Þjóðviljinn - 16.05.1984, Síða 16
DJOÐVIUINN
Miðvikudagur 16. maí 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
20.652
skrifuðu
undir
Opinberrar rannsóknar krafist á
innflutningi finnsku kartaflnanna
Rúmlega 20.000 manns rituðu
nafn sitt á undirskriftalista
Neytendasamtakanna þar sem þess
var krafist að innflutningur á kart-
öflum yrði gefinn frjáls. Voru Jóni
Helgasyni landbúnaðarráðherra
afhentir undirskriftalistarnir i gær.
Þá var þess og krafist að ríkis-
stjórnin hlutist til um að fram fari
opinber rannsókn á innflutningi
Grænmetisverslunar landbúnaðar-
ins á flnnskum kartöflum og dreif-
ingu þeirra í verslanir.
„Þegar þess er gætt að undir-
skriftalistarnir lágu aðeins frammi í
verslunum frá hádegi á föstudag og
fram á mánudag er ljóst að gífur-
legur fjöldi fólks tekur undir kröfu
Neytendasamtakanna um að inn-
flutningurkartaflna verði frjáls á
þeim tímum þegar innlendir fram-
leiðendur anna ekki eftirspurn-
inni“, sagði Jón Magnússon for-
maður Neytendasamtakanna í við-
tali við Þjóðviljann í gær. „Samtals
skrifuðu 20.652 undir listana og sá
hópur er í raun að krefjast þess að
einokun Sölufélags garðyrkju-
manna og Grænmetisverslunar
landbúnaðarins verði rofin" sagði
Jón ennfremur.
í bréfi sem Steingrími Her-
mannssyni var afhent í gær með
kröfu um opinbera rannsókn á
innflutningi finnsku kartaflnanna
eru spurningar í 12 liðum. Meðal.
annars er spurt um það hver hafi
tekið ákvörðun um innflutning,
Jón Magnússon formaður Neytendasamtakanna afhendlr Jónl Helgasyni landbúnaðarróðherra undlrskrtfta-
llsta með nöfnum rúmlega 20.000 manna. Ljósm. eik.
hver hafi annast skoðun á kartöfl-
unum, hvort seljandi sé ábyrgur,
hver hafi verið umboðsmaður selj-
enda og kaupenda, hver heildsölu-
álagningin hafi verið, hvort ábend-
ingum matsmanna hafi verið sinnt
og hver hafi tekið ákvörðun um að
kartöflurnar finnsku skyldu verða
áfram á boðstólum eftir að
skemmdimar í þeim voru ljósar.
Neytendasamtökin gera um það
tillögu að rannsóknina ánnist 5
manna nefnd sem í eigi sæti fulltrú-
ar frá landbúnaðarráðuneyti, heil-
brigðisráðuneyti, Neytendasamt-
ökunum, ASIog Verslunarráði.-v
Borgaryfirvöld gæla enn við hugmyndina um Fossvogsbraut
Þingeyingar:
Stofnuð
Friðar-
Neytendasamtökin vilja frjálsan
innflutning á kartöflum
Myndi kosta 120-600 millj.
Borgaryflrvöld fengu í vetur
verkfræðistofu til að reikna út þrjá
möguleika á framkvæmd Fossvogs-
brautar. Var reiknað út hvað kost-
aði að leggja 2Vi km langa braut
eftir Fossvogi; ofanjarðar á hefð-
bundinn hátt, neðaryarðar og nið-
urgrafna.
„Þetta er forkönnun sem við
fengum verkfræðistofu til að gera.
Það hefur ekki verið gerð nein
endanleg áætlun um Fossvogs-
braut“, sagði Ingi Magnússon gatn-
amálastjóri við Þjóðviljann. „Við
létum athuga kostnað á þremur
Gæslan:
Hættir
við
að leigja þyrlu
Landhelgisgæslan hefur hætt við
að taka Daupin þyrlu á leigu eins og
til stóð, vegna þess að kostnaður
við slíkt er óheyrilega mikill. Sem
kunnugt er var hætt við að kaupa
þyrlu fyrr í vor og þá ákveðið að
leigja eina slíka. Þá kom í Ijós að
fyrirtækið yrði svo dýrt, ef ekki
lægi fyrir endanleg ákvörðun um
hvaða þyrlutegund ætti að kaupa
þegar þar að kæmi, að hætt var við
leiguna.
Málinu hefur nú aftur verið vísað
til Jóns Helgasonar dómsmálaráð-
herra til endanlegrar ákvörðunar.
Það hefur komið fram í fréttum
hér í Þjóðviljanum fyrr í vetur að
Landhelgisgæslan er í þvflíku fjár-
svelti, að hún getur ekki gert land-
helgisskipin út öll í einu, hvað þá
lagt í þann mikla kostnað sem
leigan á þyrlu hefði í för með sér.
-S.dór
möguleikum: Venjuleg gata í jarð-
vegsyfírborði frá Blesugróf til
Kringlumýrarbrautar kostar um
130 milljónir; niðurgrafínn vegur
eftir Fossvogsdal kostar um 120
milljónir. Kostnaður við jarð-
vegsfyllingu yrði minni en aftur á
móti yllu snjóþyngsli erfíðleikum á
svona vegi. Fossvogsbraut sem yrði
undir yfirborði í steyptum veg-
göngum myndi kosta um 600
milljónir.“
Verið er að vinna reiknilíkan um
alla umferð á höfuðborgarsvæðinu
á Skipulagsstofu Höfuðborgar-
svæðisins. Gestur Ólafson sagði
Þjóðviljanum í gær að niðurstöður
muni væntanlega liggja fyrir í
haust.
