Þjóðviljinn - 08.05.1984, Side 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. mal 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Munið
vorhappdrættið!
Dregið 10. maí!
Gerið skil
sem fyrst!
Stjórn ABR.
Aðalfundur 3. deildar ABR
Laugarnes- og Langholtsdeild
Aðalfundur 3. deildar ABR verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 20.30
í flokksmiðstöðinni, að Hverfisgötu 105. - Stjórn 3. deildar.
Aðalfundur 4. deildar ABR
Grensásdeild
Aðalfundur 4. deildar ABR verður haldinn fimmtudaginn 10. maí kl.
20.30 að Hverfisgötu 105. - Stjórn 4. deiidar.
Aðalfundur 5. deildar ABR
Breiðholtsdeild
Stjórn 5. deildar ABR boðar til aðalfundar í deildinni miðvikudaginn 9.
maí kl. 20.30 í Gerðubergi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Svavar Gestsson kemur á fundinn og ræðir stjórnmálaástandið. 3.
önnur mál. Fjölmennum. - Stjórn 5. deildar.
Alþýðubandalagið í Borgarnesi
Skírnarhátíð
Óskabarnið okkar að Brákarbraut 3 hefur staðið nafnlaust of lengi, og
er nú mál að linni. Föstudaginn 11. maí verður haldin vegleg skirnar-
hátíð íhúsinu og hefst hún kl. 21. Góðarveitingarverðafram bornarog
boðiö uppá fjölbreytt skemmtiefni. Meðal annars leikur nýstofnuð
jasshljómsveit Gunnars Ringsted. Hafið samband í síma 7628 eöa
7506. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið í Borgarnesi.
ABR
Samráðsnefnd í stefnuumræðu
Samráðsnefndarmenn, munið fundinn á fimmtudag, 10. maí kl.
20.30, að Hverfisgötu 105
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsíns
Reggie-kvöld
Föstudaginn 11. maí kl. 20.30 verður minningarkvöld um Bob Marley á
þriggja ára dánarafmæli hans. Jónatan Garðarsson mun kynna tónlist
hans, líf og trú á Jamaica. Allir Reggie-aðdáendur velkomnir á Hverfis-
götu 105 n.k. föstudag. - Nefndin.
Lausar stöður
Ráðgert er að veita á árinu 1984 eftirfarandi rann-
sóknastöður til 1 - 3 ára við Raunvísindastofnun Há-
skólans:
a) 1 stöðu sérfræðings við jarðfræðistofu. Sérfræð-
ingnum er einkum ætlað að starfa að aldurs-
ákvörðun á bergi. Fastráðning kemur til greina í
þessa stöðu.
b) 2 stöður sérfræðinga við reiknifræðistofu. Starfs-
svið reiknifræðistofu er einkum í aðgerðagrein-
ingu, tölfræði, tölulegri greiningu og tölvunarfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Um-
sækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvar-
andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rann-
sóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en
kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu-
lagi milli deildarráðs verkfræði- og raunvísindadeildar
og stjórnar Raunvísindastofnunar og skal þá m.a.
ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu
viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum
um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vík, fyrir 27. maí n.k.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm-
bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um
menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar
skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má
senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið
27. apríl 1984.
Elnn Laugarvatnshópurinn í fyrra framan vlð Héraðsskólann.
Fjölskyldubúðir Alþýðubandalagsins
Ertu með á Laugarvatn?
Ertu með á Laugarvatn í júlí?
Þar verður Alþýðubandalagið með
sumarfrí og samveru í þrjár vikur,
og er rúm fyrir 80 manns í hverja
vikudvöl.
1. vika: 9. júlí til 15. júlí,
2. vika: 16. júlí til 22. júlí,
3. vika: 23. júlí til 29. júlí.
Vikudvöl að Laugarvatni i
sumar kostar: Fyrir börn að 6 ára
aldri kr. 600, fyrir börn 6-11 ára kr.
2.400 og fyrir 12 ára og eldri kr.
3.950. Innifalið í verðinu er fullt
fæði, gisting í 2-3ja manna her-
bergjum, tvær ferðir í sund og guf-
ubað og þátttaka í öllu fræðslu- og
skemmtistarfi sem fram fer á staðn-
um. Innifalin er einnig barnagæsla
fyrir yngstu börnin.
Minnt er á að íþróttasvæði,
hestaleiga, bátaleiga, silungsveiði,
gufubað, sundlaug og fallegar
gönguleiðir eru við hendina á
Laugarvatni og þar þarf enginn að
láta sér leiðast á besta tíma sumars-
ins.
Tekið er á móti pöntunum á
skrifstofu Alþýðubandalagsins,
Hverfisgötu 105, og í síma 17500.
Nauðsynlegt er að staðfesta
pöntun með innágreiðslu fyrir 1.
júní n.k.
