Þjóðviljinn - 08.05.1984, Síða 11

Þjóðviljinn - 08.05.1984, Síða 11
Þriðjudagur 8. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Volvoumboðið á Islandi Auglýsing Annað elsta í heiminum! Volvoumboöið á íslandi er stofnað árið 1929 og er því hvorki meira né minna en ann- að elsta Volvoumboðið í heiminum. Allargötursíðan hefur Volvo ekið um vegi lands- ins og sigrast á hverri torfær- unniáfæturannarri. Núerum- boðið nefnt Veltir hf. og telur 70 manna starfslið en þess má geta að starfsmannafjöldinn var 15 þegar fyrirtækið var stofnaðhérálandi. Nú eru í landinu 6115 fólksbílar af Volvogerð, 96o vörubílar, 90 langferðabílar og 266 Lapp- landerar. Starfsemi fyrirtækis- ins spannar allt landið og auk starfsmannanna 70 í Reykjavík hefur umboðið á sínum snær- um 19 umboðsmenn um land allt til að tryggja Volvoeigend- um góða og örugga þjónustu hvar sem er, enda má segja að einkunnarprð Volvo frá upphafi hafi verið:Öryggi. Sænsku Volvo-verksmiðjurnar hafa nú sett á markaðinn nýja gerð Volvo-fólksbifreða. Ber nýi bíllinn tegundarheitið Volvo 740 GLE og svipar að útliti töluvert til Volvo 760 bifreiðarinnar sem kom á markaðinn fyrir rösklega tveimur árum og vakti þá þegar mjög mikla athygli. Volvo 740 er glæsileg en jafnframt sparneytin og rúmgóð fjölskyldubifreið og er ekki að efa að hún mun öðlast skjótar vinsæld- ir ekki síður en Volvo 760 GLE sem segja má að hafi farið sigurför víða um lönd og ekki hvað síst í Bandaríkjunum þar sem hún náði þegar góðri sölu. I Volvo 740 GLE koma fram fjölmargar nýjungar sem miða að því marki að auka endingartíma bifreiðanna og gera þær öruggari í akstri. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið af hlut- lausum aðilum í Svíþjóð er nú meðalending Volvo-bifreiða meiri en nokkurrar annarrar bifreiðateg- undar og er talin vera 20.7 ár. Hef- ur endingartími Volvo-bifreiðanna aukist jafnt og þétt á sama tíma og endingartími annarra bifreiðateg- unda hefur ýmist aukist lítillega eða staðið í stað. Við framleiðslu á Volvo 740 GLE hafa verið reyndar ýmsar nýjar leiðir til þess að verjast því sem kalla má helsta óvin bifr- eiðanna, þ.e. ryðinu, og auk þess hefur sérstaklega verið hugsað fyrir öryggi farþega og ökumanna og þar farnar nýjar leiðir. Er það raunar ekkert nýtt að Volvo- verksmiðjurnar hafi forystu á því sviði, þar sem öryggi hefur löngum verið eitt af aðalsmerkjum verk- smiðjanna og þær um langt skeið lagt stund á kostnaðarsamar rann- sóknir í því skyni að gera bifreið- arnar sem öruggastar og tryggja að ökumaður og farþegar sleppi sem best verði bifreiðarnar fyrir óhöpp- um í umferðinni. Má geta þess að víða um lönd eru gerðar strangar kröfur í þessum efnum og sérstök rannsókn fer þar fram áður en sala þeirra er leyfð og hafa Volvo- bifreiðarnar jafnan komið sérstak- lega vel út úr slíkum rannsóknum og haft öryggis-„stuðul“ sem er langt fyrir ofan þær kröfur sem gerðar eru. Má geta þess til gamans að meðan á hönnun Volvo 740 GLE-bifreiðarinnar stóð voru um 80 bifreiðar eyðilagðar við árekstr- artilraunir í sérdeild verksmiðj- anna þar sem rannsóknir á þessu sviði fara fram. Geta má þess að 28% málmsins sem notaður hefur verið í Volvo 740 GLE-bifreiðarnar hefur verið meðhöndlaður á sérstakan hátt. Er þar um að ræða svokallaða „Zincrometal" meðferð, sem er í raun og veru „heit galvesering“ en með þessu á að tryggja að ryð myndist síður í málminum. Hafa viðamiklar tilraunir farið fram hjá Volvo-verksmiðjunum á þessari aðferð og reynsla þeirra leitt mjög jákvæðar niðurstöður í ljós. Þá hafa sflsar bifreiðanna verið sér- staklega styrktir og ryðvarðir á sér- stakan hátt og hið sama má segja með allra lægstu hluta bifreiðarinn- ar en við þá styrkingu hafa verið m.a. notuð „polyster" efni sem ryðja sér nú æ meira rúms í bifr- eiðaiðnaðinum. Alkunna er að bretti bifreiða vilja oft ryðga innanfrá og er oft erfitt við að ráða. Hafa Volvo- verksmiðjurnar