Þjóðviljinn - 25.05.1984, Síða 5
Háskólabíó
kl. 14 á morgun
„Æðisleg
sumarhátíð“
„Æðisleg sumarhátíð“ verður
haldin á morgun, laugardaginn 26.
maí í Háskólabíói kl. 14.00. Meðal
þeirra sem koma fram eru þessir:
Break-bræður, Hljómsveit Magn-
úsar Kjartanssonar, Eiríkur Fjal-
ar, Crazy Crew, Dúkkulísur, Vikt-
or og Baldur, Kiddi sóló-breikari,
Laddi og nokkrir bráðhressir
Bread-dansarar að auki.
Allir gefa vinnu sína og rennur
ágóðinn til fyrstu alþjóðlegu
sumarbúða barna á íslandi sem
haldnar verða í júlímánuði. Sumar-
búðirnar eru á vegum CISV sem
eru alþjóðleg samtök er starfa með
börnum og að friði í heiminum.
Börnin sem taka þátt í alþjóðlegu
sumarbúðunum á íslandi í sumar
eru frá 11 löndum: Costa Rica,
Bretlandi, Spáni, Bandaríkjunum,
Frakklandi, Mexico, Kanada, Nor-
egi, Danmörku, Færeyjum og ís-
landi.
-v.
Mót skólalúðrasveita
á Norðurlandi
100 blásarar
Mót skólalúðrasveita á Norður-
landi eystra verður haldið að
Ýdölum í Aðaldal, S-Þingeyjar-
sýslu á laugardaginn 26. maí og
hefst kl. 16. Einnig verður blásið á
Húsavík í Félagsheimilinu kl. 17 á
sunnudag.
Fram koma 4 hljómsveitir, alls
100 nemendur. Stjórnendur
sveitanna eru Finnur Eydal,
Edvard Fredrikssen, Benedikt
Helgason og Guðmundur Norð-
dahl. Efnisskrá tónleikanna er létt
og fjölbreytt, sveitirnar leika einar
sér og allar saman í lokin.
Gæjar og píur!:
Alltaf uppselt
Á laugardag verður 25. sýning í
Þjóðleikhúsinu á söngleiknum
„Gæjar og píur“ og er fyrir löngu
uppselt á þá sýningu, svo og á næstu
sýningu sem verður á laugardag.
Vinsældir þessa ágæta söngleiks
eftir þá Frank Loesser, Jo Swerling
og Abe Burrows eru með ólíkind-
um og leikhúsgestir víla ekki fyrir
sér að standa í löngum biðröðum til
að ná sér í miða. Næstu sýningar
verða á þriðjudag og fimmtudag í
næstu viku.
íbúasamtök
Vesturbæjar Syðri
Hverfís- og
fjöruhreinsun
íbúasamtök Vesturbæjar syðri
gangast fyrir árlegri vorhreinsun í
hverfinu laugardaginn 26. maí.
Hreinsunardeild Reykjavíkurborg-
ar leggur til plastsekki, og munu
þeir liggja frammi á laugar-
dagsmorguninn við þrjár verslanir
í hverfmu, KRON við Dunhaga,
Melabúð á horni Hofsvallagötu og
Hagamels, og Skjólakjör við Kapl-
askjólsveg og Sörlaskjól.
Mjög mikið rusl er nú um götur
og garða, torg og fjörur hverfisins,
eftir langan og snjóþungan vetur,
en íbúasamtökin vonast til þess að
margar hendur munu gera verkið
létt að hreinsa til fyrir sumarið.
um helgina
Vestfiröingar fá góöa heimsókn um helgina.
Karlakórinn Fóstbræður heldur í
söngför til ísafjarðar í dag og held-
ur tónleika í Bolungarvík og á Isa-
firði.
Föstudaginn 25. maí heldur kór-
inn tónleika í félagsheimilinu í Bol-
ungarvík og hefjast þeir kl. 20.30.
Laugardaginn 26. maí heldur kór-
inn svo tónleika í Alþýðuhúsinu á
ísafirði og hefjast þeir kl. 20.30.
Aðgöngumiðar verða seldir við
inngang á báðum stöðum.
Söngstjóri Fóstbræðra er Ragn-
ar Björnsson, skólastjóri Nýja
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Undirleikari er Jónas Ingimundar-
son, píanóleikari.
Einsöngvari með kórnum eru
Kristinn Sigmundsson,
óperusöngvari og Björn Emilsson,
einn kórfélaga.
Á efnisskrá eru þjóðlög frá ýms-
um löndum og verk eftir þekkt tón-
skáld, m.a. Maurice Ravel, Elgar,
Karl Zelter, svo einhverra sé getið.
Óhætt er að fullyrða að efnisskráin
sé afar fjölbreytt og skemmtileg,
enda hlaut hún góðar viðtökur
áheyrenda á vortónleikum kórsins
í Háskólabíói í aprílmánuði sl.
Fóstbræður hafa kappkostað um
langt skeið, að halda árlega tón-
leika víða um land og er kórnum
það mikið ánægjuefni að fá nú tæk-
ifæri til að sækja ísafjörð og Bol-
ungarvík heim.