Náttúruvemdarþing 1984 hefur
samþykkt áskorun á bæjaryfirvöld
sem eiga land í Fossvogsdal að
sameinast nú þegar um friðlýsingu
dalsins. -jp
Hundruð miljóna skattalækkun á bönkum
Óvíst að fari í gegn
Óvíst er hvort frumvarp íjár-
málaráðherra um að fella niður
gjöld á viðskiptabankana vegna
gjaldeyrisviðskipta og skerða
þannig tekjur ríkissjóðs um hundr-
uð miljóna á næstu árum ná fram
að ganga á þessu þingi.
Við 2. umræðu málsins í neðri
deild í fyrrakvöld lýsti Svavar
Gestsson því yfír að það væri al-
gjörlega óhjákvæmilegt að þetta
undarlega frumvarp fjármálaráð-
herra hlyti ýtarlega meðferð á Al-
þingi, jafnframt því sem hann
skoraði á ráðherrann að fresta
meðferð málsins. Það væri ekkert
vit í því að ætla að keyra í gegnum
þingið á síðustu dögum þess hundr-
uð miljón króna skattalækkun á
bönkunum á sama tíma og ríkis-
sjóður væri rekinn fyrir stórfelld
erlend lán.
~lg-
hreyfing
Friðarhreyfing Þingeyinga var
stofnuð sl. laugardag, hinn 12. maí.
Á stofnfundinn mættu um 40 manns
á aldrinum 4-83 ára en friðarhreyf-
ingin hefur nú þegar á skrá á þriðja
hundrað félagsmenn.
Á stofnfund friðarhreyfingarinn-
ar mættu fulltrúar úr Mývatnssveit,
Reykjahverfi og af Kópaskeri og
skeyti bárust frá friðarhópum
kvenna á Raufarhöfn og á Þórshöfn,
þar sem lýst var yfir þcirri ákvörð-
un hópanna að ganga í friðarhreyf-
inguna. Þá bárust einnig skeyti frá
Bandalagi jafnaðarmanna í Reykja-
vfk og frá Steingrfmi J. Sigfússyni
alþingismanni.
Á stofnfundinum var kosin
þriggja manna framkvæmdanefnd
og eiga í henni sæti: Sveinn Rúnar
Hauksson læknir, formaður, Björg
Ámadóttir nemandi, gjaldkeri, og
Þórarinn Ólafsson símvirki, ritari.
Ætlun Friðarhreyfingar Þingeyinga
er að mynda framkvæmdaráð
innan friðarhreyfingarinnar, þar
sem f eiga sæti fulltrúar úr sem flest-
um byggðarlögum í Þingeyjarsýsl-
Svavar Gestsson í útvarpsumrœðunum frá Alþingi
Komið að baráttunni
Þorsteinn Pálsson krefst nýs stjórnarsáttmála strax í sumar
„Þú veist að það er óþarfl að
þola kjaraskerðinguna og þá
niðurlægingu fátæktar og ör-
væntingar sem stjórnarstefnan
hefur leitt yfir alþýðuheimilin á
íslandi - þú veist að það er óþarfl
að þoia þetta stundinni lengur“.
Þetta sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins í eld-
húsdagsumræðunni frá Alþingi {
gær er hann hvatti verkalýðs-
hreyfinguna til baráttu.
Hann kvað greiniiegt að nú væri
leitað eftir samstöðu innan verkalýðs-
hreyfingarinnar um baráttu gegn
ríkisstjórninni og atvinnurekenda-
valdinu f landinu. íhaldsöflin hefðu
verið að gera sér vonir um ágrcining
innan verkalýðssamtakanna og að
flokkur launafólks yrði viðskila við
hreyfínguna. Tengslin hefðu hinsveg-
ar aldrei verið betri en nú og íhald^
öflin ættu eftir að sannfærast um
hvert reginafl byggi í sameinaðri
verkalýðshreyfingu.
Allir talsmenn stjómarflokkanna
réðust harkalega að ræðu Svavars
Gestssonar og var greinilegt að hún
kom helst við þá af þeim ræðum sem
fluttar voru í gær. Það bar helst til
tíðinda í umræöunum að Steingrímur
Hermannsson og Þorsteinn Pálsson
viðurkenndu báðir að árangur sá sem
náðst hefði í verðbólgumálum væri
aðeins tímabundinn og hefði náðst
fram með „markvissri" launastefnu,
það er að segja beinni kauplækkun.
Þorsteinn Pálsson kvað nauðsynlegt
að hefja nýjan þátt í stjómarstarfinu,
semja ríkisstjóminni nýja verkaefna-
áætlun með róttækum kerfisbreyting-
um nú í sumar. Steingrímur Her-
mannsson kvaðst ekki vera á móti
kerfisbreytingum en vildi þó halda
„þvf sem gott væri“. Svavar Gestsson
benti í ræðu sinni á það að ríkisstjóm-
in leysti engin vandamál um þessar
mundir, heldur skyti þeim aðeins á
frest. Engin samstaða væri um fram-
tíðarstefnu og órækasti vottur þess
væm yfirlýsingar formanns Sjálfstæð-
isflokksins um að semja þyrfti nýjan
stjóraarsáttmála ári eftir að stjómin
tók við völdum. Steingrímur Her-
mannsson kvað Sjálfstæðisflokk og
Framsóknarflokk ekki myndu hverfa
frá því verkefni að „endurreisa ís-
lcnskt cfnahagslif", en Þorsteinn
Pálsson sagði að reynt yrði „til
þrautar“ í sumar hvort saman næðist
um næsta áfanga, og Sjálfstæðisflokk-
urinn myndi sýna fulla ábyrgð í því
efni að glata ekki niður fengnum
ávinningi á leiðinni til „efnahagslegs
jafnvægis“.
- ekh