Þjóðviljinn - 01.05.1984, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 01.05.1984, Blaðsíða 19
1. maí Þriðjudagur 1. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Félag verkafólks við fiskiðnað í Reykjavík: Frekar hlustað á öflugt félag Aðalheiður Franzdóttlr: „Við viljum ná tekjutryggingu til að byrja með.“ Mikill hugur hefur verið í fisk- verkafólki í Reykjavíksíð- astliðinn vetur, körlum og kon- um. í mars var boðað til undir- búningsfundar fyrir stofnun fé- lagsskapar fiskverkafólks og stofnfundur var haldinn hinn 16. apríl. Á undirbúningsfund- inn mætti um helminguralls starfandi fiskverkafólks í Reykjavík eða þrjú hundruð manns og á stofnfundinn mættu á annað hundrað manns. Á stofnfundinum voru sam- þykkt lög félagsins, en það heitir Félag verkafólks við f iskiðnað með heimili og varn- arþing í Reykjavík. Ein þeirra sem ötullega vann að stofnun þess félags er Aðalheiður Franzdóttir, verkakona hjá Bæjar- útgerð Reykjavíkur. Við tókum hana tali fyrir nokkru og spurðum hana um tildrög félagsins og til- gang. Höfum setiö eftir í iaunamáium „Félagsskapurinn sprettur ein- faldlega af því að við höfum setið á eftir í launamálum“, segir Aðal- heiður. „Við, sem erum í Fram- sókn og Dagsbrún, eigum öll sömu hagsmuna að gæta og okkur finnst því rétt að eiga samflot. Trúnaðarfólkið hér í Bæjarút- gerðinni fundaði mikið fyrir síð- ustu samningsgerð. Við fórum í gegnum gamla samninginn. og gerðum tillögur og lögðum á borð- ið hjá Framsókn og Dagsbrún. segir Aðalheiður Franzdóttir hjá BÚR um hið nýja félag Okkar kröfur fengust ekki í gegn og skapaði það megna óánægju. Við í fiskiðnaðinum vorum alls ekki hressar þegar samningarnir voru samþykktir hjá Framsókn. Okkur fannst við sitja alveg eftir. Þetta er nú eiginlega upphafið, en við höfðum rætt það áður okkar í milli að rétt væri að stofna einhvers konar málfundafélag þar sem við gætum borið saman bækur okkar. Nú er félagsstofnunin orðin veru- leiki.“ Samvinna við félögin Aðalheiður sagði okkur að með félagsstofnuninni væri ekki verið að vinna að því að kollsteypa Dagsbrún eða Framsókn. Þvert á móti væri ætlunin að hafa við þau nána samvinnu. „Við verðum bara að koma þeim í skilning um hvað það er sem við viljum“, sagði Aðal- heiður. „Við vonum að það verði frekar hlustað á svona öflugt félag, sem sprettur á vinnustöðunum, heldur en toppana í verkalýðsfé- lögunum." I lögum félagsins segir svo um hlutverk þess: „Hlutverk félagsins er: 1. að efla samheldni verkafólks í fiskvinnslu; 2. að gæta hagsmuna verkafólks í fiskvinnslu gagnvart atvinnurek- endum í samvinnu við stéttarfé- lögin, Dagsbrún og Framsókn; 3. að stuðla að verðmætaaukningu sjávarafurða með aukinni vöru- vöndun félagsmanna við vinnu sína.“ Tilgangi sínum hyggst félagið m.a. ná með því að „vera stéttarfé- lögunum til ráðgjafar um meðferð samningsréttarins" eins og segir í lögunum. 10 þúsund á mánuöi Ég spyr Aðalheiði hvað félagið hyggist fyrst fá fram. „Við viljum ná tekjutrygging- unni til að byrja með“, segir Aðal- heiður. Fiskverkafólk fær nú rétt rúmar tíuþúsund krónur á mánuði fyrir 8 stunda vinnudag. Ef bónus- inn nær ekki að lyfta kaupinu upp í rúmar tólfþúsund krónur fær fólkið greidda tekjutryggingu, annars ekki. Bónusinn er reiknaður skv. taxta en ekki tekjutryggingu. Og þessu vilja félagsmenn breyta. HvaS gerist í haust? spyr ég Að- alheiði. „Ég veit það ekki, en mér finnst ansi harkalegt að forystan skuli nota verkföll sem grýlu á okkur og ekkert reyna að gera. Ég held, og er raunar sannfærð um, að ekki hafi verið reynt til hins ítrasta. Ég vona, að forystan hugsi sinn gangfyrir l.september. Kaupmátt- urinn hjá launafólki hefur rýrnað svo mikið að við svo búið má ekki standa." Landssamtök? Þegar ég hef kvatt Aðalheiði rakst ég á Málhildi Sigurbjörns- dóttur en hún á sæti í stjórn hins nýja félags. Málhildur kvað alla í fiskiðnaðinum binda miklar vonir við þetta félag. „Ég held, að það ætti að geta náð til alls landsins, og raunar þarf það að ná til alls landsins. Fiskverka- fólk verður að þjappa sér saman, því öðru vísi fáum við litlu fram- gengt. Ef ságuli væri ekki þarna úti værum við ekki stödd hér. En það er farið með okkur, sem vinnum við þetta, eins og hverja aðra þræla. Þetta má ekki ganga svona lengur." í stjórn félagsins eiga sæti auk Málhildar: Ágúst Vernharðsson, Bæjarútgerðinni, Þorsteinn Kára- son, Bæjarútgerðinni, Halldóra Stephensen, Isbirninum, Snorri Traustason, Kirkjusandi, Svan- björg M. Jósefsdóttir, Kirkju- sandi, og fris Guðmundsdóttir, Hraðfrystistöðinni. Þjóðviljinn færir þeim og öllu fiskverkafólki sínar bestu 1. maí kveðjur. árna trlia nds°9 sjávar igaöa ^nan^iönguhe' $ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.