Friðarhreyfing íslenskra kvenna:
Aðalfundur laugardag
Aðalfundur Friðarhreyfinar ís-
lenskrar kvenna verður haldinn
laugardaginn 26. maí í Norræna
húsinu og hefst hann kl. 10 árdegis
og mun standa til kl. 17.00. Fyrir
fundinum liggur m.a. tillaga til lag-
abreytinga fyrir Friðarhreyfing-
una, sem nokkrar konur úr mið-
stöð bera fram.
Fyrir hádegi verður fjallað um
skýrslu miðstöðvar og reikninga
hreyfingarinnar, ,ennfremur um
Handavinna þroska-
heftra í Gerðubergi
Síðasta
sýningarhelgi
Sýningu á handavinnu nemenda
Þroskaskóla ríkisins í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi lýkur
nú um helgina. Þá lýkur einnig um
helgina sýningu á málverkum eftir
Sigurð Jónsson sem sýnd eru í
Gerðubergi.
skipulag, hugmyndagrundvöll og
verkefni hennar og sagt verður frá
starfi friðarhópa og framtíðarverk-
efnum. Gestur fundarins er Elín
Bruusgaard frá Noregi og mun hún
flytja ræðu eftir hádegi. Elín er
þekkt víða um heim fyrir störf sín
að þróunarhjálp og sem fulltrúi í
norsku sendinefndinni á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna. Hún
hefur skrifað bók um reynslu sína
af þessum störfum og kom sú bók
út á íslensku fyrir síðustu jól í þýð-
ingu Sigríðar Thorlacíusar undir
nafninu „Augliti til auglitis".
Frá kl. 14.00 munu umræðuhóp-
ar starfa og síðan verða almennar
umræður, afgreisla tillagna og
kosning niðurstöðvar. Eins og áður
sagði liggur fyrir tillaga um breytt
skipulag hreyfingarinnar þannig að
hún starfi í framtíðinni á sama hátt
og önnur félög.
Aðalfundur þessi er hinn fyrsti í
sögu Friðarhreyfingar íslenskra
kvenna, en hreyfingin er aðeins
ársgömul. Fundurinn er opinn
öllum konum, er styðja markið
hreyfingarinnar, sem er m.a. sinna
að stöðvun í framleiðslu
kjarnorkuvopna og eyðingu þeirra
sem til eru.
Föstudagur 25. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Tveir kórar úr Kópavogi:
Ólafur Sveinsson við eina mynd sína, „Hulduvor“.
Ný sýning í Þrastalundi:
Á morgun, laugardaginn 25. maí
opnar ólafur Sveinsson mynd-
listarmaður sýningu í Þrastarlundi í
Grímsnesi.
Þetta er önnur einkasýning Ólafs
og nefnir hann hana „Ástina og
vorið“. Á sýningunni sem stendur
til 8. júní eru um tveir tugir vatns-
litamynda sem allar eru unnar á
þessu ári. Á hausti komanda siglir
þessi tvítugi myndlistarmaður til
Flórens í Ítalíu í myndlistarnám.
Austfirðingar:
Margrét og
Hjálmtýr halda
söngtónleika
Nú um helgina halda hjónin
Margrét Matthíasdóttir og
HjálmtýrE. Hjálmtýsson söngtón-
leika á Seyðisfirði og í Nes-
kaupstað. Tónleikarnir á Seyðis-
firði verða í Herðubreið og hefjast
kl. 20.30 á laugardagskvöld og í
Egilsbúð í Neskaupstað á sunnu-
daginn kl. 16.
Undirleikari þeirra hjóna er Da-
vid Roscoe, en hann er tónlistar-
kennari og organleikari á Reyðar-
firði og Eskifirði. Á tónleikunum
Hjónin Margrét og Hjálmtýr
heimsækja Austf irðinga um helgina,
en þau eru vel þekkt fyrir söng sinn
rétt eins og ein dóttirin, sem er hún
Diddú!
verður fjölbreytt söngtónlist, ein-
söngur og tvísöngur. Á efnisskr-
ánni eru íslensk, norsk og sænsk
lög, negrasálmar og ítölsk lög og
aríur.
Heimsækja Eyjar
Nú um helgina fara tveir kórar úr Kársnes- og Þingholtsskóla í Kópa-
vogi í söngferð til Vestmannaeyja. í kórnum eru 60 börn á aldrinum 9-16
ára. Tónleikar verða í Félagsheimili Vestnrannaeyja laugardaginn 26. maí
klukkan fimm. Stjórnandi kóranna er Þórunn Björnsdóttir.
Ray Cartwright við tvö verk sín í
Eden.
Ray er 36 ára Breti fæddur og
uppalinn í Lundúnum en flutti til
Islands fyrir fjórum árum og hefur
ísland haft mikil áhrif á hann sem
sýnir sig í verkum hans.
„Scraperboard” er spjald með
hvítu krítarundirlagi en svörtu vax-
blek yfirlagi og eru því myndirnar
ristaðar eins og enska nafnið ber
með sér, sem er í lausri þýðingu
„spjald ristun".
Þetta er þriðja sýning Rays í
Eden, en hann sýndi einnig „scrap-
erboard" myndir á Borgarspítalan-
um í haust. Á sýningunni í Eden
eru 12 olíumálverk og 20 „scraper-
board" rnyndir og eru allar mynd-
irnar til sölu.
Ray sýnir í Eden