Þjóðviljinn - 08.05.1984, Side 7
Þrigjudagur 8. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
búsýslan
Húsnæðissamvinnufélögin
á íslandi:
Húsnæðissamvinnufélagiö
Búseti hefur komist nokkuð í
fjölmiðlaumræðu síðustu daga
vegna afgreiðslu Alþingis á
húsnæðisfrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar. Húsnæðissamvinnu-
félög eiga sér langa sögu í nág-
rannalöndum okkar, m.a. á
Norðurlöndum.en hérálandi
er þetta húsnæðisform óþekkt.
Reynir Ingibjartsson erfram-
kvæmdastjóri Búseta í Reykja-
vík og nágrenni. Við báðum
hann að segja okkur frá fé-
laginu.
Afsprengi breyttra
aðstœðna
„Húsnæðissamvinnufélagið Bú-
seti í Reykjavík var stofnað 15.
október á síðasta ári og félagar eru
nú 2.450“, sagði Reynir.
Og tildrögin?
„Það þarf alltaf ákveðnar kring-
umstæður og frækorn í jarðvegin-
um til þess að jurtir lifi og deyi. Ég
held, að stofnendur Búseta hafi
hitt á rétta augnablikið og réttar
aðstæður í þjóðfélaginu. Húsnæð-
bindandi, því félagsmenn geta selt
réttinn öðrum félagsmönnum hve-
nær sem er og rétturinn verður
verðtryggður, væntanlega með
byggingarvísitölu. Það vantar enn
löggjöf fyrir þetta húsnæðisform
hér á landi til að vernda fólk fyrir
spekúlöntum og við leggjum mikla
áherslu á, að nú þegar verði farið
að vinna að setningu slíkrar lög-
gjafar“.
Eignaupptaka?
Heyrst hafa þær raddir, að Bú-
seti taki upp eignir hjá fólki, þar
sem það er látið borga af öllum lán-
um en eignast ekki neitt...
„Þessu vísa ég á bug sem hverri
annarri vitleysu“, sagði Reynir.
„En það er skiljanlegt að fólk átti
sig ekki á því hvað hér er á ferðinni
- þetta er jú ný og áður óþekkt leið
hér á landi.
Ef fólk vill benda á einhverja
eignaupptöku í þjóðfélaginu, þá
fer hún fram á hinum almenna
leigumarkaði. Þar er fólk látið
borga þannig að íbúðin standi al-
veg undir sér og helst eitthvað að
auki. Þar eignast fólk akkúrat ekk-
ert - ekki einu sinni öryggi.
„Blómaskeið ólöglegra íbúða á hanabjálkum og í kjallaraholum er aftur að
renna í garð“, segir Reynlr Inglbjartsson um ástandið í húsnæðismálum hér
á landi. (Ljósm. —eik—).
Rætt við
Reyni
Ingibjartsson,
framkvæmda-
stjóra Búseta
í Reykjavík
Við teljum það eðlilega röð á
málunum, að fólk byrji á því að
spara og fari síðan í húsnæði. Þann-
ig er þetta gert annars staðar. Við
teljum einnig, að bankakerfið eigi
að koma meira inn í fjármögnun
íbúðabygginga en verið hefur. Er-
lendis er það mjög ríkur þáttur í
starfi húsnæðissamvinnufélaga, að
félagsmenn spari. Þar skrifa for-
eldrar gjarnan börn sín inn í félagið
og láta þau síðan safna sér fyrir
búseturéttinum. Það mætti hugsa
sér málin þannig, að fermingar-
barn fengi í gjöf aðild að húsnæð-
issamvinnufélagi og inneign í bú-
sparnað. Þá gæti fermingarbarnið
t.d. um tvítugsaldur átt fyrir bú-
seturétti og fengið sér íbúð við
hæfi. Slíkt myndi að sjálfsögðu
gjörbreyta lífsafkomu þessa ein-
staklings".
Húsnœðisfrum-
varpið tryggir
lánsmöguleika
„Starf Búseta í vetur hefur ekki
síst grundvallast á því, að húsnæð-
„Búseti kominn inn í kerfið“
ismálin eru nú í mikilli klemmu;
verðbólgan er hætt að færa fólki
húsnæði upp í hendurnar, verð-
trygging lána er komin á án þess að
þau hafi verið iengd svo nokkru
nemi og fólk er farið að lenda í
miklum vandræðum. Hér er æði
margt fólk, sem hreinlega getur
ekki sinnt þessari frumþörf, og ég
vil minna á Sigtúnsfundinn sem
dæmi um það hversu erfitt ástandið
er orðið. Þá hefur kjararýrnunin
undanfarið ekki bætt úr skák.
