Þjóðviljinn - 08.05.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 08.05.1984, Page 5
Þriðjudagur 8. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Lækkun niðurgreiðslna mótmælt á Alþingi V ersta og óheppi legasta ráðstöfunin í stöðunni sagði Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður - Það hefur lengi velst fyrir þjóðinni hver hann væri, þessi litli maður, sem þeir í ríkisstjórn- inni eru alltaf að tala um og ég held að það sé nú ekki á hreinu ennþá. Það hefur þó komið fram hér á hverju hann lifir, þessi litli maður. Hann drekkur gosdrykki og etur sælgæti og þar með er það mál afgreitt. Svo mælti Steingrímur J. Sigfús- son alþm. í utandagskrárumræðum um verðbreytingar þær á hollustu- drykkjum og gosdrykkjum, sem fjármálaráðherra hefur beitt sér fyrir. - Skoðun mín er sú, sagði Steingrímur, - að þessar ráðstafan- ir fjármálaráðherra í þágu litla mannsins hafi verið misráðnar og ákaflega óheppilegar og hin stór- fellda verðhækkun á hinum svo- kölluðu innlendu hollustudryk- kjum sé fráleit með hliðsjón af því að hér er um að ræða holla drykki í handhægum pakkningum m.a. til að nota í nestispökkum skólabarna og þetta á sama tíma og verð er lækkað á gosdrykkjum, helstu samkeppnisvörum við þessa inn- lendu framleiðslu. Með þessum orðum er ég ekki að verja né rétt- læta verðlagningarpólitík Mjólkur- samsölunnar. Það er annað mál og Litli maöurinn sem rfkisstjórnin er alltaf að tala um llfir ó gosdrykkjum og sælgæti... Þelr sem neyta mjólkurvara og landbúnaðarafurða eiga ekkl upp á pallborðið hjá rikisstjórninni, sagðl Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi. óskylt og mig skortir haldbærar upplýsingar til að fella þar dóm. Þessu tvennu vil ég ekki að ruglað sé saman. Að hækka verð á þessum vörum en lækka það á gosdrykkj- um tel ég afar óheppilga verðlagn- ingarstefnu og engum til gleði nema ef vera skyldi tannlæknum. Síðan vék Steingrímur að lækk- un niðurgreiðslna á búvörum upp á 150-200 milj. kr. svo sem um hefði verið rætt og myndi sjáanlega stór auka á vanda landbúnaðarins. Til viðbótar kæmi svo það, að mikið fé vantaði til þess að standa við út- flutningsbótarétt á þessu ári. Þetta o.fl. yki mjög á þann vanda, sem væri að hlaðast upp í landbúnaðin- um. Því væri það ein versta og óheppilegasta ráðstöfun í þessari stöðu að lækka niðurgreiðslur. í framhaldi af þessu spurði Steingrímur ríkisstjórnina: Hvernig á þessi íækkun á niður- greiðslunum að skiptast milli þeirra vara, sem niður eru greiddar? Landbúnaðarráðuneytið hefur reiknað út að afnám niður- greiðslna muni hækka smásöluverð búvara frá 10-40% og því spyr ég hvort væntanlegar séu lækkanir á niðurgreiðslum til vinnslustöðv- anna eða á niðurgreiðslum á hrá- efni frá landbúnaðinum. Ljóst er að svona mikill niðurskurður hlýtur að valda umtalsverðri hækk- un ef hann á að koma allur niður á vöruverði á síðari hluta þessa árs. Og enn, og nú bið ég verkalýðsleið- toga þá, sem hér eru staddir, að taka eftir: Er hér ekki um að ræða skýlaust brot á þeirn loforðum, sem ríkisstjórnin gaf verkalýðsfélög- unumo.fl. tilaðgreiðafyrirkjaras- amningunum? Og loks, í tenglsum við þetta allt saman: Á að demba yfir bændur 43,5% hækkun á áburðarverði á þessu vori eða er hugmyndin