lagt á það áherslu að reyna að verja innri brettin vel og forðast það að blaut óhreinindi geti sest þar milli laga, en út frá slíku byrjar oft ryðið í brettunum. Því hafa Volvo-verksmiðjurnar nú í allmörg ár haft sérstaktaf plast- hlífar í frambrettum, eins konar innri bretti. Sérstök áhersla er einnig lögð á ryðvörn á við- kvæmum stöðum bifreiðarinnar og má geta þess að sérstöku úðunar- efni sem hindrar ryðmyndun er sprautað sérstaklega á um 60 staði bifreiðarinnar. Einnig er notuð sérstök vörn á undirvagn bifreiðar- innar og hafa tilraunir sýnt að hún gefur mjög góða raun í baráttunni við ryðið. Þá má einnig geta þess að vaxefni eru notuð undir krómhlífar og krómlista á bifreiðunum, en oft hefur verið erfitt að hemja ryð- myndun út frá slíku skrauti. Þegar bifreiðaverksmiðja eins ogt.d. Volvo-verksmiðjurnarsetja nýja gerð bifreiða á markaðinn býr gífurleg undirbúningsvinna að baki. Jan Wilsgaard sem stjórnar hönnunardeild Volvo-verksmiðj- unnar hefur t.d. látið hafa það eftir sér að það geti liðið allt að 40 árum frá því að bifreið kemur fyrst á teikniborð hönnuðanna og þangað til að hún verður loks fullbúin. All- an þann tíma þurfa hönnuðirnir að halda vöku sinni. Fylgjast náið með breytingum sem verða, fella þær að hugmyndum sínum og reyna jafnframt að skapa eitthvað nýtt. Sem dæmi um undirbúnings- vinnuna að Volvo 740 og 760 bifr- eiðunum má nefna að hún hófst að marki árið 1975 og voru þá gerðar 50 teikningar í hönnunardeild verksmiðjanna og margar þeirra byggðar á hugmyndum sem búið var að vinna að um langt árabil. Þegar teikningarnar 50 lágu fyrir fóru þær í gegnum sannkallaðan hreinsunareld jjar sem farið var yfir hvert smáatriði og reynt að velja það besta. Smátt og smátt fækkaði teikningunum en að lokum voru 12 þær bestu teknar og fullunnar. í framhaldi að því var farið að svara ýmsum spurningum um framtíðarbifreiðina - hversu mikið rými þyrfti fyrir vélina, hversu far- angursgeymslan ætti að vera stór, hvernig einstakir hlutir bifreiðar- innar ættu að líta út og úr hverju þeir væru gerðir. Hugmyndirnar voru mótaðar í samvinnu við tæknimenn verksmiðjanna og það var ekki fyrr en á árinu 1977 eða tveimur árum eftir að hönnunin hófst af krafti að meginlínurnar um stærð og útlit bifreiðanna höfðu verið lagðar. Síðan var tekið til við nákvæma útfærslu og tilraunasmíði og nú tæpum áratug síðar liggur árangurinn fyrir: Volvo 740 GLE sem telja má sannkallaðan glæsi- vagn og tákn þess hugvits og tækni- vinnu sem í bifreiðina hefur verið lögð. Nýr fólksbíll á markaðinn - Volvo 740 Öryggi hefur alla tíð verlð kjörorð Volvo, enda hefur hln sænska bifrelðaverksmlðja komlð fram með fjölmargar nýjungar varðandi öryggi farþega og ökumanns. Volvo 360 sedan er rúmgóð og traust 5 manna fjölskyldubifreið með framúrskarandi aksturs- eiginleika og sérstaklega styrktu ökumanns- og farþegarými. Volvo 360 er búinn 92 Din hestafla bensínvél með blöndungi og forstilitri rafeindakveikju. Gírkassinn er 5 girar áfram, þar af skilar 5. gírlnn um 20% yfirsnúningi. Volvo 740 GLE er hluti af nýrri kynslóð bifreiða, með meiri snerpu, rúmbetri og þægilegri. Aksturseiginleikar sem uppfylla ströngustu kröfur og stöðugur svo af ber. Volvo 740 GLE er 5 manna bifreið, búinn 129 Din hestafla bensínvél með Cl innspýtingu og rafeindakveikju. Gír- kassinn er sjálfskiptur 4ra gtra og þar af skilar fjórði gírinn um 30% yfirsnúningi. Annars venjulegur búnaður er vökvastýri og miðlæstar hurðir (Centrallás). Volo 240 GL er hin trausta og endingargóða 5 manna fjölskylubifreið. Bifreiðin er þekkt fyrir að vera sérstaklega örugg t umferðaróhöppum, hefur sist verið slakað á í þeim efnum. Volvo 240 GL er búinn 112 Din hestafla bensínvél með blöndungi og er búinn aflstýri (vökvastýri). Gírkassinn er sjálfskiptur 4ra gíra og þar af skilar fjórði gírinn um 30% yfirsnúningi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.