Þjóðviljinn - 08.05.1984, Síða 10

Þjóðviljinn - 08.05.1984, Síða 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVJLJJ.NNiÞriðjudagur 8. maí 1984 Námíuppen Ákveöið hefur verið að auk reglulegs vetrar- náms í ofangreindri kennslugrein við félags- vísindadeild verði gefinn kostur á að stunda námið að hluta að sumarlagi. Sumarið 1984 verða eftirtalin námskeið kennd: Þroski barna og unglinga (5 ein.). Nám og námsáhugi (5 ein.). Hagnýt kennslu- fræði (að hluta). Auk þess verða kennsluæf- ingar skipulagðar. Kennt verður 13. júní til 20. júlí. Próf fara fram með haustprófum háskólans um mánaðamótin agúst - september. Nám þetta er ætlað þeim sem þegar hafa lokið háskólaprófi eða eru í háskólanámi. Skrásetning fer fram í aðalskrifstofu há- skólans kl. 9-12og 13-16dagana21.-25. maí n.k. og þar fást umsóknareyðublöð. Skrásetningargjald er kr. 1600,- og gildir skráningin einnig fyrir næsta vetur. Náms- keiðaskráning fer fram í nemandaskrá há- skólans sömu daga. Nánari upplýsingar veitir Gerður G. Óskars- dóttir dagana 7. til 11. maí kl. 13 - 14 í síma (91) 17717. Háskóli íslands Skrásetning stúdenta til náms á 1. námsári í Háskóla íslands háskólaárið 1984 - 85 fer fram frá föstudegi 1. júní til föstudags 13. júlí 1984. Umsókn um skrásetningu skal fylgja staðfest Ijósrit eða eftirrit af stúdentsprófsskírteini og skrásetningargjald sem er kr. 1600.-. Skrá- setning ferfram í aðalskrifstofu háskólans kl. 9 -12 og 13 -16 og þar fást umsóknareyðu- blöð. Athugið lengingu á skrásetningartíma- bili. Háskóli íslands LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ Tókum að okkur að þétta sprungur i steinvegjum, lógum alkaJískemmdir, þéttum og ryðverjum gómul bárujárnsþök. Hófum háþróuð amerisk þéttiefni frá RPM 11 ára reynsia á efnunum hér á landi. Gerum föst verðtilboð yður að kostnaðarlausu án skuldbindinga af yðar hálfu. Staða byggingafulltrúa í Stykkishólmi Auglýst er eftir byggingaverkfræðingi eða byggingatæknifræðingi í stöðu byggingafull- trúans í Stykkishólmi. Allar upplýsingar veitir undirritaður í síma 92- 8136 og 93-8274. Umsóknir skal senda undirrituðum fyrir 20. maí. Sveitarstjórinn í Stykkishólmi Móöir okkar tengdamóöir og amma, Margrét Ottósdóttir Hringbraut 97, andaöist í Borgarspítalanum þann 4. maí. Sprungu- UppJýsingar I simum {91) 66709 & 24579 þétting Már Ársælsson Hrafnkell Ársælsson Snorri Ársælsson og barnabörn Lilja Krjstjánsdóttir Svava Ágústsdóttir Hjördís Hjörleifsdóttir Patreksfirðingar hyggja nú á rækjuvinnslu. S A víð og dreif í eftirfarandi pistlum er sagt frá votheysturnasmíði í Gnúpverjahreppi, refafóður- stöð á Selfossi, rækju- vinnslu á Patreksfirði, Félagi aldraðra á Akureyri og tölvu- eyðublaðaprentun þar í bæ, ályktun um álver við Eyjafj- örð, nýjum báti á Djúpavogi, væntanlegri sölusýningu á Kálfafellsstað og vegafram- kvæmdum í Þingeýjarsýsl- um. V othey sturnasmí ði í Gnúpverjahreppi Austur í Gnúpverjahreppi er fyrirtæki sem nefnist Stálafl/ Rafafl, eöa öllu heldur ein deild þess. Fyrirtækiö framleiðir vot- heysturna úr stáli. Eru turnarnir staðlaðir. Hægt er að fá staka turna og einnig tvo samstæða. Þeir eru með losunarbúnaði, hlaupaketti og krabba, en einnig er hægt að fá búnað með þeim frá SÍS. Stöku turnarnir kosta 700 þús. kr. en þeir samstæðu 900 þús. Turnarnir eru hannaðir í samráði við Verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsen. Ekki skortir Stálafl verkefni. Unnið er hér og þar hjá bændum og svo hefur verið unnið við endur- byggingu Graskögglaverksmiðj- unnar í Gunnarsholti. Deildin í Gnúpverjahreppi er með 8 menn í vinnu en