Þjóðviljinn - 01.05.1984, Blaðsíða 17
Þriðjudagur I. maí 19M' ÞJÓÐVIEJIíW^'SfÐA 17
— j.maí —
i Þjóð viljans
Guðmundur Hallvarðsson. (Mynd: Atli)
Það er í ýmsu að snúast í baráttunni. Hér er Guðmundur við
verkfallsvörslu í júni 1982. (Mynd: kv)
/
MSj llillBlllllllllllllllllllll«!lllll]il)lilillllBI];|]||IBIIl!|||lllllim m
gj BIFVÉLAVIRKJAR m
m Tökum allir þátt í kröfugöngu og m
útifundi verkalýðsfélaganna 1. maí. m
m Félag bifvélavirkja 1
ml llllllllllllllllllllllillllillllillllllillilllllilllllllllllllllllllllilillllllililllllllllillllllllllllllllilllllllllltllllllllllBlllllillllllllilillilllllllllllllillllllHII 11
hafa oft verið á milli almennu
verkalýðsfélaganna og hins svo-
kallaða uppmælingaraðals. Ég
held að það sé þýðingarmest ein-
mitt í stöðunni núna að stærstu fé-
lögin í Reykjavík myndi bandalag
og taki frumkvæðið í slagnum í
haust.
Ég hef ekki trú á því vegna fyrri
reynslu að ákveðin sambönd á
landsmælikvarða nái þeirri barátt-
ueiningu sem er nauðsynleg til að
slíkt sé raunhæft. Menn hafa verið
að rökstyðja þetta efnislega út frá
stöðu þessara félaga en reynslan
hefur sýnt okkur að þetta dæmi
hefur aldrei gengið upp.
Ríkisstjórnin ætlar sér með að-
gerðum sínum vegna fjárlagagats-
ins að éta upp þá kjarasamninga
sem gerðir voru alveg á næstu vik-
um. Það yrði því algert glapræði að
nota ekki uppsagnarákvæði samn-
inganna. Ef menn ætla að fara að
bíða fram til 15. apríl á næsta ári þá
verður staðan ekki betri.
Ég held að það verði sameinast
um baráttuna hér á höfuðborgar-
svæðinu og reka mjögstífan áróður-
fyrir þessu nú á næstu vikum. í
kröfugerðinni á fyrst og fremst að
leggja áherslu á það að ná lág-
markslaunum almennt hærra upp.
í 1. maí ávarpinu eru taldar upp
mjög þýðingarmiklar kröfur sem
verður að leggja áherslu á eins og
t.d. að dagvinnutryggingin verði
hinn almenni lágmarkstaxti.
Það er reynsla frá árum áður að
þá stóðu félög eins og Dagsbrún,
Trésmíðafélagið og járniðnaðar-
menn fyrir vinnudeilum hér í
Reykjavík og höfðu þar alla for-
ystu. Ég sé engin efnisleg rök fyrir
því af hverju slíkt ætti ekki að vera
hægt nú.
Pólitísk samsetning
ASÍ-forystu
er óheppileg
Ég tel að sú flokkslega samsetn-
ing á forystu sem nú ríkir hjá ASÍ
sé pólitískt mjög óheillavænleg.
Því verður að breyta, og ég hef
varpað þeirri skoðun fram og rætt
hana við marga að þau öfl í verka-
lýðshreyfingunni sem tilheyra
verkalýðsflokkunum verði að gera
sér grein fyrir því að þau eiga að
taka upp pólitíska baráttu gegn
íhaldinu. Það er eins og menn verði
feimnir þegar þessir hlutir eru
nefndir á fundum í verkalýðshreyf-
ingunni. Eins og það sé þegjandi
samkomulag um að þetta sé ekki
nefnt. Ég held að það sterkasta
sem menn gætu gert í verkalýðs-
hreyfingunni væri að endurvekja
það bandalag verkalýðsflokkanna
sem var myndað 1976 og láta reyna
á það.
-lg-
Dagsbrúnarmenn!
Sýnið öfluga samstöðu í kjarabaráttunni.
Fjölmennið í kröfugöngu
og á útifund verkalýðsfélaganna.
i
Verkamannafélagið Dagsbrún