Handlæknastöðin
- nýtt fyrirtœki í heilbrigðisþjónustu
Vlft aðgerð ( háls-, nef- og eyrnaaðgerðastofu. Slghvatur Snæbjörnsson,
svæflngalæknir, Elnar Thorddsen, háls-, nef og eyrnalæknlr og Guðrún
Aradóttir, skurðstofuhjúkrunarfræðlngur.
Heilbrigöisráðherra, Matthías
Bjarnason, gaf hinn 30. mars
s.l. út leyfi fyrir Handlækna-
stöðina í Glæsibæ í Reykjavík,
til rekstursskurðstofu, þarsem
gerðar eru margs konar að-
gerðir, speglanir og skurðað-
gerðir, sem ekki krefjast inn-
lagnar sjúklinga á spítala.
Handlæknastöðin er hlutafélag
og við hana starfa 5 háls-, nef-
og eyrnalæknar, 3 svæfingarl-
æknar, 4 kvensjúkdómalæknar
auk sérfræðinga í augnlækni-
ngum, almennum skurðlækni-
ngum, barnaskurðlækningum,
bæklunarskurðlækningum og
lýtalækningum. Þá starfavið
stöðina skurðstofudeildarstjóri,
2 hjúkrunarfræðingar, einn
sjúkraliði og gangastúlka.
Aðgerðir þær sem framkvæmdar
eru í Handlæknastöðinni hafa fram
að þessu verið að miklu leyti gerðar
á spítölum og sjúklingar lagðir
þangað inn um hríð. Hér er því um
verulegan sparnað fyrir heilbrigði-
skerfið í landinu. Skurðstofur eru
þrjár og er tækjakostur stöðvarinn-
ar miðaður við að standast ítrustu
kröfur opinberra aðila um öryggi
og gæði, bæði er varðar sjúklinga
og starfsfólk. í tengslum við
skurðstofurnar eru uppvöknunar-
herbergi, útbúin nauðsynlégum ör-
yggistækjum, þar sem sjúklingar
jafna sig að lokinni aðgerð, svo og
biðstofa fyrir aðstandendur, auk
móttöku.
Innréttingar í Handlæknastöð-
inni og búnaður, auk breytinga
sem nauðsynlegt var að gera á
húsnæðinu kostaði um 5 milljónir
króna. Vegna aðgerðar sem fram-
kvæmd er í Handlæknastöðinni
greiðir tryggingakerfið 3.400 krón-
ur til stöðvarinnar. Sjúklingur
greiðir 100 krónur til hvors lækn-
anna, þ.e. svæfingarlæknis og
skurðlæknis, auk efniskostnaðar
sem er 1.200 krónur. Alls kostar
því aðgerðin 4.800 krónur. Efnis-
kostnaður er þó mjög mismunandi
eftir aðgerðum og allt niður í 100
krónur.
Handlæknastöðin skipuleggur
sérstaka vaktþjónustu í tengslum
við aðgerðir, og geta sjúklingar
ávallt náð sambandi við lækni eftir
aðgerðir, ef vandamál koma upp
eftir að heim er komið.
Konur í nýju landsnámi
Kvennalist
- Leiðrétting
í grein um Kvennalist á Keldna-
holti í blaðinu um helgina misrituð-
ust í myndatexta nöfn tveggja lista-
kvenna. Rétt er að listaverk eftir
Eyborgu Guðmundsdóttur,
Rannveigu Jónsdóttur, Nínu
Tryggvadóttur og fleiri konur
prýða veggi kaffistofunnar. -jp
„Konur í nýju landnámi“ var
viðfangsefni Vorvöku 1984 á veg-
um Kvenfélagasambandsins er
haldin var í Gerðubergi í Reykjavík
fyrir nokkru. Milli 60 og 70 konur
fjölluðu með einhverjum hætti um
það efni, en vökuna sóttu um 300
konur úr flestum byggðarlögum
landsins.
Vakan var haldin á laugardegi og
sunnudegi og var erindaflutningur
fyrri daginn. María Pétursdóttir,
formaður Kvenfélagasambands ís-
lands, flutti setningarávarp og að
því búnu fluttu erindi 20 konur,
sem hafa haslað sér völl á nýjum
starfssviðum og lýstu þær landnámi
sínu í stjórnsýslu, vísindum og
menntun, atvinnuvegum og í list-
um. Á sunnudeginum var tveggja
tíma listadagskrá í Gerðubergi, þar
sem fram komu konur í ýmsum list-
greinum.
Vorkonur Alþýðuleikhússins
voru heimsóttar og farið í heim-
sókn á Kjarvalsstaði. Þá fóru gestir
Vorvökunnar í heimsókn til forseta
íslands, Vigdísar Finnbogadóttur,
að Bessastöðum.