alls starfa um 50 menn hjá fyrirtækinu. Fóðurstöð á Selfossi Refaræktarbændur eru nú smátt og smátt að koma sér upp fóður- stöðvum. Um eina slíka eru Sunn- lendingar að sameinast og er líklegt að hún verði byggð á Selfossi. Mikið veltur á að samsetning fóð- ursins sé rétt og getur á miklu riðið að út af því bregði ekki. Bændur hafa til þessa gert nokkuð að því að blanda fóðrið sjálfir, enda ekki um annað að gera á meðan ekki nær til fóðurstöðva. Þær eru á hinn bóginn án alls efa það, sem koma skal. Rækjuvinnsla á Patreksfírði Það munu nú orðin ein 30 - 40 ár síðan rækjuvinnsla var síðast stunduð á Patreksfirði. En nú hafa Patreksfirðingar hug á að taka upp þann þráð á ný. Það er Vatneyri hf., sem þarna hyggst ríða á vaðið og hefja rækjuvinnslu í sumar, ef guð lofar. Hlutafélagið Vatneyri var stofn- að í okt. í fyrra. Hluthafar eru út- gerðarmenn, sjómenn, iðnaðar- menn o.fl. Félagið keypti frystihús Skjaldar, en það var í eigu Byggða- sjóðs og hefur nú verið unnið að endurbótum á því. Stefnt er að samvinnu við Grænlendinga og einnig vinnslu á Rússarækju. Á- formað er að 5 - 6 10 - 15 tonna bátar leggi upp hjá Vatneyri hf. og svo Jón Þórðarson, 200 tonna bát- ur, en hann landaði á ísafirði í fyrra. Félag aldraðra á Akureyri starfar af mikilli atorku. Félags- menn þess eru 463 og formaður er Jón G. Sólnes. Félagið stóð fyrir „opnu húsi“ því nær aðra hverja viku á sl. ári, efndi til ferðar vestur að Laugum í Sælingsdal þar sem bækistöð var höfð um sinn og ferð- ast um nágrannabyggðir. Tvær ferðir eru ráðgerðar í sumar, önnur austur, hin vestur. Verkalýðsfélögin afhentu fé- laginu að gjöf Alþýðuhúsið og íbúðarhús í nánd við það. Er nú búið að tengja þau saman með sérstakri byggingu og íbúðarhúsið verður innréttað að nýju. Þarna mun fara fram námskeiðahald á vegum félagsins, og svo hefur Fé- lagsmálastofnun verið með nám- skeið í húsinu tvisvar í viku. Mikil verkefni eru framundan við endur- bætur á húsakostinum. Auk þess stefnir félagið að því að koma upp íbúðum fyrir aldraða og er ekki ósennilegt að byggingafélag verði stofnað síðar á árinu. Auk Jóns G. Sólness skipa stjórn félagsins þau Erlingur Davíðsson, Ragnar Olason, Stefán Reykjalín og Júdit Jónbjörnsdóttir. Eyðublöð fyrir tölvur Framundir þetta hefur ekki ver- ið hægt að fá prentuð eyðublöð fyrir tölvur nema í sjálfri Reykja- vík. Nú hefur orðið breyting á því. Prentsmiðja Björns Jónssonar á Akureyri - en eigendur hennar frá síðustu áramótum eru þeir Halldór Hauksson og Ragnar Ragnarsson - hefur nú hafið prentun á slíkum blöðum. Stefna þeir að því að geta þjónað öllu Norðurlandi að þessu leyti. Finnst okkur dreifbýlis- mönnum það alltaf horfa til fram- fara ef eitthvað fækkar því, sem sækja þarf suður. Reynt verður að afgreiða pantanir samdægurs. Hægt verður að fá hjá þeim fé- lögum allan standard pappír, nót- uform, reikninga, launaseðla o.s.frv. Ályktað um álver Á aðalfundi Búnaðarfélags Saurbæjarhrepps var m.a. rætt um hugsanlega byggingu álvers við Eyjafjörð. Samþykkti fundurinn samhljóða eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur Búnaðarfélags Saurbæjarhrepps, haldinn að Sól- garði 15. mars 1984 telur að ekki skuli hafin bygging stóriðjuvers við Eyjafjörð nema öruggt sé að starf- ræksla þessi valdi engum skaða á lífríki héraðsins“. í greinargerð með tillögunnni segir: „Allar líkur benda til að stað- háttum og veðurfari hér í Eyjafirði sé þannig háttað, að mengunar- hætta sé mjög mikil, einkum vegna lítillar úrkomu á svæðinu. Augljóst er hvaða tjóni mengun gæti valdið hér í einu besta landbúnaðarhéraði landsins. Má