að draga eitthvað úr henni? Ómótmælanlegt er að kjöt, grænmeti, mjólk og mjólkurdrykk- ir eru undirstaða hollrar og góðrar fæðu og því brýnt hagsmunamál neytanda að geta aflað sér þessara vara í ríku mæli á hóflegu verði. Augljóst er að lækkun á niður- greiðslunr skapar vanda í framtíð- inni, býr til gat, sem síðan mun stækka og rúlla á undan ríkisstjórn- inni og mæta henni fyrr eða síðar þegar lengra kemur upp í brekk- una. Spá mín er sú, að það verði ekki bara útsala heldur stórútsala á kjöti næsta haust ef svo fer fram sem horfir um þessar áætlarnir ríkisstjórnarinnar. Ég vil vona að ekki þurfi að fleygja matvælum en þó kann svo að fara verði allar þessar áætlarnir ríkisstjórnarinnar að veruleika. Og svo að endingu, í sambandi við hollustudrykkina: Mín skoðun er sú, að hér sé um að ræða mjólk- urvörur, matvæli, er eiga að njóta þeirrar undaþágu frá skattlagn- ingu, sem aðrar hliðstæðar vörur gera, en ekki að flokkast með gos- drykkjum. Þarf naumast flóknar lagaskýringar, til að komast að þeirri niðurstöðu. Því má svo bæta við, að engin svör við spurningum Steingríms fengust frá ríkisstjórninni. -mhg Gróf aðför að náms- Hjörleifur mönnum og LIN í vetur hefur verið unnin, fyrir tilstuðlan menntamálaráðherra, skýrsla um stöðu og afkomu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Að sögn skýrsluhöfundar er markmið skýrslunnar að gera grein fyrir þróun sjóðsins og huga að hagræðingu í rekstri hans. Oll viðleitni er gæti bætt stöðu LÍN er góðra gjalda verð og henni ber að fagna. Staðreyndin er hinsvegar sú að skýrsla þessi er gróf aðför að námsmönnum og LÍN. Tilgangurinn með LÍN er fyrst og síðast sá að tryggja öllum jafna aðstöðu til að afla sér þeirrar menntunar sem hugur þeirra stendur til án tillits til efnahags- legrar eða félagslegrar stöðu. Enginn námsmaður á að þurfa að hætta námi vegna slíkra þátta, svo fremi hann standist þær námskröfur er viðkomandi menntastofnun gerir. Það er ljóst að LÍN býr við mik- inn vanda um þessar mundir. Fjárþörf sjóðsins hefur fjórfald- ast að raungildi á tímabilinu 1971-1984 og hefur hann þurft að taka þungbær lán til að uppfylla skyldur sínar, því að framlög rík- issjóðs hafa ekki dugað. Þetta er kjarni málsins. Vandi LÍN erekki tilkominn vegna aukinnar fjár- þarfa nema, ekki vegna aukins verksviðs sjóðsins, og ekki vegna þess að rekstrarkostnaður sióðs- ins hafi aukist. Nei, vandi LÍN er tilkominn vegna þess að ríkis- sjður hefur ekki uppfyllt skyldur sínar við hann. Á einum stað segir höfundur: „Markmið þessara tillagna er annarsvegar að hafa áhrif á eftir- spurn eftir lánum þannig að kostnaður við langskólanám verði metinn á raunhæfan hátt af þeim einstaklingi sem hyggur á langskólanám og gleggri kostn- aðarleg tengsl myndist milli fram- boðs og eftirspurnar eftir menntun." Þessu mótmælum við. Við teljum að hér sé á ferðinni hættuleg þróun. Ef þessi hugsun yrði höfð að leiðarljósi við úthlut- un námslána er ljóst að hún myndi greiða fjölda námsbrauta innan Háskóla íslands banahögg. Það köllum við ekki að efla Há- skóla íslands. í skýrslunni kemur fram sú hugmynd að gera námslán að fjárfestingarlánum. Þessu mót- mælum við. Námsmenn hafa alltaf lagt á það þunga áherslu að námslán séu framfræslulán, þau