýðshreyfingar til skorts á markvissari stefnu og sýn á þjóðfélagsleg markmið hreyfingarinnar. Ánnar þáttur sem ekki verður litið framhjá, eru starfs- hættir og innra skipulag verkalýðshreyfing- arinnar. Verkalýðsfélögin eru upphaflega stofnuð og hreyfingin vex fram vegna þess að verkafólk skilur að það á sér sameigin- lega hagsmuni í andstöðu við atvinnurek- endur. Styrk sinn öðlast hreyfingin vegna samstöðu og sameiginlegra markmiða fé- lagsmanna sinna sem þeir tóku þátt í að ákveða og berjast fyrir. Með tímanum hefur verkalýöshreyfingin fjarlægst þessar rætur sínar. fstað baráttu- hreyfingar fjöldans hefur verkalýðshreyf- ingin í stöðugt meira mæli orðið að stofnun utan og ofan við þann grundvöll sem hún óx uppúr. Ákvarðanir um málefni hreyfingar- innar og félagsmanna hennar hafa í vaxandi mæli færst frá óbreyttum félagsmönnum til forystumannanna og sérfræðinga á vegum hreyfingarinnar. Þessari þróun á sér langa sögu, en hún átti sér ekki síst stað á velmektardögum kapítalismans meðan allt lék í lyndi og með- an hreyfingin skilaði félagsmönnum sínum í aðalatriðum þeirri þjónustu sem af henni var krafist. Þessi þróun hefur aftur á móti veikt mjög innviði hreyfingarinnar og bar- áttustöðu hennar eins og berlega hefur komið í ljós þegar virkilega hefur reynt á afl hennar til að standa gegn árásum á kjör og réttindi launafólks. Hreyfingin hefur verið illa undir breyttar aðstæður búin og henni hefur reynst erfitt að virkja hinn almenna félagsmann til aðgerða, þegar það hefur verið reynt. í baráttunni gegn áróðursma- skínu atvinnurekenda hefur hreyfingin víða átt undir högg að sækja. Gegn þessum vanda verkalýðshreyfingarinnar er ekki til nema eitt svar: aukin virkni félagsmanna og áhrif á stefnu og starf hreyfingarinnar. Það verður að stórauka lýðræðið innan hreyfingarinnar og skapa skilning á því að verkalýðsfélögin eru stofnuð og eiga að starfa fyrir almcnna félagsmenn sína að þeim málum sem þeir ákveða sjálfir og með þeim hætti sem hugur þeirra stendur til. Fram til nýrrar sóknar Nú um stundir á verkalýðshreyfingin hér á landi sem og víðast hvar á Vesturlöndum mjög undir högg að sækja. Að verkalýðs- hreyfingunni og launafólki er vegið úr mörgum áttum í senn. Við þessu ástandi verður hreyfingin og verkafólk að bregðast af festu og framsýni. Hreyfingin verður að styrkja varnarmúra sína og blása til nýrrar sóknar. Til að svo geti orðið er hreyfingunni lífsnauðsynlegt að taka til endurmats stefnu sína og starfshætti. Móta verður framtíðar- stefnu sem ekki tekur aðeins til kjara- og réttindamála verkafólks í þröngum skiln- ingi, heldur með sýn á samfélaginu öllu og hver þróun þess eigi að verða, jafnframt því sem verkalýðshreyfingin smíði sér baráttu- aðferðir til að ná markmiðum sínum fram. Forsenda þess að þetta starf hreyfingarinn- ar beri tilætlaðan árangur er að stefnu- mótun og ákvarðanataka verði sem mest flutt frá forystumönnum og stofnunum hreyfingarinnar til hins almenna félags- manns. Verkalýðshreyfingin verður að sækjast eftir starfskröftum almennra félags- manna. Hún verður að láta sérhvern félags- mann finna að hreyfingin sé hans og hann geti og eigi að hafa áhrif á starfshætti henn- ar og stefnu. Verði þetta gert er engin ástæða til að ætla annað en verkalýðshreyf- ingin geti orðið sú baráttuhreyfing sem verkafólki er lífsnauðsynleg í dag.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.