Það má segja, að Búseti sé af-
sprengi breyttra aðstæðna í þjóðfé-
laginu. Gömlu leiðirnar í húsnæð-
ismálum duga hreinlega ekki
lengur, hvað sem ráðamenn segja,
en þeir virðast eiga mjög erfitt með
að skilja þetta. A leigumarkaðnum
gildir frumskógarlögmál og allir,
sem til þekkja eða vilja vita um
málið, vita að löggjöf hefur á engan
hátt dugað til að tryggja leigjend-
um öryggi. Stærstu árgangar ís-
landssögunnar eru að koma á hús-
næðismarkaðinn og því á róðurinn
enn eftir að þyngjast - ef ekki verð-
ur leitað nýrra leiða. Húsnæðis-
samvinnufélög eru ný leið og tví-
mælalaust góður kostur“.
Leiguíbúðir með
öryggi séreignarinnar
En hvað fela húsnæðissamvinnu-
félög í sér?
„Tilgangur Búseta er að byggja
húsnæði, sem félagsmenn eiga og
reka í sameiningu", sagði Reynir
Ingibjartsson. „Þetta húsnæðis-
form er eins og hvert annað sam-
vinnufélag.
Búseturéttur felur í sér lög-
verndaðan, ótímabundinn rétt,
sem búseti kaupir sér með ákveðnu
framlagi. Þessi réttur erfist til maka
og afkomenda, rétt eins og sér-
eignin. Búseturétturinn veitir einn-
ig frjálsari hendur um breytingar
og lagfæringu á húsnæði heldur en
hefðbundinn leiguréttur, og búset-
urétturinn veitir forgang að annarri
íbúð eða húsnæði á vegum húsnæð-
issamvinnufélaga, ef fjölskyldu-
stærð breytist.
Búseturétturinn er á engan hátt
Búseturéttarformið byggist á
því, að íbúár eignast ákveðinn
eignarhluta í upphafi með búsetu-
réttarframlagi sínu. Gegn þessu
framlagi tryggir íbúinn sér húsnæði
meðan hann þarf á því að halda.
Eignarhlutinn vex hins vegar ekki
þann tíma, sem fbúinn er í húsnæð-
inu. En fjármagnskostnaðurinn,
afborganir af lánum sem félagið
tekur, dreifist á langt tímabil. Það
kæmi hugsanlega til greina, að á
móti afskriftum húsnæðisins kæmi
lægri fjármagnskostnaður hjá þeim
sem búið hefur í íbúð með búsetu-
rétti einhvern tíma heldur en hjá
þeim sem nýkominn er í slíkt hús-
næði.
Með því að borga fyrir búsetu-
réttinn er viðkomandi í raun að
taka upp húsnæði hjá félaginu allan
þann tíma, sem honum eða henni
þóknast. Síðan má ekki gleyma
því, að félagið eru félagsmennirnir
og þeir eiga það í sameiningu. f
húsnæðissamvinnufélagi leigir fólk
eða býr hjá sjálfu sér.
Ef fólk vill byggja eða kaupa
húsnæði á eigin vegum á því að
sjálfsögðu að vera heimilt að gera
slíkt. Ef fólk getur ekki byggt sjálft
eða keypt eða ef það vill eyða sín-
um tíma og fjármagni í annað, ætti
það að eiga öruggan valkost. Sá
valkostur er hins vegar ekki til í
þjóðfélaginu nú. Úr þessu geta
húsnæðissamvinnufélögin tví-
mælalaust bætt“.
Skuggaleg framtíð
í húsnœðismálum
Reynir Ingibjartsson er ekki
bjartsýnn á þróun mála á húsnæð-
ismarkaðnum hér á landi, fremur
en aðrir sem kynnt hafa sér þau
mál.
„Nú stefnir í það, að ef ekki
kemur til víðtæk félagsleg lausn í
húsnæðismálum leysast þau með
því að stórar íbúðir verða hólfaðar
niður. Alls kyns meira og minna
óhentugt atvinnuhúsnæði verður
tekið undir smáíbúðir, svo sem
Hamarshúsið, þar sem engin lóð
eða aðstaða utandyra fylgir. Nýj-
asta dæmið af því tagi er tillaga
Eyjólfs Konráðs Jónssonar á þingi
um að taka útvarpshúsið nýja og
hólfa það niður í íbúðarhúsnæði.
Blómaskeið ólöglegra íbúða á
hanabjálkum og í kjallaraholum er
aftur að renna í garð. Þetta er
ástand, sem maður hélt að tilheyrði
löngu liðnum tíma. En þessi þróun
er þegar hafin.
Auðvitað ætti það að vera mark-
mið hvers sveitarfélags í landinu
sem vill þjóna sínum íbúum vel, að
tryggja öllum öruggt húsnæði.