séu notuð til almennrar fram- færslu, ekki til fjárfestingar. Námslán eiga alltaf að vera í hópi hagstæðustu lána sem völ er á í þjóðfélaginu. Við höfnum öllum hugmyndum um vaxtabindingu lána ofan á verðtryggingu. Að auki leggur höfundur til að kröfur um námsafköst verði auknar. Af þessu mætti ætla að hann teldi námsafköst lítil. Við teljum á hinn bóginn að sam- kvæmt núverandi skipan mála séu gerðar fyllilega sanngjarnar Vandi LÍN er ekki til kominn vegna aukinnar fjárþarfar nema, ekki vegna aukins verksviðs sjóðsins og ekki vegna þess að rekstrarkostnaður sjóðsins hef- ur aukist. Nei, vandi LÍN er til kominn vegna þess að ríkissjóður hefur ekki uppfyllt skyldur sínar við hann. og réttlátar kröfur um námsaf- köst. Enn heldur höfundur áfram. Nú er lagt til að dregið verði úr hinu félagslega tilliti. Þessu vís- um við alfarið á bug. Það hefur verið, allt frá stofnun sjóðsins, megin hlutverk hans að jafna að- stöðu nemenda, því að það er deginum ljósara að nemendur búa við mismunandi félagslegar aðstæður. Sumir búa í foreldra- húsum, en aðrir hafa hinsvegar fyrir fjölskyldu að sjá. Fjárþörfin er því mismikil. Við höfnum því að hluta af starfsemi LÍN verði settur í hendur tryggingarkerfis- ins í landinu. Þetta segjum við af ótta við að slíkt fyrirkomulag gæti reynst of þungt í vöfum, náms- mönnum til mikils óhagræðis. Höfundur leggur ennfremur til að upphæð námslána svari til á- kveðins tekjumarks í stað þess að miða við framfærslukostnað eins og nú er. Þeirri spurningu er hins- vegar ósvarað við hvaða tekju- mark skuli miðað. Krafa okkar er skýr og ljós: að upphæð námslána eigi skilyrðislaust að miðast við framfærslu hvers og eins. Höfundur telur að efla beri Háskóla íslands. Auðvitað ber stjórnvöldum þessa lands að sjá til þess að Háskóli íslands geti gegnt hlutverki sínu og þurfti ekki sérfræðiálit utan úr bæ til að segja ráðherra slíkt. Við mót- mælum ástandi mála við Háskóla íslands eins og það er í dag. Skólinn býr við fjársvelti, ne- Rafn Jónsson skrifar: mendum hefur stórfjölgað en á sama tíma hefur fjárveitingar- valdið lítið sem ekkert aðhafst í málinu. Þessari öfugþróun ber að snúa við. Við teljum skýrslu þessa hreinustu móðgun. Hún er grófleg aðför að hagsmunum og réttindum námsmanna. Hún er aðför að því réttlætiskerfi sem við höfum barist fyrir langa lengi. Við viljum benda á að höfundur er ekki eingöngu að fást við hag- fræðilegar stærðir. Námsmenn eru ekki breytur í hagfræðilíkani. Við erum fólk og krefjumst lausna sem taka tillit til mann- legra þátta. Það er staðreynd að námslán eru lán sem við borgum að fullu verðtryggð til baka. Við bendum á að hluti ráðamanna í þjóðfé- laginu fengu á sínum tíma „náms- lán“, sem á þeim tíma voru hreinar gjafir eins og önnur „lán“. Við teljum það algerlega siðlaust að þeir aðilar sem nutu þessara „lána“ á sínum tíma ætli nú að láta okkur gjalda þess hversu illa var staðið að hlutun- um áður fyrr. Ef þær hugmyndir sem fram koma í skýrslunni ná fram að ganga munum við stíga stórt og dapurlegt skref út í hin ystu myrkur. Hjörleifur Rafn Jónsson stundar nám í þjóðfélagsfræði við HÍ og er formaður Samfélagsins, sem er nemendafélag deildarinnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.