í því sambandi benda á umsögn norskra bænda, er búa í nánd við slík iðjuver". Nýr báturtil Djúpavogs Fyrir nokkru bættist Djúpavogs- búum nýr bátur í flotann. Er það 215 lesta nýyfirbyggður bátur, Stjörnutindur, keyptur frá Kefla- vík og smíðaður 1967. Eigandi bátsins er Búlandstindur hf. en hann á nú þrjú skip. Skipstjóri á Stjörnutindi er Sig- urður Ingimarsson en öll áhöfnin frá Djúpavogi. Ætlunin er að bát- urinn stundi fyrst og fremst út- hafsrækjuveiðar en rækjuvinnsla hefst nú á Djúpavogi á ný eftir 13 - 14 ára hlé. Sölusýning á Kálfafellsstað Á bændafundi í A- Skaftafellssýslu braut frú Beta Ein- arsdóttir upp á þeirri hugmynd að efna til sölusýningar á heimilisiðn- aði sýslubúa. Og ekki situr við orð- in tóm. í sumar hyggst frú Beta koma á fót sölusýningu í kjallaran- um í íbúðarhúsinu á Kálfafellsstað. Teknir verða í umboðssölu hvers- konar handunnir munir jafnt frá konum sem körlum, ullarvörur allskonar, skrautmunir úr beinum og steinum, trej keramik o.s.frv. Hugmynd þessari skaut upp hjá frú Betu á ferðalagi í Svíþjóð. Þá sá hún svona sýningu, sem komið hafði verið upp í gamalli hlöðu. Og því skyldi það þá ekki líka vera hægt í kjallaranum á Kálfafells- stað? Þeir, sem áhuga hafa á að koma munum sínum þarna á framfæri ættu að hafa samband við frú Betu sem fyrst. Vegaframkvæmdir í Þingeyjarsýslum Af áætluðum vegaframkvæmd- um í Þingeyjarsýslum á þessu ári er þetta að segja: Á Norðurlandsvegi í Ljósavatns- skarði er gert ráð fyrir að lagður verði 1.6 km. langur kafli frá Steinholti að Sigríðarstöðum og 600 m. kafli frá Kambsbrú að Stór- utjörnum. Á Norðausturvegi verð- ur boðinn út 3ja km. langur kafli frá Víðivöllum að Fnjóskárbrú. Bundið slitlag verður lagt á kaflann frá Víðivöllum og upp á austurbrún Víkurskarðs. Lagður verður 1500 m. langur kafli á Grenivíkurvegi hjá Fagrabæ og lagfærður 1400 m. langur kafli frá Vaðlaheiðarvegi að Skógargerði. Bundið slitlag verður lagt á 4 km í Ljósavatnsskarði frá Fornhólum að Sigríðarstaðamel- um og frá Kambsá að Stórutjarnar- skóla. Einnig á um 1700 m. langan kafla milli Laxár og Laxamýrar. Þá verður 7 km. langur kafli frá Hálsi og langdrægt að Árlandi búinn undir og iagður bundnu slitlagi. Lögð verður seinni klæðning á 2.7 km. langan vegarkafla á Sval- barðsstrandarvegi, 2,9 km. í Ljósa- vatnsskarði og á 3,5 km. kafla vest- an Skjálfandafljóts. Slitlag verður lagt á 10 km. kafla á Melrakka- sléttu norðan og vestan Raufar- hafnar, gengið frá og lagt slitlag á 8 km. kafla á Ytri-Hálsum. Smíðað- ar verða brýr á Laxá og Hölkná í N-Þingeyjarsýslu og brýrnar tengdar með 1300 m. löngum veg- arkafla. Aðalfundur K.S. Aðalfundur Kaupfélags Skag- firðinga fyrir árið 1983 var haldinn að Sauðárkróki 17. apríl sl. Formaður félagsstjórnar, Gunn- ar Oddsson bóndi í Flatatungu, setti fundinn, flutti skýrslu um störf stjórnar á árinu og greindi frá fjár- festingum félagsins, sem voru með mesta móti eða rúmlega 54 milj. kr. Munaði þar mestu um byggingu á höfuðstöðvum félagsins, en þar opnaði það nýja verslun og tók þar með í notkun mikinn hluta hússins. Var sú framkvæmd aðkallandi orð- in því verslanir félagsins á Sauðár- króki voru flestar í lélegum húsum. í skýrslu kaupfélagsstjórans, Ólafs Friðrikssonar, kom fram að heildarvelta félagsins hafði aukist milli ára um 69% og varð, að með- talinni veltu Fiskiðjunnar rúmlega 706 milj. kr. Rekstrarafgangur skv. rekstrar- uppgjöri sýnir tekjuafgang að upp- hæð rúmar 1300 þús. kr. eftir að eignir höfðu verið afskrifaðar fyrir tæpar 10 milj. - mhg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.