Yfirvöld á höfuðborgarsvæðinu
hafa hins vegar' kosið að láta hverj-
um og einum það eftir að bjarga sér
sem best hann getur. Öflugt hús-
næðissamvinnufélag þjónar ekki
síst hagsmunum viðkomandi sveit-
arfélags, því það leysir sveitarfé-
lagið á vissan hátt undan þessari
skyldu“.
Búsparnaður
En hvernig ætlið þið að brúa bil-
ið á milli þess sem fólk borgar og
þess sem opinber lán veita?
„Við höfum átt í viðræðum við
bankastofnanir um að brúa þetta
bil, sem væntanlega verður um 15
prósent af byggingarkostnaði að
því gefnu að Byggingarsjóður
verkamanna veiti 80 prósent og
búseturétturinn verði 5 prósent af
byggingarkostnaði. Lengst eru
þessar viðræður komnar við Al-
þýðubankann.
Við höfum rætt um að koma á fót
sem allra fyrst frjálsum sparnaði fé-
lagsmanna til að byrja með og í
öðru lagi að taka upp beinan spam-
að fyrir búseturéttinum. Þá hafa
einnig verið kannaðir möguleikar á
því að á móti þessum spamaði
komi lán frá bankanum og hugsan-
lega einnig frá lífeyrissjóðum í
tengslum við bankann.
Fiskur í tómatsósu
Sósan er soðin fyrst og síðan er
fiskurinn soðinn í sósunni.
300 g af ýsu eða þorski (handa 2)
1 sítróna
lítil dós af niðursoðnum tómötum
1 laukur
1 hvítlauksgeiri
salt og pipar
Skerið fiskinn í sneiðar, stráið
yfir Vi tsk. af salti og hellið
sítrónusafa yfir. Bræðið 1 msk af
smjörlíki á pönnu og mýkið
laukinn og marðan hvítlauksgei-
rann. Stráið útá IV2 msk. af hveiti
og hrærið vel. Bætið því næst útí
dálitlum svörtum pipar, V2 tsk. af
tímían og tómötunum ásamt saf-
anum. Hrærið og sjóðið í 5 mín-
útur. Þá er fiskurinn látinn í sós-
una og soðið áfram undir loki í
ca. 10 mínútur. Skreytið með
steinselju. Snætt með hrísgrjón-
um eða kartöflum.
isfrumvarp ríkisstjórnarinnar yrði
að lögum“, sagði Reynir aðspurður
um lánamöguleika Búseta skv.
húsnæðisfrumvarpinu, sem nú er
verið að ræða á Alþingi.
„Nú má heita tryggt að húsnæð-
isfrumvarpið verði að lögum í
rsirri mynd sem það var lagt fram.
frumvarpinu er sú nýjung, að fé-
lagasamtök, sem vilja byggja leigu-
íbúðir fyrir sína félagsmenn, t.d. af
samtökum leigjenda, stúdenta eða
af verkalýðsfélögunum, geta feng-
ið lán úr Byggingarsjóði verka-
manna, eins og sveitarfélögin fá nú
þegar til byggingar á leiguhúsnæði.
Félagsmálaráðherra hefur lagt á
það áherslu frá upphafi, að hús-
næðissamvinnufélög falli undir
þetta ákvæði í frumvarpinu. Hann
hefur ítrekað þetta m.a. við at-
kvæðagreiðslu um frumvarpið í
neðri deild Alþingis.
Við hefðum að sjálfsögðu kosið,
að inn í frumvarpið kæmu ótví-
ræðari ákvæði um húsnæðissam-
vinnuftlög. En við treystum því, að
stjórnvöld muni fara eftir
ákvæðum þessara laga. Það er hins
vegar brýnt, að strax verði hafist
handa um setningu sérstakrar lög-
gjafar um búseturétt og húsnæðis-
samvinnufélög í beinu framhaldi af
þessum nýju húsnæðislögum.
Við umræðu og afgreiðslu í neðri
deild Alþingis um frumvarpið kom
fram mjög ótvíræður stuðningur
við húsnæðissamvinnufélög og
talsmenn minnihlutans fluttu sér-
stakar breytingartillögur, sem enn
frekar tryggðu rétt húsnæðissam-
vinnufélaga. Reyndar snerist af-
greiðsla húsnæðisfrumvarpsins
mest um Búseta og tilraun tals-
manns Sjálfstæðisflokksins, Hall-
dórs Blöndals, til að útiloka hús-
næðissamvinnufélög frá Bygging-
arsjóði verkamanna, mistókst.
Fyrir þennan stuðning erum við að
sjálfsögðu þakklát.
Næstu mál á dagskrá hjá okkur,
nú þegar afgreiðsla frumvarpsins
er nokkum veginn ljós, er að hefja
lóðaumræður við borgaryfirvöld
og leita leiða í fjármögnun", sagði
Reynir Ingibjartsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta í Reykjavík
og nágrenni, að lokum.
ast